Morgunblaðið - 10.05.1945, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.05.1945, Blaðsíða 1
REYkVÍklNGAR FAGNA RIÐIMLHi Forssli ísiands flylur ræðu Forseti íslands flyt ur ræðu af svölurn Aljíingishússins. Göring og Hópgöngur til sendiherra Dana og IVorðmanna Kvöldóspektir valda stórtjóni EFTIR HÁDEGIÐ í fyrradag, 8. maí. var efnt til mikilla hátíðahalda hjer í Reykjavík, og verður skýrt frá þeim nánar hjer í blaðinu. Forseti íslands og forsætisráðherra fluttu ræður af svölum Alþingishússins, en að þeim loknum voru sendiherrar sameinuðu þjóðanna hjer hyllt- ir á svölunum af mjög miklum mannf jölda, sem hafði safn ast saman við Austurvöll. Að þessu loknu var flutt messa í dómkirkjunni af biskupnum yfir íslandi. Voru æðstu menn þjóðarinnar þar viðstaddir. Þá efndi Norræna fje- lagið til hópgangna til sendiherra Norðmanna og Dana og voru flutt þar ávörp, en sendiherrar svöruðu. Fór þetta alt fram með mikilli prýði. Er á kvöldið leið, tók að bera á ölvun og uppsteit í bænum og urðu af þessu mestu ólæti og ryskingar, sem hafa þekkst hjer í Reykja- vík. Varð lögreglan að beita táragasi, og einnig í gær- kvöldi, því þá kom líka til uppþota og ollu þeim mest breskir sjóliðar, eins og fyrra kvöldið, en þá voru brotnar rúður í húsum hjer í bænum fyrir á annað hundrað þús- und krónur, að því er talið er. Himmler í Svíþjóð Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. GÖRINÖ marskálkur er á valdi bandamanna, og einnig Kesselring, fyrrum yfirhers- liöfðingi Þjóðverja á Vestui’- vígstöðvunum. Þá herma lausa fregnir, að Ileinrich Ilimler sje nu í Svíþjjóð, en það er ekki staðfest enn sem koniið * er. Göring var tekinn af sjöunda herntmi. ameríska í húsi einu í dal í Suður-Þýskalandi. Vai’ kona lians og dóttir þar með honum og margir aðstoða- anenn. Segir Göring, að hann hafi sloppið eftir að vera dænri ur til dauða þann 24. apríl sl.,. fyrir að stinga upp, á þvi, að Jiann tæki við af Ilitler, en varðmennirnir hafa slept hon- um. Frjettaritari einn ræddi við Göring, og var hanh hinn reif- asti, eins og hann byggist við öllu hinn besta áf bandamönn- um. Er hann nú í gistilnisi einu í Snður-Þýskalandi og fjöl- skylda hans og fyl-gdarlið með hontim. fíöring var svo lýst, að hann i'rarah. á ols. 12 Göring. Kesselring. Afvopnun Þjóðverja í Noregi byrjuð Quisling er nú íangi London í gærkveldi. Einkaskeyti lil Mbl blaðsins frá Reuter. NORSKT lið hefir nú byi'jað að afvopna hinn þýska her í Noi'egi og mun halda því áfram, til þess að ljetta undir með herjum bandamanna. Quisling hefir gefið sig fram við norsku lögregluna og vei-ið settur í hald í stöðvum þeim, er Gestapo í Oslo hafði áður. Ennfremur hafa þeir verið handteknir ráð- herrar hans, Fuglesang, Jonas Lie og fleiri..— Ólafur krónprins hefir lálið í ljós gleði sína yfir því, að Noi'egur vai’ð ekki orustuvöllur. Miklar járnbrautalestir fai'a nú frá Svíþjóð til Noregs með oorska flóttamenn, sem verið hafa í Svíþjóð að undanförnu. dafa ýmsir þessara manna ver- ið þjálfaðir í lögreglustörfum, •og munu aðstoða við það að handtaka lið Þjóðverja. Til Osloar er kominn útvarpsfyr- ii'lesai’inn Öksnevad og hefir tekið til starfa. Berggi’av bisk- up hefir skipað svo fyi'ii', að all ir prestar, sem stutl hafi Quisl- ing og flokk hans, skuli sviftir embættum sínum. Talið er að von sje á bresku og norsku fallhlífaliði til Noregs innan mjög skamms tíma. Leopold konungur leystur úr haldi London í gærkvöldi. LEOPOLD Belgíukonungur hefir ásamt fjölskyldu sinni ver ið leystur úr haldi, en hann hafði verið fangi hjá Þjóðverj- um á Salzburgsvæðinu í Aust- urríki um mörg ár. Voru það hermenn úr 7. Bandaríkjahern um, sem fundu dvalarstað hans. Hann hafði verið í strangri j gæslu S.S.-manna. — Talið er, ! að konungurinn muni koma til j Bi’uxetles, höfuðborgar sinnar 1 í kvöld seint, eða á moi’gun. I fyrramorgun voru fánar dregnir að hún á flestum hús- um bæjarins í tilefni friðarins. Var bærinn fagur yfir að líta, allur fánum skreyttur í sól- skininu og blíðunni. En það var einnig sólskin í svip þeirra, sem maður hitti á götunni, allir virtust vera þátttakendur í þeim almenna fögnuði, sem hinn langþráði friður hefir vakið. Kl. 1 endurvarpaði útvarps- stöðin í Reykjavík ræðu Chur- chill forsætisráðherra Breta, þar sem hann tilkynti uppgjöf Þjóðverja og lok styrjaldai'inn- ar í Evrópu. Að lokinni ræðu Churchilis tóku eimpípur skipa, sem lágu hjer á höfninni, að blása og hjeldu því áfram langa stund. Ríkisstjórnin og borgarstjórn in í Reykjavík gengust fyrir hátíðahöldum sem hófust kl. 2 með ræðu forseta íslands, hr. Sveins Björnssonar, sem birt er á öðrum stað í blaðinu. Að lok- inni ræðu forseta tók til máls forsætisráðherra Ólafur Thors og fer ræða hans hjer á eftir: íslendingar! ÞJER HAFIÐ þegar heyrt gleðiboðskapinn. Evrópustyrj- öldinni er lokjð. I nær 6 ár hafa tug-miljóna herir frá flestum hinum voldug ustu herveldum heimsins. bún ir ógurlegri vígvjelum en fleyg an mannsandann gat til skamms tíma órað fyrir, háð um nær Jramh. á 2. síðu i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.