Morgunblaðið - 10.05.1945, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.05.1945, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 10. maí 1945. jí Uaarp CUJJL /La Lisráólierm I3reta á Jri&juda'ff FRELSIÐ LENGI LIF Þjóðverjar eru sigr- aðir. Gleymum ekki erfiðleikunum sem framundan eru Churchill. London þriðjudag. í GÆRMORGUN undii - riíaði Jodl hershöfðingi, fulltrúi þýsku herstjórnar- innar og Dönitz stóraðmír- áls, í aðalstöðvum Eisen- howers hershöfðingja, skil- yrðislausa uppgjöf alls her- afla Þjóðverja í Evrópu, á landi, sjó og í lofti. ★ GEFIST var upp fyrir her- afla Breta og Bandaríkja- manna og jafnframt Bússa. — Bedell Smith, herráðsforingi og Francois Sevez, undirrituðu samninginn fyrir hönd æðstu Iierstjórnar innrásarherjanna og Suslapatov fyrir hönd rúss- nesku herstjórnarinnar. ★ I DAG mun þetta samkomu- Sag verða staðfest í Berlín, þar sem að Tedder flugmarskálk- tir, fulltr. æðstu yfirherstjórnar innrásarherjanna og Tassigny Eershöfðingi munu undirrita þá fyrir hönd Eisenhowers hers- höfðingja. Zukov hershöfðingi mun undirrita þá fyrir hönd yf- irherstjórnar Sovjetlýðveld- anna. Þýsku fulltrúarnir munu verða Keiíel marskálkur, for- tnaður þýska herforingjaráðs- ins og yfirmenn þýska landhers ins, flotáns og lofthersins. ★ HERNAÐAKAÐGERÐUM mun forml. Ijúka einni mínútu eftir miðnætti í nótt, þriðjud. 8. maí, en til þess að spara tnannslíf var vopnaviðskiptum fiætt í gær, og það kunngjört um allar vígstöðvarnar og á ökkar ástfólgna eylandi. ÞJÓÐVERJAR verjast Rúss- um ennþá á einstaka stöðum, «n ef þeir halda áfram að berj- ast gegn þeim eftir miðnætti, tnunu þeir að sjálfsögðu svipta sig vernd herlaga og mun þá ráðist á þá frá öllum stöðvum tierja bandamanna. ★ ÞAÐ er ekki að undra, að á svona langri víglínu og í ann- ari eins upplausn óvinarins að skipunum þýsku herstjórnar- tnnar um uppgjöf hafi ekki alls staðar verið hlýtt. Þrátt fyrir fietta finnst okkur ekki ástæða <il að halda leyndum fyrir þjóð ínni staðreyndum, sem Eisen- liovver hershöfðingi hefir til- kynnt okkur um skilyrðislausa wppgjöf, er þegar hefir verið undirrituð í Rhcims, nje held- ur að láta það hindra okkur í Jþví, að halda þennan dag há- tíðlegan og morgundaginn, mið vikudag, sem sigurdag í Ev- rópu. I dag ættum við ef til vill fyrst og fremst að hugsa um okkur sjálfa. A morgum skul- iim við minnast hinna rúss- nesku fjelaga okkar, sem lagt hafa með framsókn sinni á or- ustuvellinum, glæsilegan skerf til hins sameiginlega sigurs. Þýskalandsstyrjöldinni er þessvegna lokið. Eftir margra ára ákafan undirbúning kastaði Þýskaland sjer yfir Pólland í byrjun september 1939, og í samræmi við yfirlýsingar c<kk- ar til Póllands og í samráði við franska lýðveldið, lýsti Stóra Bretland og bresku samveldis- löndin yfir styrjöld vegna þess arar svívirðilegu árásar. Eftir að hin glæsilega franska þjóð hafði verið að velli lögð, hjeld- um við frá þessari eyju og frá samveldislöndunum einir áfram baráttunni í heilt ár, þangað til að Sovjet-Rússland og síðar hinn geysilegi herstyrkur Banda ríkjanna, sameinaðist okkur í baráttunni. Að lokum var næstum því öll veröldsn sameinuð gegn illvirkj unum, sem nú liggja flatir fyr- ir oss. Þakklæti vort til hinna giæsilegu bandamanna vorra streymir frá hjarta hvers ein- asta manns á þessari eyju og um alt breska heimsveldið. — Við getum leyft okkur stutta fagn- ; aðarstund, en við skulum ekki gleyma eitt augnablik erfiðinu og starfinu, sem framundan er. Japan með allri sinni sviksemi og græðgi, er ennþá ósigrað. — Það tjón, sem það hefir valdið Stóra-Bretlandi, Bandaríkjun- um og öðrum þjóðum, og hin svívirðilegu grimdarverk Jap- ana krefjast rjettlætis og refsi- aðgerða. Við verðum nú að verja öllum kröftum okkar og styrk- lcika til þess að fullkomna verk vort, bæði heima og er- lendis. Áfram Rretland. Lengi lifi málstaður frels- isins. Guð blessi konunginn. Lík Kambant fiutt bekn FREGNIR hafa borist hingað um það, að lík Guðmundar Kamban rithöfundar muni verða flutt hingað heim til ís- lands til grpftrunar, en fyrst verði mirr ’garathöfn haldin í Kaupma.n ?höfn. Forsetahjónin heim- sækja vorsýningu Handíðaskólans FORSETI ÍSLANDS og frú hans, ásamt Pjetri Eggerz, rit- ara forseta, heimsóttu vorsýn- ingu Handíðaskólans í sýning- arsal Hótel Heklu síðdegis í gær. Lúðvíg Guðmundsson skólasijóri var þar fyrir ásamt föstum kennurum skólans, þeim Kurt Zier listmálara og Gunn- ari Klængssyni smíðakennara. Forsetahjónin skoðuðu sýn- inguna með mikilli alhygli og áhuga og fóru lofsamlegum orð um um starfsemi skólans og þann góða árangur, sem hann hefir náð í starfi sínu á örfáum árum. Skólastjórinn bað þau hjónin þiggja að gjöf frá skól- anum, samkvæmt eigin vali, hverja þá vatnslitamynd eða teikningu, sem á sýningunni er og ekki væri þegar seld. Þakk- aði forsetinn gjöfina og valdi sjer pennateikningu, sem Einar Baldvinsson (Einarssonar söðla smiðs) hafði gert, en Einar er einn af nemendum myndlistar- deildar skólans. Svo sem kunnugt er, ,gaf skól inn núverandi forseta íslands fyrir tveimur árum vandaðan og fagran kertastjaka úr smíða járni, sem einn af nemendum kennaradeildarinnar, Jóhannes Jakobsson, hafði smíðað. Ovíst er hvört þessi myndar- lega og glæsilega sýning Hand- iðaskólans verður opin lengur en til kl. 10 í kvöld. Æltu því allir, sem áhuga hafa á starf- semi skólans, að nota læki- færið í dag. Sýningin er opin kl, 1—7 og 8—10 síðdegis. Til þessa háfa nál. 1600 manns sótt sýninguna. „Keiduhíerfisiregn" r á fereiki í Iriandi London í gærkvöldi. IRSKA stjórnin hefir neitað algjörlega að sönn sje fregn, sem upp hefir komið um það, að Hitler, Himmler og William Joyce útvarpsfyrirlesari (Lord Haw Haw) hafi verið í þýskri flugvjel, sem nauðlenti í ír- landi nú nýlega. I vjelinni voru þrír lágtsettir liðsforingjar 'úr þýska flughernum. — Reuter. Uppgjafaskilmálar undirritaðir í Berlín London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. KLUKKAN 24.10 í nótt sem leið voru allshe'rjar-uppgjafar- skilmálar undirritaðir í Berlín af hálfu bandamanna annars- vegar og fulltrúa þýsku herstjórnarinnar hinsvegar. I forsæti nefndar þeirrar, sem undirritaði af hálfu bandamanna, var Zukov marskálkur, en með honum Tedder flugmarskálkur fyrir hönd Eisenhowers, Spaats flugforingi og Le Lattre de Tassigny fyrir hönd frönsku herstjórnarinnar. Danska þingiS sett s London í gærkvöldi. DANSKA þingið var sett í gær, að aflíðandi hádegi. Fór konungur frá Amalienborg til Christiansborg, og var honum hvarvetna fagnað ákaflega af óhemju miklúm mannfjölda. Breskir fallhlífahermenn stóðu heiðursvörð. Konungur setti síðan þingið, en að lokinni ræðu hans tók til máls Wilhelm Buhl forsætis- ráðherra og flutti ræðu um það, sem lægi fyrir danska þinginu og stjórninni að gera. Mintist hann á ýmis vandamál sem y.rði að kippa í lag sem fyrst, þar á meðal að auka atvinnu og koma viðskiftunum í fyrra horf. Þá ræddi Buhl um það, að refsa þyrfti landráðamönn- um af mikilli festu, og ennfrem ur sjá um byggingu allmargra bráðabirgðahúsa. (Listi yfir hina nýju dönsku stjórn birt- ist á öðrum stað hjer í blað- inu.) Síðasfa tilkynningin London í gærkvöldi. SÍÐUSTU herstjórnartilkynn ingu Þjóðverja var útvarpað frá Flensborg í dag. Hljóðaði hún þannig: ,,Byssurnar eru þagnaðar“. Frakkar hafa tekið setulið Þjóðverja í borgunum á vesturströnd Frakklands hönd- um. Einnig hafa herir Þjóð- verja á Tylftareyjum og öðrum eyjum í Miðjarðarhafi gefist upp. Þá hafa sveitir Þjóðverja á Bornhólmi lagt niður vopnin og sömuleiðis í Tjekkóslóvakíu allri. — Reuter. Hraðkepni Ármanns i dag HRAÐKEPNI Ármanns í handknattleik karla fer fram á íþrótlavellinum í dag. Eins og áður. hefir verið getið um, keppa 8 flokkar, tveir frá Ár- manni og einn frá Víking, Fram, Val, í. R., Haukum og F. H. hvoru. Kepnin hefst kl. 2 e. h. Fyrst keppa A-lið Ármanns og Hauk ar, þá Víkingur og í. R., þá Valur og F. H. og loks B-lið Ármanns og Fram. Þeir sem þá sigra keppa síðan saman tveir og tveir. Hefst sú kepni kl. 8,30. Síðan keppa svo sig- urvegai’arnir þá lil úrslita. Þarf ekki að draga í efa, að kepni verður hörð og tvísýn. Zukov í forsæti. Zukov marskálkur var í for- sæti, en að baki honum og fje- lögum hans hjengu fánar Banda ríkjanna, Bretlands, Sovjetríkj anna og Frakklands. Zukov til- kynti þvínæst, að von væri á fulltrúum þýsku herstjórnar- innar, til þess að undirrita skil- máta um skilyrðislausa upp- gjöf. Skömmu síðar komu svo þýsku fulltrúarnir inn. Voru það þeir Keitel marskálkur, j'firmaður þýska herforingjá- ráðsins, Stumpf marskálkur fyr ir hönd lofthersins og von Friedeburg flotaforingi fyrir hönd flotans. Undirrituðu þeir skilmála, sem eru birtir ann- arsstaðar hjer í blaðinu. Að því búnu drógu þeir sig í hlje. Komu með Bretum. Samningamennirnir komu í breskri flugvjel frá Flensborg, cn þar er nú aðsetursstaður Dönitz og stjórnar hans. Þeir lögðu fram umboð frá Dönitz, áður’ en þeir rituðu undir samn ingana. Er þeir höfðu undir- skrifað þá, flugu þeir með sömu flugvjel sömu leið til baka. Ríkissijórnin æskir skýrslu um fráfall FREGNIN UM hin sviplegu afdrif GuSmundar Kambans hefir, sem eðlilegt er, vakið geisimikla athygli. Hin fyrsta spurning,, sem vaknar í hugum manna, er það, hvað hann hafi gert af sjer. h&nn hafi gergið erinda Þióð- verja. En að órannsökuðu máli verður það látið liggja á milli hluta. Blaðið hefir átt tal um þetta mál við Ólaf Thors forsætis- og utanrikismálaráðherra. Hann skýrði svo frá: Þegar jeg fjekk tilkynning- una um atburð þenna, símaði jeg að sjálfsögðu sendifulltrúa íslendinga í Danmörku, Jóni Krabbe og bað hann um að annast að hingað kæmi sem fyrst ítarleg skýrsla um at- burð þenna. Tel jeg það skyldu mína, sem utanríkismálaráðherra að lata hjer við sitja að svo stöddu máli, þó það, sem hjer hefir gerst, valdi mjer, sem íslend- ingi og einkávini Guðmundar Kambans, sárra harma. Barnaspítalasjóði Hringsins bárust kr. 5000.00 (fimm þúsund) þann 5. maí, frá hjónunum S. og T. — Kærar þakkir frá stjórrí Hringsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.