Morgunblaðið - 08.06.1945, Blaðsíða 2
11 ir]T'|
UIGBGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 8. júní 1945,
y *
0»^*^ fðp^ íslands.er c'u-sa V1 ku
HannfuUnkgir öUum 4JW
sferarmriar iftn Igör Jorac-ta IjStSt
lan3-^k''?raí Þl?SSU l4sir H«sf‘rttfur !k
er réít kjörmn
utn morrimabil )jað,«»em hef r j aaúst loM
°B 3l.jálí ip4o. h 1 H ^7
Kcykjitoiu jfljöm 1«
^v &/,* , <s, ■-ír-vvw __ ,.w- , -o>r ,
V
-ÁYVA, - 44
iörbrief forseta Islands
Jfjer
birtist mynd af kjörbrjefi forseta Islands.
Ljósm.: Vigfús Sigurgeirsson.
f Forsetinn
ÍFramh. af bla 1.
íorseta íslands með, þessum
orðum, en allir viðstaddir risu
•úr sætum:
Herra forseti Islands!
I umboði jþjóðarinnar fær
Hæstirjettur yður í hendur
ikjörbrjef þetta. Njótið heill
ikjörsins. Gæfa og gengi fylgi
yður, landi voru og lýð.
Er forseti Islands hafði tekið
við kjörbrejfinu, mælti hann á
Joessa leið;
Herra forseti Hæstarjettar!
Um leið og jeg veiti kjör-
Tbrjefi þessu móttöku, vil jeg
votta yður þakkir fyrir þau
íárnaðarorð, sem þjer mæltuð
■íil mín. Svo árna jeg Hæsta-
jfjetti heilla.
Lýsti því næst ritari Hæsta-
a jettar þessu þingi Hæstarjett-
tur slitið.
★
Var þá þessari sögulegu at-
S'»öfn lokið. Hún var stutt, en
(virðuleg.
Kjörbrjef forseta íslands var
•r.jög skrautiegt og fagurlega
■jgert. Það var bundið í skinn
«og hafði bókbandsstofa Ársæls
Arnasonar annast það verk.
íSkrautritunina hafðí gert Bald-
■vin Bjömsson, gullsmiður. Alt
"var þetta gert af hinni mestu
prýði.
Það átti vel við að láta þessa
-atböfn fara fram í hátíðasal
IMentaskólans. en þar hafði Al-
Jaingi, sem kunnugt er, setu um
Jangt skeið og alt þar til að það
Xtuttist í eigin húsakynni.
Ekkert gluggaokur.
Frá norska blaðafulltr.: Verð
lagsstjórn Noregs hefir ákveðið
að stemma stigu fyrir því, að
ctaðir við glugga umhverfis
Karl-Johansgötu, verði ekki
seldir áhorfendum við okur-
verði, heldur aðeins 5 kr. fyrir
Kynnisferðir bænda
HÓPFERÐIR allmargra
bænda*er nú verið að undirbúa
á vegum Búnaðarfjelags ís-
lands. Er hjer um tvenna stóra
hópa að ræða af Norður- og
Vesturlandi. Búnaðarsamband
Suður-Þingeyinga gengst fyrir
bændaför úr sýslunni hingað
suður og er áætlað að hún
standi 'yfir í 10 daga alls og
verða þátttakendur væntanlega
um 175. Fara þeir hinn fyrsta
dag að Hólum í Hjaltadal, ann-
an að Hvanneyri en þriðja til
Reykjavíkur. Síðan fer leiðang
urinn austur í Árnes-, Rangár-
valla- og Vestur-Skaftafells-
sýslu, lengst til Víkur í Mýrdal.
Verður farið um Þingvelli,
Sogsfossa, Geysi, Laugarvatn,
fyrsta daginn, en annan um
Selfoss að Sámsstöðum í Fljóts
hlíð og til Víkur, en þriðja dag-
inn frá Vík til Reykjavikur.
Reynt verður að sýna ferða-
fólkinu sem flest markverðast
á þessum leiðum og verður
Ragnar Ásgeirsson, ráðunautur
leiðsögumaður þess um Suður-
lar.d.
Búnaðarsamband Vestfjarða
gengst fyrir annari hópferð.
Verður í henni fólk úr Barða-
strandar-, ísafjarðar- sýslum
og úr Strandasýslu, væntanlega
90 þátttakendur. Verður Stein-
grímur Steinþórsson búnaðar-
málastjóri fararstjóri Vestfirð-
inganna og fara þeir að Hólum
í Hjaltadal, til Akureyrar, Mý-
vatnssveitar, Ásbyrgis og það-
an austur á Fljótsdalshjerað.
Slíkar kynnisferðir bændanna
i landinu geta orðið þýðingar-
miklar ef þær takast vel og
hafa nokkrar slíkar verið farn-
ar síðari árin. Fjölmennust Yar
sú sem Búnaðarsamband Suður
lands efndi til fyrir nokkrum
árum norður í land í tilefni
af 25 ára afmæli sínu.
Kveðja fil nemenda
Flensborgarskólans
EFTIRFARANDI brjef hefir
blaðinu borist. Flensborgar-
skólinn er nú búinn að starfa
í 63 ár og nemendur hans eru
svo dreyfðir, að enginn mögu-
leiki er að ávarp nái til þeirra
allra, sem nú eru á lífi, nema
með aðstoð blaðanna:
Rvík, annan dag páska 1945.
Við, sem ritum nöfn okkar
undir brjef þetta, og öll höfum
stundað nám í Flensborgarskól
anum í Hafnarfirði, höfum orð-
ið sammála um, að ánægjulegt
væri, að skólinn eignaðist biyóst
líkan af Jóni Þórarinssyni, og
væri það gjöf frá nemendum
skólans. Engum mundi ljúfara
að leggja sinn skerf til þessa en
þeim, er sjálfir voru nemend-
ur Jóns, því að allir munu þeir
hafa borið einn og sama hug til
hans og öllum mun þeim minn-
ing hans kær. En einnig hinum,
sem verið hafa i skólanum eftir
að Jón Þórarinsson fór þaðan,
mundi að líkindum kært að
minnast stofnunarinnar á þenna
hátt, svo órjúfanlega sem nafn
Jóns er við skólann tengt, og
víst var það hann, sem fyrstur
gerði þar garðinn frægan. Við
erum í engum vafa um það, að
úr flokki þeirra Flensborgara,
sem í skólanum hafa verið eft-
ir að Jón Þórarinsson ljet þar
af stjórn, mundu þjóðkunnir
ágætismenn með sjerstakri
ánægju hafa ritað nöfn sín und-
ir ávarp þetta, ef þess hefði
verið farið á leit við þá. En hitt
varð að ráði, að leita ekki á
þann hátt beint til þeirra, er
eigi höfðú sjálfir verið nem-
endur hans.
Nú er við höfum rætt þetta
mál við ýmsa Flensborgara, og
hvarvetna við bestu undirtekt-
ir, hefir það ráðist, að við skrif
uðum þetta brjef, sem við nú
leyfum okkur að biðja blöðin
að birta. Framlög frá hverjum
einum yrðu að sjálfsögðu eftir
hans eigin högum og óskum,
og viljum við biðja um að þau
verði send til Egils Hallgríms-
sonar kennara á Bárugötu 3,
í Reykjavík.
Brjóstlíkanið hefir Ríkarður
Jónsson listamaður lofað að
gera þegar þar að kemur. Von-
um við að nægilegt fje fáist til
þess að á sínum tíma verði unt
að steypa það í eir.
Með bestu kveðjum og fyrir-
fram þökk íyrir liðsinni í mál-
inu,
Aðalbjörg Sigurðardóttir frú,
kennari. Ásgeir G. Stefánsson
framkv.stj. Ásmundur Gestsson
kennari. Björn H. Jónsson skóla
stjóri. Egill Hallgrímsson kenn-
ari. Einar Arnórsson dr. jur.,
fyr ráðherra og hæstarjettar-
dómari. Gunnlaugur Krist-
mundsson sandgræðslustj. Hall
dór Hansen dr. med. Knud
Zimsen fyr borgarstjóri. Lárus
Bjarnason fyr skólastjóri. Ól-
afur Böðvarsson sparisjóðsstj.
Ólafur Proppé konsúll, framkv.
stjóri. Sigurgeir Gíslason fyr
sparisjóðsgjaldkeri. Snæbjörn
Jónsson bóksali. Þórarinn Eg-
ilson framkv.stj.
BEST AÐ AUGLYSA I
' MORGUNBLAÖINU.
Aímæli Guðmundar
Kamban í dag
í DAG er afmælisdagur Guð-
mundar Kamban leikara og rit
höfundar. Hann hefði orðið 57-
ára í dag, ef hann hefði lifað.
— í Morgunblaðinu þegar hann
varð fimtugur, var þetta meðal
annars sagt um hann:
„Guðmundur ’Kamban rithöf
undur átti fimtugsafmæli í gær.
Þess var ekki minst hjer á landi
Vinir Kambans hjer höfðu ekki
veitt þessum merkisdegi æfi
hans eftirtekt. Þó er þetta mað-
ur, sem í aldarfjórðung hefir
staðið í fremstu röð islenskra
skálda og rithöfunda. Lengst af
þeim tíma hefir hann dvalist er-
lendis.
Þó afmælisdagur Kambans
hafi gleymst hjer heima, hafa
unnendur og aðdáendur listar
hans í Danmörku munað hann.
Dagfelöð Kaupmannahafnar
birtu í gær greinar um hann og
ritverk hans. í Berlingatíðind-
um er meðal annars komist
þannig að orði:
„Hjer á landi hefir Kamban
unnið álit sem eitt af hugþekk
ustu skáldum íslendinga, vegna
þeirrar menningar, mannvits og
frumleika, sem einkennir bestu
ritverk hans“.
í þetta sinn er ekki tækifærí.
til að orðlengja hjer um rit-
störf og afrek Guðmundar
Kamban. Hann hefir lagt stunö
á margar greinir skáldskapar
sem kunnugt er, alt frá því hanr
fyrir 25 árum samdi sitt fyrsta
leikrit, fyrir Konunglega leik-
húsið í Höfn. Og þó hann hafi
samið flest verk sín í fjarlægum
löndum, þá er vafasamt, hvort
nokkur samtíðarmaður hans
meðal skálda vorra hafi fund-
ið sterkar til íslendingseðlis
síns og uppruna en hann og
fylgt þeirri köllun, sem hin ríka
þjóðerniskend hefir blásið hon-
um í brjóst.
Fyrir 30 árum var íslenskt
umhverfi orðið honum of
þröngt. í 25 ár hefir hann unn-
ið að því að auka hróður ís-
lenskrar menningar. — Slíkir
menn eru útverðir þjóðar vorr-
ar“.
Nú er einum útverðinum
færra. Einn horfinn, sem gerði
garðinn frægan. En margir
munu í dag minnast Guðmund
ar Kamban og afreka hans, bæði
á sviði bókmenntanna og leik-
listarinnar.
Svíar sendu
Dönum hjálp
San Francisco:
FULLTRÚAR Danmerkur á
ráðstefnuna í San Francisco
komu til borgarinnar í dag. —
Einn fulltrúanna, Erik Husfeldt
prófessor, einn af helstu forvíg
ismönnum andstöðuhreyfingar-
innar í Danmörku, ljet svo um
mælt, að Svíar hefðu rofið hlut
leysi sitt í þágu bandamanna.
Danski heimaherinn, sagði hann
fjekk vopn frá Svíþjóð. Voru.
þau send til Danmerkur að næt
urlagi eða falin í farmi skipa.
Úr flugvjelum bandamanna
var varpað í fallhlífum vopn-
um handa 30.000 mönnum,
sagði Husfeldt prófessor. Ein-
ungis einn fimmti hluti vopn-
anna kom ekki að tilætluðum
notum. Hitt komst í hendur!
rjettra viðtakenda. — Reuter.
Skreyfingin í Oslo
Frá norska blaðafull-
trúanum:
VIÐ skreytingu gatnanna í
Oslo í tilefni komu konungsins
hefir verið kostað kapps um að
hafa skreytingarnar táknrænar.
Sumar götur eru helgaðar börn
um, aðrar íþróttamönnum,
kirkjunni, Rauða Krossinum,
sjómönnum o. s. frv. Aðalgatan
að höllinni, Karl Johans-gata,
verður „friðargata".
í skreytingunni ber mikið á
máluðum myndum af konungin
um og fjölskyldu krónprinsins.
Til skreytinganna þurfti 3
km. af fánadúk, 3 km. af blóm-
sveigum, máluðu myndirnar
eru samanlagt 10 dekametrar
að flatarmáli. 100.000 metra af
garni þurfti til að sauma fána
og veifur.
Ávarp frá Nálfúrn-
lækningafjelagi
íslands
Á SUNNUDAGINN kernur,
10. júní, verða seld hjer í Rvík,
merki til ágóða fyrir Heilsu-
hælissjóð Náttúrulækningafje-
lags íslands.
Stefnumið þessa fjelags eru
bæjarbúum svo kunn, að um
þau þarf ekki að fjölyrða. Þó
skal það tekið fram hjer, að
heilsubót og heilsuvernd, eru
þau mál, sem fjelagið berst
fyi'ir.
Til framgangs þessum mál-
um er mikil þörf heilsuhælis,
sem fjelagið hyggst að reisa,
helst í nágrenni Rvík, svo fljótt
sem nægilegt fjármagn er fyr-
ir hendi. Mun það mála sann-
ast að heilsufari margra manna
er á þann veg háttað, að vist á
slíku hæli, væri þeim mikii
nauðsyn. Breytt mataræði, ljett
ara og hollara fæði. Dagleg böð,
útivist í heilnæmu sveitalofti,
fullkomin kyrð og reglubundn
ar lifnaðarhættir, mundu verða
mörgum taugaþreyttum manni
til mikilla heilsubóta.
Náttúrulækningafjel. hefir
fengið einn dag á ári staðfestan
sem fjársöfnunardag til fram-
gangs þessu nauðsynjamáli. Fje
lagið heitir því á alla góða
menn að kaupa merkin á sunnu
daginn, og styðja með því að-
kallandi mannúðar- og heil-
brigðismál. — Foreldrar og aðr
ir aðstandendur, unglinga, leyf
ið þeim að selja merki Náttúru
fjelagsins á sunnudaginn. —•
Hvetjið þau til þess að ljá öll-
um góðum málum fylgi sitt.
Fyrir hönd fjársöfnunarnefncl,
ar. — G. Þ. B,