Morgunblaðið - 08.06.1945, Blaðsíða 12
12
ÍR vann Reykja-
víkurboðhlaupið
Hljóp á skemsta tíma,
sem hlaupið hefir verið á
BOÐHLAUP Ármanns um-
hyerfis Reykjavík fór fram í
gærkveldi. Leikar fóru þanr.ig,
að sveit ÍR bar glæsilegan sig-
ur úr býtum. Hijóp hún á
skemmri tíma en þetta hlaup
hefir nokkru sinni verið hlaup
ið á áður. Sveit Ármanns hljóp
einnig á skemmri tíma en fyrr
hefir verið hlaupið á.
Urslit urðu annars þessi:
1. Sveit ÍR ^17:38,6 niín.
2. Sveit Ármanns 18:00,8 mín
3. Sveit KR 18:17,4 mín.
Áður hefir verið hlaupið á
skemmstum tíma 18:09,0 mín.
Þessir menn voru í sveit ÍR:
Sigurgísli Sigurðsson. Jóhannes
Jónsson, Hannes Berg, Sigurð-
ur Sigurðsson, Gylfi Hinriks-
son, Valgarð Runólfsson, Magn
ús Baldvinsson, Örn Clausen,
Haukur Clausen, Jóel Sigurðs-
son, Svavar Gestsson, Hallur
Símonarson, Finnbjörn Þor-
vðldsson, Kjartan Jóhannsson
og Óskar Jónsson
ÍR-sveitin leiddi hlaupið alla
leiðina að undanskildum fyrsta
sprettinum, sem Ármann
leiddi.
Kept var um bíkar, sem Al-.
þýðublaðið hefir gefið, Hefir
tvisvar verið kept um hann og
ÍR unnið í bæði skiftín.
Fyrsia flugvjelin frá íslandi
4 • .. ' ■ “ ...>'
Þessi myntl var tekin a BrommafiugvelHnum vfð Stokkfió’rri á sunnudaginn var, og sýnir
fyrstu flugvjeiina, sem flogið h íir þangað beint frá íslandi, nýlenta. Með lienni voru yfir-
hershöi’ðingi Bandaríkjahers á íslandi og frú danska sendiherrans hjer og sonur þeirra hjóna
Reykjavíkurmólið
byrjar á mánudag
Reykjavíkurmótið í knatt-
spyrnu byrjar á mánudaginn
kemur. Keppa þá Fram og Vík-
íngur, en dómari verður Þor-
steinn ^Einarsson, Línuverðir
verða með dómaraprófi, þeir
Frímann Helgason og Guðmund
ur Sigurðsson, en Sigurjón Jóns
son er varadómari. — I mótinu
íaka þátt Reykjavíkurfjelögin
fjögur.
Næsti leikur fer svo fram á
þriðjudaginn. Þá Keppa KR og
Valur. Dómari í þeim leik er
Guðjón Einarsson. línuverðir
Einar Pálsson og Baldur Möll-
er, en varadómari Þráinn Sig-
urðsson.
Hjer verður engu spáð um úr-
slit þessa merkilega móts, en á-
lit manna er það, að Fram
verði öflugt, eins og á Tulinius
ar-mótinu, — sumir halda aft-
ur á móti fram, að fjelögin sjeu
afar jöfn, eins og þau hafa oft
verið undanfarin ár.
Stjórn arskrárm áli ð:
Fundum neíndanna frest
að fram eftir sumrinu
Sameining danskra
vinsfri flokka
K.-höfn í gær:
I ræðu, sem jafnaðarmaður-
inn Hedtoft-Hansen flutti í
gær,* á grundvallarlagadaginn,
sagði hann að ástæðulaust væri
að tveir verkamannaflokkar
væru í landinu. Ef kommúnist-
ar vildu taka þátt í endurbóta-
stefnu jafnaðarmanna á lýðræð
islegum grundvelli. Aksel Lar-
sen, kommúnisti sagði að kom-
múnistar væru til í skipuiags-
pólitík og sameiningu, sem al-
gjörlega byggðist á meginregl-
um lýðræðisins. — Páll Jónsson
MORGUNBLAÐIÐ hefir átt
tal við Gísla Sveinsson, för-
mann milliþinganefndarinnar í
stjórnarskrármálinu og int
hann eftir því, hvernig störfin
gengju. Fara hjer á eftir upp-
lýsingar hans:
— Á fundum milliþinga-
nefndarinnar i vor var ákveðiö
að gera gangskör að því við
undirímning málsins að afla
þeirra gágna, sem gerlegt væri
að ná til, en það voru stjórn-
lög allra þeirra lýðræðisríkja
og lýðvelda, sem ætla mætti að
eitthvað væri á að græða og
hafa mætti til hliðsjónar við
setning nýrrar stjórnarskrár
fyrir hið íslenska lýðveldi. Urðu
það eigi færri en milli 10—20
stjórnarskrár, sem nú- hafa
verið þýddar og fjölritaðar
handa nefndarmönnum. En
nefndin valdi sjer starfs-fram-
kvæmdastjóra, samkv. heimild
Alþingis, Gunnar Thoroddsen
prófessor, sem einnig tók sæti
í nefndinni í stað Bjarna Bene-
diktssonar borgarstjóra, er
gekk úr henni.
— Nú á síðkastið, eftir að
hin skipaða ráðgjafarnefnct í
málinu kom til skjalanna (en
formaður hennar er Sig.
Eggerz), hafa báðar nefndirnar
haldið sameiginlega fundi og
nefndarmenn rætt málið ýtar-
lega og frá öllum hliðum, hver
frá sínu sjónarmiði, en nefnd-
irnar vinna síðan úr sameigin-
legum gögnum. Héfir nú orðið
samkomulag um að fresta öll-
um fundastörfum þangað til
síðla í ágústmánuði, eða þar um
bil, eftir því sem formenn nefnd
anna ákveða, en nefndarmenp
kynna sjer á þessum tíma ö(l
þessi atriði eftir föngum, með
þeim gögnum, sem getið var, og
Viðtal við formánn
milliþinganefndar,
eins vinna að því að koma hug-
myndum sínum í fastara form.
— Loks kom fram tillaga inn
an nefndarinnar um, að rjett
væri að stuðla að því að gerð-
ur yrði út sjerstakur maður til
þess að kynna sjer þessi mál er
lendis vegna starfs nefndar-
innar. Varð niðurstaðan af
þessu sú, að ríkisstjórninni var
'sett það í sjálfsvald að ákveða
' um þetta, en ef sendur yrði
slíkur maður út af örkinni í
sumar, skyldi hann kynna sjer
einkanlega framkvæmd stjórn-
laga í hinum ýmsu lýðræðisríkj
um Norðurálfu, og voru nefnd-
irnar sammála um að benda á
. framkvæmdástjóra sinn til
þeirrar farar, ef af henni yrði.
Tundurdufl lendir
í boinvörpu
ísafirði í gærkveldi.
Frá frjettaritara vorum.
UM klukkan 18 í gærdag var
botnvörpurigurinn Hafsteinn að
veiðum um 40 sjómíiur austur
af Straumnesi.
Er botnvarpan var innbyrt,
var í henni stórt tundurdufl.
Sáu skipverjar það ekki, fyrr
en það var komið á þilfarið.
Duflið sprakk ekki, og hjelt
skipstjóri hingað til ísafjarðar
til þess að fá það gert óvirkt.
Um kl. 15.40 í dag komu hingað
til bæjarins tveir breskir sjer-
fræðingar, og gerðu þeir duflið
óvirkt.
Handavinnusýning
Húsmæðraskólans
HANDAVINNUSÝNING
Húsmæðraskóla Reykjavíkur
að Sólvallagötu 12 verður opn
uð að þessu sinni kl. 2 e. h.
I;
í dag. Verður sýningin opin
tvo næstu daga, laugardag og
sunnudag ffá kl< 10—19.
Á sýningunni að þessu sinni,
sem undanfarin ár, er hin prýði
legasta handavinna nemend-
Á ráðstefnu í Oslo í gær. ;i-
kvað norska stjórnin í sam-
ráði við foseta Stóijiingsins og
foringja heimahersins, að Stór
þingið skulí kvatt saman 14.
júní n. k.
Kom frá Sýrlandi
til De Gaulle
París í gær:
OLIVE ROGET hershöfðingi,
fulltrúi Frakka í Damaskus,
kom í dag hingað. Gekk hann
þegar á fund De Gaulle.
Roget hershöfðingi hafði
meðferðis boð til de Gaulle frá
Etienne Beynet, hershöfðingja,
aðalfulitrúa Frakka í Levant.
Föstndagnr 8. júní 1045,
Vinna aS hefjasl viS
byggingu síldar-
verksmiSju á
Skagaslrönd
VlNNA mun nú að hefjast
við byggingu síldarverksmiðju
á Skagaströnd. Síldarverksmiðjj
an á að geta unnið úr 5.000 mál
um á sólarhring, en hún verð -
ur byggð þannig, að auðvelt er
að stækka hana þannig, að hún
geti tekið á móti 10.000 málum
á sólarhring. Erlendur Þorsteins
son frkvstj. skýrði blaðinu frái
þessu í gærkvöldi.
Erlendur sagði, að vonast
væri til, að verksmiðjan yrði
1 fullgerð í byrjun síldarveiði-
tímans 1946. Kaup hafa verið
fest á vjelum og öðru til verk
smiðjunnar í Svíþjóð, og er bú-
ist við vjelunum til landsins síð
ari hluta sumars. Almenna
Byggingarfjelagið mun-- sjá um
alt steypuverk í sambandi við
byggingu verksmiðjunnar.
Nýbyggingarstjórn, sem skip
uð var í maí s. 1. hefir unnið aði
undirbúningi byggingar verk
smiðjunnar. Mun nýbyggingar-
stjórn einnig undirbúa bygg-
ingu síldarverksmiðju á Siglu-
firði. í nýbyggingarstjórn eiga
sæti þessir menn: Trausti Ól-
afsson efnafræðingur, formað-
ur, Magnús Vigfússon trjesmíðat
meistari, Þórður Runólfssorn
vjelaeftirlitsmaður og Snoirí
Stefánsson frkvstj., Siglufirði.
Afmælismól Þórs
á Akureyri
Akureyri, fimmtudag.
íþróttafjelagið Þór á Akur-
eyri heldur nú hátíðlegt 30 ára
afmæli sitt. Var það stofnað 6.
júní 1915. Fjelagar í Þór eru
nú á fjórða hundrað. Stjórn fje
lagsins skipa: Jónas Jónsson,
formaður, Sverrir Magnússon,
ritari, Sigm. Björnsson, gjald-
keri, Gunnar Óskarsson, vaja-
formaður og Jón Kristinsson,
sp j aldskrárritari.
Afmælismót fjelagsins hófusr,
í gærkveldi, 6. júní, með þátt-
töku allra íþróttafjelaganna í
bænum. Fyrst ljek Lúðrasveit
Akureyrar undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar Þá setti forrn,
Þórs mótið með ræðu.
Síðan var keppt í Oddeyrar-
boðhlaupi. Er það nýjung á Ak-
ureyri. Hlaupið var í 20 manna
sveitum, als 3700 metrar. Sprett:
irnir voru 100—400 m. langir,
Fyrst var sveit Knattspyrnu-
fjelags Akureyrar á 8:43.1 mín.,
önnur var sveit Mentaskólans
á 8:45.0 mín. og 3. sveit Þórs á
8:53.4 sek. Mótið heldur áfram
næstu daga með keppni í flest-
Um íþróttagreinum og lýkur n.
k. sunnudagskvöld.
Tundurduflasvæðið
er óbreylf
Frá ríkisstjórninni.
AÐ GEFNU tilefni tilkynnist
að ennþá hefir engin breyting
orðið á tundurduflasvæðunum
frá síðustu tilkynningu, hjer
við land og eru sjófarendur bví
alvarlega varaðir við að stunda
fiskveiðar á þessum svæðum.
m
Þegar hreinsun tundurdufla-
svæðanna er lokið, verður það
þegar tilkynt.