Morgunblaðið - 14.06.1945, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.1945, Blaðsíða 1
STAÐUR OG STUND ÁKVEÐIN FYRIR RÁÐSTEFNU „HINNA ÞRIGGJA STÓRU Truman segir Rússa hafa slakað Bókaútgáfa menning- arsjóðs efnir til sam- kepni um skáldsögu Verðlaunin 10 þúsund krónur , BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs og Þjóðvinafjelagsins hefir ákveðið að efna til samkeppni um skáldsögu. Bókaútgáfan mun greiða tíu þúsund krónur í verðlatin fyrir bestu skáldsöguna, sem henni berst, og áskilur sjer rjett til útgáfu á henni gegn ritlaunum auk verðlaunannaa. til í Póllandsmálunum Rcgnvaldur Sigur- jónsson fær ágsSa dóma Kaupmannahöfn fundarstaðurinn? Stærð bókarinnar sje um 10 —12 arkir, miðað við Skírnis- brot. Rjettur er áskilinn til að skifta verðlaunum milli tveggja bóka, éf engin þykir hæf til fvrstu verðlauna, eða láta verð- launin niður falla, ef engin þykir verðlaunahæf. Handritum sje skilað í skrif- stofu bókaútgáfunnar fyrir árs- lok 1946 og sjeu þau vjelrituð og merkt með einkenni höfund- arins, en nafn hans og heimilis- fang fylgi í lokuðu umslagi, merktu með sama einkenni. Laval framseldur Frökkuml London í gærkvöldi. í FRJETTUM frá Helsingfors er það haft eftir Parísarútvarp- inu, að Pierre Lával, sem dval- ist hefir á Spáni um skeið, hafi verið framseldur Frakklands- stjórn. Pierre Laval hafði aðsetur í Mont Julich og fylgdist þar með rjettarhöldunum í máli Petains og beið dóms í máli hans. Laval hlustaði ávalt á útvarp á frönsku frá bresku útvarps- stöðinni. Var öflugt viðtæki í dagstofu hans. Þar voru líka 4 ritvjelaborð sem hann og rit- arar hans unnu við. Ritz Hotel ijet honum í tje frönskumæl- andi matreiðslumann, þjón og stofustúlku. Á hverjum degi voru fluttar til hans allskonar munaðarvörur. Við morgunverðarborðið ræddi Laval dægurmál við mat reiðslumanninn, og á sunnudög um neytti hann kræsinga að frönskum sið. Á kvöldin borð- aði hann yfirleitt enga máltíð, en fjekk sjer eitthvert snarl, áður en hann fór að sofa. Laval fjekk að vera úti í garði. Fór hann þangað eftir morgunverð og þegar hann var búinn að lesa frönsk, spönsk og ensk blöð. — Reuter. Óþekkt iík rekur í GÆRDAG fanst lík af karlmanni rekið á fjöruna skamt frá bænum Gufunesi. — Rannsóknarlögreglan fór þang- að uppeftir. Ekki telur lögregl- an að hjer sje um að ræða lík íslendings og kannast hún ekki við það. Líkið var bert að ofan, en var í einum buxum. Þetta heíir verið stór maður og margt bendir til að maður þessi hafi verið kyndari. Ekkert fanst í vösum buxnanna. eða nokkuð, sem gæti gefið skýringu á hvert líkið sje. Þá mátti og sjá á því, að það hefir verið lengi í sjó. Útilokasl frá heims- viðsklffum London í gærkveldi. | MORGENTHAU fjármálaráð- i Iherra Bandaríkjanna hefir sagt, að í framtíðinni muni Þýska- land og Japan verða algerlega útilokuð frá heimsviðskiftun- um. ,,En það mun enginn sakna þeirra“, bætti hann við. Hann sagði að það væri alveg nóg fyrir Þjóðverja að versla við þjóðirnar á meginlandi Evrópu. Ráðherrann sagði þetta, er harin var að ræða við fjárhags- nefnd Öldungadeildarinnar. — —Reuter. Sonur von Ribb- enfrop handtekinn LONDON í gærkvöldi: — í gær var Rudolf von Ribbentrop sonur þýska utanríkismálaráð- herrans fyrverandi, handtek- inn. Fanst hann í hópi þýskra stríðsfanga. Ekkert hefir enn frjettst um föður haps, en leit að honum er stöðugt haldið áfram. —Reuter. Frjettatilkynning frá ríkis- stjórninni: LISTDÓMENDUR Washing- tonblaðanna ljúka einróma miklu lofsorði á pianóleik Rögnvaldar Sigurjónssonar. — „Times Herald“ skrifar: „Tónlistarlíf íslands hlýtur að hafa þróast á mjög hátt stig til að skapa listaman'n (vir- tuoso), sem sýnir jafn-mikinn tekniskan og tónrænan þroska og Rögnvaldur Siguriónsson. Þessi ungi píanóleikari hefir gífurlegt vald yfir nótnaborðmu og leikur með kraftmiklum tón þó að hann eigi einnig til mýkt. Hann þekkir margar listastefn- ur og virtist einkum una sjer við músík Prokofieff’s“. ..Daily News“: 1— „Sonur fs- lands hlaut inndegan fögnuð að láunum fyrir píanóleik sinn í gærkvóldi. Rögnvaldur Sig- urjónsson kann í framtíðinni að verða talinn einn af hinum miklu meisturum píanóleiksins, því að í honum búa voldugir pí- anistahæf ileikar". „Evening Star“: — „Ungur og gáfaður íslenskur píanóleik- ari, Rögnvaldur Sigurjónsson, hjelt í gærkvöldi hljómleika í National Gallery of Art, og minti leikur hans á glæsileik og meistdraleg tilþrif (virt- uosity) liðinna tíma. — Þó að Rögnvaldur Sigurjónsson sje enn ungur að aldri, þá er hann þegar þaulkunnugur mörgum mismunandi, listastefnum og músík ýmissa tíma, sem hann leikur af miklum myndugleik". Washington í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. biaðsins frá Reuter, TRUMAN forseti tilkynnti í dag á blaðamannafundi í Washington, að búið væri að ákveða stað og stttnd fyrir fund þeirra Stalins, ,Churchills og hans, en sagðist ekki geta gefið. frekari upplýsingar um, hvar eða hvenær fundurinn yrði haldinn, fyrr en hann væri byrjaður. Hann sagði, að þetta hefði verið ákveðið af sendimönnum þeim, sem liann sendi til Moskva og London nýlega, Harry Ilöpkins og Joseph Davies. Fara þeir báðir á ráðstefnuna með Trnman, svo og Leahy flotaforingi og Stettinius utanríkisráðherra. Kaupmannahöfn fundarstaðurinn? í Helsíngfors er það haft eftir frjettvim frá London, að ráðstefan muni verða haldin í Kaupmannahöfn, en staðfest- ing hefir ekki fengist á þessu, sbr. það, sem að ofan segir Fundartíminn St j órnmálaf r j ettaritarar í Washington búast við því, að ráðstefnan verði haldin í bvrj un júlí. Er gert ráð fyrir því, að þessi ráðstefna mnni hafa enn víðtækari afleiðingar en ráðstefnnrnar í Ýalta og Teheran. Ei aður i er heiðr- París London í gærkvöldi. EISENHOWER hershöfðingi ! kom til París í dag. j Á morgun verður honum | sýndur margvíslegur heiður. I | fylgd með Walter Bedell Smith ! og herráðsmönnum hans og Sir Arthur Tedder flugmarskálki mun Eisenhower aka til Sig- inbogans, en þar verður heið- 1 ursvörður og hljómsveitir. De 1 Gaulle mun sæma Eisenhower frelsiskrossinum svonefnda við Sigurbogann. Margvislegur heiður annar mun Eisenhower verða sýndur þennan dag. — Reuter. „Rússar hafa nóg lið í Þýskalandi" London í gærkvöldi. BRESK BLÖÐ hafa undan- farið látið í ljós efa um, að Rúss ar myndu hafa nægilegan liðs- styrk í Þýskalandi til þess að taka að sjer hernám þess hluta Þýskalands, sem um var samið í Berlin fyrir nokkru. Vegna þessa hefir Tass- frjettastofan rússneska birt til- kynningu þess efnis, að Rúss- ar hefðu nógan liðstyrk í Þýska landi og myndu þeir senda her til þeirra hjeraða, sem þeir hefðu með samningum tekið að í sjer að hernema, strax og i Bandaríkjamenn væru farnir J þaðan. — Reuter. Póllandsmáb'n rædd Truman sagði, að á ráð- stefmvnni yrðu rædd öll þau vandamál, senv nú bíða úr- lausnar, og yrðu Póllandsmál- in eitt aðalmálið. Kv.aðst hann vonast til, að á ráðstefnunni yrði vutt að leysa þau mál á viðvvnandi hátt. Trumam sagði Rússa hafa slakað nokkuð til í Póllandsmálunum. Forsetinn lagði áherslu á það, að sam- húð stórveldannaþrigg'j þyrfti að vera sein best til þess að rjettlátur friður næðist. Ráðstefan í Moskva Truman kvaðst vona, að um ræður þær, sem nú eru að hei'j ast í Moskva um Póllandsmál- in. beri árangur. Annars virðasl sumir Pól- verjar vera óánægðir mcð til- högun ráðstefnunnar. Pólverj- ar segja, að þeir Pólverjai' sem boðnir sjeu á ráðstefnnna. sjeu allir gamlir menn. sem Framhald á 8. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.