Morgunblaðið - 19.09.1945, Qupperneq 12
11
ílnniiHiUiMif Jí.
RIÍM/Ijjuivyui
fendingadagur að
Gimli
Ætiar í þessu ni&r Niagara-fossa.
Miðvikudagiir 19. scpt. 1945
Norrænt æskulýðs-
leiðfoga þing hjer
að vori
ÍSLENDIN GADAG UR var
haldinn hátíðlegur að Glmli í
byrjnn ágú.stmáiuiðar síðastl.
Var þar samankomið rúmlega
íjögur þúsund manns. og voru
hátíðahöldin í alla staði hin
gla-.silegnstn, eftir því scm seg-
ír í veslur-tslensku hlöðnnnm,
er horist hafa hingað. Por.set i
Mtíðarmhar var jGf. F. Tónas-
son, en Fjallkonan var frú
ölín.a Pálssori. Sjera Valdi-
mar J. Eylands ávarpaði þing-
heiia af hálfu í’jóðræknisfje-
lágsins. en aðalraiðúrnar fliittu
jþeir Pjetur Signrgeisson, eand.
theol.. sein mælti fyrir'min'ni
fslands og dr. P. II, T, Thor-
iáksson, er minntist Kanada.
Karlakór íslendinga í Winni-
peg söng undír stjórn Signr-
björns Sigurðssonar. María
Markan söng nokkur lög, og
einnig söng hún og Paul Bar-
dal, fylkisþingmaður, tvísöng.
-— Þá flutti og Mr. Dryden,
mentarnálaráðherra Manitoba
etjórnarinnar ávarp fyrir hönd
ráðuneytisins.
Vestur-ísisnskur
flugmaður heiðr-
aður
UNOUR Vestur-íslendingur
fiugmaður, John Konrad Gutt-
orrnson, hefir vcrið sæmdur
heiðursverðlaunum, ,,Disting-
uished Flving Cross“, fyrir
flugafrek. Er þess getið, að
hann átti eitt sinn í höggi við
óvinakafhát, sem miklar líkur
eru til að hann hafi sökt.
J. K. Guttormson innrit-
aðist í flugherimi 1941, en var
sendur til Evrópu, og dvaldi
m. á. eitt ár h.jer á landi, Áð-
ur en hann gekk í herinn var
haim fjehirðir við Royal-bank-
ann í Winnipeg. ITann er son-
ur B.jörns Guttormson og konu
hans.
Sfyrkir frá Menfa-
ÍEiaiaiavi
MENTAMÁLARÁÐ ÍSLANDS
hefir nýlega úthlutað eftirtöld-
um stúdentum námsstyrk til
fjögurra ára:
Agnari Nordal til náms í
skipaverkfræði í Stokkhólmi,
Bjarna Benediktssyni til náms
í bókmentum og sálarfræði í
Uppsölum, Guðmundi Björns-
syni til náms í vjelaverkfræði
í Stokkhólmi, Magnúsi Magnús
syni til náms í eðlisfræði í
Carnbrigde, Sigurði Helgasyni
til náms í eðlisfræði í Kaup-
mannahöfn, Sveini Ásgeirssyni
til náms í hagfræði í Stokk-
hólmi.
Plifurinn sr éfundinn
PILTUR SÁ, er hvarf síðastl.
laugardag, er enn ófundinn. —
Hans hefir verið leitað, eri ár-
angurslaust.
—
WILLIAM Híí.I, Jr. heitir hann, þessi hjerna í tunnunni. Han í hefir ákveðið að fara í þessari
tunnu niður Niagara-fossa. Faðir^hans fór í tunnu niður fossana 1931 og var með lífsmarki, er
hann kom niður og gat sagt frá, hvernig sjer hefði liðíð, en hann ljest skömmu síðar. Ungi Hill
ætlar að hætta lifi sínu til þess að vekja athygli á minningarsjiði með þessu tiltæki sínu, sem
stofna á um föður hans.
Landsbankiim gefur
150,000 kr. í sjóði
Gefur úf nýja úfgáfu af „lceland"
LANDSBANKI ÍSLANDS ákvað í gær, að gefa 150,000 kr. í
sjóði í tilefni af aímæli sínú og ennfremur, að gefa út endur-
bætta útgáfu af bókinni ,,Iceland“. I frjettatilkynningu frá
bankanum, sem birt var í gær segir á þessa leið:
,,Bankastjórn Landsbanka ís
lands hefir á fundi sínum í dag,
í tilefni af 60 ára afmæli Lands-
bankans, ályktað,
að gefa út á þessu ári nýja
útgáfu, endurbætta, af bók
bankans ,,Iceland“.
að gefa 50000 krónur til sjör-
stakra tilrauna eða fram-
kvæmda. vegna landbúnaðar-
ins eftir nánari ákvörðun banka
ráðs síðar, eftir að samráð hef-
ir verið haft við búnaðarstofn-
anir.
að gefa 50000 króíiur Slysa-
varnafjelagi íslands í sjóð þann,
er Landsbankinn stofnaði á 50
ára afmæli sínu. til rekstrar
björgunarskipa. Sömu ákvæði
gilda um þessa gjöf, og sett
voru með stofnun sjóðsins.
að gefa 50000 krónur í náms-
sjóð starfsmanna Landsbanka
Islands, sem stofnaður var á 50
ára afmæli bankans.“
Heiilaóskir til bankans.
í gær barst Landsbankanum
heillaskeyti og blóm í tilefni af
afmælinu, m. a. frá forseta Is-
lands, íjármálaráðherra Pjetri,
Magnússyni, breska s&níiiherr-
anum Mr. Shepherd, borgar-
stjóra og bæjarstjórn, ýmsum
fyrirtækjum og starfsfólki
bankans.
Sundmót Akureyrar
Akureyri, mánudag. _
Frá frjettaritara vorum.
SUNDMÓT Akureyrar var
háð s. 1. Jaugardag og sunnu-
dag. Þátttakendur voru 35 frá
Sundfjelaginu Gretti, Iþrótta-
fjelaginu Þór og Knattspyrnu-
fjelagí Akureyrar. -Grettir sá
um mótið.
Helstu úrslit urðu sem hjer
segir:
100 m. bringusund konur: —
1. Sofíia Þorvaldsdóttir, Gréttir
2. Soffía Georgsdóttir, Þór og
3. Björg Finnbogadóttir, KA.
200 m. hringusund karla: —
1. Kári Sigurjónsson, Þór, 2.
Jón Viðar Tryggvason, Þór og
3. Einar Pjetursson, Grettir.
100 m. frj. aðf. karla: — 1.
Sveinn Snorrason, Grettir, 2.
Kári Sigurjónsson, Þór.og 3.
Jóhann Kristinsson, Þór.
100 m. frj. aðf., drengir (16
ára og yngri): — 1. Hreinn
Þormar, Grettir. Hlaut hann
,,Óla’fsbikarinn“, gefinn af Ól-
afi Magnússyni, sundkennara.
4x50 m. boðsund: — 1. A-
sveit Þórs, 2. Sveit KA og 3.
B-sveit Þórs.
Befri horfiir aftur
við Jökulsá
ÞAÐ HORFIR nú aftur betur
að tgkast muni að veita Jökulsá
á Sólheimasandi í sinn fyrri
farveg.
Brandur Stefánsson vega-
verkstjóri í Vík, en hann hefir
umsjón með þessu verki, skýrði
blaðinu svo frá i gærkvöldi, að
stíflan, sem sett var í austasta
álinn á mánudag hefði haldið.
Og í gær var stíflan styrkt
mjög. Var unnið kappsamlega
allan daginn, þrátt fyrir aftaka
veður, storm og stórrigningu.
En Mýrdælingar vita vcl, hvað
í vændum er, ef ekki tekst að
opna þessa samgönguleið. —
Þeir leggja því hart að sjer við
verkið og hlífa sjer hvergi.
Taidi Brandur nú góðar horf-
ur a, að takast myndi ag stifla
álinn. Veg-íta var komin á stað-
inn að byrjað að vinna með
henni.
Tilraunir með nið-
ursuðu á síid
í sumar
TILRAUNIR hafa verið gerð
ar með niðursuðu á noi'ðanlands
síld í sumar á vegum Síldar-
verksmiðja ríkisins. Að þessum
tilraunum hafa unnið þeir dr.
Jakob Sigurðsson og Ingimund-
ur Stsinsson, en hann kom
heim með Esju í sumar, en vann
áður sem verkstjóri í niðursuðu
verksmiðjum í Þýskalandi.
■ Þessar tilraunir munu gerðar
með hliðsjón af því, að sett
verði á stofn nýtísku niðursuðu
verksmiðja.
I KÁÐI ER að Norrænaf.je*
lagið lijer á landi gangist fyri
ir norramu aEþkulýsleiðtoga-
þingi hjer að vori. Tlefir ri.t-
ari Norrænafjelagsins Guö-
laugur Rósinkranz skýrt l'rái
þessu, cn hann er nýlega kmn-
inn heirn úr ferðalagt sftra unj.
Norðnrlönd, þar sein hann m.
a. sat þing Norræna fjél ag'sin*
Sænsk listiðnsýning.
M skýrir Rósinkranz svo frá
að hingað til Reykjavíkur
muni síðla vetrar verða merk
I sænsk listiðnaðarsýning, scrar
sænska ríkið muni styrkja. að
éiiihverju leyti.
Samninganefndin
komin heim
ISLBNSKA sammnganefnd-
in, setn fór til Danmerkur. er
úýkomin heim. — Átti hún
nokkra viðræðufmuli nteð
dönsku samnihganefftditmi, án
þess að nokkrar éndanlegar
ákvarðanir væru teknar. Rmtti
var m. a, um jafnrjettið, fisk-
. veiðar Færeyinga við ísland
og í því samhandi um fisk-
veiðirjettindi Islendinga yið
Grænland. — M var eirmig
minnst á handritamálið.
Af Islands hálfu tók u þessir
þátt I samningum: Jakob
Möller sendihérra, Eysteinrr
Jónsson alþm., Kristinn R.
Andrjesson alþm. og Stefáu
Jóh. Stefánsson alþm. Ráðu-
nautur nefndarinnar var dr«
Ólafur Lárusson, prófessor.
Ákveðið er, að nefndirnar
haldi áfram viðræðuní að loknl
um kosningum í Danmörku, og
fara þær viðræður þá fram
hjer í Reykjavík.
Aðalfundur Frjáls-
ilynda safnaðarins
AÐALFUNDUR Frjálslynda
safnaðarins var haldinn í Frí-
kirkjunni s. 1. sunnudag.
Úr stjórninni áttu að ganga
Síefán A. Fáisson stórkaupm.,
Guðmundur Guðjónsson kaup-
maður og frk. Hulda Ingvars-
dóttir kaupkona, og voru þau
öll endurkosin. — Fjehirðir
safnaðarins las upp reikninga
en formaður gerði grein fyrir
störfum stjórnarinnar.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var til umræðu væntan-
leg prestkosning í dómkirkju-
söfnuðinum, en þar eð prest-
ur Frjálslynda safnaðarins,
sjera Jón Auðuns, er um-
sækjandi. Kom fram í umræð-
um og atkvæðagreiðslum mik-
ill áhugi og samhugur safnaðar
ins um það mál og var samþykt
með samhljóða atkvæðum svo-
feld ályktun:
Aðalfundur Frjálslynda safn
aðarins lýsir þeirri skoðun
sinni, að frjálslyndið sje höfuð-
nauðsyn kirkju og kristindómi
og skorar á alt safnaðarfólk að
vinna einhuga að kosningu sr,
Jóns Auðuns sem prest dóm-
kirkjusafnaðarins.