Morgunblaðið - 26.09.1945, Side 2

Morgunblaðið - 26.09.1945, Side 2
2 KORGDNBLAÐIÐ Doktorsritgerð íslensks læknis vekur athygli í Danmörku ör. Jón Sigurðsson kominn heim í stutta kynnisferð DR. JÓN SIGURÐSSON, læknir kom heim á dögun- um með íslenska flugbátn- um frá Danmörku í stutta heimsókn, en hann er nú fyrsti aðstoðarlæknir við berklaspítalann í Aarup og berklavarnastöðvarnar í Od ense- og Assens-ömtum. Dr. Jón varði doktorsritgerð í marsmánuði við Hafnarhá- skó'la. Vakti ritgerðin geysi- mikla athygli um alla Dan- mörku. Hefir Morgunblað- inu borist ekki færri en 150 úrklippur úr dönskum blöð- um, þar sem doktorsritgerð- arinnar er getið lofsamlega, en hún fjallar um smit- hættu frá berklaveikum kúm fyrir sveitafólk. Er hún skrifuð á ensku og heitir „Studies on the risk of in- fection with bovine tuber- colosis to the rural popula- tion'. Viðurkenning frá andmælendum. Andmælendur við doktors- vörnina voru prófessorarnir K. A. Jensen og Erik Warburg. Fóru þeir viðurkenningarorðum um rannsóknir dr. Jóns og gátu þess, að viðbárur, sem þeir hefðu fram að bera væru ekki nema ’ til málamynda, og vægju lítið upp á móti kostum verksins. Jensen prófessor sagði t. d., að það ætti að verðlauna sjerstaklega slíka bók, sem þessa. En Warburg prófessor lýsti ánægju sinni á „hinum ungu, duglegu, iðnu, en hlje- drægu íslensku læknum, sem hefðu starfað í þágu vísindanna í Danmörku, eins og Jón Sig- urðsson hefði gert, og með því unnið bæði íslandi og Dan- mörku, ásamt sjálfum sjer, heiður“. Að lokum bar prófes- sorinn fram þá ósk, að árang- ursrik samvinna mætti haldast í framtíðinni milli háskóla ís- lands og Danmerkur. Sömu vonir voru bornar fram af dokt orsefninu. Bókina hefir dr. Jón tileink- að móður sinni og konu sinni. Lofsamleg ummæli starfsbróður. I kjallaragrein í Jyllands- posten ritar dr. med. Axel Slott ved, berklayfirlæknir grein um doktorsritgerð Jóns Sigurðsson ar og fer um hana miklum við- urkenningarorðum. Segir yfir- læknirinn meðal annars: „að hún sje ein markverðasta dokt orsritgerðin um berklarann- sóknir, sem út hafi komið hin síðari ár“. Dr. Jón Sigurðsson. Morgunblaðið hefir notað tækifærið, nú er dr. Jón Sig- urðsson er staddur í bænum, til að spyrja hann um efni dokt- orsritgerðar hans, þó aðeins væri hægt að tæpa á því helsta. Fórust dr. Jóni orð á þessa leið: „í allflestum löndum finnast kúaberklar hjá nautgripum og •eru þeir að því leyti frábrugðn- ir mannaberklum, að þeir eru skaðvænir fyrir nautgripi, ýms dýr önnur og menn. En manna- Jón Sigurðsson. berklar eru hinvegar ekki skað legir fyrir nautgripi. Það hefir verið mikið um kúaberkla í Danmörku, þó að nú sje langt komið útrýmingu þeirra. Mark mið rannsókna minna var m. a. það, að rannsaka að hve miklu leyti berklar meðal manna s.töfuðu frá nautpeningi og á hvern hátt sú smitun hefði farið fram. Fann jeg við rann- sóknir, að , rúmlega 40% af berklaveiku sveitafólki á vest- urströnd Jótlands (þar sem rannsóknirnar fóru fram) hafði smitast frá nautgripum. Enn- fremur þykist jeg hafa fundið sterkar líkur fyrir því, að smit unin hafi átt sjer stað við inn- öndun í fjósum, þar sem berkla veikar kýr voru, enda sýndi jeg fram á, að skaðvænir berklar eru í ryki í slíkum fjósum. Hins vegar kom í ljós, að aðeins lítill hluti þeirra, sem smitast höfðu af berklum frá nautgrip- um, höfðu smitast frá mjólk. Kúaberklar eru alveg eins skaðlegir fyi'ir menn eins og mannaberklar og hagar veikin sjer eins frá þeirri berkla- „tegund“ (Baciltype), sem hinni. Engin smithætta frá íslenskum kúm. „Teljið þjer slíka berklasmit hættn vera hjer í landi? spyr jeg dr. Jón. „Nei, samkvæmt þeim rannsóknum, sem dýra- læknar hafa gert hjer á landi, lítur út' fyrir, að ekki sjeu hjer aðrir berklar í nautpeningi en mannaberklar, sem eiginlega eru alveg óskaðlegir fyrir naut- pening, og sýkist hann ekki það mikið, að smithætta komi til greina“. Reykvíkingur. Dr. Jón Sigurðsson er Reyk- víkingur, fæddur hjer í bæn- um og uppalinn, sonur Sigurð- ar heit. Jónssonar og frú Marg- rjetar Guðmundsdóttur, nú á Vesturgötu 9 Hann var kunnur íþróttamað ur á skólaárum sínum (kapp- liðsmaður í Val). Hann átti sæti í Knattspyrnuráði Reykjavíkur í mörg ár og ennfremur í stjórn ÍSÍ. Stúdent er hann frá Mentaskólanum 1926 og útskrif aðist úr læknadeild háskólans 1933. Síðan hefir dr. Jón dvalist í Danmörku, lengst af, að und- antekinni ferð til Austurlanda. Styrjaldarárin hefir hann starf að við Spangsbjerg Sanatorium við Esbjerg og við fyrnefndar stofnanir í Odense. Dr. Jón Sigurðsson er nú á förum aftur til Danmerkur og tekur þar við störfum sínum á ný eftir sumarleyfið. Ekki seg ist hann geta neitt sagt um hvort hann kojni heim aftur í bráð. í. G. í óbygðum Auslur-Grænlands NÝLEGÁ er komin út bók með Jjessu nafni, og segir hún frá leiðangri þeini, er send- ur var til Austur-Grænlands 1909 til þess að leita að þeim Mylius-Erieksen og fjelaga hans, er urðu þar úti árið 1907. Formaður þessa leið- angurs var Einar Mikkelsen sjóliðsforingi, sem rnörgum er kunnur hjer á landi. Ilann rit- aði bók um þennan leiðangur og heitir hún ,,Tre Aar paa Grönlands Östkyst1 ‘, því að leiðanguifinn tók svo langan tíma fyrir hanh og fjelaga hans, Iversen. Þeir lentu í hin um ótrúlegustu mannraunum, og voru skildir eftir einir síns liðs í óbygðunum og voru því á Grænlandi tveim árum leng ur en þeir höfðu gert ráð fyrir. 1 bókinni „1 óbygðum Græn, lands“ hefir Sigurður Ilelga- son rithöfundur endursagt söguna um hið ævintýraríka ferðalag þeirra fjelaga og hina ófyrirsjáanlegu útlegð þeirra. Mikkelsen er maður óraupsamur og frásögn hans er öli mjög blátt áfram. Og ekki verður frásögnin síður blátt áfram í höndum Sigurð- ar. Segir hann svo sjálfur á eftirmála að í frásagnastíln- um ha.fi hann eigi síst haft unga fólkið í huga, því að engir kunni betur en það, að meta ævintýralegar frásagnir um hreystileg afrek og drengi legt hugarfar Austurströnd Grænlands er það land, sem næst liggur Is- landi. En náttúran er þar mörgum sinnum stórbrotnari í öllu sínu eðli. Ilefir það> jafnan þótt hin mesta hreysti raun, að berjast þar við erfið- Framliald á bls. 11 Miðvikudagur 26. sept. 1945, ■ ■ —— ■ 1 ——— ■ ——— — i'i ■■■*. Verðlagningarmál 0. Johnson & Kaaber h.f. Á MÁNUD AGSKV ÖLD sendi dómsmálaráðherra út svohljóðandi tilkynningu: „Sakadómarinn í Reykjavík sendi dómsmálaráðineytinu hinn 11. þ. m. útskrift að rjett- arrannsókn í verðlagsbrotamáli heildverslunarinnar O. John- son & Kaaber h. f., ásamt fulln aðarskýrslu hins löggilta endur skoðanda, Ragnars Ólafssonar, hrl., er falin hefir verið rann- sókn á verðlagningu hlutafje- lagsins. Samkvæmt þeirri skýrslu nemur hin ólöglega álagning hlutafjelagsins kr. 369,855,23. Dómsmálaráðuneytið hefir í dag lagt fyrir sakadómara að ljúka rannsókn máls þessa og höfða síðan mál gegn stjórnend um og framkvæmdastjórum hlutafjelagsins, þeim Arent Claessen og Ólafi Johnson, fyr- ir brot gegn verðlagslöggjöf- inni, gjaldeyrislöggjöfinni og 15. kafla hegningarlaganna, svo og til upptöku á hinni ólöglegu álagningu. Ákvörðun um máls- sókn gegn meðstjórnanda fje- lagsins, Friðþjófi Johnson, verður tekin er hann kemur til landsins og mál hans hefir ver- ið rannsakað“. Svo mörg eru þau orð. •— Blaðið hefir snúið sjer til formanns hlutafjelagsins 0. Johnson & Kaaber, hr. Ólafs Johnson og spurt hann að því, hvort hann vildi taka nokkuð fram útaf tilkynningu þessari frá dómsmálaráðherra. Hann kvaðst,, á núverandi stigi ekki vilja gerast fjöl- orður um mál þetta. Enda þótt ■ miklu moldviðri hafi verið þyrlað upp, sagði hann um þetta verðlagningarmál heildverslunarinnar þá hefi jeg hingað til látið öil blaðaum- mæli um það efni, sem vind ,um eyru þjóta. M. a. vegna ;þess að'jeg tel ekki ástæðu til, liú frekar en endranær að svara hvatvíslegum skrifum Þjóðviijans og Tímans eða, annara blaða í minn garð. Að því kemur, sagði Ólafur Johnson ennfremur, að öll kurl koma til grafar í þessu hiáli, svo það upplýsist til fulls frá öllum hliðum. Enda hefi jeg og meðstai’fsmenn mínir lagt kapp á. að öll gögn málsins verði lögð fram spm greiðast, svo hvert atriði þess skýrist scm best. Jeg vil þó ekki láta hjá líða að taka það fram, sagði Ólaf- ur Johnson að endingu, úr því jeg minntist á þetta mál á annað borð, að Þjóðviljinn fer þar með staðlausa stafi, þegar hann segir í gær, að jeg eða heildverslun mín hafi framið svindl og svik. Slík ummæli eiga að mínu áliti enga stoð í veruleikanum þar .sem jeg eða fyrirtæki það, sem jeg veiti forstöðu hefi aldrei farið í launkofa með neitt af því, sem máli þessu við kemur, hvorki gagnvart þeim yfirvöldum, sem liafa með höndum eftirlit með inn< flutning, og verfelagsmálum, nje gagnvart öðrum aðilum,, sem um þetta mál fjalla. ★ Ólafur .Tohnson óskaði að annað væri ekki haft eftir, honum viðvikjandi þessu málí að_svo stöddu. En það er tví- mælalaust skoðuh ritstjóra blaðsins að þetta verðlagn-< ingarmál breyti mjög um svip, frá því það er túlkaðj einhliða og þegar málið upp- lýsist nákvæmlega frá öllumi hliðum. IVIinningarsjóður Kristínar Egils- déttur 1. gr. Sjóðurinn heitir „Minn- ingarsjóður Kristínar Egils- dóttur“, og er stofnaður af ætt- ingjum og erfingjum hennar, til minningar um hana, en hún var fædd 20. sept. 1864, dáin 18. okt. 1941, dóttir Egils Jónsson- ar bókbindara og bókaútgef- andá í Reykjavík og konu hans Guðrúnar Halldórsdóttur, pró- fasts á Melstað, Ámundasonar. 2. gr. Sjóðurinn er nú við stofnun hans (í júní 1945) að upphæð kr. 8808.89 auk vaxta, en eykst væntanlega með fram lögum ættingja, sem enn hafa ekki lagt í hann, og annara vina, sem vilja styðja hann og tilgang hans, sjerstaklega söng vina. 3. gr. Varðveisla og stjórn sjóðsins skal vera í höndum Tónlistarskólans í Reykjavík, sem skal geyma hann í ríkis- skuldabrjefum eða á annan jafn tryggan hátt. Sjóðstjómina skulu skipa formaður skólaráðs, skólastjóri og elsti starfandi kennari skólans. Hún birtir reikning sjóðsins árlega í Stjórn artíðindum eða Lögbirtinga- blaði. 4. gr. Höfuðstól sjóðsins og innlög önnur en vexti, má aldrei skerða og skulu vextir lagðir við hann þangað til hann er orðinn kr. 25.000 — tuttugu og fimm þúsund krónur. Þeg- ar hann hefir náð þeirri upp- hæð, skal leggja við hálfa vexti, en hálfum vöxtum var til stuðn ings söngment í landinu skv. ákvörðun sjóðsstjórnarinnar, svo sem til að styrkja efnilega tónlistarnemendur eða til hljóð færakaupa eða á annan hátt. Má verja hálfum vöxtum þann- ig árlega, eða ef stjórnin telur það'betur henta, að leggja sam- an vxti fyrir tvö eða fleiri ár, til sjerstakrar notkunar. Þegar sjóðurinn er orðinn 50 þúsund krónur, má stjórnin ákveða að verja til úthlutunar meira en helming vaxta, en aldrei sje þó minna en % hluti vaxta lagður við höfuðstól. 5. gr. Hætti Tónlistarskólinn í Reykjavík að starfa með nú- Frarnh. á 5. síSu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.