Morgunblaðið - 27.09.1945, Síða 7
Fimtudagur 27. sept. 1945
MORGUNBLAÐIÐ
7
AKRANESBRJEF
Nýsköpun atvinnuveganna.
ÞESSI TVÖ orð hafa mikið
innihald. 30 nýtísku togarar,
100—200 mótorbátar, mörg far
þega- og flutningaskip o. s. frv.
Við hjer á Akranesi erum að
reyna að tolla í tískunni, við er-
um að kaupa og láta byggja
báta við okkar hæfi. En bögg-
ull fylgir skammrifi, eins og
málshátturinn segir. Það - er
ekki einhlítt að fá báta og skip,
Það þarf meira með.
Rikisstjórn og Nýbyggingar-
ráð hafa sýnt lofsverðan dugn-
að í útvegun skipanna, en þau
verða að gera meira ef vel á að
fara.
Hafnleysið hjer við Faxa-
flóa hefir löngum verið erfið-
asta viðfangsefnið fyrir útgerð-
ina og menn eru kvíðafullir
vegna nýju bátanna, sem verða
að liggja á hafnleysinu fyrir
opnu hafi, en úr þessu er senni
lega hægt að bæta fljótlega, ef
rjett er á haldið.
Landshöfn á Akranesi.
BRETAR óg Bandaríkja-
menn bygðu á stríðsárunum
mikla höfn, einhvers staðar á
Bretlandseyjum og um leið og
þeir gerðu innrásina miklu á
Frakkland, sigldu þeir höfn-
inni yfir þangað og söktu niður
hafnargörðum á einni nóttu,
sem voru yfir þrír kílómetrar
að lengd. Þessir hafnargarðar
eða höfnin var gerð úr járn-
bentum steinsteypukössum, það
háum, að þeir stóðu vel upp úr
sjó um stórstraumsflóð. Þessir
kassar eru sennilega 50—60
metra langir eða þar yfir, 18—
20 metra háir og 15 metra breið
ir eða meira. Kassarnir eru með
vatnsþjettum skilrúmum og lok
aðir í báðum endum. Þeir voru
dregnir af venjulegum drátt-
arbátum til Frakklands og
sökt þar á hæfilegu dýpi og
myndaðist þegar ágæt stór höfn
fyrir innan þá.
Nú hefi jeg það frá allgóð-
um heimildum að Bretar hafi
flutt kassana heim til sín aftur
og að þeír vilji selja þá fyrir
sanngjarnt verð af því að þeir
hafi ekki not fyrir þá' heima
hjá sjer. Þarna er sjertakt tæki
færi lagt upp í hendurnar á okk
ur til þess að við getum á svip-
stundu leyst mesta vandamál
sjávarútvegsins við Faxaflóa og.
það er að byggja næsta sumar
landshöfn á Akranesi fyrir stór
an hluta af5 nýja flotanum og
skilyrði fyrir slíka höfn frá
náttúrunnar hendi eru hvergi
eins góð við Faxaflóa sem hjer.
Til þess að gera fullkomna höfn
þarf sennilega 20—25 kassa af
áminstri gerð. Það er leikur
einn að flytja kassana hingað
frá Bretlandi aftan í dráttar-
bátum, eða á sama hátt og þeir
vorU fluttir til Frakklands og
þaðan aftur. Þarna er skemti-
legt viðfangsefni fyrir litla,
þróttmikla þjóð að glíma við
og þarna er tækifæri sem við
tafarlaust verðum að notfæra
okkur, því slíkt tækifæri kem-
ur aldrei aftur. Nefndin, sem
nú er úti í Englandi til þess
að ganga frá samningum um
byggingu nýju togaranna gæti
hæglega athugað þetta mál í
samráði við íslensku sendisveit-
ina í London, við megum engan
tíma missa, þetta verður að at-
hugast tafarlaust.
Verklegar framkvæmdir.
Á sumrinu, sem nú er að líða,
hafa verið miklar bygginga-
framkvæmdir hjer. Hafnargarð
urinn lengdur um 30 metra, svo
nú geta hæglega afgreitt sig við
hann skip upp að 5000 smál.
stærð. Innri hafnarbryggjan
lengd um 24 m og við hana
geta þá afgreitt sig togarar og
línuveiðarar, og 1 Lambhús-
sundveru 2 mótorbátabryggjur.
Þar er líka ágæt dráttarbraut
fyrir skip og báta. Vjelavið-
gerða- og bílaverkstæði eru
hjer mörg. Hjer er v.erið að
byggja nýtísku sjúkrahús fyr-
ir 30—40 sjúklinga og er ráð
fyrir gert, að það verði mjög
fullkomið, með öllum nýjustu
fáanlegum tækjum o. s. frv. 30
—40 íbúðarhús eru í smíðum,
nýtt bakarí, mjólkur- og mat-
arbúðir, húsgagnaverkstæði o.
fl. o. fl.
Rafmagn.
Byggingar Andakílsárvirkj-
unar eru í fullum gangi. Þar er
verið að virkja 5000 hestöfl og
er ráð fyrir gert, að þessu verki
verði lokið næsta haust og þá
verður nóg rafmagn til ljósa,
suðu, hitunar og iðnaðar fyrir
það fólk, sem nú býr á virkj-
unarsvæðinu, en áður langt líð-
ur verða virkjuð þau 7000 hest-
öfl, sem eftir eru og þarf því
ekki að óttast skort á rafmagni
fyrst um sinn, en þegar þessi
12000 hestöfl eru fullnotuð, þá
eru samt nærtækir möguleikar
fyrir mikilli aukningu, en áður
en á því þarf áð halda, verður
sennilega hin mikla atómorka
búin að leggja undir sig heim-
inn.
Akranes í miklum vexti.
Bærinn er í miklum vexti,
enda eru skilyrði góð og áður
en varir, verður Akranes orðið
næst Reykjavík hvað fólks-
fjölda snertir. Möguleikar til
ræktunar landsins eru fram-
úrskarandi bæði fyrir tún og
garðrækt. Fiskimiðin hjer úti
í Faxaflóa þau bestu, sem hugs
ast getur. Þorskur og síld allt
árið um kring. En við höfum
ekki enn þá notað okkur nema
að mjög óverulegu leyti auðæf-
in í síldinni. Hjer má veiða
hana í stórum stíl frá maí-byrj-
un til áramóta ár hvert að júlí
mánuði undanskildum, því þá
hrygnir síldin og fæst ekki á
meðan. Nú eru bátar hjeðan
á veiðum og afla daglega þeg-
ar veður leyfir 60;—200 tunnur
síldar á dag hver bátur. En það
er eitt atriði, sem veldur okk-
ur miklum erfiðleikum og
áhyggjum. Fyrir nokkru var
siglingalögunum breytt þannig
að sjómenn geta sagt upp skip-
rúmi með sólarhrings fyrirvara,
en áður voru menn ráðnir í
skiprúm til ákveðins tíma t. d.
fyrir vertíðina o. s. frv. og gátu
þeir þá ekki hætt fyrirvaralaust
nema gildar ástæður væru fyr-
ir hendi. Nú er svo ástatt hjer
á Akranesi, að heimamenn,
mjög margir hafa stundað land
vinnu (byggingavinnu) hjer í
sumar og höfum við því orðið
að fá mikið af aðkomu sjó-
mönnum á bátarc og beir hafa
reynst yfirleitt ' ijc 1 illa þó
ýmsar góðar u !• c-knirigar
hafi verið. Þeir haf,: sumum
bátum einn eð 1 .ri sagt upp
skiprúmi næstum daglega og
þá hefir oft verið erfitt að fá
menn í staðinn. Þessu verður
að breyta aftur í fyrra horf áð-
ur en meiri vanræði hijótast
af. Sumir bátanna hafa orðið
að hætta af þessum ástæðum,
en aðrir hafa ekki getað byrjað
vegna skorts á sjómönnum. —
Þessi tregða sjómanna til að
vera á bátunum stafar ekki af
því að launin eða hluturinn,
sem menn fá sje of lítill, nei,
þvert á móti.
Fyrst og fremst hafa sjómenn
irnir háa tryggingu, sem þeir
fá útborgaða ef afli bregst. í
öðru lagi eru kjörin þannig.
37% af brúttó afla sem skiftist
á milli sjö manna. — í einni
tunnu af ferskri síld eru 115
kg. og til söltunar er greitt 42
au. pr. kg. eða 48.30 pr. tunnu.
Sjöundi hlutinn úr 37 prósent
verður þá 255 krónur og 30 au.
úr 100 tunnu afla fyrir hvern
háseta. Ef aflað er til frystingar
þá er verðið 50 au. pr. kg. og
verður útkoman þá með sama
reikningi 303 = 93 au. fyrir
hvern mann úr 100 tunnu afla.
Stefnubreyting verður að koma
fljótlega ef útgerðin á ekki að
veslast upp og það færi betur
að við þyrftum ekki á' því að
halda að flytja inn í landið sjó-
menn frá hinum Norðurlönd-
unum til þess að geta haldið
útgerðinni í horfi.
•—o—
En þrátt fyrir ýmsa óáran í
sumu mannfólkinu, þá býr þjóð
in yfir vorhug og miklum
möguleikum til bættra að-
stæðna í atvinnuháttum sínum,
en við verðum-að rækta hugar-
farið til þess að geta afkastað
meiri og betri afurðafram-
leiðslu til lands og sjávar en
nokkru sinni fyrr, og til þess
að komast lengra en nágranna-
þjóðirnar, verðum við að vinna
meira og betur en þær, og það
er okkur lifsnauðsyn.
21. -sept. 1945.
Haraldur Böðvarsson.
Ný bók:
„Eskimóadrengur-
inn Kæjú"
NÝLEGA ER komin á bóka-
markaðinn bók, sem nefnist
,,Eskimóadrengurinn Kæjú“.
En þetta er í rauninni saga, af
Kæjú, foreldrum hans, systkyn
um og vindm. Kæjú átti heima
í eskimóaþorpi í Alaska og er
það kenslukonan hans, Marga-
ret C. Swenson, sem ritar sög-
una.
Þetta er skemtileg og fróðleg
saga, sem börn og unglingar
munu háfa gaman af að lesa, en
einnig fullorðnir. Bókin er
prýdd skemtilegum teikningum
og eru margar þeirra í litum.
Ragnar Jóhannesson, magister
íslenskaði, en útgefandi er Bóka
útgáfa Guðjóns Ó. Guðjóns-
sonar.
Ráðherra handtekinn.
LONDON: Fyrrverandi dóms
málaráðherra Jugoslafa, Mar-
kowitz, hefir verið handtekinn,
sakaður um samvinnu við óvin-
ina. Búist er við dauðadómi yf-
ir ráðherra þessum.
Rafmagnsofnar
sem stilla má á 500, 1000 og 2000 wött
sjerlega hentugiir og sterkir.
Jjbermacjer&in JJ JJ£) JJ
Lækjargötu 10B.
SAUMUR
Útvegum saum frá Svíþjóð.
~JJei(dueri£. lÁjacpiúiar 3Ájara
-*xíXíxS"S*sxíxix®Hj
'an
^S*Sx£><ixg^x$*8xSxSx$xi^>$x$>$-^<tx5x$xfx$xSxixSx$x$x***>»
Sendisveinn
óskast nú þegar. Upplýsingar hjá
1JeriLmin Ujörn ^JJriitii
tjaníicm
H úsgögn
Höfum fyrirliggjandi Borðstofustóla úr
birki.
Einnig vönduð Bárnarúm með grindum.
^.jJímenna ^JJú
titoja
imenna ^yyuiffacjnauinnuitofan
Vatnsstíg 3B. — Sími 3711.
«x1HHÍxSXSx$^XtxSX«x*.*<Jx*^txÍXÍxSx*XÍxS«S^xSx$XÍXS.^xtxí
Vefnaðarvöruverslun
(sjerverslun) á góðum stað til sölu.
Tilboð sendist blaðinu fyrir föstudags-
kvöld merkt ,,Sjerverslun“.
' í
❖ ý
y ■■ iii ii ■ i . ■— i ' ■■ • m ■ ■ ^ ■ w ■ «... . — ■
V T
I
1
$
Endurskoðun
♦>
Ungur maður, með fullnaðarpróf úr g
Verslunarskóla Islands eða samsvarandi
mentun, getur fengið atvinnu á endur- %
t
K*
skoðunarskrifstofu, hjá löggiltum end- •>
‘i
nrskoðanda, nú þegar eða 1. janúar n.k. X
1 X
Eiginhandar umsókn með upplýsing-
um um aldur, mentun og fyrri störf
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 1. okt.
n.k. merkt „ENDURSKOÐUN".
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t