Morgunblaðið - 27.09.1945, Qupperneq 15
Fimtudagur 27. sept. 1945
MORGUNBLAÐIÐ
wrn~1
15
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4
Fjelagslíf
ÆFINGAR f KVÖLD
V Iþróttavellinum:
Kl. 7 knattspyrna 2.
flokks.
Stjórn KR.
DANSLEIKUR
verður hald-
inn laugardag-
inn 30. þ. m. í
hinum glæsi-
legu híisakynnum
„Hótel Þröstur".
Iþróttafólk, — aðgöngu-
miðar verða seldir í Vörubúð
inni, frá hádegi á föstudag.
Tryggið ykkur miða í tíma.
Stjómin,
LITLA
FERDAFJELAGIÐ
Fjelagar, munið fundinn í
kvöld í V. R. Vonarstræti 4.
Mætið rjettstundis.
Stjórnin.
FARFUGLAR!
Skemtifundur verður hald-
inn á „Þórscafé", ITverfis-
götu 116 í lcvöld kl. 20,30.'
Sameiginleg kaffidrykkja,
skemtiatriði, dans.
Skemtinefndin.
Kaup-Sala
Tvenn drengja
MATRÓSAFÖT
2—3 ára, eru til sölu með
tækifærisverði á Bergþóru-
götu 27, kjallara.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta.. verði, —
Bótt heim. — StaðgreiSsla. ~
Bími 5691. — Fornverslunin
Grettisgötn 45.
RISSBLOKKIR
Jyrir skólaböm og skrifstofur.
Blokkin 25 aur.
Bókaútgáfa Guðjóns ö. Guð-
jónssonar Hallveigarstíg 6A.
LO.G.T,:
ST. FRÓN 227.
Fundur í kvöld kl. 8,30 í
Templarahöllinni. Inntaka. —
Jón Ilafliðason segir nokk-
uð frá störfum og framkvæmd
um sem Reglan hefir nú með,
höndum. Kaffidrykkja.
FRE Y JUF JELAGAR
Fundur í kvöld kl. 8,30. —
Spilakvöld. — Æt.
UPPLÝSINGASTÖÐ
nm bindindismál^ opin í dag
kl. 6«r-8 e. h. í Templarahöll-
inni, Fríkirkjuveg 11.
►♦♦♦^^^^^‘♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Tapað
LJEREFTSP OKI
með ýmsu dóti tapaðist á leið
frá Mjólkursamsölunni inn að
Sogamýri. Finnandi beðinn
að tilkynna í síma 2375.
GULL-VASAÚR
tapaðist í fyrradag í Mið-
bænum. Skilist á lögreglu-
stöðina, gegn fundarlaunum.
2)a
269. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 10.15.
Síðdegisflæði kl. 22.45.
Ljósatími ökutækja frá kl.
20.00 til kl. 6.40.
%
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni.
Næturakstur annast Bifrst,
sími 1508.
□ Kaffi 3—5 alla virka daga
f. O. O. F. 5 = 127927814 =
Veðurlýsing: Klukkan 18.00 í
gær var hægviðri á A-landi og
sumstaðar ljettskýjað. Annarstað
ar var S- og V-gola eða kaldi
með smáskúrum sumsstaðar á S-
og V-landi. Hiti 5—10 stið. Grunn
lægð fyrir norðvestan land, önn
ur að nálgast frá Suður-Græn-
landi. — Veðurútlit til hádegis í
dag: — SV-gola eða kaldi og smá
skúrir fyrst, en S-stinningskaldi
og rigning með morgninum.
45 ára er í dag Bjarni M. Ein-
arsson, Suðurgötu 22, Reykjavík.
Kvöldskóli K.F.U.M. verður
settur í húsi K. F. U. M. og K.
við Amtmannsstíg mánud. 1. okt.
kl. 8.30 síðdegis stundvíslega. —
Allir umsækjendur mæti við
skólasetningu, ella eiga þeir á
hættu að missa af skólavist, því
margir eru á biðlista.
Kensla í sænsku. Lektor Peter
Hallberg, fil. lic., mun halda
sænskunámskeið fyrir almenning
í háskólanum í vetur þriðjudaga
kl. 6—8 e. h. Væntanlegir nem-
endur ,gefi sig fram í skrifstofu
háskólans. Kensla hefst þriðju-
dag 2. okt. kl. 6. Nemendur hafi
með sjer sænskubók Pjeturs G.
Guðmundssonar og Lejströms.
Meistaraprófsfyrirlestur í ís-
lenskum fræðum flytur Lárus H.
Blöndal föstudag 29. sept. kl. 5
stundvíslega í 1. kenslustofu há-
skólans.
Handíðaskólinn. Mynlista- og
kennaradeildirnar taka til starfa
1. okt. n. k. Nemendur mynlista
deildarinnar mæti í skólanum
þann dag kl. 13.00 og nemendur
kennaradeildarinnar sama dag
klukkan 16.00. — Aðra deildir
skólans taka til starfa um og eftir
miðjan október. Verður nánar til
kynt síðar.
í fyrrinótt komu frá Englandi
loftleiðis þeir Haraldur Árnason,
stórkaupmaður, Helgi Guðmunds
son, bankastjóri og Jónas Þor-
bergsson, útvarpsstjóri. — Þá
fóru til Englands Eiríkur Sigur-
bergsson og Einar Pjetursson. Til
Svíþjóðar fóru í gærmorgun Geir
Stefánsson, kona hans og þrjú
börn, einn starfsmaður rússnesku
sendisveitarinnar ásamt konu
sinni og börnum og sænskur verk
fræðingur. Þá eru nýlega farn-
ir utan til Svíþjóðar, Stefán ís-
landi, Bjarni Forberg, Guðm.
Hlíðdal, Otto Johansson, sendifull
trúi Svía og umboðsmaður SILA.
Eftirtalin númer hlutu vinn-
inga í happdrætti hlutaveltu
Varðar, er dregið var hjá borgar
fógeta: 1. Flugferð til Akureyrar
nr. 4128, 2. Kol, hálft tonn 16775,
3. Hveiti, 1 sekkur 4102, 4. Maís,
1 sekkur 28627, 5. Kol, hálft tonn
33003, 6. Olíuofn 28507, 7. Kol,
hólft tonn 35661, 8. Sjóferð til
♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Kensla
ENSKUKENSLA
Lestur, stíla, talæfingar. Upp-
lýsingar í síma 3664.
■♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<$>♦♦♦♦♦
Vinna
HREIN GERNIN GAR .
Jón Benediktsson. Sími 4967.
Akureyrar 18674, 9. Kol, hálft
tonn 22867, 10. Olíuvjel 18899, 11.
Kol, hálft tonn 25539, 12. Spila-
borð 16940, 13. Kol, hálft tonn
27278, 14. Bílferð til Akureyrar
29049, 15. Kol, hálft tonn 2842,
16. Veiðileyfi í Borgarfirði í viku
fyrir 4 stengur 33827. — Vinning-
anna sje vitjað í skrifstofu fje-
lagsins, Thorvaldsensstræti 2.
(Birt án ábyrgðar).
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30 Morgunfrjettir.
12.10 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
20.00 Frjettir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar):
a) Lagaflokkur eftir Schumann
b) Konsert-vals í E-dúr eftir
Moszkowsky.
20.50 Frá útlöndum (Jón Magn-
ússon).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
hljóðpípu.
21.15 Erindi: Samvistum við
Dani (Steingrímur Matthíasson
læknir).
21.40 Hljómplötur: Dönsk söng-
lög.
Templarar mól-
mæla vínsölu á
Hóiel Borg
Vilja borgarafund í
Reykjavík um áfengis-
málin.
SÍÐASTLIÐIÐ þriðjudags-
kvöld gekkst stúkan Verðandi
fyrir almennum templarafundi
hjer í bænum, og var hann hinn
fjölsóttasti. Á fundinum var
gagnrýnt mjög það ástand, sem
nú ríkir í sölu áfengis og bent
á hinar sorglegu afleiðingar,
sem aukinn drykkjuskapur hef
ir í för með sjer. Ræðumenn
voru: Sigfús Sigurhjartarson,
Þorsteinn J. Sigurðsson og
Pjetur Zophoniasson.
Á fundinum voru gerðar eft-
irfarandi samþykktir:
Almennur fundur templara,
haldinn af st. ,,Verðandi“, þann
25. sept., mótmælir harðlega
vínveitingum á Hótle Borg og
öðrum tilslökunum í sambandi
við áfengisveitingar og sölu í
landinu.
Almennur fundur templara,
haldinn að tilhlutun st. „Verð-
andi“ nr. 9, skorar á íþrótta-
og menningarfjelög landsins,
að vinna að megni á móti nautn
áfengri drykkja, og útiloka þá
frá skemtunum og dansleikjum
fjelaganna.
Jafnframt skorar fundurinn
á fjelögin að vinna að alefli
gegn öllum undanþágum á vín-
veitingum og áfengissölu, og
öllu er gerir landslýð hægara
að ná í áfengi.
Almennur fundur templara,
haldinn af st. „Verðandi“ nr. 9,
skorar á þingstúku Reykjavík-
ur að gangast fyrir almennum
box-garafundi í Rykjavík um á-
fengismál Reykjavíkui'. Á fund
inn sje boðið ráðherrum ög
þingmönnnum bæjarins.
Almennur fundur templara,
haldinn í Reykjavík. 25. sept.
1945, skorar á þingmenn Rvíkur
að vinna að því, af alefli, að lög
um hjeraðabönn komi strax til
framkvæmda.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«»
Frá Laugarnesskólanum
Öll skólaskyld börn í undæmi Laugarnesskólans,.
seni ekki hafa stundað bóknáin í skólanum nú í sept-
ember, eiga að mæta í skólanum mánudaginn 1. októ-
ber sem hjer segir:
Kl. 1 e. hd. mæti öll II, 12 og 13 ára böra (fædd
1934, 1933 og 1932), sein voru í skólanum
veturinn 1944—45.
Kl. 2 e. hd. mæti öll 11—13 ára börn, sem ekki
hafa verið í skólanum áður. KI. 2 mæti
einnig öll 7—10 ára börn, (fædd 1838, 1937,
1936 og 1935), sem ekki hafa verið í skól-
anum í haust *
Er barn getur ekki mætt í skólanum samkvæmt of-
anrituðu, verða aðstandendur að mæta fyrir barnið á
ákveðnum tíma eða gera á annan hátt fullnægjandi
grein fyrir fjarveru barnsins.
Kennarafundur verður þriðjudaginn 2. október kl.
3,30 e, hád.
Laugarnesskóla í september 1945.
JÓN SIGURDSSON.
Barnaskóli Hafnarfjarðar
Börn mæti í skólanum sem hjer segir:
Laugardaginn 29. sept. kl. 10 árdegis mæti
öll böm úr skólahjeraðinu, sem verða skóla-
skyld á þessu ári (fædd 1938). Ennfremur
mæti á sama tíma öll eldri börn, sem ekki
liafa verið í skólanum áður.
Þriðjudaginn 2. okt. kl. 10 árdegis mæti
þau böm, sem voru í 7., 6., 5. og 4, bekkjum
sl. vetur. Kl. 2 eftir hádegi mæti þau börn,
sem voru í 3., 2. og 1, bekkjum sl, vetur.
SKÓLASTJÓRINN.
Okkar hjartkæri sonur, unnusti og bróðir,
SIGURÐUR SIGURÐSON, vjelstjóri,
andaðist 26. þ. mán.
Kristín Ólafsdóttir, Sigurður Sigurþórsson
Ágústa Ágústsdóttir og systkini
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
ÁRMANNS SYEINSSONAR,
lögTegluþjóns fer fram frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 28. þ. m. og hefst með bæn frá heimili hins látna,
Hringbraut 33 kl. 1,30 e. h.
Blóm og kransar afbeðnir.
Athöfninni verður útvarpað.
Jóna Jóhannesdóttir og böm.
-
Jarðarför konunnar minnar,
MAGNÚSÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR
fer fram föstudaginn 28. sept. frá heimili hinnar látnu,
Miðstræti 3. Húskveðja hefst kl. 2 síðd.
Fyrir mína hönd, ba'ma minna og annara vanda-
manna
Magnús ísleifsson, Vestmannaeyjum.
Jarðarför móðurb'róður okkar,
SÍRA HALLDÓRS BJARNASONAR
frá Presthólum, sem andaðist 19. þ. m., fer fram föstu-
daginn 28. þ. m. kl. 10 f. h. frá Dómkirkjunni.
Maren og Lára Lárusdætur.
>♦♦♦♦♦♦♦