Morgunblaðið - 01.11.1945, Blaðsíða 11
Fimtudagur 1. nóv. 1945
MORGUNBLAÐIÐ
11
Flmm mínútna
bossgáta
ctZ) ci (j L ó L
Lárjett: — 1 með eiturlyfi —
6 borðandi — 8 ræktað land •—
10 ‘á litinn — 12 ríkiserfingjar
•— 14 á í Evrópu — 15 eignast
•— 16 hæða — 18 langan gang.
Lóðrjett: — 2 veiðarfæri — 3
borða — 4 bits — 5 þjóðflokk-
ur — 7 líkamshluta — 9 krubba
— 11 smáögn — 13 núningur
■— 16 fyrir utan — 17 tveir eins.
^►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
I. O. G. X
St. FREYJA
Fundur í kvöld kl. 8,30. —
Rætt unx húsmál templara.
Æ.t.
UPPLÝSINGASTÖÐ
Þingstúkunnar opin kl. 6-8 í
Góðtemplarahúsinu.
Kaup-Sala
ÚTVARPSTÆKI
til sölu á Hverfisgötu 76B,
RISSBLOKKIR
iyrir skólabörn og skrifstofur.
Blokkin 25 aur.
Bókaútgáfa Guðjóns ö. Guft-
jónssonar Hallveigarstíg 6A.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta., verði, —
Bótt heim. — Staðgreiðsla. —
Bími 5691. — Fomverslunin
Grettisgötu 45.
HJÁLPIÐ BLINDUM
Kaupið minningarkort bóka-
sjóðs blindra. Fást hjá frú
Maren Pjetursd. Laugaveg 66.
Körfugerðinni Bankastr. 10
'gjaldkera fjelagsins Bókhlöðu
stíg 2 og á skrifstofu fjelags-
ins Ingólfsstræti 16.
303. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 3.10.
Síðdcgisflæði kl. 15.27.
Ljósatími ökutækja kl. 16.50
til kl. 7.30.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 1633.
I. O. O. F. 5 = 127111814 =
9. O.
Skipafrjettir. Brúarfoss er í
Leith. Fjallfoss fór frá New York
25. okt. Lagarfoss er í Reykja-
vík. Selfoss er í Reykjavík.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Leiga
SMURT BRAUÐ
Fundarsalur til leigu á sama
stað. Sími 4923 kl. 1-3.
Kensla
STÚLKA
óskar eftir að fá einkatíma í
sænsku í vetur. Tilboð merkt
„Sænska“ sendist afgr. Mbl.
fyrir laugardagskvöld.
■•<»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Fjelagslíf
ÆFINGAR í kvöld:
1 Mentaskóíanum:
Kl. 9,30-10,15: Handb. karla.
TENNIS,
byrjar um helgina hjá K.R. í
íþróttahúsi I. B. R. (Andrews-
húsinu). Nokkrir tímar laus-
ir. — Nánari upplýýsingar
gefur Haraldur Ágústsson, —.
sími 1483.
ÆFINGAR Á MORGUN
ÆFINGAR Á MORGUN
eftir kl. 8,30 falla niður vegna
aðhlfundar fjelagsins.
Stjórn K.R.
ÁRMENNIN GAR!
Iþróttaæfingar í
íþróttahúsinu
1 stóra salnum:
Kl. 7-8:1. fl. karla, fimleikar.
— 8-9: 1. fl. kvenna, fimleikar
— 9-10: 2. fl. kvenna, fiml.
1 minni salnum:
Kl. 8-9: Drengir, fimleikar.
— 9-10: Hnefaleikar.
Stjórnin.
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Tilkynning
K.F.U.K.
U.D. Munið fundinn í kvöld
kl. 8,30. Framhaldssagan les-
in. Árni Sigitrjónsson talar.
K.F.U.M.
Á-D.-fundur í kvöld kl. 8,30.
Ólafur Ólafsson flytur erindi.
Állir karlmenn velkomnir. ■—>
ZION
Samkomur öll kvöld vikunnar
kl. 8. — Allir velkomnir.
FILADELFÍA
Vakningársamkomurnar byrj a
á ný á fimtudagskvöld kl. 8,30
og halda áfram hvert kvöld
fram yfir sunnudag.
Allir velkomnir.
VEISLUMATUR
Smurt brauð og buff.
Sími 4923 kl. 1—3.
Æfing í Austur-
bæjarskólanum í
kvöld kl. 8,30.
.Nefndin.
SKEMTIFUND
heldur fjelagið á
morgun í Þórseafé
Hverfisgötu 116. Skemtiatriði.
Fjelagar fjölmennið og takið
með gesti. — Stjórnin.
Ilandknatt-
leiksæfingar í
kvöld:
Kl. 7-8: dreng
ir. Kl, 8-9:
stúlkur. KI. 9-10: karlm. 1. og
2. flokkur.
B.Í.F.
Farfuglar, vikivakaæfing í
lcvöld- kl. 8,30 í fundarsaí Al-
þýðubrauð gerð arinnar. F j öl-
mennið. — Nefndin.
Reykjafoss er í Reykjavík.
Huntline Hitch fór frá New York
26. okt. Span Spiice kom til New
York 27. okt. Lesto er í Leith.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af gr.
Bjarna Jónssyni vígslubiskup
ungfrú Sigurbjörg Guðjónsdótt-
ir barnakennari og Bjarni Rögn-
valdsson verkamaður. — Heimili
ungu hjónanna er á Brekkugötu
12, Hafnarfirði.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af sr.
Jakob Jónssyni ungfrú Helga
Ásta Guðmundsdóttir ijósmóðir,
frá Stóra-Kálfalæk og Ólafur
Magnússon húsasmíðam., Grett-
isgötu 50.
Hjónaefni. S.l. laugardag op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Sigríður Erla Þorláksdóttir, Öldu
götu 31, Hafnarfirði og Kjartari
Steinólfsson, Skólavörðuholt 125,
Reykjavík.
Níræðisafmæli átti 29. f. m.
ekkjan Sólrún Oddsdóttir, Skjald
arvík við Eyjafjörð. Hún var gift
Jóni Jóhannessyni. Bjuggu þau
lengi að Þelamörk, en síðast í
Ytri Skjaldarvík. Jón Ijest að
Akureyri 1936, en Sólrún dvald-
ist hjá syni sínum, Stefáni klæð-
skerameistara, uns hún fluttist
með honum að Syðri-Skjaldar-
vík 1943, er hann hafði reist þar
elliheimili á jörð sinni. Var hún
fyrsti vistmaður þess, en þar
dvelja nú yfir 30 gamalmenni. —
Sólrún var hin mesta dugnaðar-
kona og merkismanneskja og
heldur sjer enn hið besta. Þó
hefir hún verið rúmföst um nokk
urt skeið í haust. Mjög margir
heimsóttu hana á afmælinu.
• Tvær barnabækur nýútkomnar
frá bókaútgáfunni Björk háfa
blaðinu borist. Nefnast þær Snati
og Snotra og Sveitin heillar. —
Snati og Snotra er íslenskuð af
Steingrími Arasyni, en Tryggvi
Magnússon hefir teiknað mynd-
irnar. — Sveitin -heillar, sem er
ensk barnasaga, er þýdd af Sig-
urði Gunnarssyni. — Gott letur
er á báðum bókunum.
Skipaútgerðin tilkynti í gær-
kvöldi siglingahættu út af Vest-
fjörðum. í gær sáust hafísjakar
á reki 16 sjómílur norður af
Barða.
Fjalakötturinn sýnir Mann og
konu í kvöld. Inga Þórðardótt-
ir, sem hefir verið veik, fer nú
aftur með hlutverk Staðar-
Gunnu.
Gjafir til barnaspítalasjóðs
Hringsins. Afhent verslun frú
Augustu Svendsen: Gjafir: Magn
ús Jónsson, ísafirði 100.00 N. N.
100.00. Spilaklúbbur 111.02. —
Áheit: Svava 50.00. Gamalt áheit
10.00. N. N. 100.00. N. N. 100.00.
Kona 10.00. Björg Lýðs 25.00.
Elín 20.00. N. N. 100.00. Þ. J.
50.00. N. N. (afh. Morgunbl.)
100.00. Dista 25.00. Mósi 10.00.
Sonja 100.00. N. N. 100.00. Fjóla
Gunnlaugsdóttir 10.00. Góa Ein-
arsdóttir 10.00. R. S. 300.00. Gam-
alt áheit frá Jóhönnu Bjarnadótt
ur 50.00. — Kærar þakkir.
Stjórn Hringsins.
Vinna
HREIN GERNIN G AR
Magnús Guð'munds.
Sími 6290.
HREIN GERNIN G AR .
Jón Benediktsson. Sími 4967.
HREINGERNINGAR.
HÚS AMÁLNIN G
Óskar & Óli. Sími 4129.
v Y
;>
Ý Jeg færi öllum þeim mínar bestu þakkir er sýndu |
* mjer vináttu og sæmd á sexugsafmæli mínu. S
;> MargTjet Runolfsdottir. ;•;
I I
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦1
Nokkrar stúlkur
óskast við góðan iðnað.
<2)óóaverlsmi&jcm, h.p.
Skrifstofa
mín er lokuð í dag eftir hádegi vegna jarðarfarar.
Hjeraðslæknirinn í Reykjavík 1. nóv. 1945
MAGNÚS PJETURSSON.
Sonur minn,
BRYNJÓLFUR YILHJÁLMSSON
sem andaðist 16. okt verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni, fimtudaginn 1. nóv. kl. 1 e. h. Jarðað verður
í gamla kirkjugarðinum.
Sigríður Hansdóttir, Traðarkots. 3.
Elsku litla dóttir okkar,
BRYNDÍS
andaðist 31. október.
Þórdís Jóhannsdóttir, Sighvatur Bjamason.
Það tilkynnist hjer með vinum og vandamönnum,
að ekkjan,
ÞORBJÖRG BRANDSDÓTTIR,
andaðist að Elliheimilinu Grund þ. 30. okt. s.l.
Fyrir hönd fjarstaddra bama.
Aðstandendur.
Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og jarðí
arför móður og tengdamóður okkar,
KATRÍNAR GUÐNADÓTTUR,
Fyrir hönd vandamanna.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Sigurjón Sigurðsson.
Jarðarför móður minnar, *
STEFANÍU STEFÁNSDÓTTUR
fer fram föstudaginn 2. nóv. og hefst með bæn að
heimili mínu, Ásvallag. 63, kl. 1 e. h. Athöfninni í
kirkjunni verður útvarpað.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Fyrir hönd bama og annara vandamanna.
Sigurjón Kristjánsson.
Jarðarför konunar minnar,
ELÍNAR JÓNSRÓTTUR,
fer fram frá heimili hennar í Keflavík, föstudaginn
2. nóv. kl. 1 e. h.
Fyrir mína hönd og barnanna.
Guðmundur Guðmundsson.
Jarðarför kæra eiginmanns, föður og tengdaföð-
ur okkar,
MORITZ Y. BIERING, skósmiðs,
fer fram frá Fríkirkjunni föstud. 2. nóv. kl. 3 e. h.
Blóm og kransar vinsamlegast afbeðnir.
Þorbjörg Biering, böm og tengdabörn.