Morgunblaðið - 08.11.1945, Síða 2
M0RGUNJ3LAÐIÐ
Fimmtudagur 8. uóv. 1945.
Ábyrgðarleysi andstæðinganna
í bæjarmálum
Sjaldan hafa andstæðing-
ar Sjálfstæðismanna opin-
berað eins alvöruleysi sitt
í afskiftum af bæjarmálefn-
um, eins og á síðasta bæjar-
stjórnarfundi.
Steinþór krefst leigu
af bröggunum.
A þessum fundi lágu til úr-
skurðar þeir langhæstu reikn-
ingar um meðferð bæjarsjóðs
Reykjavíkur, sem fyrir hafa
legið. Þeir hefðu að sjálfsögðu
getað gefið tilefni til margs-
konar aðfinninga og athuga-
semda um sfjórn bæjarmálefn-
anna, ef andstæðingarnir hefðu
haft þær frkm að færa. Á dag-
inn' kom, að svo var ekki.
Hin eina raunverulegá at-
hugasemd, sem fram kom, var
frá fulltrúa sósíalistanna, Stein
þóri Guðmundssyni, um það,
að láðst hefði að innheimta
húsaleigu af íbúum bragganna.
Hann sá ofsjónum yfir, að
þessu sama fólki, sem sósíal-
istarnir annars þykjast láta
sjer svo ant um, var gefinn
kostur á að verja afgangsfje
sínu annaðhvort til umbóta á
bröggunum sjálfum, eða á ann-
an veg sjer til hagsbóta, í stað
þess að bærinn tæki af þeim
leigu fyrir þetta mjög ófullnægj
andi húsnæði.
Sigfús greiddi atkvæði
með óburðinum.
Önnur málefnaleg athuga-
semd um stjórn bæjarins kom
þarna ekki fram. í stað þess
þá eyddu andstæðingarnir fund
artímanum í umræður um til-
lögur Alþ)'ðuflokksins varð-
andi húsnæðismálin. Um til-
lögur, sem Sigfús Sigurhjart-
arson lýsti á þann veg, að þær
væru allar um það efni, sem
flutningsmennirnir sjálfir ým-
ist vissu að verið væri að fram-
kvæma, eða að þegar væri
framkomin eða í undirbúningi
frumvörp á Alþingi um hið
sama efni. Þannig. að hinn eini
tilgangur tillögumanna, að
dómi Sigfúsar, var sá að geta
sagt, að þeir væru tillögumenn
að því, sem þegar væri ákveð-
ið, að gert yrði.
Um þetta töluðu þeir með
miklum spekingssvip fram og
aftur, Alþýðuflokksmenn og
sósíalistar, og þóttust vera að
vinna bæjarfjelaginu ákaflega
mikið gagn. Ekki síst þeim
verst settu innan bæjarins.
Sigfús Sigurhjartarson, sem í
öðru orðinu gerði hið mesta
gabb að þessum tillögum, taldi
þær auglýsingar og glamur, og
kallaði þær í blaði sínu óburð
og öðrum fleiri ónefnum, hann
var í hinu orðin hinn gramasti
yfir því, að Sjálfstæðismenn
vildu ekki ljá slíkum tillögum
liðisinni. Síðan birti hann
svívirðingar um Sjálfstæðis-
menn fyrir það, að þeir hafi
rjett upp átta hendur í bæjar-
stjórninni, til þess að koma
í veg fyrir það, sem hann sjálf-
ur kallar glamur, óburð og öðr-
um ámóta nöfnum.
Jón Axel heimsækir
Sigfús í skýjaborginni.
I þsasu kemur einmitt fram
Framkoma þeirra á
síðasta bæjarstjórnar-
íundi
Heimdallar-fundurínn í gær-
kvöldi oy nýjir meðlimir
afstöðumunurinn. Sjálfstæðis-
menn eru því andvígir að sam-
þykkja á bæjaafetjórnarfund-
um einskisverðar auglýsinga-
tillögur. Þeir telja, að með því
sje í raun og veru verið að hafa
hin viðkvæmustu og erfiðustu
mál að háði og spotti. Það sje
verið að leika sjer með neyð
manna og vandræði. Verkefnið
sje þvei't á móti hitt, að reyna
að finna raunveruleg úrræði.
Að vinna að framkvæmdum og
aðgerðum, en ekki skrumi og
skjalli.
En sósíalistarnir, sem sjálfir
lýstu tillögunum sem skrumi
og hjegóma, eru hinir grömustu
yfir því, að Sjálfstæðismenn
skyldu ekki taka þátt í þessum
gráa leik. Gremja sósíalistanna
er eðlileg. Leikaraskapurinn er
þeirra líf og yndi. Skrumtil-
lögur Alþýðuflokksins voru
eingöngu eftirhermur loftkast-
alatillagna Sigfúsar frá því
nokkrum fundum áður.
Jón Axel hafði brugðið sjer
upp í skýjaborgina til Sigfúsar.
Þar sátu þeir svo nokkra stund
og skattyrtust. Brugðu hvor
öðrum um vammir og skamm-
ir. En braggabúarnir voru vissu
lega engu nær.
Það er áreiðanlega frá Sjálf-
stæðismönnum, frá fram-
kvæmdamönnunum í bæjarfje-
laginu, sem braggabúar og aðr-
ir vænta sjer aðstoðar. Al-
menningur veit, að það eru
Sjálfstæðismenn, sem verða að
hrinda fram málunum, ef um-
bætur eiga að fást, en ekki
skýjaborgamennirnir í hvorum
flokknum sem þeir nú telja sig,
Sósíalista- eða Alþýðuflokk.
HEIMDALLUR, fjel. ungra|
Sjálfstæðismanna, hjelt fund í
Kaupþingssalnum í gærkveldi.
Gunnar Thoroddsen, próf.
hjelt framsöguræðu um stjórn-
arskrármálið, ítarlegt og fróð-
legt erindi, þar sem hann rakti
fyrst hinar ýmsu breytingar, j
sem orðið hefðu á stjórnarskrám
Islands frá því að íslendingar 1
fengu stjórnarskrána 1874 og
þar til þeir sjálfir settu lýð- j
veldisstjórnarskrána 1944. —
Fór ræðumaður þessu næst
nokkrum orðum um störf stjórn
arskrárnefndanna. En höfuðat-
riði ræðunnar fjölluðu um ýms
ar þær breytingar, sem til mála
kæmu að gera á stjórnarskránni
Var ræðu frummælanda sjer
staklega vel tekið. Auk Gunn-
ars töluðu á fundinum þeir,
Gísli Sveinsson alþm., form.
milliþinganefndar, um stjórnar
skrána, Jóhann Hafstein, fram-
kvæmdastjóri og Sigurður
Bjarnason alþm., frá Vigur.
Á fundinum kom enn einu
sinni greinilega fram áhugi
reykvískrar æsku fyrir málefn
um Sjálfstæðisstefnunnar. Hafa
80 nýir fjelagar gengið í Heim-
dall síðan vetrarstarfsemin
hófst.
Var ennfremur á fundinum
ræðumönnum Hsimdallar 4
æskulýðsfundinum um bæjar-
málefni í Listamannaskálanum
mánudaginn var, þökkuð hin,
ágæta frammistaða. Kom fram
almennur áhugi fyrir fleiri slík
um sameiginlegum æskulýðs-
fundum, svo að Heimdallur
hefði oftar tækifæri til að sýna
jafn áberandi yfirburði síng
málstaðar.
Skoðanakönnun meðal þiisunda Reykvíkinga
um framboðslista Sjálfstæðisflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar
Öllum ffokksmönnum er gefinn
kosfur á þáttlöku
SAMKVÆMT reglugjörð Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfjelaganna
i Reykjavik, sem er tengiliður allra sjálfstæðisfjelaganna í bæn-
um, — hefir nýlega verið kosin kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins
hjer í Reykjavík til þess að stilla upp framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins við í hönd farandi bæjarstjórnarkosningar í janúar
næstkomandi.
Kjörnefndin er þegar tekin til starfa og hefir ráðist í
að efna til einskonar prófkosningar meðal Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík um það, hverjir skyldu helst vera
í kjöri fyrir hönd flokksins við væntanlegar bæjarstjórn-
arkosningar.
Öllum meðlimum Sjálfstæð-
isfjelaganna í bænum — Varð-
ar — Heimdallar -— Hvatar og
Óðins, — hefir verið ritað
brjef, þar sem þeir eru beðnir
að gera tillögur sínar á þar
til gerðum kjörgögnum og
senda kjörnefndinni aftur um
hæl á skrifstofu hennar í Thor-
valdsensstræti 2.
Fjöldi Sjálfstæðisflokks-
manna í bænum hefir ekki ver-
ið beint fjelagsbundinn í neinu
hinna fjögurra fjelaga, en kjör
nefndin taldi samt að hún gæti
naumast komið við öðrum
starfsaðferðum en takmarka
útsendingu brjefanna við með-
limi fjelaganna.
En jafnframt hefir verið á-
kvæðið að feefa hvaða flokks-
manni sem óskar þess, kost á
kosningu, ef hann innritar sig
í eitthvert Sjálfstæðisfjelag-
anna. Innritun fer fram í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í
Thorvaldsensstræti 2, og eru
þar afhcnt öll gögn til þátttöku.
Menn verða að gæta þess, að
gert er ráð fyrir að þessi próf-
kosning standi yfir mjög
skamman tíma og atkvæði eiga
að vera komin afíur til kjör-
nefndar fyrir hádegi á laug-
ardag í skrifstofuna í Thor-
valdsensstræti 2.
Ef mistök hafa orðið á því
að meðlimir fjelaganna fengju
send kjörgögn, eru þeir vin-
samlega beðnir að vitja þeirra
í skrifstofu flokksins.
Hjer hefir verið horfið að
mjög, viðfeldinni og lýðræðis-
legri aðferð við það að gera
úr ‘ garði framboðslista Sjálf-
Sjálfstæðisflokknum var
helst til þess trúandi að brydda
upp á svo frjálslegum starfs-
aðferðum sem bvggja á sam-
ráði fjöldans, — fólksins sjálfs.
Er þess að vænta að mikla
þýðingu geti haft, að flokks-
menn bregðist við þessari ný-
breytni af alhug og sinni þess-
ari prófkosningu af fylstu
kostgæfni.
því að taka þátt í þessari próf- stæðismanna við kosningarnar.
3 íslenskir fulllrúar
á æskulýðsþinglmi
ALÞJÓÐA æskulýðsþingið
vrar sett 29. októbér með við-
höfn í Albert llall í London.
Fulltrúar allra þjóða, sem
þátt taka í þingi gengu inn
í salinn undir þjóðfána sín-
um. Síðan flutti breski ráð-
herrann, Sir Stafford Cripps,
ávarpsorð. Daginn eftir áttu
fulltrúar Norðurlanda raeð
sjer undirbúningsfund, en
hinn 31, október hófust al*
menn fundarhöld. með fram-
söguræðum fulltrúa: Bret-
iands, Kína, Frakklands,
Bandaríkjanna, Sovjetríkj-
anna og Júgóslavíu. Fulltrú-
ar íslands á þinginu eru:
P.jetur Eggerz, sendiráðsrit-
ari,. Björn Th. Björnsson, list-
fræðingur og Kristinn Gunn-
arsson, viðskiptafræðingur.
(Frá ríkisstjórniniii).
15.500 skip fóru um
Reykjavíkurhöfn
1940-1944
ÞAÐ VITA allir, að skipa-
ferðir um Reykjavíkurhöfn
voru gríðarlega miklar styrj-
aldarárin, en samt má búast við
að menn verði forviða er þeir
heyra, að það voru hvorki
meira nje minna en 15.500 skip,
fóru um höfnina á fjórum ár-
um, 1940—1944.
Af þessum skipafjölda voru
7500 erlend skip, samtals um 3
miljónir smálestir. Smálestatal
an var raunverulega hærri, því
smálestatala herskipa, sem hing
að komu er ekki talin með, en
herskip eru talin með í skipa-
fjöldanum.
íslensku skipin, sem komu í
höfnina þessi fjögur ár voru
samtals 8000, en smálestatala
þeirra var ekki nema 1,1 milj.
og má af því sjá hve íslensku
skipin hafa verið miklu minni.
Sigurður Bjarnason alþingis-
maður sagði frá þessum tölum
í erindi um daginn og veginn,
sem hann flutti í útvarpið á
mánudagskvöldið.
*■—
Útvarpið og
beimsfriðurimt
Á SÍÐASTA fundi Varð-
arfjelagsins voru samþykt
mótmæli. gegn hlutdrægni
útvarpsins. Síðan hefir það
gerst, að hinum seka fyrir
lesara, Birni Franzsyni,
hefir ekki verið falið að
halda fyrirlestrum ^§ínum
áfram.
Þessa sjálfsögðu ráðstöf
un útvarpsráðs, sem Magn
ús Jónsson, prófessor beitti
sjer fyrir, kallar Þjóðvilj-
inn nýlega „stríðsyfirlýs-
ingu“ gegn Sovjetríkjun-
um. Minna mátti nú ckki
gagn gera.
Líklegt er, að þessi mál
beri í tal á Varðarfundi í
kvöld. Munu þéir Sjálf-
stæðismenn áreiðanlega
vera margir, sem fýsir að
vita, hvort forystumönn-
um flokksins er kunnugt
um nokkra þá atburði, sem
rjettlæta slík gífuryrði
Þjóðviljans. Sjálfstæðis-
menn munu því fjölmenna
á Varðarfundinn í kvöld.
"+!i
/