Morgunblaðið - 08.11.1945, Side 4
4
M0RGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 8. nóv. 1945.
Bækur frá
SL áÍLo (tspren támiÍju
l.p. — ^3ími 6381
Mmælishóf Erlings Pálssonar
yfirlögregluþjóns
Lykíar himnaríkis eftir A. J.
Cronin. — Aðeins nokkur
eintök eru eftir af þessari
vinsælu bók. Tryggið yður
eintak í tíma. Kvikmynd hef-
ir verið gerð eftir þessari
sögu. Hún getur ef til vill
orðið jólamynd í ár. Munið
Lyklar himnaríkis.
Ennfremur er enn eftir af
eldri bókum:
Katrín, saga frá Álandseyjum.
Hrífandi og skemtileg bók,
ógleymanleg öllum, sem les-
ið hafa.
Hótei Berlín 1943 eftir Vicki
Baum.
York liðþjálfi eftir Sam. K.
Cowan. — Bókin um hetju-
dáðir amerískra hermanna í
síðustu heimsstyrjöld.
★
Bók ungu stúlknanna í ár
verður:
Rósa eftir hina heimsfrægu
skáldkonu Louise M. Alcott,
sem þegar er orðin kunn hjer
á landi fyrir ágætar sögur
handa ungum stúlkum.
Ennfremur má minna á þessar
bækur, sem enn fást í bóka-
búðum:
Yngismeyjar eftir Louise M.
Alcott.
Tilhugalíf eftir sama höf.
Veróníka eftir Joh. Spyri.
Ramóna eftir Helen Hunt-
Jackson.
★
Ekki má gleyma yngstu lesend-
unum, en handa þeim er hægt
að mæla með þessum bókum:
Einu sinni var í—II. Úrval af
æfintýrum með ágætum
myndum, innbundin, 1 skemti
legum búningi.
Æfiníýrabókin með myndum,
sem börnin eiga að lita sjálf.
tdtli svarti Sambó, sem er orð-
in kunningi allra jmgstu les-
enda þessa lands.
Gosi eftir Walt Disney. Þetta
er ein allra vinsælasta barna
bók, sem hefir komið út hjer
á landi, enda sniðin sjerstak-
lega fyrir yngstu lesendurna.
Litla músin og stóra músin, eða
Rökkurstundir II, eftir Sig.
Árnason. Fyrsta hefti þessa
flokks, Rökkurstundir I, náði
mikilli hylli yngstu lesend-
anna og ekki þarf að efa, að
þetta hefti verði síður þ^gið.
★
Vinsælustu drengjabækurnar
verða altaf þessar sígildu
bækur:
Æfintýri Stikilberja-Finns eft-
ir Mark Twain, sem er ný-
útkomin.
Sagan af Tuma litla, eftir sama
höfund.
Jón miðskipsmaður e. Marryat.
Hjartabani eftir Cooper. Indí-
ánasaga með mörgum mynd-
um, mjög spennandi frá upp-
hafi til enda.
Róbinson Krúsó.
Hrói höttur.
Gúlliver í Putalandi.
Gúlíiver í Risalandi.
★
En jólabók drengjanna í ár
verður:
Jakob Ærlegur, gefinn út í
smekklegri útgáfu með mörg-
um myndum.
SIÐASTLIÐIÐ laugardags-
kvöld hjelt lögreglan Erlingi
Pálssyni yfirlögregluþjóni sam-
sæti á Hótel Röðli, í tilefni af
50 ára afmæli hans, með þátt'-
töku ýmsra annara góðra vina
hans utan lögreglunnar. Sam-
sætið hófst kl. 7 s.d. með borð-
haldi og var húsið þjettskipað.
Sveinn Sæmundsson yfirlög-
regluþjónn setti hófið, en
veislustjóri var Benedikt
Sveinsson fyrv. Alþingisforseti.
Margar fjörugar og snjallar
ræður voru fluttar undir borð-
um.
Ræðumenn voru þessir: Agn-
ar Kofoed-Hansen lögreglu-
stjóri, sem færði Erlingi að
gjöf frá lögreglustjóraembætt-
inu vandaða víkingsstyttu úr
eir, áletraða með rúnaletri, og
þakkaði honum vel unnin störf
í þágu lögreglunnar.
Guðbjörn Hansson yfirvarð-
stjóri, sem tilkynti, að lögregl-
an hefði falið Ríkarði Jónssyni
listamanni að gera brjóstlíkan
af Erlingi, og ennfremur að
Lögreglufjelag Reykjavíkur
hefði kjörið Erling sem fyrsta
heiðursfjelaga sinn, en það
gæti þeim einum hlotnast, sem
hefði unnið frábær störf í þágu
fjelagsins.
Bjarni Benediktsson borgar-
stjóri, sem þakkaði Erlingi fyr
ir gott og mikið starf í þarfir
bæjarfjelagsins, og ósjerplægna
baráttu fyrir íþróttamálefnum
landsins.
Jónas Jónsson alþingismaður
hjelt einnig snjalla ræðu.
Þá talaði Benedikt G. Waage
forseti í. S. í. og afhenti Er-
lingi fyrir hönd stjórnar I.S.I.
og framkvæmdastjóra, fagurt
olíumálverk frá Þingvöllum.
Ennfremur tilkynti hann, að
stjórn Í.S.Í. hefði kjörið Erling
heiðursfjelaga sambandsins. —
Ennfremur færði forseti I.S.I.
hamingjuóskir frá Sigurði
Greipssyni í Haukadal og las
upp eftir hann frumort kvæði
til Erlings.
Guðmundur Kr. Guðmunds-
son skrifstofustjóri flutti ræðu
og færði afmælisbarninu að
gjöf frá 33 íþróttamönnum og
íþróttafrömuðum ljósprentaða
útgáfu af Flateyjarbók (Al-
þingishátíðarútgáfu Einars
Munksgaards).
Lárus Salómonsson lögreglu-
þjónn flutti frumort kvæði og
færði Erlingi að gjöf dýrmæta
bók.
Þá flutti Jósep Húnfjorð
skáld mjög skemtilega ræðu og
frumort kvæði. Einnig kvað
hann sljettubandavísu til Er-
lings eftir Lárus Salómonsson.
Þá mælti Ingólfur Þorsteins-
son yfirvarðstjóri fyrir minni
konu Erlings, frú Sigríðar
Sigurðardóttur, Einnig flutti
Sveinn Sæmundsson yfirlög-
regluþjónn snjalt ávarp til Er-
lings.
Þá flutti Guðlaugur Jónsson
lögregluþjónn snjalla ræðu. —
Þá talaði Þórður Guðmundsson
formaður Sundfjel. Ægis og
færði honum að gjöf fagra bók
frá fjelaginu.
Einnig töluðu: Jón D. Jóns-
son sundkennari, er færði Er-
lingi fagran silfurbikar frá 12
sundgörpum í Ægi, Jón Ingi
Guðmundsson sundstjóri K. R.,
sem færði honum mynd af
sundknattleiksflokki Olympíu-
faranna 1936, Stefán Runólfs-
son formaður U.M.F.R., er færði
honum fagran borðlampa, og
Jón Pálsson sundkennari.
Fjölmörg heillaskeyti bárust
Erl. og voru nokkur þeirra í
ljóðum. Mesta athygli vakti
skeyti frá Jóhannesi Kjarval
listmálara; var það teikning af
Lómagnúp og Oræfajökli, var
það látið ganga með borðum
fram og þótti handbragðið lofa
meistarann.
Að lokum þakkaði Erlingur
með snjallri ræðu gjafir og þá
vinsemd og þann heiður, er
honum hefði verið sýndur.
Kl. 2 um nóttina, er borðhaldi
og ræðum var lokið, söng tvö-
faldur kvartett úr karlakór
lögreglunnar nokkur lög. Að
því búnu var stiginn dans fram
á morgun. Fór hófið alt mjög
virðulega fram og skemtu menn
sjer hið besta.
Ennfremur heimsóttu Erling
þann.dag margir vinir hans, og
færðu honum ýmsar gjafir. M.
a. málverk af Þingvöllum eft-
ir Matthías Sigfússon, frá
Tryggva Ofeigssyni útgerðar-
manni, borðlampi, útskorinn af
Guðmundi Kristjánssyni, frá
Jóni Þorsteinssyni íþróttafröm-
uð, íslenskur fálki eftir Guð-
mund Einarsson, frá starfsfólki
skrifstofu lögreglustjóra, flagg
stöng úr silfri með silkifána
Ármanns, frá Glímufjel. Ár-
mann, myndastytta eftir Ás-
mund Sveinsson, frá Marteini
Gíslasyni og víkingaskip frá
Guðmundi Einarssyni lista-
manni. Alt listaverk mikil.
Ennfremur mjög dýrmætar
bækur frá Jónatan Hallvarðs-
syni hæstarjettardómara, Gúst
av A. Jónssyni skrifstofustjóra,
Steingrími Pálssyni forstöðum.
og Einari Kristjánssyni. Einn-
ig bárust honum fjölmargar
körfur með fögrum blómum.
Þá heimsótti dr. Helgi Tóm-
asson -skátaforingi íslands Er-
ling og afhenti honum frá
Bandalagi ísl. skáta heiðurs-
merki skáta fyrir borgara.
Veislugestur.
Zukov lætur gera
fjármuni upptæka
í BERLÍNARÚTVARPINU
hefir verið sagt frá því, að Zu-
kov marskálkur hafi látið skip-
un út ganga um það, að upp-
tækar skuli gera allar eignir,
sem áður tilheyrðu þýska rík-
inu eða yfirvöldunum á her-
námssvæði Rússa.
Þá fyrirskipaði hann, að upp
tækt skyldi gert alt, sem átt
hefðu embættismenn eða fjelög,
sem nú væru leyst upp, hverju
nafni sem nefudust. Þá var og
upptækt gert alt fje, sem ríki
eða þegnar ríkja áttu, sem bar-
ist höfðu með Þjóðverjum. —
«
Allar þessar eignir verða not-
aðar handa rússneska hernum
á hernámssvæðinu. — Reuter.
Þingfrjettir
Á FUNDI Nd. í gær var frv.
til raforkulaga til 1. umr.
Frsm. iðnaðarnefndar, Sig-
urður Thoroddsen, fylgdi frv.
úr hlaði. Skýrði hann frá að-
draganda málsins og sagði síð-
an í stórum dráttum frá inni-
haldi frumvarpsins, að það hef
ir birst hjer í blaðinu áður.
Jörundur Brynjólfsson lýsti
ánægju sinni yfiy þvi að rík-
isfetjórnin tæki að sjer forystu
þessara mála. Samgöngumála-
ráðherra, Emil Jónsson, sagði
að frv. væri borið fram sern
samkomulagsgrundvöllur. Hann
benti á, að mjög væri nauðsyn-
legt og þýðingarmikið að afgr.
mól þetta á þessu þingi, því að
nú þegar væru byrjaðar miklar
framkvæmdir, m. a. væri á
þessu ári verið að leggja raf-
magnsveitu um allan Reykja-
nesskaga og ákveðið væri að
hefja framkvæmdir til raflagn
ingu til Selfoss, Eyrarbakka og
Stokkseyrar. Einnig væri í und
irbúningi að leggja línu til
Húsavíkur frá Laxárvirkjun-
inni. Umr. var frestað.
Onnur mál á dagskrá voru:
1. Frv. um heimild fyrir rík-
isstjórnina til að selja Búða-
hreppi landspildu úr Kjapp-
eyrarlandi. Vísað til 3. umr.
með þeirri breytingu, að „náma
rjettindi skuli vera undanskil
in“.
2. Frv. um veitingu ríkis-
borgararjettar. Vísað til 3.
umr.
3. Frv. um kaup á nýjum
strandferðaskipum. Vísað til 3.
umr.
Að afloknum fundi var ann-
ar fundur haldinn og var eitt
mál á dagskrá: Frv. um káup
á nýjum strandferðaskipum.
Afgr. með 23 samhlj. atkvæð-
um til Ed.
Ný þingmál
Æskulýðshöll í Reykjavík.
Bjarni Benediktsson flytur
frumvarp um æskulýðshöll í
Reykjavík, er byggja skuli í
sameiningu af ríkissjóði og
Reykjavíkurborg. — Skal
þriggja manna nefnd standa
fyrir byggingunni og tilnefnir
hvor aðili einn mann, en full-
trúaráð æskuiýðsfjelaganna í
Reykjavík þann þriðja. Frv.
samhljóða þessu. var flutt á síð-
asta þingi og afgreitt frá Ed.
En málið dagaði uppi 1 Nd.
Lækkun kaups og afurðaverðs.
Jónas Jónsson flytur svohlj.
þingsályktunartill. í Sþ.:
„Alþingi ályktar að kjósa nú
þegar með hlutfallskosningu 4
menn til að gera í samráði við
ríkisstjórnina tillögur, um,
hversu lækka skuli hlutfalls-
lega með lagasetningu verka-
kaup, laun starfsmanna hjá
ríki, bæjarfjelögum og einstök
um fyrirtækjum svo og verð
á íslenskum afurðum á innlend
um markaði".
Kærðir fyrir samvinnu
LONDON: Fimm breskir
stríðsfangar, majór, kapteinn
og þrír óbreyttir hermenn, sem
verið hafa fangar Japana, hafa
verið ákærðir fyrir samvinnu
við þá. Eru þeir nú á leið heim
til Bretlands.
iiimiiiHiiumHiiHiiiiiinimiuuiiiiiiiiiiiuiuiuinuiiiD
—< =3
1 Þakpappi |
| EinangrunarpappiJ
1 Veggflísar |
I Múrhúðunarnet 1
= =3
§ , i
= Byggxngavoruverslun 5
Isleifs Jónssonar
1 Aðalstræti 9. Reykjavík. i
iTllllllllllll.1111111111.Illllllllllll.Illllllllllllll
Ef Loftur >?etur það ekki
— bi hver?
ii iii .... miniiiinin
1 Harmonikur
= Píanóharmonikur og =
s Hnappaharmonikur, ný- 'jj§
komnar.
I Versl. Rín |
Njálsgötu 23.
~.7iiii.iiiiiiiiiiiiiimaiHnHnamMMiiiBnHnanMiniia
LISTEBLINE
RAKKREM
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiuuiiiiiiii
I Svissnesk
% kven og herra armbands-
1 úr í miklu úrvali ávalt
§ fyrirliggjandi í skraut-
§ gripaverslun minni á
§ Laugaveg 10, gengið inn
frá Bergstaðastræti.
| GOTTSVEINN ODDSSON
úrsmiður.
iíiiiiiiiimuimiiimiiiimiiimniiiiiiiiuiimiiimiiimu
HEST AÐ AlíGLYSA í
*lOKíííTNRLAf)INU.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiri)
= Nýjar, amerískar gler- =
| augnaumgjörðir nýkomn- I
| ar. — Afgreiðum flest =
jj gleraugnarecept.
@
j§ Augun þjer hvílið
§ með gleraugum frá
1 Týli h.f. |
Gleraugnavcrslun =
Austurstræti 20. =
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiim