Morgunblaðið - 08.11.1945, Page 5

Morgunblaðið - 08.11.1945, Page 5
Fimmtudagur 8. nóv. 1945. MOEGUNBLAÐIÐ 5 Kvikmyndaieikkonan hjelt loforð sitt KVIKMYNDALEIKKONAN JOAN LESLIE lofaöi því einu sinni í brjefi, að hún skyldi syngja fyrir hann einan þegar hann kæmi heim úr styrjöldinni. Þegar Don P. Saucke, liðþjálfi, lá Særður í sjúkrahúsi í París í fyrra, skrifaði hann Joan Leslie og sagði henni að söngur hennar í Rapsody in Blue hefði hjálpað til að gera sig heilan heilsu. — Myndin hjer að ofan var tekin er Joan er að syngja fyrir iiðþjálfann í sönghöll einni í Holly- Wood. Getur hlutleysi samrýmst þátttöku í fjelagsskap sameinuðu þjóð- j anna. — Afstaða Svisslendinga London í gærkveldi. STJÓRNMÁLAMENN ræða nú mikið um það, hvort hlut- leysisstefna Svisslendinga, sem þeir eru sagðir ætla að halda, geti samrýmst því að þeir gangi í hóp hinna sameinuðu þjóða. Utanríkisráðherra Svisslend- inga flutti nýlega ræðu í Basel, þar sem hann lýsti yfir, að Sviss lendingar vildu halda fast við hina fornu hlutleysisstefnu sína. Talið er þó, að Svisslendingar tnuni sækja um upptöku í fje- lagsskap hinna sameinuðu þjóða. Vilja Svisslendingar þó ekki gerast meðlimir án vissra skilyrða. Hið forna Þjóðabanda lag, sem Svisslendingar voru ög í, leystu þá frá þeirri skyldu að hafa her. — Breskir stjórn- málamenn álíta að varla komi til greina, að Svisslendingar fái slík hlunnindi í samtökum hinna sameinuðu þjóða. Fjórða grein sáttmála hinna Sameinuðu þjóða, leyfir upp- töku þeirra ríkja í sambandið, sem skuldbinda sig til þess að uppfylla allan sáttmálann. — Sumt af þesssum skyldum er hent á í 43. grein: Skyldur til þess að leggja til herafla. — Skyldur til þess að láta í tje hernaðarbækistöðvar í landi sínu, ef herja þarf á árásarríki. Það er auðsætt, að það væri ekki samrýmanlegt hlutleysi Svisslands að uppfylla fyrr- greind skilyrði. Ef Svisslending ar sæktu um að verða meðlimir hinna sameinuðu þjóða, með skilyrðum þeim að viðurkend yrðu viss atriði í hlutleysi þeirra, þá þyrfti auðsýnilega , að breita sáttmálanum að ein- hverju leyti. — Líklega verður útkljáð um þetta mál, áður en fyrsta allsherjarsamkunda Hinna sameinuðu þjóða kemur saman. — Reuter. Japönsk stóriðju- fyrirtæbi leyst upp London í gærkveldi: MacArthur hefir sent Jap- ansstjórn skarpyrta áminningu vegna þess að honum þykir hún heldur seint í því að leysa upp hina miklu iðn- og auðhringa landsins, Mitsui, Mitsubishi og fleiri. — Hefir Japansstjórn og fengið skipun um það, að hætta þegar diplomatisku sambandi við hlutlaus lönd, og skal her- stjórn bandamanna í Japan vera milliliður milli þessara aðila. — Reuter. Frjettir frá í. S. í. Gjöf til í. S. í. Rauði kross íslands hefir gef ið í. S. í. 800 ullarábreiður. Hefir þeim verið ráðstafað til íþróttaheimila í. S. í. og skíða- skála víðsvegar á landinu. Lagfæring á húsa- leigulögunum BJARNI Benediktsson flytur frv. um breyting á húsaleigu- lögunum, þess efnis, að vísi- töluhækkun á húsaleigu sje heimil þótt húsaleigunefnd hafi ekki staðfest leigumálann eða ekki hafi verið gerður skrif- legur leigumáli, ef húsaleigu- nefnd staðfestir leigumálann síðar eða grunnleiguupphæðin er hófleg að hennar dómi. í greinargerð segir: Samkvæmt 11. gr. húsaleigu laganna er skylt að senda húsa leigunefndum til staðfestingar alla leigumála um húsnæði, sem gerðir eru eftir 14. maí 1940. Nú er það kunnugt, að margir leigumálar eru til frá fyrri tíma, bæði skriflegir og munnlegir, og það er líka kunn ugt, að oft er látið undan fall- ast að leita yngri leigumálum staðfestingar, og eiga þar venju lega báðir sök, leigusali og leigutaki. Eftir þessum leigumálum er yfirleitt krafist hækkunar sam kvæmt húsaleiguvísitölu, og greiða leigutakar hana venju- lega mótmælalaust. Þó hefir orðið ágreiningur út af þessu, og er nýlegai failinn hæsta- rjettardómur í slíku deilumáli. Urslit málsins voru þau, að leigusali var dæmdur til að endurgreiða leigutaka vísitölu- upphæð, er hann hafði inn- heimt eftir óstaðfestum leigu- mála. En leigumála um sama húsnæði staðfesti húsaleigu- nefnd síðar með hærri grunn- leigu. Þar sem það er vitað, að mik ill fjöldi eðlilegra leigumála um húsnæði hefir ekki verið stað- festur af húsaleigunefndum, mundi það valda óeðlilegri og ranglátri röskun á viðskiftum manna, ef ákvæði það, er áð- urnefndur dómur byggjst á, væri látið standa óbreytt. Inn- heimtur sem þessar hafa staðið yfir árum saman og nema því talsverðum fjárhæðum. Til þess hefir ekki heldur verið ætlast, að eðlilega húsaleiguupphæð mætti ekki hækka sem svaraði viðhaldskostnaði, en leigusálar munu alment ekki hafa gert sjer ljóst, að vanræksla þeirra á að leita leigumálum staðfest- ingar gæti haft þessar afleið- ingar. Frv. þetta er flutt til að bæta úr þeim ágalla húsaleigulag- anna, sem þarna virðist hafa komið í ljós. Herliði fjölgað í Gyðingalandi London í gærkveldi: I DAG kom til borgarinnar Háifa í Gyðingalandi 14 þús. smálesta herflutningaskip, hlað ið hermönnum. — Samgöngu- bann hefir verið sett á í borg- um Gyðingalands, frá sólarlagi til sólaruppkomu, og eru her- menn á verði á götum. — Lítið hefir verið um óeirðir s. 1. sól- arhring. — Herskip eru á veiði við ströndina, til þess að hindra, að Gyðingum verði smyglað á land. — Gort lávarður, sem var landsstjóri í Gyðingalandi, er nú kominn til Bretlands. Mun hann þegar leggjast í sjúkiehús þar. — Reuter. • Viðhafna útgáfa af kvæðum Jónasar Hallgrímssonar komin Gunnar Gunnarsson flylur fyrirlestur um skáldið á sunnudag í DAG KEMUR ÚT VIÐHAFNARÚTGÁFA af kvæðum Jón- esar Hallgrímssonar, í tilefni aldarártíðar skáldsins. Tómas Guðmundsson skáld gefur bókina út á vegum Helgafellsútgáf- unnar. Er þetta einhver fallegasta bók, sem gefin hefir verið út hjer á landi og samboðin minningu Jónasar. Má telja víst að bók þessi verði talinn merkisviðburður í íslenskri bóka- útgáfu. ílit Brefa á ræðu ioiotovs London í gærkvöldi. Eftir st j órnmálaf regnritara REUTERS ÞAÐ er gefið mál, að vanda- málin í sambúð þjóðanna hafa ekki breyst, og auðsætt að and- stætt bjartsýnislegum frjettum frá Washington, seyi bárust fyrir helgina; hefir hið erfiða vandamál um samstarf banda- manna í Austur-Asíu ekki ver ið leyst enn. Þetta kemur glögt fram af fregninni um það, að Austur-Asíu ráðstefn- an kom saman í gær í Was- hington, án þess Rússar væru þar viðstaddir. Það er nú talið víst í hópi stjórnmálamanna hjer í London, að Sovjetstjórn- in ætlar að reyna að koma í gegn, að einhverskonar fjór- veldaráð stjórni í Japan, og munu Rússar setja þetta skil- yrði fyrir allri samvinnu aust- ur þar. Ummæli Molotovs um vfirráð in yfir atómorkunni eru hjer álitin hafa verið viðhöfð, til þess að gefa stjórnum' Breta og Bandaríkjamanna opinbera aðvörun um þær mundir, sem Truman og Attlee eru að byrja viðræður sínar. Áður hefir afstaða Rússa til atómsprengjunnar aðeins kom- ið fram r blöðum og útvarpi. Sú skoðun Rússa er óbreytt, að erfiðleikarnir í sambúð stór veldanna, einnig þeirra, sem bera ábyrgð á því, að utanrík- isráðherrafundurinn í London fór út um þúfur, sjeu þannig að vel sje hægt úr að bæta. —- Þetta hafa talsmenn Sovjet- rússa altaf verið að segja, síð- an fundurinn fór út um þúf- ur. Yfirleitt er skoðun manna hjer í London á ræðu Molotovs sú, að Rússar sjeu hálf smeyk- ir um afstöðu annara ríkja til sín, en vilji ekki að svo komnu slá neitt af þeim kröfum, sem þeir hafa fram sett áður. Danska prinsessan þakkar gjatir K.höfn. í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins. INGRID krónprinsessa þakk ! aði á mánudag í útvarpsræðu. [ Dönum erlendis, íslendingum og Færeyingum fyrir fatnaðar- gjafir. Verður byrjað að út- hluta fatnaðinum á morgun. — Berlingske Tidende og Polite- sögninni: „Krónprinsessan þakk í formála fyrir bókinni seg- ir útgefandi, að hann hafi tekið með í bók þessa flest alt, sem vitað er að Jónas ijet eftir sig í bundnu máli á ís- lensku, en um leshátt kvæð- anna er farið eftir útgáfur pró fessors Matthíasar Þórðarsonar. I formála segir Tómas enn- fremur: „Jeg hefi freistað þess, eins og lesendurnir munu sjá, að flokka ljóðin eftir efni, en vitanlega getur slík röðun alt- af orkað tvímælis. Þá hefi jeg talið mjer skylt að færa rit- hátt kvæðanna, þar sem því var við komið, til lögboðinnar stafsetningar, en einatt gert það með vondri samvisku“. Litniyndir af málverkum. Viðhafnarútgáfa þessi er bundin í alskinn. Er bandið hið fegursta. Hefir yfirleitt ekkert verið til sparað til þess að gera þessa bók sem glæsilegasta út- lits, um efnið er óþarfi að ræða, þar sem eru öll kvæði Jónasar Hallgrímssonar. Jón Engilberts listmálari hef- ir gert 46 teikningar í bókina, en auk þess 7 málverk, eitt mál verk fyrir hvern kafla. Hafa þessi málverk verið litprentuð í Englandi, en ekki er komið nema sýnishorn af litprentun- inni ennþá. Þeir. sem kaupa bókina, fá þessi málverk síðar og er þeim ætiaður staður í bókinni, en ekki er ólíklegt að margir kjósi heldur að ramma þau inn þegar þau koma. Mál- verkin eru táknræn fyrir kafla bókarinnar, t. d. heitir eitt „Sáuð þið hana systur fhína“, annað „ísland, farsældar frón“, „Stóð jeg út 1 tunglsljósi“, o. s. frv. Annað bindi að ári. í ráði er að gefa út annað bindi af verkum Jónasar og verða í því bindi helstu verk skáldsins í lausu máli. í þeirri útgáfu hefir Tómas Guðmunds son hugsað sjer að skrifa inn- gang, sem mun fjalla um skáld- skapareinkenni Jónasar, málfar hans og gamanstíl. Fyrirlestur um Jónas. Á sunnudaginn kemur kl. 1,30 flytur Gunnar Gunnars- son skáld fyrirlestur um Jónas Hallgrímsson á vegum Helga- fellsútgáfunnar. Gunnar Gunn- arsson mun nú vera á förum úr bænum, austur að búi sínu. Dönum erlendis“.. Póll. Ferðir byrja afíur LONDON: Áætlunarferðir skipa milli Esbjerg og Harwich í Englandi, sem niðri hafa legið á stríðsárunumm, munu byrja aftur í þessum mánuði seint.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.