Morgunblaðið - 08.11.1945, Page 16
VEÐURUTLITIÐ. Faxaflói
Vestan og síðan suðvestan-gola,
— Súld. —
almcnnt umræðuefni í heimin-
um. — Grein um það á bls. 9.
Fimmtudagur 8. nóvember 1945.
Ceðbiluð kona
hverfur
SÍÐASTLIÐINN sunnudag
hvarf að heiman frá sjer geðbil
uð kona, Hrefna Eggertsdóttir,
tii heimilis Engjabæ við Holta-
veg í Sogamýri, 52 ára.
Rannsóknarlögreglan tilkynti
hvarf konunnar í gærkvöldi. —
Henni tókst að strjúka að heim
an um kl. 16.30 um daginn. —
Síðan hefir ekkert til hennar
spurst, þrátt fyrir eftirgrenslan.
Hrefna Eggertsdóttir er í með
allagi há, nokkuð feitlagin, —
breiðleit, með rauðlitan hörunds
lit. — Hún er með stutt, dökkt
hár. Hún er klædd grænni
kápu, úr taui, með rauða hekl
aða hettu með bryddingum á
höfðinu. Hún var á brúnum
skóm.
Fljótt álitið, er konan eðlileg
í framkomu. — Hún hefir verið
geðbiluð s. 1. 3 ár, og hefir oft
gert tilraun til þess að strjúka
að heiman frá sjer. En heima-
fólki jafnan tekist að koma í
veg fyrir það, þar til nú.
Hafi einhver orðið var við
ferðir'konunnar, er hann vin-
samlega beðinn að tilkynna það
rannsóknarlögreglunni hið allra
fyrsta.
irkíýlskiSlogar á Parísarráðstefmmn]
ðonnar Gunnarsson
byrjar úfgáfu
tímarils
GUNNAR GUNNARSSON
rithöfundur hefir ákveðið að
gefa út rit, sem hann ætlar að
nefna „Arbók ’45“. I þessu riti
verða greinar og kvæði eftir
Gunnar sjálfan. Ýmislegt, sem
annars hefði glatast", sagði
Gunnar við blaðamenn, er þeir
hittu hann og Ragnar Jónsson
forstjóra í gær, í tilefni af fyrir-
lestri Gunnars um Jónas Hall-
grímsson, sem sagt er frá á öðr
um stað hjer í blaðinu.
Gunnar hefir hugsað sjer að
gefa þetta rit út árlega eftirleið
is og selja það ódýrt. Hann mun
safna í það ýmislegu, sem hann
ritar, eða á í fórum sínum. —
„Maður skrifar líka ýmislegt,
sem annars væri ógert látið, ef
maður á einhversstaðar inni
fyrir það“, sagði skáldið.
Fyrsta heftið, sem væntan-
lega kemur út fyrir jól og verð
ur 15—20 arkir í líku broti og
Arbók Ferðafjelagsins. Fyrsta
greinin í ritinu verður um Jón
as Hallgrímsson, þá verða þar
tvö kvæði, grein um Dani, grein
urn Halldór Kiljan Laxness og
fleira.
ÞESSIR FJÓRIR MENN cru allir verklýðsleiðtogar. Myndin var tekin á alþjóðaverklýðs-
ráðstefnunni í París fyrir skömmu. Mennirnir eru þessir (talið frá vinstri): Leon Jouhoux,
forseti frönsku verklýðsfjelaganna, Sidney Hillman, Bandaríkjamaður, Sir Walter Citrine, for
seti bresku verklýðsfjelaganna og Michael Tarasov, fulltrúi Rússa.
Varðarfundurinn í kvöld
Kynnið ykkur flótta
kommúnista frá lýð-
ræðinu og um hvað
verður barist
Van Acker í Londor
London í gærkvöldi.
ACHILLE VAN ACKER, for
sætisráðherra Belgíu, kom með
flugvjel frá Brússel til London
í dag. — Talið er, að erindi
hans sje að eiga viðræður við
fulltrúa bresku stjórnarinnar
um innflutning kola til Belgíu
frá Ruhr. — Reuter.
í kvöld kl. 8Ý2 hefst
fundur í Varðarfjelaginu.
Hann verður í Listamanna-
skálanum við Kirkjustræti.
Kosningabaráttan er nú
hafin. Kommúnistarnir eru
byrjaðir á hinum hatröm-
ustu árásum til að hnekkja
yfirráðum Sjálfstæðismanna
í bænum. Aðal-tromp komm
únista átti að vera, að æsku-
lýðurinn væri þeirra meg-
in. Sjálfstæðisflokkurinn
væri „úreltur“ flokkur.
Þetta tromp kommúnista er
nú úr sögunni. Meðal æsku-
mannanna í Háskólanum biðu
kommúnistar hinn herfilegasta
ósigur. Þeir og Framsóknar-
menn töpuðu en Sjálfstæðis-
menn fengu einir hreinan
meirihluta í Stúdentaráðinu.
Þetta er merki þess hvert
straumurinn liggur.
Hið sama kom fram á æsku-
lýðsfundinum á mánudaginn.
Kommúnista-sellurnar höfðu
smalað öllu ungviði sínu, og
landsþing „Æskulýðsfylkingar
innar“ hvaðan æfa af landinu
mætti með pomp og pragt. En
ungir Reykvíkingar sýndu, að
þeir vildu ekkert hafa með þenn
an lýð að gera. Minnast menn
þess ekki að hafa lengi sjeð
menn fara sneypulegri för en
kommúnistar fóru á þessum
fundi.
Nú reynir á hina eldri menn
og reykvíska borgara í heild.
Ólíklegt er, að þeir láti sitt
eftir liggja. V.ilja þeir l'áta
kommúnista rífa það niður,
sem Reykvíkingar hafa vérið
að byggja upp í marga ára-
tugi? Áreiðanlega ekki.
En úrslit-bæjarstjórnarkosn-
inganna ráða ekki aðeins ör-
lögum bæjarins, heldur einnig
miklu um stjórnmál landsins
í heild. Skrif Þjóðviljans síð-
ustu vikurnar sýna hinsvegar,
að kommúnistar stefna ekki
einungis að einræði kommún-
ismans hjer á landi, heldur
vilja þeir blanda hinum fjar-
lægustu heimsatburðum inn í
deilur manna og láta þá ráða
afstöðu manna í hinum ólíkustu
málum hjer á Iandi.
Nauðsynlegt er, að menn geri
sjer ljóst, hvert kommúnistar
stefna með þessu. Aldrei fyr
hefir verið meiri nauðsyn, að
menn sjeu vel á verði gegn
ráðabruggi þeirra en einmitt
nú.
Um öll þessi mál verður rætt
á Varðarfundinum í kvöld, þar
sem þeir Jóhann Hafstein og
Bjarni Benediktsson flytja
framsöguræður.
Allir Sjálfstæðismenn, sem
því geta við komið, þurfa að
mæta á fundinum.
Sjálfstæðismenn komið sem
flestir og mætið stundvíslega.
Iveir íslenskir sjómenn drukna
vi5 Ameríkustrendur
ÞÆR SORGARFREGNIR hafa borist hingað, að þann 21.
október s. 1. hafi tveir íslendingar druknað er skipið, sem þeir
voru á, fórst eftir árekstur. Menn þessir hjetu Bjarni Eiríkur
Kristbjarnarson frá Suðureyri og Jón Björn Einarsson frá Sel-
látrum á Breiðafirði.
Skipið, sem þeir voru á, hjet
Nespog.
Ekki hafa borist nánari fregn
ir af slysi þessu, eða neitt um
hvernig eða hvar það vildi til.
LONDON: Vegna eldiviðar-
skorts verður slökkt á öllum
götuljósum í borginni Scheffi-
eld á miðnætti, nema ljósum á
aðalgötunum.
Aðstoðarlán
lil síldarútvegs-
manna 1945
MEIRIHLUTI sjávarútvegs-
nefndar Nd. (stjórnarliðar)
flytur að beiðni atvinnumála-
ráðherra frv. um aðstoðarlán
til síldarútvegsmanna 1945. Er
ríkisstjórninni hjer heimilað að
taka 4 milj. kr. lán eða ábyrgj-
ast jafnháa upphæð. Útgerðar-
menn og fyrirtæki þeirra ís-
lenskra skipa, sem stunduðu
síldveiðar með herpinót sum-
arið 1945, geta sótt um lán
samkv. ákvæðum þessara laga,
og eftir nánar tilteknum regl-
um. Lánin veitast til 5 ára með
3 % vöxtum.
Frumvarp þetta var samið af
nefnd þeirri, sem atvinnumála-
ráðherra skipaði á s. 1. sumri
til þess að gera tillögur um
aðstoð þeim útvegsmönnum til
handa, er verst urðu úti á síld-
veiðunum.
Niðurjöfnunamefnd
Akureyrar
Akureyrarbær kaupir
málverk af Oddi Björnssyni
Akureyri, miðvikudag.
Frá frjettaritara vorum.
Á Bæjarstjórnarfundi í gær-
dag vor kosin niðurjöfnunar-
nefnd. Kosningu hlutu: Dr.
Kristinn Guðmundsson, Tómas
Björnsson, Áskell Snorrason,
Halld. Friðjónsson og bæjarstj.,
sem er sjálfkjörinn, allir endur
kosnir. Varamenn voru kosnir:
Brynjólfur Sveinsson, Erlingur
Friðjónsson, Eyjólfur Árnason
og Jakob O. Pjetursson.
Á sama fundi var samþykkt
að kaupa málverk, sem Frey-
móður Jóhannsson hefir málað
af Oddi sál. Björnssyni, prent-
meistara, fyrir kr. 5000,00, og
verði málverkið geymt á sínum
tíma í hinni fyrirhuguðu bóka
safnabyggingu bæjarins. (Matt-
híasarbókhlöðu). —
Maður slasasí
Frá frjettaritara vorum.
á Siglufirði, miðvkud.
í GÆKMORGUN vildi það
slys til, að Friðgeir Ólafsson,
vegaverkstjóri, var undir jarð
ýtu og fótbrotnaði.
Var verið að vinna með ýtuna
er hún rann af stað. Fór hún yf
ir báða fætur hans. — Önnur
pípan í vinstri fæti brotnaði,
en á hægri fæti marðist hann
mjög mikið.
Friðgeir var fluttur á sjúkra-
börum í sjúkrahúsið.
Leyniblöð finnst.
LONDON: Fyrir nokkru bár
ust þær fregnir frá Oslo, að þar
hefðu fundist eintök af nasista
blaðinu Fritt Folk, sem prentað
hefði verið leynilega. Talið er,
að það sje prentað einhversstað
ar úti á landsbyggðinni.