Morgunblaðið - 13.02.1946, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.02.1946, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. febr. 1946 Leikijeiag Tempiara: TENGDAMA eftir Kristín u Sigfúsdóttur Leikstjóri: Soffía Guðla ugsdóttir LEIKFJELAG TEMPL- ARA hefir undanfarin ár haidið uppi leiksýningum hjer í bæ við góðan orðstýr. Að vísu hefir það ekki getað staðist samanburð um leik- sýningar við þau fjelög hjer, er mest hafa látið til sín taka á því sviði, enda orðið við að búa þrengri kost en þau, bæði um húsakynni og útbúnað allan, auk þess sem fjelagíð af eðlilegum ástæð- um hefir ekki átt á að skipa jafn þjálfuðum leikurum og hin fjelögin. Hafa flestir, ef ekki allir, sem leikið hafa undanfarið á vegum Leikfje- lags Templara, verið nýgræð ingar í listinni, enda þótt margir þeirra hafi reynst lið tækir vel og sumir sýnt furðu góð tilþrif. Á sunnudaginn var hafði fjelagið frumsýningu á sjón- leiknum Tengdamamma, eft- ir hina góðkunnu og merku skáldkonu, Kristínu Sigfús- dóttur. Er leikrit þetta kom fyrst út, árið 1923, vakti það mikla athygli og jafnvel furðu, að íslensk sveitakona skyldi gefa sjer tóm til þess, í önnum og erfiði daglegs lífs, að setjast á skáldabekk- inn, og þó sjerstaklega, velja sjer.það skáldskaparform, — leikritið, — sem jafnan hef- ir þótt vandfarnast með, og líkur voru til að hún hefði haft minni kynni af, en öðr- um greinum skáldskapar. En þetta gerði nú frú Kristín og tókst það með fullri sæmd. Að vísu eru ýmsir ágallar á leikritinu, sem eðlilegt er, svo sem hversu deilan milli gömlu húsfreyjunnar og hinnar ungu hefst, svo og síðasti þátturinn, en margt er vel sag't <í leikritinu og vel athugað og ber það órækt vitni um gáfur höfundarins og víðsýni,* eins og reyndar seinni ritverk hennar hafa staðfest. Frú Soffía Guðlaugsdóttir setti leikritið á svið og hafði leikstjórnina á hendi. Hefir frúnni tekist hvorttveggja prýðilega. Get jeg óhikað full yrt að jeg hefi aldrei sjeð jafn góðan leik, nje áferðar- betri sýningu í Góðtemplara- húsinu, en að þessu sinni. Þó vií jeg geta þess, að mjer þyk ir „nýji tíminn“ í gerfi þeirra Guðjóns Einarssonar og Finnborgar Örnólfsdóttur, ó- þarflega skrautlegur. Hann í fötum eftir nýjustu tísku frá Ameríku, en hún í fínum kjól með ísaumuðum perlum og' með stásssvuntu, í öllum sveita-önnunum. Spjátrungs- háttur, en ekki framfarir, og missir því marks. Leikendur fara allir vel með hlutverk sín og sumir á^ætlega. Frú Soffía Guð- Soffía Guðlaugsdóttir, Guðjón Einarsson, Finnbogi Örnólfsson laugsdóttir leikur Björgu, ekkjuna á Heiði. Er gerfi hennar ágætt og leikurinn góður yfirleitt, en þessi söng tónn, sem hún hefir tamið sjer og viroist vera orðinn henni óviðráðanlegur,, er þreytandi og fram úr hófi ó- eðlilegur. — Bestur þykir mjer leikur frú Kristjönu Benediktsdóttur, er fer með hlutverk Þuru, vinnukonu. Hún talar skýrt og greini- lega, með sjerstaklega eðli- legum áherslum og virðist njóta sín til fulls á sviðinu, enda mundi ?ún sóma sjer ágætlega í þessu hlutverki á dóttir og Svein vinnumann, Loftur Magnússon. Ingibjörg fór vel með hlutverk sitt, einkum í fyrstu þáttunum, en virtist missa á því tökin er á leið. Loftur hefir slæm- ar áherslur og óeðlilegar og nokkuð þunglamalegar hreyf ingar- Si£ýíður Jónsdóttir fór með hlutverk Signýjar, aðkomu konu. Var leikur hennar nokkuð losaralegur, en ekki óskemtilegur, og minti ekki lítið á Gróu á Leiti í „Piltur og Stúlka“. Leiksviðsútbúnað önnuð- ust þeir Finnur Kristinson og Sigfús Halldórsson og virðist þeim hafa farist það vel úr hendi eftir atvikum. Að leikslokum klöppuðu áhorfendur leikendum óspart lof í lófa og sviðið fyltist á svipstundu af blómvöndum og dýrindis blómakörfum, sem leikendur voru vel að komnir. Sigurður Grímsson. Kristjana Benediktsdóttir, sem Þura vinnukona. hvaða leiksviði sem væri- Finnur Sigurjónsson ljek Jón gamla ráðsmann vel og skemtilega og var gerfið á- gætt. Guðjón Einarsson Ijek Ara, son Bjargar á Heiði og Finnborg Örnólfsdottir, Ástu, konu hans. Fóru þau bæði mjög vel með hlutverk sín, einkum þykir mjer frúin hafa viðfeldna rödd, — en henni hættir um of við að horfa fram eða upp í rjáfur, þegar hún talar. Sjera Guð- mund prest í Dal, ljek Ingi- mar Jóhannesson, að ýmsu leyti laglega, en var of stirð- ur í hreyfingum. B.ósa, fóst- urdóttur Bjargar á Heiði, ljek Ingibjörg Guðmunds- ísiendingarfarauian án farareyris UNDANFARIÐ hafa tölu- verð brögð orðið að því að ís- lendingar færu utan í mjög vafasömum erindum og að því er virðist án nokkurs farar- eyris. Hafa margir þeirra síð- an snúið sjer til sendiráða ís- lands erlendis og farið fram á fjárstyrk eða lán. Utanríkisráðuneytið vill hjer með brýna það fyrir þeim, sem svipað kann að vera ástatt um, að sendiráðin hafa ekki heimild til að ráðstafa fje ríkisins á slíkan hátt. Þeir sem utan fara án þess að hafa til þess nægilegt fje, taka því á sig allmikla áhættu og geta orðið fyrir margvísleg- um óþægindum. (Frjettatilk. frá utanríkis- ráðuneytinu). Iþróffafjelagsins FINNAR FA LAN. LONDON: Bandaríkjamenn hafa veitt Finnum lán, sem nemur tæpum níu miljónum dollara. Frá frjettaritara vorum í Ólafsfirði. ÍÞRÓTTAF.JEL Sameining í Ólafsfirði hjelt aðalfund sinn nýlega. Stjórnin var að mestu endurkosin, en hana skipa nú Stefán B. Ólafsson, form., Brynj ólfur Sveinsson, Guðmundur Þorsteinsson, Anna Gunnlaugs- dóttir, Asgrímur Hartmannsson, Sigvaldi Þorleifsson og Gunn- laugur Magnússon. Á s. 1. ári lauk fjelagið við byggingu sundlaugar þeirrar er verið hefir í smíðum undan- farin 3 ár, en laug þessi er hin vandaðasta og kostaði um 300.- 000,00 kr. Fjelagið fjekk styrk frá íþróttasjóði til byggingar- innar og einnig frá bænum og ýmsum öðrum. ' Mjög margir fjelagsmenn og aðrir hafa lært að synda síðan laugin var tek- in í notkun. Á árinu hafði fjel- agið skíðanámskeið og var Guð mundur Guðmundsson kenn- ari, ennfremur knattspyrnu- handknattleiks námskeið og voru þátttakendur rösklega 100, kennari var Axel Andrjes- son, sendikennari Í.S.Í. Á síð- asta aðalfundi lofaði fjelagið að leggja fram kr. 25 þús., sem hlutafje' í samkomu- og kvik- myndahús hjer á staðnum og hefir nú að mestu greitt þessa upphæð. í sumar gerir stjórn fjelagsins sjer von um að unnt verði að hefja vinnu við íþrótta völl fyrir fjelagið. Vilja fresta kosningum London í gærkveldi: SENDINEFND frá EAM- flokkunum svonefndu, sam- steypu vinstri manna á Grikk- landi, gekk í dag á fund for- sætisráðherra Grikkja, Sofulis, og fór þess á leit við hann, að kosningum þeim, gem standa fyrir dyrum í landinu, yrði frest að um óákveðinn tíma. — Sem rök færðu þeir það, að ástand- ið í landinu væri nú þannig, að óverjandi væri að láta kosning ar fram fara. Ekki er vitað um undirtektir stjórnarinnar. — Reuter. Bók á rússnesku um NÝLEGA er út komin í Moskva bók um „Skandinav- isku löndin“. Bókin er rúm- lega 200 bls. að stærð og eru í henni greinar um Svíþjóð, Noreg, Danmörku og ísland. Utgefandi er ríkis-vísindastofn- unin „Sovjet-alfræðibókin“, og hafa starfsmenn alfræðibókar- innar undirbúið útgáfuna. í sama flokki hafa áður komið út 4 bækur, svipaðar, um Banda ríkin, Kyrrahafslönd, breska heimsveldið og löndin fyrir botni Miðjarðarhafs. (Frjettatilkynning frá ríkis- stjórninni). Mið-Evrópusöfnun R. K. í. SÍÐASTLIÐJNN laugardag bárust aðalskrifstofu R. K. í. kr. 7.265,20 til Mið-Evrópu- söfnunarinnar. — Fara gjafirn- ar hjer á eftir: Vinnuflokkur í Haga krónur 740.00, S. S. 50,00, Þorkell Sveinsson 200,00, Ó Ð. 50,00, J. N. J. 50,00, Þór. Þ. 300,00, Ljósmóðir 50,00, Ólafur Vil- hjálmsson, Hafnarfirði 100,00, Starfsmenn Kaupfjelags Árnes- inga 1.205,20, Saumaklúbbur 60,00, J. L. 100,00, N. N. 10,00, Hulda Þorsteinsdóttir, Bergstr. 64, kr. 20.00, Viddy, Ingólfur, Jóhanna 30,00, G. Þ. 25,00, S. S. 20,00' E. H. 10,00, O. H. 50,00, H. E. 5,00, G. J. 50,00, 3 systur, 150,00, Ragna og Lilla 100,00, N. N. 20,00, Kristmundur 3,00, H. B. Halldórsson 2,00, Kristín Klingbeil 5,00, Jóhanna Dan- íelsdóttir 5,00, A. B. Magnús- son 10,00, N. N. 50,00, S. M. 5,00, H. K. 5,00, Þórey Guð- mundsdóttir 20,00, Versl. Foss- vogur, Fossvogi 30,00, Kristján 50,00, Jónas 5,00, Fjölnir Björns son, Blómvallagata 11, 20,00, Hörður Agnarsson 10,00, Sig- ríður Siggeirsdóttif, Laugavegi 19, 50,00, M. Skúlason, Þver- götu 2, 50,00, N. N. 10,00, S. S. 20,00, M. Ólafs 50,00, N. M. 10,00, K. B. 100,00, Starfsstúlk ur í Hljóðfærahúsinu 30,00, Jónas V. Jónsson 5,00, N. N. 10,00, Litla Blómabúðin 500,00, N. N. 10,00, A. B. 50,00, Birna og Þorv. Reinhold 100,00, D. Beck 5,00, Davíð Benediktsson, Öldugata 32 20,00, Kristín Mein holt 100,00, H. H., Njálsgata 84 25,00, Axel Hedskind 100.00, H. Magnússon, Bárugata 27, 50,00, B. H., Víðimel 5,00, H. G. 5,00, N. N. 30,00, Húsgangur 15,00, S. G. 100,00, Ástráður og Lilja 100,00, Starfsfólk við Loftleiðir h.f. 1.450,00, E. M. 50,00, H. Þ. ,og R. S. 400,00, Síra Ragnar Ófeigsson, Fells- múla 150,00, Síra Ófeigur Vig- fússon, Fellsmúla 150,00, Þor- grímur Stefánsson, Felismúla, 200,00. — Kærar þakkir —■ Rauði Kross íslands. Ekkert samkomuiag um aðsetur sam- einuðu þjóðanna London í gærkveldi. Á ÞINGINU í London var í dag rætt um aðsetursstað stofn unar hinna sameinuðu þjóða, og fjekst ekkert samkomulag fremur en fyrr. Veldur þetta all-miklum áhyggjum. Aðalritari bandalagsins, —• Trygve Lie — ljet þess getið, að þetta ástand væri ákaflega erfitt fyrir sig, þar sem honum væri örðugt að ráða bandalag- inu starfsmenn, fyrr en hægt væri að'gefa þéim einhverja hugmynd um, hvar þeir ættu að búa og starfa. Frábað hann sjer ábyrgðina á því að gera slíkt, og sagði að þetta væri eig inlega ekki hægt, fyrr en staður inn væri fyllilega ákveðinn. —• Ekkert er enn vitað, hvernig þessu máli reiðir af, nje hve- nær samkomulag næst um það. •— Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.