Morgunblaðið - 19.02.1946, Page 7

Morgunblaðið - 19.02.1946, Page 7
Þriðjiidagur 19. febr. 1946 10R6DNBLÍBÍ8 7 CARUSO — Frægasti söngvari heimsins tftir George Kent ANNA CARUSO átti sautján börn, sem öll dóu ung. Það át- jánda lifði og varð einhver fræg asti söngvari veraldarsögunnar. Árið 1903 hjelt hann fyrstu hljómleika sína í Ameríku í Metropolitan óperunni í New York. — Sautján árum seinna söng hann síðustu aríu sína á sama leiksviðinu. Átta mánuð- um seinna andaðist hann. Mil- jónir karla og kvenna um heim allan grjetu. Rödd hans hafði ekki aðeins verið vegsömuð, heldur og maðurinn sjálfur. Er Enrico Caruso var uppi var útvarpið óþekt og hljóm- myndirnar höfðu ekki enn kom- ið til sögunnar. Ef þú ætlaðir að hlusta á hann syngja, keypt- irðu aðgöngumiða og hlustaðir á hann í söngleikahúsinu, eða þú trekktir upp grammófóninn þinn og rödd hans kom út um hljómhornið. Áheyrendahópur- inn var lítill, ef borinn er’sam- an við miljónir útvarpshlust- endanna nú á dögum, og þó hef- ir enginn söngmaður verið veg- samaður meira, fyr nje síðar, en Enrico Caruso. Verkefni hans voru að mestu leyti aríur úr frönskum og ít- ölskum óperum — sem jafnvel þá var álitið að væru fyrir að eins valinn hóp hljómlistarað- dáenda — og þó var persónu- leiki hans svo einstakur, og svo vel tókst honum að túlka til- finningar sínar fyrir áheyrend- um, að hann .heillaði áheyrend- ur af öllum stjettum, og skildi ekki ósjaldan við þá með tár- vot augu. Og sjálfur varð hann fyrir svo sterkum áhrifum, að fyrir kom, að hann hágrjet í búningsherbergi sínu að af- loknum söng sínum. Metropolitan óperan var auð- vitað aðal-leiksvið hans, en frægð hans var jafn mikil í öll- um höfuðborgum heimsins, frá Buenos Aires til Moskva. Fólk þyrptist í kringum hann, hvar sem hann fór. Þegar hann kom inn í veitingahús, stóð það upp og hyllti hann. Til þess að forð- ast þessi fagnaðarlæti, matað- ist hann heima hjá sjer, eða borðaði á ódýru matsöluhúsi og eyddi þar tímanum á eftirmið- daginn, með því að spila á spil við forstöðumann þess. — Hann fjekk gjafir með hverjum pósti — sælgæti, matvæli, skartgripi, ' saumaðar myndir af sjálfum sjer. Vörur báru nafn hans. VERSLUNARVÖRUR í þús- undatali báru nafn hans. Enn eru til veitingahús, sem köll- uð eru Caruso. Einhver fann upp á því, að kalla veðhlaupa- hest Caruso, og söngvarinn veðjaði á hann tíu dollurum, í hvert skifti og hesturinn tók þátt í veðreiðum. Hann tapaði alltaf. Hvað fjárhag hans viðvíkur, setti Caruso met, er aldrei hef- ir verið slegið. Honum áskotn- aðist þetta fje eingöngu með söng sínum og því, sem hann fjekk fyrir að syngja inn á hljómplötur. Hann fór aldrei fram á meir en 2500 dollara fyrir söng sinn hjá Metropoli- tan, en í Kúba fjekk hann 10 þúsund dollara fyrir eina söng- skemtun og í Mextico 15.000 — met, sem enn stendur óhaggað. Fyrir að ferðast um Suður- Ameríku í tvo mánuði fjekk hann 250.000 dollara, og með- an hann lifði, vann hann sjer inn tæpar 10.000.000 dollara. — Síðan hann andaðist fyrir 25 árum síðan, hafa greiðslur fyr- ir hljómplötur hans stöðugt streymt inn. Fyrir jól 1943, gaf Victor hljómplötufyrirtækið út 18.000 möppur af Carusoplöt- um og seldi þær á 10 dollara hverja. Þær seldust upp á svip- stundu. Vinsældir hans voru að nokk uru leyti að þakka persónuleika hans. Hann var tilgerðarlaus og hjartanlegur í viðmóti og fólk tilbað hann. Kvöid eitt, er hann var stadd ur í Brussels, heyrði hann há- vaða fyrir utan gluggann í bún- ingsklefa sínum. Caruso opnaði gluggann og sá þúsundir rauna mæddra manna standa fyrir ut- an, vegna þess, að þeim hafði ekki tekist að fá aðgöngumiða keypta. Söngleikarnir, sem í hönd fóru, voru íburðarmiklir og nokkrir meðlimir konungs- fjölskyldunnar ætluðu að vera viðstaddir. Caruso hugsaði sig um augnablik og söng svo fyrir fólkið á götunni ailar helstu aríur óperunnar, sem hann átti að syngja á leiksviðinu. Gjafmildi hans var mikil. DAG nokkurn, er hann var a3 árita ávísanir fyrir meira en 200 manns, sem hann veitti aðstoð, sagði konan hans: „Það getur ekki verið, að allt þetta fólk eigi þetta skilið“. „Þetta er satt hjá þjer, Doro“, svar- aði hánn, „en það er ómögulegt að segja, hvað þeirra á þetta skilið og hvað ekki“. Morgun einn var hann á gangi með Bruno Zirato, einkaritara sínum. — Þeir voru um þessar mundir staddir í Cleveland. „Þetta er ekki rjettmætt“, sagði bann allt í einu. „Við komum hingað, tökum peninga okkar — og förum svo burt. — Við verðum að láta eitthvað af þeim vera eftir hjerna“. Svo vildi til, að þeir voru í þessu að gangá fram hja glervöru- sýningu í verslunarglugga. Caruso þaut inn, keypti allán varning verslunárinnar og sendi það til New York með þeim fyrirmælum, að því skildi skift á milli hinna þurfandi vina sinna. Eftir þetta, tókst honum ætíð einhvern veginn að skilja eftir hluta af sönglaunum sín- um, í borgum þeim, sem hann hjelt hljómleika í. Er Caruso stóð á hátindi frægðar sinnar, var hann í meðallagi hár, feitlaginn og far inn að missa hárið. Hréinlæti hans var fram úr öllu hófi. Hann baðaði sig tvisvar á dag og fór yfir músik sína, meðan hann var í baðinu. Hurðin var opin, og í fremra herberginu spilaði sá, sem Ijek undir fyrir hann, helstu lögin, sem hann hafði til athugunar í augna- blikinu. Á hverjum mórgni ljet hann raka sig og nudda og hreinsa neglur sínar, og enn ljek einhver næsta sönghluW verk hans á píanóið. Hann gat alls ekki liðið þá, sem ekki voru eins hreinlegir og hann sjálfur. Hann kvart- aði undan því, að þurfa að leika ástarhlutverk á móti léik- konu nokkurri: „Það er hræði- legt,“ sagði hann, „að syngja með fólki, sem baðar sig ekki, en að sýna geðshræringu, þeg- ar maður leikur á móti andfúl- um kvennmanni, er algerlega ómögulegt!“ Átti að vera vjelsmiður. ENRICO fæddist í Napoli í Ítalíu og var sonur fátæks vjel- smiðs. Hann gekk aðeins í nokk ur ár í skóla. Faðir hans vildi að hann tæki upp iðn sína, og með því að nota vöndinn öðru hvoru, tókst honum að fá hann til að vinna svolítið. En Caruso vildi aðeins eitt, að verða söngv ari. Móðir hans var þar aðal stuðningsmaður hans. Fyrsti reynslusöngur hans hjá söngkennara bar ekki góð- an árangur. Professorinn, Gugl- ielmo Vergine hjet hann, sagði við hann, er hann hafði lokið söng sínum: ,,Það er eins og að heyra hvininn í gluggun- um, að heyra þig syngja.“ En Caruso fjekk leyfi til að vera þarna áfram og hlusta á kensl- una. Um fátækt síná hafði hann eftirfarandi að -segja konu sinni: „Svörtu fötin mín voru orðin græn, svo jeg keypti flösku af lit og litaði þau, áður en jeg fór í skólann. Jeg bjó mjer til skyrtubrjóst úr pappír, svo jeg liti vel út. Jeg þurfti daglega að ganga langa leið, til þess að komast í skólann, og skór kost- uðu peninga, svo jeg söng í giftingaveislum og við jarðar- farir, og hafði nóg upp úr þessu, til að geta keypt mjer eina skó. Sólarnir voru úr pappa. En jeg var kominn hálfa leið til kenn- arans, kom rigning. Þegar jeg kom þangað, settist jeg hjá ofn- inum, til að þurka þá. Þeir und- ust upp og jeg gekk berfættur heim.“ Að fyrsta skólamiserinu1 loknu, komu prófin, og Caruso þrábað kennarann að leyfa sjer að taka þátt í þeim. Signor Vergine játaði það, að honum hefði farið fram, en var þó ekkert sjerlega hrifinn. Þó út- vegaði hann Caruso einu sinni eða tvisvar vinnu, og loks starf við farandsöngleikahús, til að fylla upp í skarðið, þegar aðr- ir söngvarar voru forfallaðir af einhverjum ástæðum. Fyrsti sigurinn. DAG einn komu þeir til bæj- | ar, þar sem Caruso átti kunn- ' ineja. Þar sem hann þóttist þess næstum viss, að hann mundi ekki þurfa að koma fram, slóst hann í för með þessum vinum sínum og þeir þömbuðu saman vín og sungu gamla ítalska söngva. Enrico var farinn að finna á sjer, þegar sendiboði kom til hans og sagði að hann ætti að syngja, því að tenorinn hafði loksins orðið veikur. Caruso flýtti sjer til leikhússins. Hann söng vel, .en forstöðumönnun- um til leiðinda og áhorfendun- um til ánægju, rakst hann á meðleikendur sína, hrasaði hvað eftir annað og kom yfirleitt öllu í uppnám. Áhorfendur velt ust um af hlátri og hrópuðu „Ubriaco“, eða fyllibytta. Forstöðumaður leikflokksins rak Caruso strax og þættinum var lokið, og það var niðurlút- ur 19 ára unglingur, sem sneri aftur til herbergis síns. Hann hafði misnotað fyrsta tækifæri sitt. En sendimaðurinn kom á ný hlaupandi og sagði honum með töluverðu handapati, að áhorfendur hefðu klappað hinn tenorinn niður og hrópuðu há- stöfum á Umbriaco. Caruso sneri aftur til söngleikahúss- ins og vakti óhemju hrifningu. Eftir þetta gekk honum allt betur. Næstu tíu árin varð hann einn af þekktustu óperusöngv- urum Ítalíu, og söng í mörg- um löndum Evrópu. En þá var honum boðið að syngja hjá Metropolitan óperunni í New York, og kom fyrst fram í óperunni Rigoletto. „Góður söngvari,“ sagði Car- uso einu sinni, „verður að hafa mikla brjóstvidd, stóran munn, 90% minni, 10% gáfur, leggja hart að sjer og vera tilfinninga- næmur.“ Hann var sjálfur gæddur þessu öllu. Brjóst hans var ákaflega stórt og hann gat þanið það út um níu þuml- unga. Caruso fylgdi ákveðnum regl um, áður en hann gekk fram á leiksviðið. Fyrst skolaði hann munninn með heitu saltvatni, síðan tók hann örlítið af sænsku neftóbaki í nefið, til að hreinsa nasirnar. Að því loknu fjekk hann sjer eitt staup af wisky, glas af vatni og loks einn fjórða partinn af epli. í vasana stakk hann tveimur smáglösum af heitu saltvatni, til að nota, ef háls hans ylli honum erfiðleik- um meðan á söngnum stóð. Þeg- ar það kom fyrir, sneri hann baki í áheyrendurna, drakk fljótlega úr öðru glasinu og hjelt áfram söng sínum án þess að nokkur áheyrenda hefði tek- ið eftir þessu. Var illa við gagnrýni. GAGNRÝNI kom~ætíð illa við Caruso. Þegar gagnrýnend- ur í Boston ljetu illa yfir einni söngskemtun hans, sór hann þess eið, að syngja þar aldrei aftur. Hann stóð við þetta. Þó var hann oftast í ákaflega góðu skapi. Hann hafði mikla ánægju af öllu gamni, og sumar skrítl- ur hans eru ógleymdar enn í dag. Eitt sinn, er verið var að sýna óperuna Tosca, beygði Antonio Scotti sig, til þess að taka pensil, sem lá á gólfinu — og fann hann gat ekki hreyft hann. Caruso hafði neglt pens- ilinn við gólfið. Dav'd Ewen segir frá smá- hendingu, er kom fyrir, er Caruso og Geraldine Farrar sungu saman á hljómplötu lag úr óperunni Madame Butterfly. Þetta var erfitt og langt verk, og Carusö brá sjer yfir á næsta bar sjer til hressingar. Þegar hann kom aftur og byrjaði að syngja með Farrar, breytti hún ljóðlínu sinni að gamni sínu og söng, ,,Ó, þú hefir fengið. þjer einn gráann!“ Og Caruso svar- aði í næstu línu, „Nei — jeg hefi fengið mjer tvo gráaf’ Hljómplötusafnarar sækjast nú mjög eftir þessari fágætu plötu. Einhver fallegasti þátturinn í hinu einkennilega lífi hans er ef til vill bundinn giftingu hans. Hann var 45 ára gamall og á hátindi frægðar sinnar, er hann mætti Dorothy Park Benjamin. Dorothy var feimin stúlka, rúmlega tvítug og hafði nýlokið námi í klaustursskóla. Hann.bað hennar og hún tók bónorði hans, þrátt fyrir mót- stöðu hinnar þröngsýnu fjöl- skyldu hennar. Hamingjusamt hjónaband. HIÐ stutta þriggja ára hjóna- band þeirra var einstakt. Hversu hamingjusöm þau voru, ber bók sú með sjer, er hún ritaði um lif hans, og þó er þetta jafnvel enn ljósara á brjef um þeim, sem hann skrifaði henni. Þessi brjef eru sjerstök í sinni röð, átakanlega falleg, og það, að þau eru rituð á bjagaðri ensku, eykur jafnvel á fegurð þeirra. Hjónin lifðu rólegu lífi í íbúð, sem þau höfðu til umráða á hóteli í New York. Caruso forð- aðist það, að fara mikið út, því honum leið illa innan um fjöl- menni. Þau sátu því oft heima, hann með gullspangargleraugu að líma inn frímerki sín og blaðaúrklippur og hún að lesa. Oft kom það fyrir, að hann yrði svangur, og fór að líða að mið- nætti, en þá sendi hann eftir brauðsneið og steikarögn. Hann skar brauðið sundur í miðjunni, ljet ketið á milli sneiðanna og borðaði það þannig. Þegar Caruso var boðið í samkvæmi, sendi hann hús- freyjunni ætíð brjef. og skýrði frá því, að hann yrði að sitja næstur konu sinni. „Segðu henni,“ sagði hann þeim, sem fór með brjefið, „að jeg hafi giftst konunni minni, til þess að geta verið henni nálægur. Ef jeg get ekki sitið hjá henni, kýs jeg heldur að vera héima.“ Veikist á leiksviðinu. I desember, 1928, er Caruso Ivar að syngja aríu í fyrsta þætti óperunnar L’Elisir d’Amore, sprakk æð í hálsi hans. Hann krafðist þess, að halda áfram, þar til þættin- um væri lokið. Frjettaritari New York Times skýrði þannig frá þessu í blaði sínu: „Hann hafði fleygt frá sjer hinum rauðlitaða vasaklút sín- um, og meðleikendur hans not- uðu alslags brögð til að nálgast hann hver á fætur öðrum og fá honum klúta sína. Hann notaði þá hvern á eftir öðrum, þar til þeir voru orðnir rauðir af blóði, en öðru hvoru sáust litlir blóð- blettir á vörum hans.“ Kona hans sat á fremsta bekk og grátbað hann að yfirgefa leiksviðið. Á aðfangadagskvöld tók hann til starfa við Metropolitan óper- una, en veikindi hans báru hann á ný ofurliði. Hann gekkst undir sjö uppskurði, en gat aldrei sungið aftur. Um sum- arið næsta ár sigldi hann til Napolí. Þar andaðist hann í Framh. á bls. 8. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.