Morgunblaðið - 19.02.1946, Side 12
VEÐURUTLITIÐ. Faxaflói:
CARUSO, söngvarinn heims-
Vesían rok. — Jeljaveður.
Þriðjudagur 19. febrúar 1946
frægi. — Sjá grein á bls, 7.
Aðalfimdur Blaða-
mannafjelags
fslands
AÐALFUNDUR Biaðamanna
fjelags íslands var haldinn s.l.
sunnudag. og gaf fráfarandi
stjórn skýrslu um störfin á síð-
asta stjórnartímabili, en stjórn
Menningarsjóðs fjelagsins gaf
skýrslu um hann.
Síðan var gengið til stjórnar-
kosninga, og var Hersteinn
Pálsson kosinn formaður, en
meðstjórnendur voru kjörnir I
þessir: Jens Benediktsson, Jón
Magnússon, Jón Helgason o^
Jón Bjarnason.
Stjórn Menningársjóðs var'
endurkosin, en í henni eru Jón
Kjartansson, Jón H. Guð- j
mundsson og Sigfús Sigurhjart- j
arson.
Meðlimir í fjelaginu eru nú
47 að tölu.
Annað kvöld verður hið vinsæla leikrit Skálholt sýnt í 25.
skifti. — Síðan Leikfjelag Reykjavíkur sýntli Gullna hliðið,
hefir ekki verið jafn ör aðsókn að nokkurri lciksýningu fjelags-
ins og þessari. Og viðtökur leikhúsgesta hafa verið að sama
skapi góðar, sem aðsóknin hefir verið mikil. — Myndin hjcr
Fertugada Austfirð-
ingamótið haldfð
si. laugardag
HIÐ ÁRLEGA Austfirðinga-
mót var haldið að Hótel Borg
sJ. laugardag. Haukur Eyjólfs-
son, formaður fjelagsins, setti
hófið og stjórnaði því. Gat
hann þess, að þetta væri fert-
ugasta Austfirðingamótið. sem
haldið væri hjer í Reykjavík.
Jón Hermannsson úrsmiður,
sem er einn af brautryðjendum
Austfirðingamótsins, skýrði frá
sögum þess í stórum dráttum.
Frá því það var fyrst haldið,
héfír það farið fram árlega, að
undanskildu einu ári, er það
fjell niður. Jón Hermannsson
er fyrsti og eini heiðursfjelagi
Austfirðingafjelagsins í Rvík.
Þá las Jón Ólafsson lögfræð-
ingur upp kvæði, er Jón Ólafs-
son, ritstjóri og skáld, orkti í
tilefni fyrsta Austfirðingamóts
ins- — Næst söng barnakórinn
Sólskinsdeildin undir stjórn
Guðjóns Bjarriasonar. Hafði
kórínn boðist til þess að syngja
á Austfirðingamótinu í þakk-
lætisskyni fyrir framúrskar-
andi móttökur, sem hann fjekk
í för um Austurland s.l. sum-
ar. — Valdimar Björnsson,
blaðafulltrúi, flutti minni Aust
urlands, Ragnar Stefánsson,
majór, söng einsöng og dr. Sig-
urður Þórarinsson flutti minni
kvenna. Var þeim öllum tekið
með miklum fögnuði sam-
kvæmisgesta. — Þá flutti
Eenedikt Gíslason frá Hofteigi
frumsamið kvæði og áður en
staðið var upp frá borðum mint
ist Haukur Eyjólfsson fóstur-
jarðarinnar. — Að lokum var
dans stiginn fram eftir nóttu.
Var höfið hið ánægjulegasta
og fór vel fram.
LÍTILL GRÓÐI
New York: Þjófur einn í
Portland bauðst kurteislega til
þess að halda á tösku fyrir
kónu eina, hljóp svo burt með
hana. Ekki varð honum um sel,
er hann opnaði töskuna og fann
í henni dauðan hund.
að ofan er af þeim Regínu Þórðardóttur í hlutverki Ragnheiðar
og Þorsteini O. Stephensen, sem leikur Brynjólf biskup.
Aukið eifirlil með
byggingar fram-
kvæmdum ríkisins
JÓN PÁLMASON flytur frv.
um byggingareftirlit ríkisins og
var til 1. umr. í Nd. í gær.
Með frv. er lagt til að kom-
ið verði á fót stofnun, er nefn-
„Byggingareftirlit ríkisins“, á
hún að hafa eftirlit með bygg-
ingarframkvæmdum ríkisins,
gera kostnaðaráætlanir og hafa
eftirlit með, að allar slíkar bygg
ingar sjeu vel og haganlega
gerðar og eigi til þeirra eytt
meira fje en þórf krefur. Einnig
skal byggingaeftirlitið hafa eft-
irlit með viðhaldi húseigna rík-
isins, hvar sem er á landinu,
svo og öllum breytingum, sem
gerðar verða á þeim.
Flm. kvað frrv. þetta flutt
vegna þess, að eftirlit með bygg
ingarframkvæmdum ríkisins
væri allsendis ófullnægjandi og
jafnvel væri í sumum tilfellum
ekkert eftirlit.
Eysteinn Jónsson gagnrýndi
frumvarpið og taldi það van-
traust á húsameistara ríkisins.
Flm.' skírskotaði til greinar-
gerðar, þar sem ætlast er til að
húsameistari ríkisins teikni
áfram húsin, sem hingað til, en
byggingareftirlitið hafi eftirlit
með framkvæmdum. — Leiða
mætti rriörg rök að því, að eytt
hefði verið rríiklu fje að óþörfu,
vegna ófullnægjandi eftirlits.
Þetta frv. miðaði að því, að
bæta úr þeirri aðkallandi þörf
að koma í veg fyrir að miklu
fje sje kastað á glæ vegria þekk
ingar- og eftjrlitsleysis.
Frv. var að lokinni umræðu
vísað til allsherjarnefndar.
Skólafrumvörpin um fræðslu
barna og um gagnfræðanáiri
voru og til umræðu og fóru
bæði áfram, hið fyrra til Ed. en
hið síðara til 3. umræðu með
þeim breytingum, sem menta-
málanefnd hafði gert á þeim.
Veðurafhuganir
sendar úl kl. 6 árd.
KLUKKAN 6 fyrir hádegi í
dag og framvegis á sama tíma,
sendir loftskeytastöðin veður-
fregnir, á mæltu máli, á 1087
bylgjulengd. Eru það athuganir
er gerðar hafa verið í 8 veður-
athugunarstöðvum kl. 5 síðdeg-
is. Stöðvarnar eru þessar:
Reykjavík (flugvöllurinn), Hell
issandur, Horn, Akureyri, Dala
tangi, Hólar í Hornafifði, Stór-
höfði í Vestmannaeyjum og
flugvöllurinn á Reykjanesi.
Aðaifundur Iðju
AÐALFUNDUR Iðju, fjelags
verksmiðjufólks, var haldinn á
sunnudag. Formaður fjelagsins
gaf skýrslu fjelagsstjórnar fyr
ir síðasta starfsár. — Þá gerði
gjaldkeri grein fyrir fjárhag
fjelagsins. Að þessu loknu fór
fram kosning stjórnar. Formað
ur Björn Bjarnason var endur
kosinn. Varaformaður Pjetur
Lárusson, Halldór Pjetursson
ritari og Guðlaug Vilhjálms-
dóttir gjaldkeri. — Meðstjórn-
endur voru kosin þau Guðrún
Sveinsdóttir, Arngrímur Ingi-
mundarson o'g Ingibjörg Jóns-
dóttir.
Breiar senda
mafvæli III ÞýsSta-
lands
London í gærkveldi:
UNDANFARNAR 3 vikur hafa
Bretar sent eftirtaldar matvör-
ur til Þýskalands: 14 þúsund
smálestir hveitis, 18.000 smál.
af rúgi og 2300 smálestir af öðr-
um matvælum. Munu Bretar
halda þessum sendingum áfram
því skortur er afskaplegur hvar
vetna í Þýskalandi.
— Reuter.
Rannsókn á beislun
gufuorkunnar
Borað eftir gufu, heitu
og köldu vatni og
jarðlög rannsökuð
SÍÐAN í fyrravor hefir starfað deild við rafmagnseftirlit
ríkisins, sem haft hefir jarðboranir með höndum. Hefir aðallega
verið borað eftir heitu vatni, kælivatni fyrir frystihús og gufu
og ennfremur hafa jarðlög verið rannsökuð. Rannsóknarráðið
annaðist jarðboranir áður.
Blaðamönnum var í gær boð
ið að kynna sjer þeesar böran-
ir. Fóru þeir í fylgd með þeim
Gunnari Böðvarssyni verkfræð
ingi, Svavari Hermannssyni
efnafræðingi og Agnari Guð-
mundssyni yfirverkstjóra, að
Reykjakoti, Selfossi og Sogi.
Jarðboranadeild rafmagns-
eftirlitsins hefir alls 6 bora til
umráða, og er unnið með þeim
öllum að staðaldri. 5 þeirra eru
nú hjer sunnan lands, en einn
norðan. Eru 2 þeirra höggborar,
en hinir snúningsborar með1
demantsflisum á endunum.
Hafa þeir reynst ágætlega. —
Borað hefir Verið fyrir heitu
vatni í Mosfellsdalnum, Hvera
gerði, í Laugardælum, austur í
Hreppum og við Akureyri. En í
Krísuvík og í Reykjakoti við
Hveragerði hefir verið borað
eftir gufu. — Hefir sel Menta-
skólans í Reykjavík í Reykja-
koti verið hitað upp frá gufu-
hver og ennfremur nokkur
gróðurhús, sem þar eru. Ætlun
in er að virkja þennan hver og
verður fengin til þess túrbína
á næsta vori. Að vísu lítil, 40
kw., en góð sem tilraunavirkj-
un.
Beislun gufuorkunnar.
Gunnar Böðvarsson kvað þá,
sem að þessu ynnu, hafa mest-
an áhuga á gufuborununum og
rannsókn á skilyrðum til virkj
unar gufuhvera. Hann kvað
það myndi miklum mun ódýr-
ara, ef sú virkjun tækist, en
virkjun fallvatna. T. d-. ef tæk-
ist að virkja hverina á Henglin
um, Krísuvík og víðar, t. d. á
Vestfjörðum. Kvað hann það
myndi borga sig að kosta miklu
til rannsókna í þessum efnum.
Á Italíu hefir gufuorkan ver
ið beisluð. Árið 1938 fjekst 66
þús..kw. orka frá gufuhverum,
eða um tíundi af allri orku-
vinslu þar á landi.
Hitaveita á Selfossi.
í Laugardælum við Selfoss
hefir ein hola, 75 m. djúp, ver-
ið boruð. Hefir verið dælt úr
henni 6 sek.lítr. af 76 stiga
heitu vatni. Er gert ráð fyrir,
að það vatn verði notað fyrir
hitaveitu á Selfossi. Vegna þess,
hve flatt er þarna, er nauðsyn-
legt að dæla yatninu upp, en
annars gerist þess ekki þörf,
þar sem skilyrði eru betri. —
Einn sek.lítri af 90 stiga heitu
vatni mun á einu ári gilda 25
—30 þús. kr., ef miðað er við
núverandi kolaverð. — Gunn-
ar gerin annars ráð fyrir, að
víðast hvar á landinu muni
hægt að fá heitt vatn, ef borað
er nógu djúpt.
Borað eftir köldu vatni.
Eins og áður er getið, hefir
verið borað eftir köldu vatni,
aðallega kælivatni fyrir frysti-
hús. Þannig hafa 9 holur verið
boraðar í Keflavík og 5 í Sand-
gerði, og verið er að bora eina
holu hjerna inni á Kirkjusandi
fyrir frystihús Valdimars Þórð
arsonar. í Sandgerði var einnig'
borað eftir neysluvatni fyrir
íbúa þorpsins, en eins og kunn
ugt er, hefir verið erfitt að fá
neysluvatn á Reykjanesi. .
Vestmannaeyjar fá
sennilcga vatn.
Þá hefir verið ákveðið að
bora eftir neysluvatni í Vest-
mannaeyjum, en þar er nú ekk
ert vatn að fá nema rigningar-
vatn. Eru þeir fjelagar í litlum
vafa um, að það takist að ná
þar í vatn. Yrði það að sjálf-
sögðu til stórbóta fyrir eyjar-
búa. Gert er ráð fyrir, að byrj-
að verði að bora þar eftir hálf-
an annan mánuð.
Rannsókn jarðvegs.
Þá er nú unnið að því nieð
tveimur demantsborum að rann
saka jarðlögin við Sog með fyr
irhugaða viðbótarvirkjun þar
fyrir augum.
Halldór Stefánssðn
endurkosinn for-
maður
Á SUNNUDAGINN var hald-
inn aðalfundur í Rithöfunda-
fjelagi Íslands. — Við kosningu
stjórnar, var Halldór Stefáns-
son endurkosinn formaður þess.
Snorri Hjartarson ritari, einnig
endurkosinn. Þá^var Sigurður
Grímsson kosinn gjaldkeri. —•
Hann var kosinn í stað Lárusar
Sigurbjörnssonar, er baðst und-
an endurkosningu. Meðstjórn-
endur voru kosnir þeir Halldór
Kiljan Laxness og Sigurður
Þórarinsson, er var kosinn í
stað Magnúsar Ásgeirssonar. —
Hann baðst undan endurkosn-
ingu.
Fulltrúar fjelagsins í full-
trúaráð Bandalags íslenskra
listamanna voru allir endur-
kosnir, en þeir eru: Halldór Stef
ánsson, Halldór Kiljan Lax-
ness, Sigurður Nordal, Tómas
Guðmundsson og Magnús Ás-
geirsson.