Morgunblaðið - 23.02.1946, Side 1
V
16 síður
i3. ÉLrgang-ur.
45. tbl. — Laugardagur 23. febrúar 1946
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Kaupdeilan í Hafnar-
firði leyst
HSíf fjelst á miðlunartillögu
ríkisstjómarinnar
SAMKOMULAG náðist í vinnudeilunni í Hafnarfirði snemma
í gærmorgun, og höfðu þá deiluaðilar verið á fundum með sátta-
semjara ríkisins alla nóttina. Verkfalli Hlífar lauk því á há-
degi í gær.
Það var í höfuðatriðum miðl-
unartillaga ríkisstjórnarinnar,
sem samkomulag náðist um. Fá
hafnifirskir verkamenn um 6%
hækkun á grunnkaupi í al-
mennri vinnu, þ. e. tímakaupið
hækkar úr kr. 2.40 í kr. 2.55. —
Eftir- og næturvinnutaxti hinn
sami og áður, þ. e. 50% og
100% hækkun dagtaxta. — Að
öðru leyti var samningyrinn ó-
breyttur í öllum aðalatriðum.
Svo sem kunnugt er, feldf
Dagsbrúnarfjmdurinn í fyrra-
kvöld að verða við þeim tilmæl-
um ríkisstjórnarinnar að fresta
verkfallinu til sunnudagskvöld,
meðan verið væri að reyna að
ná samkomulagi.
Þrátt fyrir vitneskjuna um
þetta, hjeldu Hafnfirðingarnir
áfram samningatilraunum. Og
þeir voru að alla nóttina, uns
samkomulag náðist um miðlT
unartillögu ríkisstjórnarinnar.
Samúðarverkföll boðuð.
Stjórn Vinnuveitendafjelags
íslands barst í gær tilkynning
um samúðarverkföll frá 1. mars
vegna Dagsbrúnardeilunnar, frá
verklýðsfjelögum á eftirtöldum
stöðum:
Sandgerði, Borgarnesi, Stykk
ishólmi, Patreksfirði, ísafirði,
Siglufirði, Akureyri, Húsavík,
Fáskrúðsfirði.
Ljetu sum fjelögin þess getið
í tilkynningunni, að þetta væri
gert samkvæmt ósk stjórnar Al-
| þýðusambands íslands.
\ Hefir stjórn Alþýðusam-
( bandsins því bersýnilega verið
j að vinna að því að undanförnu
— og það löngu áður en til verk
falls koma hjá Dagsbrún, að fá
fjelögin út á landi til þess að
boða samúðarverkföll.
Ólíklegt er, að verklýðsfje-
lögin út á landi kunni stjórn
Alþýðusambandsins þakkir fyr-
ir þessarar aðgerðir, er þau fá
vitneskju um alla málavexti, þ.
á. m. afskifti ríkisstjórnarinnar
af deilunni.
IVIiklar æsingar kínverskra
stúdenta gegn Rússum
Kröfugöflgur og {jöldafundir
í (hungklng
Chungking í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgunbl.
frá Reuter. Eftir Doon Campbell.
STÚDENTAR frá mörgum skólum hafa skipulagt miklar hóp-
göngur, sem fram eiga að fara á morgun í námunda við bústað
rússnesku sendisveitarinnar í borginni, til þess að mótmæla
drætti þeim, sem orðinn er á þvi, að Rússar fari með her sinn frá
Mansjúríu. Kröfugöngurnar verða farnar á sama tíma og haldið
verður hátíðlegt 28 ára afmæli Rauða hersins í sendisveitar-
bústaðnum. í dag fóru 30.000 stúdentar í mótmælagöngur gegn
Rússum, og hefir aldrei annað eins gengið á hjer í borginni,
síðan Japanar gáfust upp.
INDVERSKU S JÓLIÐ ARNIRIÞANN
VEG AÐ GEFAST UPP
Mótmfblasendingar.
Stúdentar við Þjóðháskólann
kínverska hafa sent mótmæla-
skjöl til rússneska sendiráðsins,
og einnig til sendiráðs Breta og
Bandaríkjamanna, þar sem því
er mótmælt, að leynisamningar
voru gerðir á Yaltaráðstefnunni
og þeim fram íylgt. Einnig hafa
stúdentarnir skorað á kínversku
stjórnina að slaka ekki hið
minsta til við Rússa.
Áflog og uppsteytur.
Áflog byrjuðu í dag í kjallara
blaðábyggingar einnar og bár-
ust upp um alla bygginguna og
meira að segja upp á þak. Hús-
ið varð því nær ónýtt. Enn-
fremur var grjóti kastað og
slösuðust nokkrir menn. Hundr
að prófesorar komu í hópgöngu
stúdentanna, og söng allur skar
Framh. á 2. síðu
Fallið frá ákæru
gegn Knuf Hamsun
OSLÓ í gær.
HINN OPINBERl norski á-
kærandi hefir tilkynt, að hann
muni ekki krefjast málshöfð-
unar gegn Knut Hamsun, rit-
höfundinum fræga, en hann var
liðsmaður Quislings sem kunn-
ugt er.
Ákærandi ríkisins tekur
fram, að hann muni ekki krefj
ast málshöfðunar gegn Hamsun
vegna aldurs hans, en hann er
nú 87 ára og vegn þess sjeu
engar líkur til, að hann fái
tækifæri til að endurtaka þjóð-
hættulega' starfsemi sína.
Læknir, sem fenginn var til
að skoða Hamsun, segir að
hann sje við góða andlega
heilsu.
Miklar óeirðir í Bombay
í gær
LONDON í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá REUTER.
HORFUR eru nú taldar sæmilegar á því, að indversku sjólið-
arnir, sem uppreisn gerðu á herskipum í Bombay og Karaehi og
í landstöðvum í og við þessar borgir, gefist upp á morgun, og
hverfi aftur að skyldustörfum sínum. Hafa leiðtogar þeirra hvatt
þá til þessa, og einnig leiðtogar úr Kongressflokknum. í Bombay
urðu ákafar óeirðir í dag, og varð herlið að skjóta á múginn,
sem kveikti í byggingum og rændi. Herlið er nú á verði á göt-
unum, og umferðabann í borginni. Er þar tiltölulega kyrt.
Rússar fengu dóm-
ana þyngda
Stokkhólmi í gærkvöldi.
FRJETTARITARAR í Hels-
ingfors telja, að dómar þeirra
Finna, sem ákærðir voru fyr-
ir „styrjaidarábyrgð", hafi ver
ið mildari í upphafi, en Rúss-
ar hafi knúið það fram, að þeir
væru þyngdir. Er talið að Ryti,
fyhrum forseti hafi upphaflega
verið dæmdur í 8 ára fangelsi
í stað 10 síðar, en Tanner í 3
ára fangelsi, en ekki 4V2 árs,
eins og opinbert var gert.
Mikill mannfjöldi var fyrir
utan dómhúsið, er hinum
dæmdu var ekið burtu, og tóku
menn ofan, er þem var ekið
framhjá.-— Yfirleitt eru menn
í Finnlandi mjög þykkjuþung-
ir vegna dómanna og telja rjett
arhöld þessi mikinn harmleik.
samn-
Rússa
London í gærkvöldi.
FREGNIR, sem Eric Down-
town, frjettaritari vor í Moskva
símar þaðan í kvöld, herma,
að enda þótt engar opinberar
fregnir fari af samningaumleit
unum Pers'a og Rússa í Moskva,
sjeu líkur til þess, að viðræður
fari mjög vinsamlega fram. —
Persneska sendinefndin hitti
Stalin í gærkvöldi og var Mo-
lotov viðstaddur. Er talið, að
fundur þess ’ hafi verið hinn
þýðingarmesti fyrir frafljtíðar-
sambúð Persa og Rússa. Ann-
að, sem skoðað er til marks um
hve vel gangi er það, að í kvöld
heldur Molotov yeislu til heið-
urs forsætisráðherra Persa í
Spiritnovka-höllinni.
— Reuter.
Brelar mélmæla
árásum Egypla
London í gærkvöldi.^
BRESKI sendiherrann í Ca-
iro bar í dag fram mótmæli
bresku stjórnarinnar gegn æs-
ingum þeim, sem hafðar hafa
verið í frammi í garð Breta
undanfarna daga. — í æsing-
unum og' viðureignunum 1 gær
fjellu 11 menn, en 180 særðust,
er ráðist var á breskar herbúð-
Forsætisráðherra Egypta lagði
í gær svar sitt við mótmælun-
um fyrir stjórn sína, og var það
samþykt. Verður það afhent
sendiherra Breta í Cairo í
kvöld. — Herlið er á götunum
í Cairo í kvöld. Tjón hefir orð-
ið mjög mikið í borginni.
DREPNIR í ÆTTARVÍGUM.
LONDON: — Þrír Arabar
fjellu nýlega i skærum, sem
urðu milli tveggja ættflokka
Araba, er búa í þorpi einu nærri
Nablus í norðurhluta Gyðinga-
lands.
Bardaginn um Hindoustan.
Uppreisnarmenn höfðu á
valdi sínu fallbyssubátinn Hin-
doustan, og lá hann úti á höfn-
inni í Karachi. Breskum fall-
hlífasveitum var skipað að ná.
skipinu á sitt vald. Skoruðu þær
á uppreisn'armenn að gefast
upp. -Þeir svöruðu ekki áskor-
uninni, og var hafin skothríð á
skipið. Skipsmenn skutu á
móti af fallbyssum, en brátt
voru þær eyðilagðar af skothríð
fallhlífaliðsins, og kveikt í
skipinu. Gáfust þá skipsmenn
upp. Höfðu allmargir þeirra
fallið. — Bresk herskip eru nú
á leið til Bombay og Karachi.
Kveikt í breskum banka.
Mikill múgur Indverja rjeð-
ist inn í Evrópumannahverfið
í Bombay. Voru kornskemmur
stjórnarinnar brotnar upp og
korninu dreyft út um stræti og
eyðilagt. Kveikt var í breskum
banka. Herlið skarst í leikinn
og varð allmikill bardagi.
Alls er talið að 30 menn hafi
beðið bana 1 róstunum, en um
500 særst.
Leiðtogar Indverja hafa hvatt
til þess að hætta uppþotum,
sumir, en talið er að kommún-
istar og aðrir róttækir vinstri
menn rói að óeirðunum.
Jinnah, leiðtogi • Múhameðs-
manna hefir boðist til að mikla
málum.
Javamenn óánægð-
ir með Hllögur
Hollendinga
London í gærkvöldi.
CHARIR, forsætisráðherra
stjórnar þjóðernissinna á Java
hefirTátið svo um mælt, að yf-
irleitt sjeu allir Javabúar óá-
nægðir með samveldistilboð
Hollendinga. — Charir rædcli
í dag við fulltrúa Breta á Java,
Sir Archiþald Clark Kerr. —-
Til nokkurra átaka Jiefir kom-
ið sumsstaðar á Java í dag, og'
var skotið á hollenskar her-
sveitir. — Reuter.