Morgunblaðið - 23.02.1946, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.02.1946, Blaðsíða 12
32 MORÖUNBLAÐIÐ Laugardagur 23. febrúar 1946 Jóhairn Asmundsson í DAG er sextugur Jóhann Ásmundsson Vesturgötu 22 hjer í bæ. Hann er fæddúr 23. febr. 1886, að Melstað í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu, sonur hjónanna Margrjetar M. Bjarna dóttur og Ásmundar Jónssonar, er hann bróðir Friðriks Á. Brekkan rithöf. og þeirra syst- kina. — Ungur fluttist Jóhann með foreldrum sínum frá Mel- stað að Brekkulæk í sömu sveit, er hann þar síðan ólst upp, og er oft kendur við á með al gamalla sveitunga hans. Jói frá Brekkulæk, eins og hann var oft nefndur, er þeim hug- stæður og yljar minningar þeirra, þá rakin eru spjöld lið- ins tíma. Ungan að árum, kallaði þörf heimilisins og vaxtarþrá hins tápmikla unglings, hann í vík ing, 15 ára drengur kvaddi frændur og vini, slóst í för með vermönnum, gekk suður hálsa og heiðar og sefn leið lá til Suðurnesja. Voru slíkar ferðir oft svaðilfarir á meðal fullorð- inna, þrautreyndra karlmanna, hvað þá unglings. Þótt sjómenskan í ýmsum greinum gæfist honum vel, stóð hugur hans þó meira til mennta, og aukins fróðfeiks, en það sem verið hafði upp á að bjóða, enda kjarni hans sjálfs meira runn- inn í sambandi við gróanda íslenskrar náttúru. Hann var barn sveitarinnar. Gekk hann á Búnaðarskólann á Hvanneyri og gerðist búfræðingur að ment un, hvarf síðan heim til átthag anna um skeið, vann þá á ýms um stöðum, meðal annars við plægingar og fl., er að jarðrækt laut. Á þessum árum dvaldi hann oft á Bjargi, hjá þeim hjónum Xngibjörgu og Karli, er hann síðar tók þeirri tryggð við, að hann taldi þar sitt annað heim- ili. Fyrir hönd Karls á Bjargi og fjölskyldu hans vil jeg sjer staklega við þetta tækifæri, flytja honum innilegustu þakk- ir, fyrir órofa tryggð hans og sextugur vináttu um runnið æviskeið, veitta bæði heimili hans og eigi síst þeim frændsystkkynunum, Ólöfu og Karli, sem áttu hann síðan ávalt að, sem vin og hjálparmann, og hans ágæta heimili sem athvarf í þeirra löngu veikindum. Þótt Jóhann yndi hag sínum vel í sveitinni og framtíðar- draumar hans fljettuðust um batnandi búnaðarháttu og vax- andi sveitamenning, þá spunnu atvik og afleiðin örlagaþræði hans á þann veg, að búseta hans varð meir í kaupstað en í sveit. Hjer í bæ hefir Jóhann verið mætur borgari um mörg undanfarin ár og nú síðast starfsmaður á skrifstofum Reykjavíkurbæjar. — Hann er kvæntur Hildi Jóhannesdóttur, hinni mætustu konu, hafa þau hjón komið upp þremur börn- um, sem öll eru hin mannvæn- legustu. — Jóhann Ásmunds- sori er hægur maður, tryggur og vinfastur, yfirlætislaus og greindur vel, fróður um ýmsa hluti. Þótt skólaganga hans ha."" ekki verið meiri en tveir vetur á Búnaðarskóla, hefir hann numið hin hagnýtustu fræði og lífssannindi, í öðrum stærri skóla, ef mætti svo segja, skóla reynslunnar, og sjálfsmenntun- ar. Þeim, sem átt hafa því láni að fagna, að kynnast þessum mæta manni, minnast hans nú á þessum tímamótum í æfi hans, sem eins hins ágætasta samferðamanns og gjörhuguls meðbróðurs. — Því vil jeg mega shgja, fyrir hönd allra þeirra, sem meta drengskap og dáð: — Lifðu heill, Jóhann! Frændur og vinir minnast þín í dag, með einlægri ósk um bjarta framtíð, og þeir megi njóta ennþá mannkosta þinna um mörg ókomin ár, því: Fram til meiri fremdarverka friðarblys þín loga skær. Allt hið háa, stóra, sterka þig styðji jafnan, vinur kær. Arinbjörn Árnason. Sexlugur: Ámi Jónsson, Eskifirði I DAG á Árni Jónsson, kaup maður og fyrrum útgerðarmað ur á Eskifirði, sextugsafmæli. Um langt skeið hefir hann dvalið á Eskifirði, starfað þar og stritað, háð baráttu við ægi og margháttaða erfðleika, sigið á og sigrað. Kjarkurinn og þrautseigjan eru hans aðals- merki. Eins og svo margra annarra hefir líf hans ekki altaf verið baðað rósum, og á langri leið er ekki altaf veðprblíða og sól og sumar. Þar er sambland af frosti og funa, erfiði og átök- um. I þeim glímum eru oft mik ilsverðir sigrar háðir í kyrþey. Það er svo margt sem fer fram hjá fjöldanum. Árni er ekki að æðrast þó á bátinn gefi í stormum æfinnar, brosir og segir brandara, og veit ist ljett að horfa fram. Þó ýmsir vilji tengja nafn hans við hæglæti og seinagang þá stafar það mest af því, hve lítið þeir þekkja til. — Máske er það hans gjörhyggli á hverj um hlut sem því veldur, en að ..thuguðu máli ér Árni enginn eftirbátur framfaramannanna er svo eru nefndir og niðurstöð ur hans oft bjargfastari en flysjungsháttur sumra þeirra er framfaranafn bera. — En hvað um það. Árni er drengur góður og vill sveitar sinnar og lands gagn af heilum hug. Mál efnum sjómannanna er hann altaf fús að ljá hjálpandi hönd. Hann er ekki hvarflandi í skoðunum, málin hugsuð og nið urstöðunum fylgt eftir af ósjer plægni Trúnaðarstörfum hefir hann gegnt og er nú fulltrúi Sjálfstæðismanna í skólanefnd, og varafulltrúi í hreppsnefnd. Óska jeg honum alls góðs á komandi tímum, og munu marg ir vinir hans undir þá ósk taka. Á. H. Happdrætti Háskóla íslands. Athygli skal vakin á því, að dráttur í 2. flokki happdrætt- isins fer fram á mánudag, en þann dag verða engir miðar af- greiddir. IMinningarorð um Guðmund Kr. Guðmundsson skipstjóra SJÓRINN TÓK hann eins og svo marga aðra vaska drengi. Alla sína æfi var Guðmundur búinn að beita sjóinn fangbrögð um, og altaf borið glæsilegan sigur úr býtum, og svo vel, að hann var þektur um alt land fyrir sjerstakan dugnað og at- orku. Okkur, sem í landi bið- um fanst það sjerstaklega ótrú- legt að nokkuð gæti verið að hjá honum Guðmundi Kr., við áttum bágt með að sætta okkur við að þessi lífsglaði, þróttmikli maður hefði tapað orustunni og vildum ekki trúa því fyr en flak úr bátnum hans bar að landi. Ef til vill hefði Guðmundur sjálfur kosið sjer þennan enda á æfi sinni, en bara ekki svona fljótt. Hann átti svo mikið þrek og átti svo margt eftir a<> gera og til hans stóðu svo miklar vonir — nú verðum við að láta okkur nægja minninguna um manninn, um sjómanninn og hinn glaða og reifa vin í vina- hópi. Við horfum með söknuði út á hafið þar sem skipstjórinn og drengjasveit hans hafa geng ið til hinstn hvíldar hjá stjett- arbræðrum sínum, og við skilj- um betur alvöru og þýðingu þess starfs sem sjómennirnir inna af hendi. Guðmundur Kr. var sjómað- ur, Hann var búinn að stunda allar aðferðir íslenskra veiða og ávalt með dugnaði afburða- mannsins, hvort sem hann vann fyrir sjálfan sig eða aðra og jafnan þóttu ráð hans góð og hans álit mikils virði. Guð- mundur var óvæginn og djarfur maður, hvort sem hann átti skifti við sjó eða menn, en drenglund var yfirskrift allra hans gerða og góðvild til manna og málefna komst alltaf að þrátt fyrir erfiði og annir hins daglega lífs. Fjelagslíf sjettar- innar ljet Guðmundur mikið til sín taka og var hann formaður skipstjórafjelagsins hjer og naut þar mikils álits og trausts. Það er ekki hól um látinn mann, þó sagt sje um Guðmund að hann hafi verið fyrirmyndar heimilisfaðir, einstakur höfðr ingi, enda átti hann þar sam- hentan samverkamann, þar sem kona hans, Ingibjörg Benedikts dóttir, er. Höfðingslund Guð- mundar fjekk vel að njóta sín við hennar hlið og í sameiningu tókst þeim að skapa eitt hið mesta fyrirmyndarheimili hjer um slóðir. Við tökum innilegan þátt í sorg og missi þessa heim- ilis. Guðmundur lætur eftir sig 2 uppkomna syni og unga dóttur. Synir hans báðir hafa tekið upp merki föður síns, þeir eru báð- ir skipstjórar, annar nú þegár á sínum eigin bát, en hinn ný- lokið námi. í þakklátri miningu verður nafn Guðmundar Kr. Guð- mundssonar geymt meðal okk- ar Keflvíkinga. Við vottum hon um og drengjunum, sem fylgdu honum yfir takmörk þessa lífs, þakljlæti og virðingu. Við biðj- um heimilum þeirra og vinum allrar blessunar — við vildum svo gjarnan bæta þeim missir «þeirra og sorg, en þar munu önnur öfl máttugri en við menn irnir. H. er slðasti söludagur í 2. £3. Muniðuð endurnýju HMPPDRÆTTMÐ OKAV/'OREAAigR'; 7~. FOUR... Five VOlTÆ r\ &TART BLAZINÖ 60T Five MQRE $EC0ND& ^ P'TO 6TART BLAZINÖ AWAV ^® , AT TH05F CQPZj FRANKIEÍ \ M lN A RAPlD EXCHANöE OF 6H0T$/ FRANKIE FALLO TOi ONE KNEE ..."DREAMER" 5NOOT& TWE LIQhiT CUTa~ zmmmfflMrnMmmmmmmemmmtsi*** : */a FíRlNö !!i A FOö OF EA10TI0N FRANKlE HI& MAR\< Copr. 1943, King Fcaturo Syndxa>.c. lor. Vt'orKl rml.tj rcscfvcrf Glámur: Fjórar ... fimm ... nú eru aðeins eftir fimm sekúndur, til þess að ákveða þig að byrja að skjóta á lögreglumennina .. . Franki: Jæja, Glámur, jeg skal byrja að skjóta . . . en ekki á lögregluna ... Franki skýtur nú á Glám, en hittir ekki. Glámur hittir Franka, hann fellur á knje, Glámur skýtur ljósaperuna sundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.