Morgunblaðið - 23.02.1946, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.02.1946, Blaðsíða 9
Laugardagur 23. febrúar 1946 M0R6CNBLABIB 9 FARÞEGAFLUG FRAMTÍÐARINNAR Fargjöldin þuría að lækka, áður en almenningur getur ferðast loft- leiðis að staðaldri SVO er að sjá sem flugvjelar framtíðarinnar muni verða bún ar nýtísku vínveitingakrám og fara að meðaltali með um 400 mílna hraða á klukkustund. Þetta er í sjálfu sjer ágætt, en megin byltingin í flugsamgöng- um mun byggjast á flugvjelum, sem fara hægar, eru íburðar- minni — og ódýrari í rekstri. Heiminn vantar góðar ,,20 aura“ flugvjelar — hraðar og öruggar vjelar, sem koma manni á áfangastaðinn fyrir 20 aura á míluna. Forstöðu- menn flugfjelaga, verslunar- menn og opinberir embættis- menn eru sammála um það, að flutningar í lofti muni fyrst aukast fyrir alvöru, ef ferða- kostnaður verður við hæfi alls almennings/ Hundruð þúsunda munu nota hinar nýtísku risa- flugvjelar, dýrari farkostinn.En miljónir manna munu ferðast með ódýrari vjelunum, sem ganga aðeins 200 milur á klukkustund. Flugfjelögin eru orðin því vön, að selja kvikmyndastjörn- um og stóratvinnurekendum far seðla sína. En við ættum að vera farin að selja millistjett- unum farseðla — húsfreyjun- um, smákaupmönnunum, bænd unum og iðnaðarmönnunum. Hvirfilvindur sá, sem geysaði yfir Nýja England árið 1938, eyðilagði fjöldann allan af járn brautum og öðrum samgöngu- tækjum. Ameríska flugfjelagið, sem var eina fjelagið, sem hjelt uppi flugsamgöngum milli New York og Boston, bað önnur fjelög um aðstoð, til að annast hina geysilega auknu eftirspurn eftir farmiðum. Þessi flugfjelög brugðu skjótt við. Síðan hefir farþegaflugið til Boston aldrei horfið í sama horfið og það var, áður en hvirfilvindurinn fór yf- ir. Árið áður — eða 1937 — höfðu 67,030 farseðlar selst milli Boston og New York. Síð- astliðið ár seldust 186,797, eða næstum því þrisvar sinnum fleiri. Með endurbættum og ódýr- ari aðferðum tókst að lækka flugkostnað farþega úr 85 aur- um á míluna 1929 í tæpa 35 aura 1943. Lækkanir, sem gerð- ar hafa verið nýlega, hafa kom ið þessu niður í 30 aura á míl- una. Stærri og hraðskreiðari flugvjelar. EKKI verður hægt að koma 20 aura gjaldinu á í næstu viku eða jafnvel næsta ár. En við munum færast nær takmark- inu, er stærri og hraðskreiðari flugvjelar, með auknum sæta- fjölda, verða teknar í notkun. Gömlu, 14-sæta Fordvjelarnar flugu með 120 mílna hraða á klukkustund. DC-3 flugvjelar nútímans flytja 21 farþega, fljúga með 180 mílna hraða og ágóðinn af þeim er meiri, þrátt fyrir lækkuð fluggjöld. Far- þegaflugvjelar framtíðarinnar munu fljúga með 200—300 mílna hraða og flytja um 50 farþega. Sökum hraða síns, ættu þær að geta farið þrjár ferðir daglega milli New York og Chicago. — þannig ætti ein flugvjel að geta flutt 150 far- þega þessa vegalengd á hverj- um degi. Flugvjelar nútímans, sem farið geta þessa sömu vega lengd fram og aftur flytja að- eins 42 farþega. Sjáanlegt er, hversu mikið mætti spara bæði af tíma og peningum. Tuttugu aura fargjaldið er ekki langt framundan. Þó er það svo, að þegar hraði farþegaflugvjelar er orðinn 400 mílur á klukkustund, fer kostnaðurinn að hækka. Ein- staklega hár hraði, mun kosta farþegana aukaskilding. Verið getur, að önnum kafinn atvinnu rekandi, kunni að líta svo á, að það borgi sig, að borga 1600 krónur fyrir að fljúga á sex og hálfri klukkustund frá New York til Los Angeles. En að mínu áliti munu flestir kjósa, að fara .þessa sömu leið á 12 klukkutímum, fyrir 20 aura á míluna, eða rúmar 500 krónur alls. Það er ekki annað en munn- mælasaga, að fei'ðir loftleiðis geti ekki annað en verið kostn- aðarsamar. Svo er í raun og veru komið, að flugvjelarnar og betri tegundir járnbrauta eru orðnir skæðir keppinautar. Við ættum óhrædd að geta gert ráð fyrir því', að þess sje ekki langt að bíða, að ódýrara verði að ferðast með flugvjel yfir 200 mílna feið en nokkru öðru far-! artæki — að langferðabifreið- um ef til vill undanskildum. Vegna misskilins stærilætis sumra flugfjelaga er að ýmsu leyti erfitt að ryðja sumum þeim endurbótum braut, sem haft gætu í för með sjer lækk- un á fargjöldum. Ef litið er á rekstur flugvallar, sem, við skulum segja, átta flugfjelög nota, kemur í ljós, að þessi fjelög nota í aðeins örfáum til- fellum sömu tækin eða sam- eiginlegan mannafla. Þannig munu Vera átta flokkar af flutningatækj um átta sjerstak- ir vinnuflokkar, til að starf- rækja þau o. s. frv. Þetta nær engri átt. VL^kiftavinirnir verða að borga fyrir þetta. Stofna ætti fjelög, sem önn- uðust megnið af flugvallastörf- unum, og vafalaust mundi reyn ast mögulegt, að minka kostn- aðinn við flugvallaþjónustuna um helming. Það er langt síð- an járnbrautarfjelögin tóku þetta fyrirkomulag upp. Þörf á betri samvinnu. ENN í dag hefir hvert flug- fjelag sína eigin veðurfræð- inga. Þeir spá allir sama veðr- inu. Stórir flugvellir ættu að hafa eina veðurfrjettaþjónustu, sem öll flugfjelögin studdust við, en veðurspám þeirra mætti hæglega koma áleiðis til ann- ara flugvalla. Þetta er engin nýung; herinn hefir gert þetta svo árum skiftir. Þá gætu flugfjelögin og sam einast um stuttar flugleiðir, farið að líkt og flest bifreiða- fyrirtæki. Við skulum líta á flugleiðina frá New York til Chicago. Fjögur flugfjelög á þessari leið fara samanlagt 24 hringferðir á sólarhring, auk vöruflutningaferða. Ekki mun það vera lángt undan, að fljúga þurfi hundrað sinnum á dag.' Setjum nú svo, að þau hefðu sameinast um þessar ferðir. Þú þyrftir ekki frekar að taka frá sæti en ef þú ferðaðist með járnbrautalest. Þú mundir kaupa þjer farmiða og taka fyrstu flugvjelina sem kæmi. Það mundi verða ein vjel fimmtándu hverja mínútu, og engin bið. Margt hefir verið rangt skrif að um flugvjelar, sem hægt væri að sofa í. 1942 hjeldu flug fjelögin þannig flugferðum uppi milli austur og vestur strand- anna. Farseðlar kostuðu tæpar eitt þúsund krónur. I einni flug vjel borguðu 14 farþegar sam- tals um 14,000 kr. Sama vjel getur tekið 21 farþega. þegar ekki er notast við svefnstæði. Ef það, sem á bak við þetta liggur, er að fá inn 14,000 krón- ur, hefði hver hinna 21 farþega aðeins orðið að greiða 650 krón- ur, eða um 350 krónum minna en hinir 14. Eins og að var far- ið, þurftu þeir að greiða tæp- ar 1,000 krónur. Ef svona verð- ur haldið á málunum í fram- tíðinni, má ganga út frá því sem nokkurn veginn vísu, að aðeins 'einstaka fólk hafi efni á því, að ferðast með flugvjelum, sem láta farþegunum svefnpláss í tje. Gætu flutt fleiri farþega. T-IL þess að hægt sje að flytja farþega og vörur loftleiðis fyr- ir hóflegt gjald, verður að nota burðarmagn vjelanna út í æsar, án þess þó að skerða öryggi og þægindi. Doglas DC-4, t. d., sem venjulega flytja 44 far- þega, gætu flutt 58, án nokk- ura þrengsla. Árangurinn mundi verða lækkuð fargjöld. En þeir, sem krefjast óhóflegra þæginda kvarta: „Úr sumum sætanna verður ekki hægt að sjá út um gluggann,“ segja þeir. Þetta er rjett hjá þeim, en gott útsýni er varla 75 kr. virði á leið eins og frá Chicago til New York — « það er 75 króna munur á núverandi far- gjaldi og því, sem greiða þýrfti, ef gjaldið*væri 20 aurar á míl- una. Samkvæmt reglugerðum, má þungi DC-3 vjelanna ekki vera meira en 25,200 pund, C-47, en það eru vjelar, sem herinn not- ast við, og eru nauðalíkar hin- um fyrnefndu, hafa flogið margar miljónir mílna með 29,000 punda þunga. Flugferðir í hvaða veðri sem er, hafa mikið verið ræddar en að sama skapi lítið um fram- kvæmdir. Næstum því jafn margap* flugferðir falla niður í dag, sökum slæms veðurs, og var fyrir þrem árum. Afsök- unin fyrir þessu er venjulegast sú, að ekki verði hægt að hefja Sflugferðir í slæmu veðri fyr en eftir eitt eða tvö ár, er radar, sjónvarp og önnur álíka dular- full tæki hafi verið tekin í þjón ustu almennings. Sannast að segja held jeg þetta sje mesta vitleysa. Við gætum flogið með meira öryggi í dag, ef við vild- um nota Ijósin og útvarpið meir en raun er á. Almenningur hefir ekki hug- mynd um það, en herinn hefir haldið uppi flugferðum í hvaða veðri sem er milli New York og Presque-eyju, 'Maine. Síðast liðið ár töpuðust mjög fáir dag- ar vegna þoku eða annara or- saka, og þær fljúga í ■ fyllsta öryggi, þegar vjelar flugfjelag- anna halda sjer á jörðinni. Yfirmaður þessarar flugsveit ar, Ernest A. Cutrell höfuðs- maður, er ekki að bíða eftir radartækjum, sem allt eiga að geta sjeð. Þegar þoka er, styðst hann við þau tæki, sem alment eru notuð í herflugvjelum. Þarna er ekkert sjónvarp, eng- inn radarútbúnaður nje ósýni- legir geislar. Líkur eru fyrir, að reynsla hersins muni koma flugfjelög- unum að góðu gagni, og að ýms óþarfa ákvæði um flug- samgöngur verði felld úr gildi. Sem dæmi má nefna það, að flugvjelar flugfjelaganna verða að fara allskonar krókaleiðir, samkvæmt gömlum lagafyrir- mælum um flugleiðir. Flúg- menn hersins eru því vanastir að fljúga beint til ákvörðunar- staðarins. i i Styttri flugleiðir nauðsynlegar. HVERS vegna ekki að noía megineinkenni flugvjelarinnar — og fljúga í beina línu frá einum stað til annars? Ef lagt er af stað frá New York og flögið beint til höfuðborgar Mexikó, er vegalengdin" 2099 mílur. En ef þú verður að fylgja reglugerðinni um flugleiðir, verður vegalengdin 2474 milur. Að fljúga beint á milli staða er bæði peninga og tímasparnað- ur — og enn er því útkoman sú, að lækka mætti fargjöld- in. Ef tuttugu aura flugleiðirn- ar eiga að geta orðið að veru- leika næstu fimm árin, í stað þess að bíða í tíu ár, verða flugfjelögín að kaupa fjöldan allan af nýjum vjelum og leggja áherslu á stóraukinn farþega og vöruflutning. Þetta verður allra ágóði. Herinn mundi hafa mikinn íjölda flutninga- flugvjela, til að grípa til, ef með þyrfti. Fargjöld almenn- ings mundu lækka. Flugfjelög- in mundu auka við starfslið sitt, meira fje mundi renna í ríkis- kassann og hluthöfunum mundi áskotnast meiri peningar. I mínum augum eru tuttugu aura flugleiðirnar eftirsóknar- verðari en öll fjálglegu loforð- in um hraðskreiðar flugvjelar með vínveitingakrám. Enskar dömukápur og frakkar teknar upp í dag, fallegt úrval. Geysir h. F atadeildin. I Gott steinhús íSogamýri til sölu, kiallari, hæð og ris, 5 her- bergi og eldhús og 4 herbergi og eldhús. — Stærri íbúðin laus til íbúðar nú þegar — en hin á næstunni. Verð 150 þús. ^flmenna j^aótei^naóafan Bankastræti 7.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.