Morgunblaðið - 23.02.1946, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. febrúar 194Q
Dómur norskra blaða
um leik Öldu Möller
í „Ósigrinum“
NÝLEGA VAR þess getið hjer í blaðinu að frú Alda Möller,
sem leíkur sem gestur við Þjóðleikhúsið í Osló, Gabrielle í „Ned-
erlaget“, eftir Nordal Grieg, hafi fengið góða dóma fyrir leik sinn
yfirleitt. Nú hafa borist hingað til lands nokkur norsk blöð, þar
sem birtir eru leikdómar um leikinn og fer hjer á eftir þýðing
úr nokkrum norskum blöðum, þar sem sagt er frá leik frú Öldu.
„Verdens gang“ segir: „ís-
lenska leikkonan Alda Möller,
fór með hlutverk Gabrielle
Langvin, sem gestur, og það er
furðulegt hve vel henni tókst
upp þrát fyrir erfiðleika, sem
málið olli henni. En margar
leikonur leikhússins hefðu einn
ið getað leikið þetta hlutverk
vel“. Dómurinn er eftir Hans
Hei'oerg.
„Norges Handeis og Sjöfarts-
ttdende“: „Ein persóna kemst
óbrotin genum ósigurinn, hin
góða sál leikritsins, sem er sköp
uð af anda Grieg sjálfs. —
Það er hin ljúfa, yndislega Ga-
brielle, með sinn trúfasta konu-
hug. fyltan af góðmensku og
meöaumkun og af trú. Jáfnvel
þegar búið er að stilla henni
upp við vegginn, þekkir hún
eitt örugt ráð gegn ógnun-
um í öllu stríði og kúgun: —
Ó.sáttfýsi mannsandans við ó-
rjettinn. Með nákvæmum og
næmum innileik túlkaði hinn
íslenski gestur, Alda Möller,
hug og fas Gabriellu“.
í Morgenbladet skrifar Carl
Fredrik Engelstad: „Hina ungu
kenslukonu Gabrielle Langevin
ljek hinn íslenski gestur leik-
hússins, Alda Möller fallega og
innilega, en rjeði varla við að
gera persónuna eins mikla, eins
og hún var hugsuð frá höfund-
arins hendi“.
I „Friheten“ skrifar Gidske
Anderson: Hlutverk kennslu-
konunnar, Gabrielle, ljek ís-
lenski gesturinn, leikonan Alda
Möller. Gabrielle er ekki heil-
steypt hlutverk, hún virkar upp
stilt og heldur lagleg um of,
en hún getur orðið að þýðingar
mestu persónu leiksins, ef rjett
er á 'hlutverkinu haldið. Alda
Moller gerði nokkru af persón-
unni skil, en alls ekki öllu. —
En það er nokkuð mikils ætl-
ast af leikkonu, sem leikur á
erlendu máli, áð hún gefi hlut-
verkinu þá snild, sem það út-
heimtir. Leikur hennar var
hinsvegar svo sannur og hreinn
að hún fylti algerlega út í hlut-
verk sitt“.
Fjölmennur Anglia-
fundur
AN GLÍUFUNDURINN í
Tjarnarcafé í fyrrakvöld var-
mjög fjölsóttur. Einar Pjeturs-
son stórkaupmaður, formaður
Anglia setti fundinn og kynti
ræðumenn, en þeir voru tveir:
Ivar Guðmundsson ritstjóri
sagði frá komu Breta hingað
til Reykjavíkur 10. maí 1940.
Rakti hann atburði dagsins.
Var erindi hans bæði fróðlegt
og skemtilegt, og var gerður að
því góðúr rómur.
H. C. G. Sawyer flugliðsfor-
ingi flutti erindi um breska
tónskáldið Henry Purchell, sem
talinn er vera eitt mesta tón-
skáld Breta og hafði meðal ann
ars mikil áhrif á Hándel. Ljek
flugliðsforinginn nokkrar hljóm
plötum með verkum Purchells
og útskýrði þau. Mun hljóm-
lístarunnendum hafa verið mik
ill fengur að hlusta á þetta er-
indi flugliðsforingjans, sem hef
ir mikla þekkingu á efni því,
sem hann ræddi um.
Að ræðuhöldum loknum Ýar
stiginn dans til klukkan 1 eins
og venja er til á Angliafundum.
Minningarathöfn
um skipverjana á
Geir í Keflavík
í dag
MINNINGARGUÐSÞ JÓN -
USTA verður haldin í Kefla-
víkurkirkju í dag og hefst kl.
3, um þá, sem fórust með vjel-
bátnum Geir í ofviðrinu a dög-
unum.
Með bátnum fórust 5 manns:
Guðmundur Kr. Guðmundsson
skipstjóri, Páll Sigurðsson vjel
stjóri, Kristinn Ragnarsson há-
seti, Ólafur Guðmundsson há-
seti og Maríus Þorsteinsson há-
seti frá Isafirði.
Síra Eiríkur Brynjólfsson að
Utskálum messar.
*HmH’*H*4***H* ♦!♦♦*♦♦!«
tó.
I
GóBfteppi
Ensk gólfteppi væntanleg með næsta skipi.
Stærðir frá 2x3 m. til 3x4 m. Þeir, sem vildu
y
r^panta hjá mjer teppi, gjöri svo vel og hringið í
síma 2744.
f
I
i
Jón Sívertsen
♦>
•:<
5:
1 * A
Af írskum æftun
ÞETTA er ný kvikmynda-
stjarna af írskum ættum, Peggy
Cummings að nafni. Hún er ný-
komin frá London til Holly-
wood, þar 9fem verið er nú að
reyna hana í aðalhlutverki í
kvikmynd af bókinni, Forever
Amber.
Sænskur Mk-
myndaleföangur ti!
S.-Afríku ,
STOKKHÓLMI: Bráðlega
leggur sænskur kvikmynda-
tökuflokkur undir forystu Tor-
sten Lillienkrone af stað til
Suður-Afríku. Á að taka þar
fimm stuttar myndir, og verða
það frjettamyndir frá ýmsum
sviðum þjóðlífsins þar syðra,
frá ■ demantanámuvinnu, frá
Krúger-þjóðgarðinum og Vict-
oria-fossunum. Einnig verður
starfsemi sænskra trúboða í
Kongo kvikmynduð. — (SIP).
Kolaframleiðsla
Breia eykst
London í gærkvöldi.
TILKYNT hefir verið hjer í
borg, að kolaframleiðsla í Bret
landi hafi orðið allmikið meiri
í janúarmánuði s.l., en hún var
í desember. — Þykja þetta góð
tíðindi. Nokkuð er enn um
það, að menn mæti illa til
vinnu, en verkamönnum í nám
unum- hefir fjölgað töluvert á
síðustu vikum. — Reuter.
— Chunyking
Pramh. af 1. síða.
inn: „Skilið aftur norðaustur-
hjeruðunum“, en þetta er ætt,-
jarðarsöngur, sem áður var
sunginn gegn Japönum. Stjórn-
in segir ekkert um mál þessi.
Stúdentar í allmörgum skól-
um hafa þegar gert verkfall.
— Stúdentarnir báru spjöld á
göngunni í dag, þar sem sagt
var að allt stæði kyrt í Man-
sjúríu, ekki væri hægt að
plægja, ekki versla og ekki
læra. Er þetta árangurinn af 11
ára baráttu gegn Japönum?,
var síðan spurt.
Miðunarsföð á
Garðskaga
HIN MIKLU sjóslys, sem
urðu við Garðskaga fyrir r.okkr
um dögum síðan, hafa vakið
menn til umhugsunar um,
hvort ekki væri mannlegum
:mætti fært að draga þar nokk-
úð úr. Skipstjórar úr Keflavík,
;Garði og Sandgerði hafa nú
þegar sent ríklsstjórninni á-
skorun um að setja á stofn og
starfrækja miðunarstöð á Garð-
skaga, því þeir telja, að á þann
.hátt rnegi leiðbeina bátum mik
ið og draga úr þeirri hættu,
sem þar er sjófarendum falin.
Síðan 1943 hafa 7 bátar farist
á þessum slóðum og með þeim
59 menn. Þessir bátar eru:
Þormóður, Ársæll, Hjörtur
Pjetursson, Óðinn, Magni, Ald-
an og Geir. Reyndir sjómenn
telja, að miðunarstöð og sam-
band við land hefði getað orð-
ið þessum bátum að miklu liði
og ef til vill getað komið í veg
fyrir hin hörmulegu slys. Auk
þessa hafa margir bátar fengið
hættuleg áföll á þessum söniu
slóðum, þar á meðal Ægir, Ein-
ir, Faxi og Hilmir.
Þetta, að fá miðunarstöð á
Garðskaga, er gamalt áhugamál
sjómanna og mun það vera með
því fyrsta, sem þessu máli var
hreyft, er Snorri Þorsteinsson
skrifaði um þetta all ítarlega
grein í blaðið ísland árið 1934,
síðan hefir þetta öðru hvoru
verið á dagskrá hjá sjómönn-
um og atburðir síðustu daga
hafa gefið kröfunni um mið-
unarstöð nýjan þrótt. Jafnframt
áskorun skipstjóranna um mið
unarstöð fylgdi krafa um rann
sókn á starfsemi veðurstofunn-
ar og er talið, að það sje ekki
að ástæðulausu.
Fundur í fjelagi útgerðar-
manna í Keflavík, sem haldinn
var síðastliðinn sunnudag, sam
þykti einnig einróma að senda
ríkisstjórninni áskorun um að
starfrækja miðunarstöð á Garð
skaga og að skipaskoðun rík-
isins tæki upp í reglugerð sína,
að svokallaður bárufleygur
væri lögboðið öryggistæki 1
fiskibátum. Á sama fundi var
einnig kosin nefnd til að eiga
viðræður við stjórn Landsíma
íslands og fá lagfæringar á
hinni mjög svo ljelegu starf-
rækslu og aðbúnað á talstöðva
leigu til fiskibáta. En aðbún-
aður þeirra mála hefir verið
mjög ljelegur og rekinn með
fullkomnu einokunar sniði. Það
er full alvara fiskimanna hjer
syðra að láta Landsímanum
ekki haldast uppi með það leng
ur að draga úr notagildi þessa
öryggistæki með framkomu
sinni.
Vonandi sjer ríkisstjórnin
sjer fært að standa með sjó-
mönnum í þessum sjálfsögðu
kröfum um aukið öryggi, og er
þessum málum og lausn þeirra
fylgt með miklum áhuga hjer
um slóðir. Helgi.
SPARIÐ MATVÆLIN.
LONDON: — Gandhi hefir
nýlega í ræðu skorað á alla
Indverja að spara matvæli sem
mest: „Verið nískir á matinn“,
sagði hann. Hann lýsti því yf-
ir, að hann efaðist ekki um,
að hvergi þyrfti að vera neyð
í heiminum, ef viðskiftin væru
eins og þau ættu að vera.
Fari3 á skíðum
fyrir 4100 árum
STOKKHÓLMI: Sænskur
bóndi fann nýlega nærri Vil-
helmina á Lapplandi, fund, sem
hefir vakið óskipta athygli!
sænskra fornfræðinga. Um met-
er undir yfirborði jarðar í
mýri einni, fann hann leyfar
af skíði, sem reyndist vera frá
tímabilinu milli 1500 og 1200
fyrir Krist.
Fundur þessi er ekki sjer-
staklega merkilegur vegna
þess hve gamalt skíðið er, því
fyrir 10 árum fannst í Svíþjóð
skíði, Sem er frá því 2000 árum
fyrir Krists burð, — en fund-
urinn er merkilegur vegna hins,
að skíðið sem fannst á dögun-
um er einskonar milliliður
milli skíða þeirra, sem Lappar
hafa notað allt til þessa dags,
og hinna norðurskandinavisku
skíða, er notuð voru fyrir 4000
árum.
Geta má þess að skíði þau,
sem Lappar notuðu í fyrndlnni,
voru gjörólík þeim, sem nú
tíðkast. Annað skíðið var langt,
og notað til þess að renna sjer
á, en hitt, sem notað var til
að ýta skíðamanninum áfram,
var stutt og breitt. Það var oft
þakið hreindýraskinni, til þess
að taka betur við sjer í snjón-
um. — (SIP).
-___^ ^ ^____
Ólöglegt sð gepa
bensín í heitri-
húsum
VEGNA verkfallsins hafa
margir bílaeigendur gripið til
þess ráðs að safna að sjer ben-
sínbirgðum og geyma þær
heima hjá sjer. Jón Sigurðsson
slökkviliðsstjóri skýrði Morg-
unblaðinu frá því í gær að ben-
síngeymsla í heimahúsum, eða
nálægt mannabústöðum, geti
verið hættuleg, þar sem af ben-
síni getur stafað hin mesta eld-
hætta.
Mesta magn, sem menn mega
hafa heima hjá sjer af bénsíni,
eru 200 grömm.
Þess er vænst að menn fari
eftir þessu og ef þeir vilja
geyma bensín, að hafa það þá
einhversstaðar fjarri mannabú-
stöðum, helst á víðavangi.
Nauðsynleg er, að slökkvi-
liðið viti hvar bensínbirgðir eru
geymdar, þar sem það getur
verið hættulegt ef slökkviliðið
veit ekki af bensínbirgðum, ef
eldsvoði verður einhversstaðar
í námunda við þær. .
Mallaby fjell í
bardaga
LONDON: — Það hefir nú
komið á daginn, að breski hers
höfðinginn Mallaby, sem ljet
lífið í Batavia í haust og var
talinn hafa verið myrtur af
Javabúum, fjell í bardaga. —•
Mallaby var að reyna að koma
ró á lýðinn á torgi einu í borg-
inni, og hafc^i reynt að fá hina
innfæddu menn til þess að
hætfa að skjóta. — Tókst hon-
um þetta, en rjett á eftir byrj-
uðu ólæti aftur. Ukust þau
fljótt og skipaði Mallaby þá
hermönnum sínum að skjóta,
og tókst þá bardagi. í þessari
viðureign fjell Mallaby.