Morgunblaðið - 10.03.1946, Síða 1

Morgunblaðið - 10.03.1946, Síða 1
16 síður og Lesbók 33. árgangur. 57. tbl. — Sunnudagur 10. marz 1946 Ísaícldarprentsmiðja h.f. Bretar og Frakkar flytja heri sína frd Libanon Þrjátíu og þrír menn ÞVÍ HEFIR vcrið lýst yfir opinberlega í Helsingfors, að Juno Paasikivi hafi verið kosinn forseti finska lýðveldisins. Paasikivi tekur við af Mannerheim marskálki, en eins og kunnugt er, var hann yfirmaður finska hersins í styrjöldinni gegn Rússum. — Reuter. Uppsteytur gep Rússum í Peipsng London í gærkvöldi. ALLMIKILL uppsteytur varð í kínversku borginni Peiping í gær, er stúdentar fóru fylktu liði um götur borgarinnar í mót mæláskyni við setu Rússa í Manchúríu. Voru í þessum hópi margir stúdentar, sem flúið hafa frá Manchúríu suður á bóginn. Kröfðust stúdentar þess að Rússar stæðu við loforð sín um að fara með herina úr Manchúríu. — Reuter. — Reuter. I London í gærkvöldi. í NÓTT sem leið kviknaði í vjelarúmi hins stóra, breska flugvjelaskips Victorious, þar sem það lá í höfn í Bretlandi. Varð eldurinn allmagnaður, en skipshöfninni og verkamönn- um úr landi tókst að slökkva hann, áður en tjón var orðið mjög mikið. — Talið er, að eld urinn hafi kviknað vegna bil- ana á vjelahluta í skipinu. London í gærkvöldi. LUNDÚNABÚAR hafa und- anfarna viku verið að skila vopnum til lögreglunnar, en innanríkisráðherrann gaf ný- lega út skipun um, að allir, sem ekki hefðu leyfi til þess að eiga skotvopn, skyldu skila þeim og sleppa við refsingu fyrir að eiga þau. Hefir verið skilað vjelbyssum, fleiri þúsund skammbyssum, 900 rifflum, en sumir hafa komið með eld- sprengjur og handsprengjur. —• Lögreglan telur þetta góð- ar undirtektir. ,er pallur hrynur London í gærkvöldi. ÆGILEGT SLYS varð í borg- inni Bolton í Bretlandi í dag, er áhorfendapallur á knatt- spyrnuvelli borgarinnar hrundi. Palíurinn var þjettskipaður á- horfendum, er þetta skeði, og ljetu þrjátíu og þrír menn líf- ið, en mikill mannfjöldi særð- ist meira og minna. Lögregla og slökkvilið borg- arinnar var hvatt á vettvang, til að halda uppi röð og reglu og aðstoða við að bjarga þeim særðu úr rústunum. Þá var og gefin út tilkynning, þar sem skorað var á lækna og hjúkr- unarlið að ljá aðstoð sína. Skæruliðar hand- tebnir í Palesfínu NÍU breskir fallhlífaher- menn handtóku í dag þrjá menn, sem grunaðir eru um að hafa átt þátttöku í árásum þeim, sem undanfarið hafa átt sjer stað í Palestínu. Einn hinna handteknu var í einkennisbún- ingi, og í herbifréið, sem hann ók, fundust töluverðar birgðir af skotvopnum, skotfærum gg hermannafötum. — Reuter. Spánverjar bjarga flugmönnum London í gærkvöldi. HALIFAX sprengjuflugvjel bresk, sem var á ferð frá Gi- braltar til Bretlands, hrapaði í sjó niður út af Spánarströndum í gær. Var áhöfnin mjög nauðu lega stödd, þar sem flugmenn- irnir átta urðu að varpa sjer í sjóinn í fallhlífum sínum, en Spánverjar urðu þeirra varir, sendu út báta og björguðu þeim öllum. Voru þeir fluttir á land í bænum San Rocque. — Reuter. Samningar Breta og tgypta endurskoðaðir Egyplar munu krefjasi þess aö Brefar fari með her sinn úr landinu Cario í gærkvöldi. SAMNINGAUMLEITANIR munu bráðlega hefjast milli Eg- ypta og Breta í sambandi við veru breskra hersveita í landinu og hefir Ahmed Pasha lýst yfir því, að Egyptar setjist að samn- ingaborðinu ,,án allra takmarkana". Killard lávarður, sem til þessa hefir verið sendiherra bresku stjórnarinnar i Cairo, en er nú á förum til Singapore, hefir í sambandi við þetta látið í Ijós þá skoðun sína, að hann telji miklar líkur til þess, að þess- um tveim vinaþjóðum takist að komast að samkomulagi. — Sagði hann að Bretar óskuðu þess eindregið, að Egyptar fengju algert sjálfstæði, eins fljótt og auðið væri, og að Bret- ar mundu ekki hafa her lengur í landinu en hagsmunir beggja þjóða krefðust. Killard ljet þó í ljós nokkrar áhyggjur vegna þess, að þjóð- ernissinnar Egyptalands hafa ekki fengið sæti í samninga- nefndinni. Hefir borið á ailmik- illi óánægju út af þessu í Ca- iro, en þar hófu stúdentar verk- fall á ný í dag, í mótmælaskyni við þessa ákvörðun stjórnar- innar. Flutningunum verður lokið í Mars 1947 PARÍS í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá REUTER. TALSMAÐUR franska utanríkisráðuneytisins hefir lýst því yfir að það hafi orðið að samkomulagi, að Bretar og Frakkar flytji heri sína frá Libanon. Þetta er árangurinn af samkomu- lagstilraunum, sem farið hafa fram í París að undanförnu milli Breta og Frakka. í yfirlýsingunni segir, að Bretar hafi skuld- bundið sig til að hafa flutt allt lið sitt brott úr iandinu eigi síðar en í júní í ár, en Frakkar munu ljúka við flutninginn á liði sínu í lok marsmánaðar 1947. Grískir ráðherrar segja af sjer Aþenu í gærkvöldi. GEORGES KAFANDARIS, vara-forsætisráðherra Grikklands, hefir tilkynt opinherlega, að hann muni segja af sjer ásamt fjór- um öðrum ráðherrum, og að flokkur hans, Þjóð- veldisflokkurinn, muni ekki taka þátt í kosning- um þeim, sem fram eiga að fara í lok þessa mán- aðar. Þessi ákvörðun Ka- fandaris mun standa í sambandi við orðsendingu Breta til grísku stjórnar- innar, þess efnis, að þeir sjeu því mótfallnir, að hin um fyrirhuguðu þingkosn ingum sje frestað. Verjandi Gðrlngs kallar ný vilni VERJANDI Dönitz aðmíráls, hefir farið fram á það í rjett- inum í Nurnberg, að skjöl og skýrslur leyniþjónustunnar og breska flotamálaráðuneytisins verði lögð fram í rjettinum. — Verjandi Görings hefir leitt fram annað vitni til varnar hon um, en gert er ráð fyrir því, að Göring sjálfur fái tækifæri til að svára til saka, n.k. mið- vikudag. Þriðja vitnið, sem verjandi hans mun kalla, verður sonur von Brauchitsch hershöfðingja. Samkvæmt góðum heimildum er álitið, að hann muni bera það í rjettinum, að Göring, sem yfirmaður þýska flughersins, hafi þrjóskast við að verða við þeirri skipun Hitlers, að bresk- ir flugmenn yrðu afhentir þýsku leyniþjónustunni til yfir- heyrslu. x Bretar lána skip. Bretar hafa lofað að ljá Frökkum skip til herflutninga þessara, auk þess sem þeir munu aðstoða þá á annan hátt, en sendiherra Libanon í París, hefir verið falið að láta stjórn sína vita um þessar ákvarð- anir. Talið er víst að stjórnarvöld- in í Libanon muni ljá alla að- stoð sína, til þess að þessir her- flutningar geti farið fram á sem auðveldastan hátt, og hefir franska stjórnin tilkynt. að að hennar áliti geti allar franskar herdeildir verið horfnar burt úr landinu, ef stjórnarvöldin þar sýni nægan samvinnuhug. I Frakkar fara sjóleiðina. Megin ástæoan fyrir því, að Frakkar hafa talið sig þurfa lengri tíma til þessara herflutn- inga en Bretar, er sú, að þeir munu þurfa að flyjt allt herlið sitt sjóleiðis, en vegalengdin frá Beirut til Marseilles er um 1900 mílur. Þá munu Frakkar og hafa verið búnir að búa bet- ur um sig þarna en Bretar og þarnast því meiri tíma til að flytja burtu hergögn sín og önn ur tæki. í nauðungarvinnu hjá Rússum London í gærkvöldi. ÞÝSKUR embættismaður hef ir lýst því yfir opinberlega, að Rússar hafi fyrir alllöngu síð- an flutt töluverðan hluta íbú- anna í Königsberg brott til nauðungarvinnu. Fólk þetta er nú notað til margskonar starfa í Úral. Þá hefir mótmælum og verið hreyft gegn því, að Tjekkar noti nú 10.000 Þjóðverja, sem ekki hafi verið í lierþjónustu, til þrælkunarvinnu í borginni Saaz í Bæhéimi. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.