Morgunblaðið - 19.03.1946, Síða 2

Morgunblaðið - 19.03.1946, Síða 2
2 MORQUN BíiAÐIÐ Þriðjudagur 19. marz 1946 176 eldsvoðar í Reykjavík iliðið kvatf út smnum. Breskur jasspían- isli heldur hljóm- ieika í Gl. Bíó NÝLEGA VAR LÖGÐ fram á bæjarráðsfundi skýrsla frá ílökkviliðsstjóra um eldsvoða hjer í Reykjavík árið 1945. Þeir voru alls 176. Flestir þeirra. eða 74 voru í íbúðarhúsum, 14 í útihúsum, 7 í verkstæðum, 13 í bröggum, 12 í skipum, 18 í bifreiðum og í öðru 38. ! Flestir voru eldsvoðarnir í desember, 39 alls, en fæstir í nóvember 7 og í apríl 8. Hina máftuðina voru þeir frá 11 til 18. — Slökkviliðið var alls dkallað út 280 sinnum, og var um gabb að ræða í 58 skipti. Mikið tjón var í 10 af elds- voðum þessum, töluvert tjón í 18. lítið í 106 og ekkert í 42. Mest var tjónið í október. — Flestir brunarnir voru á milli kl. 18 og 21, samtals 51. Um upptök eldsvoðanna er jþað að segja, að 22 þeirra voru út frá eldfærum og ljósatækj- um, um 20 íkveikjur var að ræða og á 18 stöðum var farið óvarlega með eld. Voru hinir eldsvoðarnir af ýmsum ástæð- um, en um upptök eldsins er ekki vitað á 41 stað. Norrænt geslamóf í Sfokkhólmi SÖMLT dagana og norræna æskulýðsmótið, sem áður hefir verið getið um hjer í blaðinu, stendur yfir, hefir verið gert ráð fyrir nokkurskonar nor- rænu gestamöti í Stokkhólmi, en á það mun verða boðið Um 50 þátttakendum frá hverri höfuðborganna, Oslo og Kaup- mannahöfn, en nokkuð færri frá Reykjavík og Helsingfors. Gert er ráð fyrir að þátttak- endum verði komið fyrir hjá fjöiskyldum í Stokkhólmi á samá hátt og unglingunum. Tilætlunin er, að þátttakend- urnir verði fulltrúar ýmsra menningarfjelaga í borgunum. Enn er ekki komin dagskrá fyrir þessi mót, eða reglur um það hvernig hugsað er að velja þátttakendurna, en þegar nán- ar verður tilkynnt um það, mun Nö'rræna fjelagið senda þeim fjelögum, sem ætlast er til að megi senda fulltrúa, greinargerð um það. Búast má við, að erfitt verði fyrir okk- ur íslendinga að taka þátt í þessum mótum sökum þess hve erfitt er að komast og ferðir dýrar, en Norræna fjelagið mun reyna að fá einhverja góða fulltrúa, sem eru úti, til þess að mæta fyrir sig. En æski legt væri, að fleiri gætu tekið þátt í þessum mótum. Eimskip byrjar faslar ferðir tii Gislihúsið 'Antwerpen EIMSKIPAFJELAG ÍSLANDS er í þann veginn að hefja fast- ar ferðir milli íslands og Ant- werpen í Belgíu, 1 ef nægur flufningur fæst. Fyrsta ferðin verður um næstu mánaðamót og fer Reykjafoss þá til Ant- werpen með vörur hjeðan og tekur vörur í Antwerpen til ís- lands. : ■ i GISTIHUSMALIÐ var til 3. umr. í Nd.. í gær. Eysteinn bar fram þá oreytingartillögu, að í stað gistihúsbyggingu í Reykjavík komi gistihusbygg- ingar. — Sömuleiðis vill hann fella fella eignarnámheimild- ina niður. Einnig bar Einar Ol- geirsson fram breytingartillög- ur í þá átt, að frumvarpið verði um gistihúsbyggingar alment. Ætlast hann til að hlutafjelög byggi og reki þessi gistihús en undantekur að ríkið geti komið upp gistihúsi á Þingvöllum. Samgöngumálaráðherra taldi kenna nokkuis §isskilnings í þessu máli. Hjei væri alveg blandað saman lausn gistihúss- vandamálsins í Reykjavík og gistihússvandamálinu alment. Þessár breytingartillögur væru aðeins til skaða, þar sem þessu vel undirbúna máli væri bland- að saman við hitt, sem væri með öllu óundirbúið, þ. e. gisti- hússvandamálið alment. Auk þess yrði það alvcg til að eyði- leggja málið, ef sama upphæðin (5 milj. kr.), sem ætlast er til í þessu frumvarpi nái til gisti- hússbygginga alment út um land. — Umræðu varð lokið, en atkvgr. fréstað. Selfossbygð. Nokkrar umræður urðu um frv. um sameiningu Selfoss- bygðar. Við frumvarp þetta eru komnar margar brevtinga- tillögur, sem ganga sitt í hverja áttina. — Dómsmálaráðherra lagði áherslu á, að þar sem ekki hefði náðst samkomulag milli hreppayfirvaldanna heima í hjeraði, þá kæmi það til kasta Alþingis að útkljá þetta mál. Umr. var frestað Austurvegur. í Ed. var frumvarpið um Austurveg samþykt samhljóða ög vísað til 3. umr. Samgöngu- málanefnd lagði til að frv. yrði samþykt með þeirri breytingu að núverandi þjóðvegur um Sínahraun austur yfir Hellis- heiði skyldi numinn úr þjóð- vegatölu, þegar tilsvarandi kafli Austurvegar væri full- ger. Með nefndarálitinu fylgdi álit miliþinganefndar í sam- gönngumálum Suðurlandsundir lendisjns og cr frumvarpið í fylsta samræmi við niðurstöð- ur nefndarinnaT. Flutnings- menn eru þeir Eiríkur Einars- son, Bjarni Benediktsson, Magnús Jónsson og Brynjólfur Bjarnason. ENSKUR jasspíanóleikari, Mr. Marry Dawson, ætlar að halda hljómleika í Gamla Bíó n.k. fimtudag kl 11,30 e. h. — Mr. Dawson er þektur píanó- leikari í Englandi og hefir spil- að með ýmsum þektum hljóm- sveitum. — Hann hefir samið mörg lög, sem miklum vinsæld um hafa náð og verið spiluð í br^ska útvarpið af mörgum þektustu hljómsveitum Breta, svo sem hljómsveit Victor Sil- vester og Harry Roy, og er ekki ólíklegt, að sumir muni þekkja þau. Nokkur þeiira mun hann leika á hljómleikunum á fimtu daginn. Annars verða þar leik- in 34 lög, sem alkunn eru hjer og vinsæl. — Mr. Dawson er í breska flughernum og starfar við veðurathuganastöð hersins á flugvellinum í Reykjavík. — Hann hefir dvalist hjnr um þriggja vikna skeið og lýst prýðilega á sig, en hann hefir engan frið fyrir brjefum frá vinum sínum í Englandi, sem biðja hann um að senda sjer myndir af Eskimóum. — Mr. Dawson ljek r.okkur lög fyrir blaðamenn, sem áttu tal við hann í gær að Hótel Borg, og gerði það prýðilega. Að öllum líkindum mUn hann ekki end- urtaka hljómleikana, en vafa- laust ,fá færri miða að hljóm- leikunum á fimtudag en vilja. DKAUGALEGT ASTAND NEW YORK: Ahorfendur í kvikmyndahúsi einu í Mann- hattan, sem voru að horfa á magnaða draugamynd, urðu ekkert hissa, er 200 ferfet afjhefur heldur neitt samband kalki úr loftinu hrundi niður,náðst við þýska togarann, en áihöfuð þeirra. . Ihann var á leið út. Skip, sem sagl var strandað, finsl ekki í GÆRMORGUN barst loft skeytastöðvunum í Reykjavík og í Vestmannaeyjum skeyti um sendistöð togarans Gyllir, frá þýskum togara, þess efnis að færeyskur togari frá Þórs- höfn hefði strandað við suð- urströnd landsins. — Nákvæm lega var gefið upp um strand staðinn. Reyndist þar vera á Slysafjöru, mjög nálægt þeim stað sem pólski togarinn Pol- asei strandaði. Björgunarsveitir fóru þegar á strandstað, en ekki var þar að sjá neitt skip. Var í allan gærdag Ijeitað á bifreiðum, bæði austur og vestur fyrir. Ekki hafði Slysavarnarfje- laginu tekist að hafa neitt samband við færeyska togara, se mhjer eru við land, en ekki munu þeir vera margir. einna helst þá Urd, áður Rán. Ekki Einum peninguskáp- num slolið enn Engir peningar voru í honum. UM það bil 200 punda peningaskáp var stolið nú um helgina, er innbrot var framið í skrifstofu setuliðsviðskifta við Mölnis- holt. Engir peningar voru þó í skápnum, en talsvert mikið af hverskonar skjölum. Samræming kaup- gjalds MORGUNBLAÐIÐ hefir átt samtal við Lárus Sigurbjörns- son, formann Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og spurt hann um þessa nýju reglugerð. Sagði hann að nefnd frá banda laginu hafi unnið að þessum málum í samvinnu við ríkis- stjórnina. Niðurstöður þær, er nú liggi fyrir í reglugerð, hafi verið tilbúnar um jólaleytið, en af ýmsum ástæðum hafi orðið tafir á því að reglugerðin væri gefin út þar til nú. í nefndinni áttu sæti af hálfu bandalgsins þeir Guðjón B. Baldvinsson rit- ari bandalagsins, Hannes Björnsson póstmaður og Ágúst Sæmundsson símamaður. Sjerstök nefnd á að fjalla um vafa og ágreiningsmál, sem upp kunna að koma í sambandi við þessa regtugerð. í þeirri nefnd eiga sæti: Magnús Gísla- son skrifstofustjóri í fjármála- ráðuneytinu, skipaður af ríkis- stjórninni, Jónatan Hallvarðs- son hæstarjettardómari til- nefndur af Hæstarjetti og Lár- us Sigurbjörnsson formaður B. S. R. B. Samrærning hjá bænum. Blaðið spurði Lárus hvort ákvæði reglugerðarinnar myndu ná til starfsmanna bæj- arins og svaraði hann því til, að á sínum tíma hefði bæjar- stjórnin samræmt lausn starfs- manna sinna við laun starfs- manna ríksins og mætti gera ráð fyrir að bæjarstjórnin tæki nú til meðferðar lausn og yfir- vinnugreiðslur til starfsmanna bæjarins með tilliti til hinnar nýju reglugerðar. „RáSskona Bakka- bræðra" leikin í Hafnarfirði LEIKFJELAG Hafnarfjarðar hefir ákveðið að hefja sýning- ar á ný á leikritinu „Ráðskona Bakkabræðra11 og verður fyrsta sýningin á morgun. Leikafar verða að mestu leyti þeir sömu sem voru síð- ast er „Ráðskonan“ var sýnd í Hafnarfirði, —■ Bakkabræður leika þeir Ársæll Pálsson, Ei- ríkur Jóhannesson og Valgeir Óli Jóhannesson. Ráðskonuna leikur Hulda Runólfsdóttir, sem jafnframt hefir leikstjórn á hendi. Vegna þess að leikfje- lag Hafnarfjarðar hefir nýtt verkefni á prjónunum verða aðeins nokkrar sýningar á þessu leikriti, eða meðan hið nýja leikrit erú undirtaúningi.; Talið er að innbrotið hafi verið framið á tímabilinu frá kl. 18.00 á laugardagskvöld til kl. 16,30 á sunnudag. Skrifstof- an er í stórri vörugeymslu og' er hún þyljuð af. Lás, er var fyrir skemmunni hefir verið sprengdur upp og síðan senni- lega hent. Þaðan hafa þeir svo farið inn í skrifstofuna og tekið peningaskápinn, er stóð á borði. í skápnum voru tvær eða þrjár bækur og mikið af ýmiskonar skjölum. Ekki var búið að finna skáp- inn í gærkvöldi, er blaðið átti tal við rannsóknarlögregluna. Stálu einnig verkfærum Sennilegt er að þjófar þessir hafi brotist inn í bragga þar skamt frá. Þar hafa þeir stolið nokkru af verkfærum og box- hönskum. Kvikmyndaskóli handa Slysavarna- fjelaginu Á SÍÐASTA bæjarstjórnar- fundi kom sú samþykkt bæj- arins til umræðu, að Þórður Ólafsson fengi að láta bragga standa í 3 ár á lóð hans við Skúlagötu nr. 40. Hafði bæjar- ráð samþykkt leyfi þetta með 3 atkv. gegn einu. Sigfús Sigurhjartarson var andvígur þessi leyfi, og vildi að bærinn fengi umráð yfir þessum bröggum sem öðrum. Borgarstjóri benti á, að úr |*ví umræddir braggar væru á lóð Þórðar, þá hefði þurft að semja við hann um leigu á lóð- inni, ef braggar þessir ættu að standa. Því hefði hitt ’þótt jafn gott, að láta lóðareiganda fá umráð yfir bröggunum. Þarna verði vörugeymsla, og þarna er fyrirhugað að Nýja Bíó geti haft myndasýningar í sumar um tíma, meðan verið er að breyta Nýja Bíó. Síðan á Slysavarnafélagið og Andlía að fá afnot af sýningarsalnum. Friðrik Ólafsson bað menn að gæta þess, að Slysavarnafé- lagið, þyrfti á velvild og stuðn- ingi að halda. Þáð þyrfti að fá aðstöðu til kvikmyndasýninga. Borgarstjóri benti á, að bæj- arstjórn hefði málið alveg í hendi sjer, þó Þórður Ólafsson fengi leyfi til að hafa bragg- ana í 3 ár, því bæjarstjórn þyrfti að leyfa kvikmyndasýn- ingarnar. Samþykkt var að Þórður Ól- afsson fengi að hafa þarna braggana kyrra í 3 ár. IBUATALA TVOFOLDUÐ. NEW YORK í bænum Meteor City, Arizona, tvöfald- aði maður einn íbúatölu bæj- arins með því að gifta sig. —• Hann var einn í borginni áð- Ul’. ■■■•';'• •

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.