Morgunblaðið - 19.03.1946, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 19. marz 1946
ffiOBÖUNBLA»IÖ
5.
Vinnutími og eftirvinna
obinberra starfsmanna
ákveðið með reglugerð
Vinnutími 35-48 klsf. á viku.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefir nýlega gefið út reglugerð um
vinnutíma starfsmanna ríkis og ríkisfyrirtækja. Er reglugerð
þessi gefin út samkvæmt fyrirmælum í lögum um laun starfs-
manna ríkisins.
Helstu ákvæði reglugerðarinnar eru:
Vinnutíminn.
Vikulegur vinnutími starfs-
fólks hjá ríki og ríkisstofnun-
um skal vera, sem hjer segir:
I. í skrifstofum, teiknistof-
um, við rannsóknarstörf, söfn-
in og önnur hliðstæð störf 35 V2
klst.
Daglegur starfstími skal vera
frá kl. 9—12 og kl. 13—17, með
% klst. kaffihlje eða frá kl. 13
■—16% ef kaffihljei er slept. Á
laugardögum er vinnutími að-
eins til kl. 12. Afgreiðslu og við
talstími skal ekki vera undir 4
klst. á dag (2 klst. á laugar-
dögum), yfirleitt á tímanum
frá kl. 10—Í2 og kl. 13 V2—
15V2.
II. Við önnur innistörf en þau
sem talin eru undir I. tölulið,
svo sem birgðavörslu, verkstæð
isvinnu, vöruafgreiðslu og fram
leiðslu hjá ríkiseinkasölu, skal
vinnutíminn vera 45 klst. á
viku.
Daglegur vinnutími skal vera
á tímanum frá kl. 8—12 og frá
kl. 13—18 alla virka daga,
nema laugardaga frá kl. 8—12,
með tveim 15 mín. kaffihljeum
á staðnum, á laugardögum ein-
ar 15 mín.
III. Vinnutími loftskeyta-
manna og veðurfræðinga skal
vera 36 klst. á viku.
IV. Vinnutími lögregluþjóna,
tollvarða, verkstjóra við úti-
vinnu, ráðsmanna, ráðskvenna
og hjúkrunarkvenna skal vera
48 klst. á viku.
Vinnutími annara starfs-
manna skal vera hinn sami og
verið hefir, þar til öðru vísi
kann að verða ákveðið.
Vaktaskifti.
Þeir starfsmenn' sem vinna
vaktir á sunnudögum eiga rjett
á hvíldardegi 1 sömu viku til
jafnlengdar og aukafrídaga
skulu þeir, sem vinna i vöktum
fá bætta með jafnmörgum or-
lofsdögum.
Þar sem vaktavinna er unn-
in skal helgidagavarðskrá sam
in fyrir eigi skemri tíma en 1
mánuð í senn og helgidaga-
vinna skiftast sem jafnast nið-
ur á starfsmenn.
Skyldur starfsmanna.
Skylt er starfsmönnum að
mæta stundvíslega til starfa,
hvort heldur að morgni eða eft
ir hlje og skulu skrifstofustjór-
ar og aðrir yfirmenn starfanna
fylgjást með því. -— Sjerhver
Btarfsmaður er skyldur til að
yinna án endurgjalds eftirvinnu
ér svarar að minsta kosti til
þess tíma er hann hefir van-
rækt starfið og yfirvinna verð-
ur því aðeins greidd að hlutað-
eigandi starfsmaður hafi áður
Bkilað fullum vinnustundafjölda
á mánuði hverjum samkvæmt
1. gr. reglugerðar þessarar.
Nú sýnir starfsmaður ítrek-
aða óstundvísi og vanrækslu í
starfi sínu og lætur ekki skip-
ast við áminningar yfirmanna
sinna og varðar það brottvikn-
ing úr starfinu um stundarsak-
ir eða fyrir fullt og allt ef mikl
ar sakir eru.
Yfirvinna.
Ef óhjákvæmileg nauðsyn
krefur skal starfsmönnum skylt
að vinna eftirvinnu, gegn yfir-
vinnugreiðslu Á yfirvinnu aðra
en þá, sem um getur í 4. gr.
skal greitt 50%—100% álag, er
ákveðið skal með hliðsjón af
fastalaunum starfsmannsins,
miðað við 1800 klst. órlegan
vinnutíma.
AðaHundur Jarð-
rækfarfjel, Reykja-
víkur
AÐALFUNDUR Jarðræktar-
fjelags Reykjavíkur var hald-
inn á sunnudaginn var. For-
maður fjelagsins er Einar Ól-
afsson, Lækjarhvammi. Hann
hefir haft á iiendi formensku
fjelagsins í þrjú ár og var end-
urkosinn.
Hann gerði grein fyrir störf-
um fjelagsins síðastliðið ár. •—
Hefir fjelagið haft mikil jarð-
ræktarstörf með höndum. Það á
tvær dráttarvjelar og fylgir
jarðýta annari þeirra, ásamt.
öðrum jarðyrkjuverkfærum.
Á síðastliðnnu ári var mikil
eftirspurn eftir að fá brotið
iand :il nýræktar. Var unnið
með vjelum Ijelagsins innan
lögsagnarumdæmis Reykjavík-
ur, en auk þess allfnikið á Bessa
stöðum. Brotiu hafa verið garð
lönd fyrir nýja smágarða í bæj
arlandi m. a. 1 Fossvogi.
Jarðræktarfj elag Reykjavík-
ur er nú nálægt 60 ára gamalt.
Eru fjelagsmenn þess nú rúm-
lega 150 að töiu. t stjórn, ásamt
Einari Ólafssyni eru Kristófer
Grímsson og Tryggvi Guð-
mundsson bústjóri á Kleppi.
Lv, SipíSur seldur
ÓSKAR HALLDÓRSSON, út
gerðarmaður hefir selt línuveið
arann Sigríður til Grundar-
fjarðar.
Kaupendur eru nýstofnað
hlutafjelag þar, er nefnist h.f.
Sigríður. Hinir nýju eigendur
hafa tekið við skipinu og nota
það til fiskflutninga. Hjerna í
Reykjavík keyptu þeir fisk í
skipið til útflutnings.
Kveðjuhl|6mleikar
Guðmundu Elías-
dóftur
SÖNGKONAN Guðmunda
Elíasdóttir heldur kveðju-
hljómleika n.k. fimtud., en
hún er nú á förum til Dan-
merkur til frekara söngnáms
hjá frú Dóru Sigurðsson. —
Hyggst frúin að leggja stund
á óperusöngnám, en óráðið
er hvar hún nemur annar-
staðar en hjá frú Sigurðsson.
Á söngskrá á kveðjuhljóm-
leikunum syngur frúin meðal
annars Aríur eftir Hándel og
Mozart, úr Brúðkaupi Figaros
og síðan 3 Norðurlandalög,
þar á meðal Solveigs Sang
eftir Grieg. Ennfremur syng-
ur hún lög úr óperunni Drot
og Marsk, og einnig íslensk
lög.
Kveðjuhljómleikar þessir
eru algjörlega á vegum frúar-
innar sjálfrar, en áður hefir
hún haft tvo hljómleika á
vegum Tónlistarfjelagsins,
auk þess, sem hún söng í Mess
ías eftir Hándel.
Frúin segir að dvölin hjer
hafi verið sjer sjerstaklega
ánægjuleg. Hún hefir í hyggju
að koma hingað aftur í sum-
arleyfi sínu í sumar, en mað-
ur hennar og dóttir verða hjer
eftir.
Á FUNDI bæjarráðs, var
samþykkt að tilnefna.í sumar-
dvalarnefnd, af hálfu bæjar-
ins, Harald Árnason, storkaup-
mann og Katrínu. Pálsdóttur,
bæjarfulltrúa. Þá var þess
óskað á fundinum að ríkis-
stjórnin og Rauði Kross íslands
tilnefni fulltrúa í .nefndina.
Yfirlýiing
í TÍMANUM 17. þ. m. birtist
grein með fyrirsögninni: „Fyr-
ir luktum dyrum“, eftlr Flilm-
ar Stefánsson bankastjóra.
Vegna þess að grein bessi er
full af dylgium um lokaða
fundi á Alþingi, þar sem rædd
sjeu utanríkismál, þykir mjer
rjett að lýsa því yfir, að á þessu
ári (1946), hefir enginn lok-
aður fundur verið á Alþingi,
nema aðalfundur Þjóðvinafje-
lagsins og fundur í Þingmanna-
sambandi Norðurlanda, sem
hvor um sig stóð í fáar mín-
útur.
Alþingi 18. mars 1946.
Jón Pálmason,
forseti sameinaðs Alþingis.
Fjárhagsóællun Hafnarfjarðar:
Útsvörin í Hafnafirði
hækka um rúmlega
37/o frá í fyrra
Hafa rúmlega !5 faldasf
frá því árið 1939
Frá irjettaritara Mbl.
í Hafnarfirði.
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag
var fjárhagsáætlun Hafnar-
fjarðar fyrir áiið 1946 lögð fyr-
ir bæjarstjórnina til annarrar
umræðu. Hafði hún verið rædd
í bæjarráði, og þar gerðar
nokkrar breytingar á henni,
frá fyrri umræðu. og var hún
þannig samþykkt óbreytt við
aðra umræðu.
Tekjuliðirnir skiptast þannig:
Tekjur.af fasteignum ...................
Fasteignaskattur .......................
Vatnsveitan ............................
Holræsagjald ...........................
Þáttaka Hafnarsj. og Rafveitu í stj. kaupst
Endurgreiddur fátækrastyrkur............
Elliheimilið ...........................
Ráðhúsið ...............................
Ýmsar tekjur og endurgreiðslur..........
Stríðsgróðaskattur .....................
Útsvör .................................
1945 1946
kr. 55.000 55.000
— 60.000 60.000
— 85.000 35.000
— 20.000 20.000
— 10.000 10.000
— 25.000 25.000
— 100.000 100.000
— 60.000
— 110.000 110.000
— 700.000 1.100.000
—2 358.000 3.243.500
Samtals kr. 3.523.000 4.868.500
Eins og sjá má af þessu yfir-
liti, eru tekjuliðirnir flestir á-
ætlaðir þeir sömu og í fyrra,
að undanskildum stríðsgróða-
skatti, sem á að hækka úr
700.000.00 í 1.100.000.00 eða
um 400.000.00 kr., og útsvör-
um sem voru 1945 kr. 2.358.0C0
en eru nú áætluð 3.243.500 kr.
og samsvarar það hækkun er
nemur meir en 37%. Tekjur
af rekstri Ráðhússins áætiað-
ar kr. 60.000.00.
Gjaldaliðir skiptast þannig:
1. Stjórn kaupstaðarins kr. 1945 181.850 1948 276.800
2. Mentamál: a. Barnaskólinn 185.900 205.800
b. Flensbprgarskólinn — 143.700 211.000
c. íþróttamál: Leikfjel. Hafnarf: o.fl. — 202.4Ö0 330.400
d. Bókasafnið — 19.500 47.000
3. Heilbrigðismál — 24.050 81.900
4. Eldvarnir — 60.500 57.600
5. Löggæsla — 133.500 135.000
6. Alþýðutryggingar 0. fl — 335.000 580.000
7. Framfærslumál — 366.100 403.000
8. Vextir og afborganir lána — 18.000 17.000
9. Til vega, holræsa og vatnsveitu ..... — 500.000 1.000.000
10. Sorp og salerpahreinsun "..... — 45.000 75.000
11. Götulýsing — 17.500 18.000
12. Fasteignir bæjarins — 30.000 30.000
13. Hellisgerði — 10.000 20.000
14. Barnaskólabygging • — 200.000 300.000
15. Hafnargerðin — 400.000 400.000
16. Óviss gjöld — 100.000 130.000
17. Krísuvík — 200.000 300.000
18. Húsmæðraskóli — 50.000 50.000
19. Til bygginga elliheimilis, fæðingar-
deildar og sóttvarnardeildar ....:. — 100.000 '200.000
20. Tekjuafgangur — 200.ÖOQ
Samtals kr. 3.523.000 4.868.500
ÞEGAR HUNDURINN
VAKNAÐI.
NEW YORK: — Varðhund-
ur, sem gæta átti byggingar
einnar í New York, svaf með-
an innbrotsþjófar voru að stela
þar. Þegar lögreglan kom,
vaknaði hann og rjeðist þegar
á lögreglumenina.
Happdrætti Háskóla íslands.
Athygli'skal vakin á auglýs-
ingu happdrættisins í dag. I
dag er síðasti söludagur og
allra síðustu forvöð að endur-
nýja, því að cngir miðar verða
afgreiddir á morgun. Það er
því nauðsynlegt að endurnýja
í dag, ef menn vilja halda mið-
um sínum.