Morgunblaðið - 19.03.1946, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.03.1946, Blaðsíða 16
ALLHVASS eða hvass norð- an eða norð-austan. Úr- komulaust að mestu. UR ENDURMINNINGUM Þriðjudagur 19. marz 1946 blaðamanns. Sjá grein á bls. 9. Slys í Frá frjettaritara vorum í Keflavík. mánudag. f DAG vildi það slys til suð ur í Höfnum, að maður varð á milli báts og bryggju og slasaðist. — Maður þessi var Pjetur Þórðarson til heimilis að Sólbakka í Höfnum. Farið var með hann til Reykjavíkur og hann þegar lagður í Landa kotsspítala. Þetta gerðist milli kl. 3 og 4. Vjeibátur Magnúsar Ket- ilssonar var að leggja frá ^ryggjunni, en tveir menn voru á henni og voru þeir að Iosa bátinn. Vindur var allhvass. Báðir mennirnir fjellu af bryggjunni, milli báts og bryggju. En vegna þess hversu sogadráttur var mikill varð Pjetur á milli bátsins og bryggjunnar. Hon- um var þegar bjargað og hjer aðslækni, Karli Magnússyni, gerfc aðvart. — Kom hann skömmu síðar og flutti hann Pjefcur til Reykjavíkur.' Ekki var í gær hægt að segja um meiðsli hans. en tal- ið er að hann hafi kramist um bringspalir. ------» » ♦___£_ í» innferðaslys ÞAÐ SLYS vildi til í gær um hádegisbilið, að maður að nafni Ólafur Sigfússon, Hjallaveg 20, varð fyrir bifreiðinni R—1971. Ólafur hlaut skurð á hnakka og fjekk snert af heilahristing. Farið var með hann í sjúkra- bifreið í Landsspítalann og var þar gert að sárum hans, en síð- an var hann - fluttur heim til sín. (j £~ík Ekki voru neinir sjónarvott- ar, að slysi þessu, en bifreið- arstjórin telur að maðurinn hafi gengið beint fyrir bílinn. Þá varð það slys á laugar- dagskvöid, að drengur að dreingur að nafni Ingvi Guð- jónsson, Flókagötu 27, varð fyrir bifreið og lærbrotnaði. Invi var að mæta #öruflutn ingabifreiðinni L—88, er var á leið upp eftir Meðalholti. Er bifreiðin var um það bil að fara fram hjá honum heyrði bifreiðarstjóri hennar, að eitt- hvað kom við bílinn. — At- hugaði hann þetta þegar. Sá hann þá hvar drengurinn lá á götunni, fyrir aftan bílinn. — Farið var með Ifcjgva í sjúkrabifreið í Landsspítalann og iiggur liann þar nú. Hertoginn a! Hamilfon í Rcykjavík ÞESSI MYND var tekin s. I. laugardag er hertoginn af Hamilton var staddur hjer í Reykjavík. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Mr. Mclntyre, forstjóri Scotíish Airlines, Mr. Walter Elliot, fyrverandi ráðherra, Bergur B. Gíslason, hertoginn af Hamilton og Orn Johnson, framkvæmdastjóri Flugfjelags íslands. — Eins og skýrt var frá í Morgunblað- inu ætlar Scottish Airlines að hefja fastar flugferðir á næstunni milli Skotlands og Is- lands. Umboðsmenn Scottish Airlines hjcr cr Flugfjelag íslands. (Ljósm. Vignir). ísfiskur seldur fyrir rúml. 6 milljónir króna É vikunni sem leið seldu 27 skip í VIKUNNI sem leið seldu 26 íslensk skip og eitt' leiguskip ísvarinn fisk á Englandsmarkað. Samanlagt voru það 66,623 kits, sem skipin sgldu, fyrir um 256.610 sterlingspund, eða í íslenskum krónum 6.694.954.90. — Það er um 400 þúsund krónum meira, en 30 skip seldu fyrir í fyrri viku. I Að þessu sinni er afla- og söluhæsta skip, es. Sæfell frá Vest- mannaeyjum, með rúmlega 5000 kits. er það seldi fyrir tæplega 2J þús. sterlingspund. Flest skipin seldu í Fleetwood. GéSar gæffír á ísðflrSi Isafirði, mánudag. Frá frjettaritara vorum. í GÆR og í dag rjeru engir bátar hjeðan, eða úr nærliggj- andi veiðistöðvum. Einstaka bátar hafa sótt sjó samfleitt frá 21. febr. til 17. mars, eða sam- tals 22 róðra í röð. Margir bát- ar hafa um 20 róðra í röð. — Bátar hjer munu nú hafa nokk uð á 5. þúsund krónur til hlut- ar. í dag er norðaustan hvass- viðri. Fleetwood. í Fleetwood seldu 11 skip og eru þau þessi: Ms. Grótta seldi 2715 kits, fyrir 10.800 sterlings- pund. Viðey seldi 3161 kits, fyr- ir 12.487 pund. Ms. Edda seldi 2472 kits, fyrir 9.724 pund. ís- lendingur seldi 1827 kits, fyrir 7.471 pund. Ms. Dóra seldi 1121 kits fyrir 4.590 pund. Þór seldi 2168 kits, fyrlr 8,121 pu.nd. — Ms- Helgi seldi'1634 kits, fyrir 6070 pund. Ms Síldin seldi 1316 kits, fyrir 4.065 pund. Venus seldý 3386 ki^'s, fyrir 14.308 pund. Sindri seldi 1937 kits fyr- ir 7.1548 pund og Súlan seldi 1694 kits, fyrir 6.681 pund. Aberdeen. Þessi skip seldu í Aberdeen: Ms. Álsey seldi 1736 kits fyrir 6.819 stpd. Ms. Magnús seldi 1097 kits fyrir 4.381 pund. Ms. Sæfinnur seldi 1514 kits fyrir 5.991 pund. Ms. Narfi seldi 1201 kits, fyrir 4.77 > pund. Ms. Stella seldi 957 kits fyrir 3.773 pund og es. Jökull seldi 1961 kits fyrir 7.762 stpd. Hull. Þar seldu fimm skip — þau eru þessi: Foiset.i seldi 2880 kits, fyrir 10,649 stpd. Es. Sæ- fell, sem er fiskflutningaskip frá Vestmannaeyjum seldi 5310 kits fyrir 20.893 stpd. Skinfaxi seldi 2815 kits fyrir 10.365 stpd Tryggvi gamli seidi 2829 kits, fyrir 11.129 pund og Vörður seldi 3092 kits, fyrir 10.851 st. pund. Grimsby. Fimm skip reldu þar og eru þau þessi: Bejgaum seldi 3613 kits fyrir 10862 pund. Es. Sverr ir seldi 1564 kits, fyrir 6.667 pund. Ms. Bláfell seldi 4131 kits, fyrir 16.288 pund os Gyll- ir seldi 3128 kits fyrir 12.618 og leiguskip af Akranesi ms. Amstelstroom seldi 4828 kits, fyrir 18.916 pund. voru drengir, sem stálu sprengiefninu RANN SÓKNARLÖGREGL AN hefir nú upplýst innbrot- ið í sprengiefnageymslu vega gerðarinnar í Kleppsholti og þjófnaðinn á rafmagnshvell- hettunum. Unglingar eru vald ir að þessu. Saga þessa máls er sú, að fyrir nokkru fóru þrír drengir inn í tóma geymslu, sem er við hliðina á sprengiefnageymslunni. — Þeir voru sannfærðir um að þar væru .,leynigöng“ og töldu víst að setuliðsmenn hefðu grafið þau. Tóku dreng irnir með sjer eldspítnabúnt til að lýsa upp leynigöngin, en fundu þau auðvitað ekki. Kveiktu þeir þá í öllum eld- spítunum. Sennilegt er, að drengirnir hafi ekki vitað, að í geymsluherbergi við hlið- ina voru geymd um 5 tonn af sprengiefni. Nokkru síðar sannfærðust tveir smádreng- ir um, að í læstu geymslunni væri sælgæti og ákváðu þeir að ná því. Þeir brutu upp geymsluna, sem var læst með smekklás og hengilás, en .,sæl gætið“ reyndist vera sprengi- efni og hvellhettur. Sprengi- eínið tóku þeir ekki, en hvell- hetturnar freistuðu þeirra 'og tóku þeir allmikið af þeim. Er hreinasta tilviljun að ekki skuli stórslys hafa hlot- ist. af þessu tiltæki drengj- anna. Sveif HarSar Þórð- arsonar vann bridge einvígið SÍÐASTLIÐINN sunnudag lauk bridgeeinvígi sveita þeirra Harðar Þórðarsonar og Lárusar Karlssonar með sigri Harðar. Hlaut sveit Harðar 22710 stig, en sveit Lárusar 22220 stíg. —- í sveit Harðar eru auk hans Gunnar Pálssón, Einar Þoríins- son, Torfi Jóhannsson og Frið- rik Dungal. Kept var um fagran silfur- bikar, sem þeir Hafsteinn Berg þórsson, Stefán A. Pálsson, Jón Gíslason og Ásgeir Stefánsson gáfu. Vinnst hann til eignar, e£ sama sveitin vinnur hann þrisvar. Auk þess fær hver keppandi þeirrar sveitar, sem vinnur í hvert sinn, lítinn bik- ar til eignar. í keppni þessari voru alls spiluð 64 spil í tveimur umferð- um. Eftir fyrri umferðina var sveit Lárusar heldur hærri með 9430 stig á móti 9420, en seinni umferðina vann sveit Harðai’ með 13290 stigum gegn 12790. Handknattleiksmótið: Leikfjelag Hafnarfjarðar sýriir Ráðskonu Bakkabræðra kl. 8,30 annað kvöld í Leik- húsi bæjarins. _ HANDKNATTLEIKSMOTIÐ hjelt áfram í gærkvöldi. Úrslit urðu þau, að KR vann FH í meistaraflokki kvenna með 5:4. — í meistaraflokki karla unnu Haukar Fram með 20:18 og FH Val með 10:8. — í II. flokki karla vann FH Ármann með 15 :10 og ÍR KR með 13:9. Þá eru allir leikir búnir 1 A- riðli í meistaraflokki karla. —- Haukar unnu þann riðil og kom ast því í úrslit. Hlutu Haukar 6 stig, Fram 3 FH 2 og Valur 1. Mótið heldur áfram í kvöld kl. 8 e. h. Þá keppa ÍR og Ár- mann í meistaraflokki kvenna. Víkingur og KR og ÍR og Ár- mann í meistaraflokki karla. Leikur IR og Ármanns er úr- slitaleikurinn í B-riðlinum. í II. flokki karia leika Valur og KR og Fram og FH. — Ferðir inn að Hálogalandi eru frá BSI frá kl. 7 e.h. fjariar UNDANFARIÐ hefir Skák- mót Hafnarfjarðar staðið yfir, og hafa verið tefldar 4 umferð ir. Eftir er að tefla 5. umferð- ina, sem er síðasta umferð mótsins, auk einnar biðskák- ar, sem þeir Helgi Kristjáns- son og Jón Agústsson eiga eft- ir. Biðskák þessa tefla þeir í dag. Eftir þessar fjórar umferðir skiptast vinningarnir þannig: Sigurður T. Sigurðsson hefir, 3'*'vininga, Kristján Andrjes- son 3 vinninga, Jón Ágústsson 2 vinninga, Helgi Kristjánssoií 1 Vz vinning, Sigurgeir Gísla- son 1 vinning, Jón Pálsson Vz vinning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.