Morgunblaðið - 30.03.1946, Page 2
2
MORGUNBLAÐIB
Laugardagur 30. mars 1946
Forsætisráðherra lýsir „stefnu
Eysteins Jónssonar
n
FRUMVARF um fiskveiða-
sjóð íslands (stofnlanadeild
sjávarútvegsins) var enn rætt
í Nd. í gær.
Fyrst tók til máls Eysteinn
Jónsson og flutti langa ræðu. —
Hann kvaðst mótfallinn því, að
skylda Landsbankann til að láta
af hendi fje til stofnlánanna. —
Því næst fór hann út í dýrtíð-
ina. Hun olli ugg og kvíða hjá
þjóðinni, sem m. a. kæmi fram
í því, að einstaklingar fengjust
ekki til að kaupa hin nýju at-
vinnutæki, sem ríkisstjórnin
hefði samið um kaup á. Stjórn-
in hefði átt að taka upp „stefnu
Framsóknarflokksins“, stöðva
dýx’tíðina í stað þess að láta alt
skeika að sköpuðu. Fjölyrti um
,,fjái’glæfrastefnu“ stjórnarinn-
ar og hina vaxandi ótrú manna
á verðgildi peninganna, sem m.
a. kæmu fram í því, að einka-
framtakið drægi sig í hlje.
Ræða Ólafs Thors.
\
Ólafur Thors forsætisráð-
herra talaði næst' og svaraði
Eysteini. .
Hann kvaðst oft áður hafa
heyrt benna dýrtíðarsón Fram-
sóknarmanna. í þessari ræðu
Eysteins væri ekkert nýtt.
Eysteinn væri að benda þing-
inu á, að „stefna Framsóknar-
flokksins" væxi að lækka dýr-
tíðina en ríkisstjórnin ljeti allt
reka á reiðanum. En minna
mætti Eystein enn einu sinni á,
að þegar verið var að semja
um myndun þingræðisstjórnar,
var einnig leitað til Framsókn-
ar. Tólf manna nefnd sat að
samningum, og úr þeim viðræð
um er skjallega sannað að af
hálfu Framsóknar var ekkert
skilyrði sett um Isékkun kaup-
gjalds. Þ^ert á móti viðurkendi
Eysteinn þá, að ef sanngirni
ætti að ráða, bæri að hækka
kaupgjald víða úf um land. M.
ö. o. meðan F'ramsókn ætlaði
að verða virkur þátttakandi í
stjórninni, var hún reiðubúin
að kaupa vinnufrið með hækk-
un kaupgjalds. En eftir að þeir
lentu ,,utan gátta“, er sónninn
sá, að krefjast kauplækkunar.
Ef farið hefði verið að vilja
Framsóknar, þá hefði afleið-
ingin orðið harðvítugar kaup-
deilur, sem lyktað hefðu með
sigri hinna vinnandi stjetta, en
öll þjóðin beðið tjón. Því að með
an svo er, að höfuðatvinnuveg-
ur þjóðarinnar ber sig vel, þarf
ekki að halda að verkalýður-
inn láti bjóða sjer að ráðist sje
á lífskjör han.s.
Framsókn hefði orðið sjer til
athlægis með bölstefnu sinni.
Og nú hjeldi hún. að hægt væri
að blekkja þjóðina fyrir kosning
arnar, sem í hönd fai’a
Éysteinn hjelt því fram, að
stefna ríkisstjórnarinnar í þessu
máli (þ. e. stofnlánunum til
sjávarútvegsins) væri hrein
uppgjöú Forsætisi’áðherra benti
á, að tvær leiðir hefðu verið til
í málinu. Önnur sú, að knýja
þá, sem eiga peninga að leggja
fram fje í atvinnutæki. Þessari
stefhu mætti- margt fram færa
til ágætis, og kvaðst ráðherrann
hafa kosið, að einkaframtakið
hefði haft sig meira í frammi.
Rætt um
útvegsins
Hin stefnan væri sú, að hlutast
til um að fleiri gætu eignast
hin nýju framleiðslutæki en
þeir, sem ættu peninga.
Mætti skýra þetta með dæmi,
sagði forsætisráðherranr,. Hann
kvaðst vita um kaupstcð, sem
væri í miklum uppgangi, en
hefði ekki handbært fje til þess
að ráðast í togarakaup Hann
kvaðst einnig vita, að Evsteinn
Jónsson væri á biðilsbnxunum
fyrir þenna kaupstað, að hann
gæti fengið vfir 90% lán til
þess að géta keypt togarann.
En þetta myndu menn skilja
betur, þegar vitað er, að kaup-
staður þessi er Norðf jörður, sem
er í kjöi’dæmi Eysteins, og kosn
ingar standa nú fyrir dyrum.
Með öðrum orðum: Eysteinn
berðist á móti þessari stefnu á
AJ.þingi, en með þegar hann
væri kominn í framboðsbux-
urnar.
Forsætisráðnerrann mintist
nokkuð á ástæðuna fyrir því,
að einkaframtakið drægi sig í
hlje. Áreiðanlcga væri höfuð-
ástæðan sú, að menn treystu
ekki á gjörðir Alþingis í skatta
málunum, fyrst og fremst þeirri
skattastefnu, sem Eystemn Jóns
son hefði innleitt en hún lam-
aði alt framtak í landinu.
Með þessu fi’umvarpi væri
farinn meðalvegur milli hinna
tveggja stefna, þar sem einstak
lingar, sem fjármun hafa, væru
hvattir til framtaks og nýjum
aðilum gert kleift að koma með.
Búið væri að biðja um kaup á
11—12 nýjum togurum og vit-
að væri um 3—4 í viðbót. Og
vafalaust myndu enn fleiri
pantanir bætast við, eítir að
þessi lög kæmu.
Þessu næst drap forsætis-
ráðherrann á dýrtíðina og
spurði: Hvað er þessi ægilega
dýrtíð, sem allir eru að gaspra
um? Hún er hækkun kaupgjalds
og afurðaverðs, auðmiðlun milli
atvinnurekanda er standa að
framleiðslunni og almennings í
landinu. Ríkisstjórnin, eins og
allar stjórnir. hefir unnið að
því, að reyna að hækka verð
á útfluttum afurðum. Og nú
væru norfur á, að sumar fram-
leiðsluvörur okkar seldust fyrir
miklu hærra verð en s.l. ár, en
þá spáði Framsókn gjaldþroti.
T. d. seldist nú síldarmjöl fyr-
ir 40% hærra verð og svipað
væri að segja um aðrar síld-
arafurðir. Auðvitað hefði þetta
í för með sjer, að hlutur (kaup)
sjómanna hækkaði, en af því
leiddi aftur auknar kröfur ann
ara stjetta.
Hitt væri svo auðskilið mál,
að þegar afurðaverðið lækkaði,
yrði að lækka framleiðslukostn
aðinn í landinu. Og kvaðst ráð-
herrann trúa því, að verkalýð-
urinn myndi sýna þegnskap og
styðja nauðsynlegar aðgerðir,
þegar þar að kæmi. svo að fram
leiðslan gæti haldið áfram.
Að lokinni ræðu forsætisráð-
herra talaði Einar Olgeirsson,
stofnlán
á Alþingi
en því næst var umræðum
frestað.
— o—
Jóh. Þ. Jóseísson hefir í til-
efni af frásögn Morgbl. í gær,
óskað pess getið, að rangt væri
þar hei’mt, að hann hefði tal-
ið þá kröfu Landsbankans í’jett
mæta og eðlilega. að stofnlána-
deildin væri í oankanum sjálf-
um Hann kvaðst hafa talið
eðlilegast, að Fiskveiðasjóður
færi með þessi mál. En þetta
væri engan veginn aðalatriðið,
heldur hitt að fá hagkvæm
stoínlán fyrir sjávarútveginn.
MARARET TRUMAN, dóttir
Bandaríkjaforscta sjest hjer á
myndinni dansa við hermann.
— Petta var á dansleik hjá
franska sendiráðinu í Was-
hington og var það fyrsti dans-
leikurinn, sem þar var hald-
inn frá því að Frakkar fóru í
stríðið.
*
I stuttu máli
Höfuðborg
endurskipulögð.
LONÐON: Breskur skipu-
lagningamaður hefir verið ráð-
inn af Abyssiníukeisara, til
þess að gera áætlanir um end-
urskipulagningu höfuðborgar-
innar, Addis Abeba.
Píanóleikari lögsóttur.
LONDON: Hinum kunnu
píaníleikara, Miosewich, hefir
verið stefnt fyrir rjett, ákærð-
um fyrir það að hafa svikið
samninga og ekki mætt á
hljómleikum, sem hann átti að
leika á.
Bændur flytja sig.
LONDON: Yfir 2000 bænda-
fjölskyldur frá fylkjunum
Idaho, Washington, Montana
og víðar að, eru í þann veg-
inn að flytjast búferlum til
Norður-Albertafylkis í Kan-
ada.
Þessi sviffluga er af svonefndri Pratt-Read gerð. — Tvær
slíkar flugur hefir Svifflugfjelag íslands nú fengið, auk einn-
ar sem er af gerðinni Yankee-Doodle Two.
Svifflugfjelagið fær
3 nýjar flugur
Von er á 3 til viðbötar
SVIFFLUGFJELAG ÍSLANDS hefir nýlega fengið hing-
að til landsins þrjár nýjar svifflugur frá Bandaríkjunum.
Allar eru þær tveggja manna og búnar hinum ágætustu
öryggistækjum. Fjelagið keypti þær skömmu fyrir ófriðar-
lokin af ameríska hernum. Ennfremur á fjelagið von á tveim
öðrum svifflugum frá Bandaríkjurium, en ekki er vitað með
vissu hvenær þær koma.
Svifflugur þessar eru af
gerðunum: Yankee Doodle
Two, Patt-Read og Schweizer.
Sigurður Ólafsson keypti þess-
ar flugur er hann var í Banda-
ríkjunum á s. 1. ári. Svifflugur
sem þessar voru notaðar við
þjálfun flugmanna flughers og
flota. Þegar ófriðnum lauk
seldi herinn þær svifflugfjelög-
um í Bandaríkjunum og með
þeirra aðstoð tókst Sigui’ði að
festa kaup á þeim.
Geta borið rúm 200 kg.
Svifflugur þessar eru lokað-
ar. I þeim eru sæti fyrir tvo,
sem eru ýmist hlið við hlið eða
hvor aftur af öðru. Undir flug-
unum eru lendingarhjól.
Vængjahaf þeirra frá 50—60
fet, eða 15—18 metrar. Þær
geta borið um 200 kg. Svif-
flugurnar eru búnar hinum
fullkomnustu tækjum, t. d. fyr-
ir blindflug, þá er að minnsta
kosti ein þeirra með talstöð.
Þær eru hafnar á loft á þann
hátt, að vjelfluga dregur þær
upp. Rennigildi þeirra er yfir
20, með öðrum orðum, að þær
lækka flugið um 1 metr. á
hverja 20 metra, sem svifið er,
þó ekkert uppstreymi sje. —
Sje svifflugan t. d. í 1000 m.
hæð undir slíkurn kringum-
stæðum svifa þær um 20 km.
Svifflugfjelagið mun nota
flugur þessar við.kenslu. Énn-
fremur verður þeim einum
heimilt að fljúga þeim, er hlot-
ið hafa flugskirteini svifflug-
manna. Flugurnar komu hing-
að ósamsettar með síðustu
ferð Empire Gallop frá New
York. Þær verða fluttar suður
á Reykjavíkurflugvöll og sett-
ar þar saman.
Svifflugfjelagið á nú, er hin-
ar nýju svifflugur hafa verið
teknar til notkunar, 6 flugur.
Þar af ex’u fjórar þeirra full-
komnar flugur og tvær renni-
flugur, en þæ • eru mestmegnis
notaðar við kenslu.
Svifflugur frá Svíþjóð.
Fjelagið hefir fest kaup á
einni sviffugu í Svíþjóð. Hún
er af svonefndri FÍ—1 gerð.
Þær eru sjerstaklega gerðar
fyrir listflug.
Þá er von á hingað til lands-
ins frá Svíþjóð, efni í milli 5
og 8 svifflugur. Efni þetta er
ekki keypt inn á vegum fje-
lagsins. Helgi Filippusson,
annast kaup þessi og efnið flwtt;
inn á hans vegum. Hann hefir
tryggt sjer sjerfræðinga í þess-
ari grein og munu þeir hafa yf-
irumsjón með smíði. þeir'ra.
Þær flugur, sem smíðaðax’
verða úr efni þessu eru tvær
Olympiasvifflugur. Þær voru
valdar til þess að taka þátt í
Olymisku leikjunum, sem fór-
ust fyrir vegna heimsstyi’jald-
arinnar. Þá ein Weihe-fluga.
Þær-bru taldar vera miklu full-
komnari, á ýmsum sviðum, en
Olympia. Rennigildi Weihe-
flugunnar er um 29. Þá verðui’
og tvær Brunau-Baby, en þæn
hafa reynst mjög vel hjer
heima, fjelagið á eina slíka
fyrir. Þá verður smíðuð gerð
af byrjenda-flugum, er Svíar
nefna SG—45.
Vjelflugudeildin.
Síðan í fyrra hefir deild
þessi starfað innan vjebanda
fjelagsins. Hún á nú 4 vjelflug-
ur. Eina Tiger Moth, tvær Lus-
sombe og eina Steurman vjel,
en hún er þeirra stærst, með
225 hestafla hreyfli. Kenslu
hefir deildin haldið uppi og
hafa verið flognir 200 flugtim-
ar, síðan í okt. s. 1. Kennari er
Hörður Sigurjónsson.
Stjórnin.
Á síðasta aðalfundi fjelage-
ins var kosin ný stjórn og eiga
í henni sæti: Agnar Kofoed-
Hansen, foimaður, Björn Jóns-
son, varaformaður, Þorsteinn
Þorbjarnarson, gjaldkeri, Guð-
bjartur H. Eiríksson, ritari, og
Arnór Hjálmarsson, meðstjórn
andi.
Að sjálfsögðu hefir starf-
semi Svifflugfjelagsins legið
nokkuð niðri í vetur, en mikill
hugur er í svifflugmönnum að
gera þetta sumar, sem nú fer
1 hönd, eitt hið athafnasamasta
og árangursríkasta í starfsemi
fjelagsins.