Morgunblaðið - 02.04.1946, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.04.1946, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. apríl 1946 ATHUGASEMD frá úfhlufunarnefnd styrks skálda og listamanna 1946 ^FJÓRIR góðkunnir mynd- listarmenn hafa opinberað landslýðnum þá skoðun sína, að þeir væru óánægðir með úthlutun á styrk úr ríkissjóði til myndlistarmanna á þessu ári. Láta þeir í Ijós vanþókn- un sína á starfi meirihluta tiíhlutunarnefndar og telja listamönnum þjóðarinnar mis boðið með slíku. Eigi nægir þeim að kvarta fyrir hönd .sinna eigin fjelaga, myndlist- armanna, heldur og skálda og rithöfunda. Það er nú orðið sæmilega kunnugt, að mynd- listarmenn vorir telja ekki aðra dómbæra á verk sín en sjálfa sig. Ætti þeim að nægja þetta „patent“ um sinn, enda fckyldi mega gera ráð fyrir, að. rithöfundarnir þurfi ékki á neinni aðstoð að halda um i ð orða óánægju sína við út- hlutunarnofndina. Kalla má í meira lagi furðu- legt og tæplega einleikið um ;;uma þessara ágætu myndlist nrmanna, er undirrita ávarp þetta, hversu fáfróðir þeir eru um þessi styrkmál sín. í þrjú undanfarin ár hefuf úthlutuniri verið í höndum fjelags myndlistarmanna. — Þetta fjelag, eða trúnaðar- menn þess, hafa á þessum ár- um skapað þann grundvöll, sem úthl.nefnd fór í öllum höf uðatriðum eftir. Þeirra eigin nefndir hafa skift listamönn- unum í 4 flokka. eftir þeim verðleikum. sem liggja kann- ske ekki í augum uppi fyrir öllum' f jöldanum, en skína því betur, ugglaust, í augum þeirra, sem hlut eiga að máli. Þeirra eigin nefndir, hafa á- kveðið upphæð styrksins í hverjum flokki. Sú upphæð héfur þó ekki ætíð verið jöfn. Fysta árið var t. d. stvrkur í íyrsta flokki 2500 kr. en 3000 kr. tvö síðustu árin. í lægri llokkunum voru upphæðim- ar í öðrum og þriðja flokki litlu hærri í fyrra en í ár og hitt eð fyrra. Því olli að sjálf- nögðu ekkert annað en mis- jöfn fjárráð. Það er bág írammistaða að lýsa vanþókn un yfir því, að hin þingkosna nefnd leyfir sjer að fylgja í öllum höfuðatriðum reglum, sem sjálfir þeir hafa beint og óbeint skapað. Og ekki batn- ar við það, að einn þeirra sem lætur þetta eftir sjer, Þorvald ur Skúlason, átti sæti í síð- Vis.tú úthlutunarnefnd mynd- listarfielagsins, og ljet sem núverandi formaður f jelags- ms tjá nefndinni, að fjelagið hefði ekki ástæðu til þess að gera neinar uppástungur- um Lreytingar á fyrirkomulagi íityrkveitinganna frá síðustu árum. Það má e. t. v. með rök- um finna að því, að úthlut- unranefnd skyldi taka slíkt lillit til þessarar úthlutunar- aðferðar myndlistarmanna Það situr óneitanlega illa á þeim sjálfum að víta það, en þeir gá þess eins að sækja íram að úthlutunarnefndinni og hugsa ekkert um það í á- kafa sínum, hvernig þeir sjálf Sr hafa búið að baki sjer, að um leið og þeir dæmá oss eru þeir í raun og veru að dæma sjálfa sig og sínar gjörðir, lýsa vantrausti á öllu saman. Fjórmenningar þessir kvarta yí.ir því, að Svavar Guðnason listmálari, er þeir telja að sje „einn hinn besti og alvarleg- asti meðal okkar vngri lista- ’rnanna“ hafi ekki hlotið styrk að þessu sinni. Nefndin harm ar að hafa ekki haft fiárráð til þess að veita fleiri lista- rnönnum styrki en hún gerði, og hún gat að þessu sinni, ekki haft lægstu styrkina hærri. Þessu olli blátt áfram f jeleysi. Um Sva\rar Guðnason var nefndinni kunnugt, að hann hafði ekki viljað lúta að því að hirða styrk þann, er Þorvaldur Skúlason og -aðrir úthlutunarmenn mvndlistar- fjelagsins veittu honum ífyrra Hann sótti heldur ekki um styrk nú, enda ekki sennilegt að hann hefði fremur þegið sh'kan styrk frá þessari nefnd en hinni, er skipuð var fjelög um hans. Það má annars furðu gegna ef fjelag myndlistarmanna telur sjer samboðin önnur eins skrif og stjórnarmenn þess hafa leyft sjer að birta undan farið í sambandi við úthlutun listamannastyrksins. Og er leitt til þess að vita, að grand- varir menn láta flekast til að ljá nafn sitt undir slíka stað- lausa stafi. Reykjavík 29. marz 1946 Þorst. Þorsteinsson, * Þorkell Jóhannesson, Stefán Jóh. Stefánsson. ★ Herra ritstjóri! Þar sem framanrituð athuga- semd birtist ekki í Iplaði yðar í dag, eins og ætlað var, viljum vjer að gefnu tilefni biðia yður fyrir stuttan eftirmála. Jón Engilberts listmálari hefir í dag í Þjóðviljanum fund- ið köllun hjá sjer til þess að endurtaka nokkuð af samsetn- ingi þeim er hann birti í Morg- unblaðinu fyrir skemmstu í sambandi við það er hann af- salaði sjer styrk að þessu sinni. Nefndin finnur ekki ástæðu til þess a,ð elta ólar við skrif þessa dánumanns frekar en hún hef- ir þegar gert. Jón Engilberts var formaður úthlutunarnefr.dar myndlistar- mannafjelagsins í fyrra. Helsta afrek hans í nefndinni var að hækka styrkinn í sínum eigin flokki úr 1200 krónum í 1500, Úr honum hafði mishepnast að hefja sig og nokkra fjelaga sína upp í annan flokk. Þessi „ósjer plægni“ hafði m. a. þær afleið- ingar, að menn eins og Jóhann Briem fengu þá ekkert, og ýms ir aðrir minna en skyldi. Jón Engilberts nefnir í grein sinni að nefndin hafi fellt nið- ur styrk til Marteins Guðmunds sonar myndskera. Við nánari athugun á piöggum nefndar- innar kemur í Ijós, ?ð nafn Marteins stendur ekki í skýrslu þeirri, er rifari myndlistar- mannafjelagsir.s, Jón Engii- berts, gaf nefndinni um úthlut- un styrksins 1945, en skýrsla sú er með eigin hendi Jóns. Með þessari röngu skýrslu hefir Jón Engilberts gert sitt til þess, að Marteini var ekki veittur styrkur að þessu sinni. Er þessi frammistaða J. E. mjög í stíl við aðra framkomu hans í .þessu máli öllu. Reykjavík 30. mars 1946. Þorst. Þorsteinsson Þorkell Jóhannesson Stefán Jóh. Stefánsson Útifundur slúdenia um herslðSvar SUNNUDAGINN efndi Stú- dentaráð Háskólans og Stú- dentafjelag Reykjavíkur til sameiginlegs útifundar í porti Miðbæjarbarnaskólans um her- stöðvar á íslandi. Var fUndur þessi mjög fjölsóttur. Guðmundur Ásmundsson, formaður Stúdentaráðs, setti fundinn og stjórnaði honum, en ræður fluttu: Runólfur Þórar- insson, stud. med., dr. Jakob Sigurðsson, form. Stúdentafje- lags Reykjavíkur, Kristján Ei- ríksson, stud. juris, sr. Sigur- björn Einarsson, dósent, Jó- hannes Elíasson, stud. juris., dr. Sigurður Þórarinsson og Jón P. Emils, stud. juris. Engar samþyktir eða álykt- anir voru gerðar á fundinum, en ræðumenn báru eindregið fram þær óskir sínar og kröfur, að engu erlendu ríki, hverju nafni sem nefndist, yrði leyft að hafa hjedr hernaðarstöðvar og að ríkisstjórnin birti almenn ingi þegar um óskir þær, sem sagt er að Bandaríkjastjórn hafi borið fram um að fá herstöðv- ar hjer til lengri tíma. — Einn- ig var það vítt, að helgasta mál þjóðarinnar, rjettur vor til þess að búa hjer einir og óháðir, væri dregið inn í pólitískt dæg- urþras. ★ Morgunblaðið hefir fylgt þeirri stefnu, að ræða ekki þetta mál, meðan opinber greinar- gerð frá ríkisstjórninni liggur ekki fyrir um það, og mun blaðið ekki víkja frá þeirri afstöðu. — Öryggisráðið Framh. af 1. síðn. svari engu, er það talið, að Bret ar og Bandaríkjamenn muni, eftir að hafa heyrt svar Persa, þegar krefjast annað hvort samþyktar eða yfirlýsingar for seta í samræmi við staðreynd- ir þær, sem lagðar yrðu fyrir ráðið. — Ef ástandið rreytist ekki, er líklegt að ráðið for- dæmi^neð ályktun það, að Rúss ar hafi her í Persíu, og íhlut- unarsemi Rússa þar í landi um innanríkismál Persastjórn hefir sent yfir- lýsingu til New York þess efn- is, að sendihcr’ a hennar í Wash ington hafi fult umboð til þess að vera fulltrúi hennar í mál- um þeim, sem Öryggisráðið hef ir nú til meðfefðar og landið varða. niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiimiimiiiiiimi S Ung hjón, sem lítið fer s = fyrir, óska eftir einu 1 Herbergi | 3 og eldhúsi. Má vera í g 1 gömlu húsi. Algert bind- §§ S indi á tóbak og áfengi. S 3 Tilboð sendist skrifstofu = = blaðsins fyrir miðviku- g 1 dagskvöld, merkt: „Reglu- = = semi—123“. iiiiiiiiiiiiimiiiiuiiiuiiiiiiuiiiiiitmimmimiimiimiin SHIPHUTCERÐ « ii.^m M.b. „Banga. til Bolungavíkur. Vörumót- taka í dag. Góð gleraugu eru fyrir öllu. Afgreiðum flest gleraugna recept og gerum við gler- augu. • Augun þjer hvílið með gleraugum frá TÝLI H. F. Austurstræti 20. íbúð óskast 3ja—4ra herbergja íbúð óskast nú þegar eða 14-maí- hMIHÍHE wm jftorualclur ÁSteincjnmóóon Sími 4109. Stúlkur vanar kápusaum, geta fengið atvinnu nú þeg- ar. Húsnæði fylgir. Uppl. á verkstæðinu Borg- artúni 3. Feldur h.f. $*3><$X$X$>3xÍX$X$X§X.X$K§X§>^X$XÍ>3>^>^XíX$>-íX}>3kÍ>3X}XjXÍX$X}XjX$k§><$^x$xÍ>^<Í>'£.^><5x4X,'<ÍXÍX Húsnæði I 2 herbergi og eldhús vantar mig nú þegar eða 14. maí. SL úli ^JÁanóen Hafnarfirði. Sími 9240. Oss vantar Ræstingurkonu fyrir skrifstofurnar í Lækjargötu 10A. | ^JKmenna íijcj<jincjafoelacjic) hj. $ f Veitingahús I í kaupstað, sem þjóðbraut liggur um, er til sölu. Skipti á húseign í Reykjavík getur kom- ið til greina. Nánari upplýsingar gefur Pjetur | Jakobsson, löggiltur fasteignasali, Kárastíg 12 t í Reykjavík. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. £ I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.