Morgunblaðið - 02.04.1946, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.04.1946, Qupperneq 6
MOEGUNBLAÚÍÐ Þriðjudagur 2. apríl 1946 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstáórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriítargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands, kr. 12.00 utanlands. í lausasölu 50 ausra eintakið, 60 aura með Lesbók. Tíminn snýr við blaðin u SVO SEM kunnugt er, þá er eitt af höfuð einkennum þeirra manna, sem rita Tímann að segja eitt í ár og annað í fyrra, eða eitt í dag og annað á morgur.. Þetta er ekki svo mjög undarlegt, þegar ástandið er slíkt sem haft er eftir Jónasi, að Vigfús hugsar, Þórarinn skrifar og Daníel framkvæmir fyrir allt liðið. ★ Eitt hið gleggsta dæmi, sem nýlega hefir komið í dálk- um Tímans þessu til sönnunar, er forustugrein sunnu- daginn 31. mars um framboð Þorsteins sýslumanns. Þeg- ar ríkisstjórnin var mynduð og fimm Sjálfstæðismenn neituðu að styðja hana, þreyttist Tíminn aldrei á því að útmála það, hvílíkir ágætismenn þetta væru. Þarna væru hinir sönnu og góðu bændafulltrúar. Þeim væri óhætt að treysta. Það væri munur, eða óhræsið hann Jón Pálma- son og aðrir þvílíkir. Alltaf síðan hefir Tíminn líka borið fimm-menningana fyrir sig sem skjöld í baráttunni og sem hið besta dæmi um heiðarlega og ágæta þingmenn, sem bændur gætu treyst. ★ En nú er komið annað hljóð í strokkinn. Fyrir skömmu taldi Tíminn Ingólf á Hellu einn meðal þeirra sem bænd- um riði mest á að fella í næstu kosningum og nú þegar tilkynt er, að Þorsteinn sýslumaður verði 1 framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þá fær hann kveðjuna, í Tímanum. Hún er nokkuð gagnstæð því, sem áður var og nú eru allir fimm-menningarnir settir í einn hóp því ætla megi að þeir fari allir sömu leið og Þorsteinn. Nú er Þorsteinn að frásögn Tímans þýðingarlítill mað- ur og einskis virði. Þar segir: „Nú hefir Þorsteinn Þorsteinsson fallið í auðmýkt nið- ur og kropið að fótskör Jóns Pálmasonar. Sennilega er ætlast til að fjelagar hans geri það sama og skal hjer engu spáð um hvernið það fer“. „Bændur hafa ekkert að gera með máttiausa og einskis virta minnihluta fulltrúa“, segir þar. ★ Er nú annað hljóð, en áður var í strokknum. Nú er búið með hina ágætu þingmenn, sem bændur geta treyst. Ein- skis virtir minnihluta fulltrúar eru komnir í staðinn. Sennilega þykjast þó þessir menn, sem flestir aðrir nokk- uð hinir sömu hvort sem Tíminn talar um þá vel eða illa. Þess er og vert að minnast, að ef hægt er að tala með ein- hverjum rjetti um þýðingarlitla menn og einskis virta minnihluta fulltrúa, þá eru það ekki fimm-menningarnir, heldur Tímamennirnir sjálfir. Tíminn er því með grein sinni um Þorstein sýslumann, fyrst og fremst að löðrunga sína eigin menn og ekki nóg með það. Hann er um leið að skora á bændur að kjósa eingöngu „einskis virta minni hluta fulltrúa“, ekki „í flokki heildsala og braskara“, eins og hann nefnir Sjálfstæðisflokkinn. heldur í flokki þeirra pólitísku braskara, sem siglt hafa skipi sínu í strand og gefið strandið upp til þess gjaldþrots, að hafa Tímann fyrir sinn aðal málsvara. Sannast þar sem oftar: „að illt er að eiga þræl fyrir einka vin“. ★ Allt þetta vita bændur. Þess vegna munu þeir ekki hópast á strandstaðinn á vori komanda. Þeir eru ekkert hræddir við djarfa menn og hugrakka, sem þora að taka einbeittlega á málum þjóðarinnar, hvort sem þeir heita Ólafur Thors, Jón Pálmason eða eitthvað annað. Fjöldi bænda veit að skammaryrði Tímans eru einhver bestu meðmæli sem nokkur maður getur fengið. Þetta mun og Þorsteini sýslumanna reynast. Hólið er hættulegt, en níð- j ið til bóta þegar frá Tímanum kemur. ÚR DAGLEGA LÍFINU Óskað eftir umræðum. ÞAÐ ER óskað eftir umræð- um um dagskrá Ríkisútvarps- ins og hafa útvarpsmenn teflt fram sínu stórskotaliði. Sprengj urnar, sem eiga að þagga niður alla gagnrýni á útvarpinu eru, eins og þegar mikið liggur við, sóttar í fornsögurnar og þeir menn, sem leyfa sjer að gagn- rýna „hina miklu menningar- stofnun“ eru, samkvæmt regl- unni, þjóðhættulegir menn. Kemur kunnátta í fornum fræðum sjer þá vel, þegar leita þarf uppi nöfn helstu þjóðníð- inga íslandssögunnar, til að bera þá saman við gagnrýnend- ur Ríkisútvarpsins. Það væri nú ef til vill leyfi- legt að halda, að þeir menn, sem hafa slík tromf á hendi þyrftu ekki á neinum regingi að halda og montið og remb- ingurinn væri skilið eftir heima, eins og til tilbreyting- ar. En er því að fagna? • Þegar svíður undan gagnrýninni. FYFIR NOKKRUM dögum var að því vikið hjer í þessum dálkum, að það væri hæpið, að dagskrá útvarpsins, eins og hún nú er, stæði í rjettu hlutfalli við hina fyrirhuguðu milljóna- byggingu sömu stofnunar og látið skína í, að nær væri að eyða fje landsmanna í að bæta dagskrána, áður en farið væri að ráðast í slíkar stórfram- kvæmdir. Þetta virðist hafa komið illa við forráðamenn útvarpsins: Sjálfur útvarpsstjórinn rýkur til að gefur yfirlýsingu til blað- anna og skrifstofustjóri útvarps ráðs hleypur til og rifjar upp fyrir sjer íslendingasögurnar til þess að geta svarað fyrir sig og sína næsta sunnudagsmorg- un, á undan messu. Það, sem útvarpsstjóra svíð- ur mest er að hin fyrirhugaða útvarpsbygging skuli hafa ver- ið nefnd „höll“ að honum for- spurðum, og að ekki sje rjett hermt áætlað kostnaðarverð. Skrifstofustjóri útvarpsráðs minnist ekki á þessa hlið máls- ins, en snýr sjer að dagskránni og þeirri tilgátu, að erlend braggastöð, sem nær eingöngu útvarpar jazzmúsík, sje að verða vinsælli meðal þeirra, sem ná henni með tækjum sin- um, en sjálft Ríkisútvarpið. Eigum við að athuga þessi sjónarmið dálítið nánar? • Boðið á eftirlitsferð. EF AÐ SKRIFSTOFUSTJÓRI útvarpsráðs hefði farið í stutt ferðalag með mjer áður en hann samdi sunnudagspredik- un sína, í stað þess að fletta ís- lendingasögunum til að leita uppi nöfn íslenskra landráða- manna, hefði jeg getað boðið honum inn í eitthvert kaffihús- ið hjer í höfuðstaðnum, þar sem veitingamaðurinn skemtir gestum sínum með hljómlist úr hátalara. Hvað hefðum við heyrt? Ekki neitt frá útvarp- inu hans, heldur braggajazz. Síðan' hefðum við getað pant- að okkur leigubíl og ekið í ein- hverja verksmiðju, þar sem verksmiðjueigandi hefir látið setja upp hátalara fyrir verk- smiðjufólkið, en það er orðið allalgengt hjer á landi. I leigubílnum hefði okkur vafalaust verið boðið upp á út- varp, þar sem flestir leigubíl- ar hafa nú orðið útvarpstæki. Og hvaðan hefði útvarpsefnið komið? Vafalaust frá bragga- útvarpinu, hversu þjóðhollur sem bifreiðarstjórinn annars kynni að hafa verið. Og þegar við Íoksins komum í verksmiðj - una hefði enn mætt okkur tónaflóð — ekki frá Ríkisút- varpinu okkar — heldur frá braggastöðinni. Og setjum svo, að það hefði verið orðið fram- orðið, er við komum úr þessum leiðangri og við hefðum labbað saman í góðu veðri framhjá íbúðarhverfum. Hvað hefðum við heyrt gegnum opna glugga íbúðanna? Ekki þróttmiklar ræður frá „kvöldvöku Horn- strendingafjelagsins“, heldur braggajazz einu sinni enn! • Feluleikur við stað- reyndirnar. SKYLDI SKRIFSTOFU- STJÓRINN vilja halda áfram feluleik sínum við staðreynd- imar, eftir slíkt ferðalag. Eða hefði „þjóðhollustan“ gripið í taumana og neytt hann til að þegja um það sem hann hefði orðið áskynja af ótta við’ að honum yrði líkt við landráða- menn. Varla héfði honum dott- ið í hug, að allt þetta fólk, sem kaus braggamúsíkina fram yfir „Hornstrendingakvöldvökuna" væri landráðapakk. Það er enginn nema sá sem segir frá staðreýndunum. Og líklega er til of mikils ætlast, að hann hefði farið að hugsa sig um, að nú væri tími til kominn til að bæta dagskrá Ríkisútvarpsins. • Óþarfa ótti. í LOK SUNNUDAGSPRE- DIKUNAR skrifstofustjóra út- varpsráðs brá fyrir ótta um, að gagnrýni á Ríkisútvarpið yrði ef til vill til þess að út- varpið yrði lagt niður. Jeg get fullvissað skrifstofu- stjórann um, að þessi ótti hans er ekki á neinum rökum reist- ur! íslenska útvarpið hefir þá þægilegu aðstöðu að vera rík- isfyrirtæki, sem er verndað með lögum. Og þó að hver ein- asti útvarpshlustandi á ísl- landi hætti að hlusta á dag- skrá ríkisútvarpsins, myndi skrifstofustjórinn ekki missa atvinnu sína. Utvarpseigendur á íslandi verða lögum sam- kvæmt að greiða Ríkisútvarp- inu afnotagjald af tækjum sín- um, hvort sem þeir hlusta á stöðina eða ekki. Þess vegna er framtíðar- rekstur Ríkisútvarpsins tryggð ur og þeir, sem að útvarpsdag- skránni standa geta leyft sjer að kasta til hennar höndunum eins og þeim sýnist. Hefir arkitektinn hlunnfarið útvarps- stjórann? ÞAÐ ÞARF ekki að svara yfirlýsingu útvarpsstjórans, þó hún hins vegar gefi tilefni til nokkurra hugleiðinga. Útvarpsstjóri segir, að það sje fjarri því, að nýja útvarps- byggingin, sem ekki má kalla höll, eigi að kosta 15 miljónir króna. „Slík vitneskja hljóti að vera fengið af götunni“. Hinu hefir þó ekki verið mótmælt, að ameríski arkitekt- inn, sem teiknaði „húsið“ á að fá um 300.000 krónur fyrir að- stoð sína. Nú er það svo, að arkitektar hafa ákveðið gjald fyrir verk sín, eftir því hvað byggingarnar, sem þeir teikna eru dýrar og hvert rúmmál þeirra er. Vill nú ekki útvarpsstjórinn athuga, hvort hinn ameríski arkitekt hefir ekki hlunnfarið hann í viðskiftum þeirra. Hann getur vafalaust fengið vitn- eskju um það hjá arkitektafje- laginu hjer, hvort Ameríkaninn hefir ekki reiknað sjer of háa þóknun fyrir 9 miljón króna byggingu. Samanburðurinn á útvarps- byggingu Svía, sem samkvæmt upplýsingum útvarpsstjóra á að kosta 25 miljónir króna, er einnig fróðlegur, því gera má ráð fyrir að Svíar sjeu ekki að reisa sjer hurðarás um öxl með þessari byggingu sinni og ef við höfðum ráð á að leggja hlut- fallslega jafnmikið af mörkum til slíkrar byggingar eins og Svíar, ef mikað er við íbúa- fjölda landanna, þá má okkar útvarpshús ekki kosta mikið meira en 500 þúsund krónur. | Á INNLENDUM VETTVANGI 5 .......... Sulfurinn í Evrópu og útígangshrossin FREGNIRNAR af hungrinu, er margar þjóðir verða að þola á þessum vetri, vekja skelfingu um allan heim. Almenningi utan þeirra landa, þar sem sulturinn sverfur að, varð fyrst kunnugt um hið ískyggi- lega ástand, þegar fulltrúar UNRRA leystu frá skjóðunni á ráðstefnu sameinuðu þjóðanna í London. Þá var frá því sagt, að á stórum svæðum Mið- og Suð- ur-Evrópu, yrði fólk að láta sjer nægja 1500 hitaeiningar í meðalskamt á dag. En þá er fæði talið viðunandi fyrir fullorðna, ef það hefir inni að halda 2000 hitaeiningar. Sagt var, að borgarbúar í Austur- ríki, Þýskalandi og austan- verðri Tjekkóslóvakíu lifðu við sárustu neyð, og eins í Finn- landi, Ungverjalandi, á Italíu og Spáni. í Grikklandi, Búlg- aríu og sumsstaðar í Rúmeníu var sagt að sveitafólkið hefði ekki ofan í sig, hvað þá borg- arbúar. Síðan hefir ástandið versnað. Matarskamtarnir í sumum hjer uðum Þýskalands hafa t. t. verið minkaðir niður í 1000 hitaeiningar. Er frá því var skýrt, fylgdi sú leiðbeining fregninni, að í pyntingarstöðv- um nasista hefði fólk ekki feng ið nema 800 hitaeiningar í dag- fæði sínu. Með sultinum aukast sjúk- dómarnir. Sagt er, að til dæm- is í Buda-Pest deyi 40% barna á 1. aldursári. Og víða í Suð- (Gjörið svo vel að fletta á bls. 8, 1. dálk..

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.