Morgunblaðið - 17.04.1946, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. apríl 1946
Verða alúminíumhús
reist hjer á landi?
259 þús. þeirra í smíðum í Engiandi
í ENGLANDI hafa flugvjelaverksmiðjurnar nú fengið nýju
hlutverki að gegna — smíði íbúðarhúsa úr alumínium. Eru þar
í landi 250 þús. hús í smíðum úr því efni. Yfirverkfræðingur
þessarra framkvæmda, Mr. Hare, hefir dvalið hjer á landi í rúma
viku til þess að athuga möguleika á byggingu slíkra húsa fyrir
íslendinga. Verður eitt þannig hús til sýnis á byggingarsýn-
ingunni, sem haldin verður hjer
Fimm Islandsmet sett á Sund -
meistaramótinu
Á SUNDMEISTARAMÓTI ÍSLANDS voru sett alls 5 Í3
landsmet, eins og áður hefir verið sagt frá hjer í blaðinu.
Sigurður Jónsson, HSÞ, setti 2 met, í 200 og 400 m. bringu
sundi karla, Ari Guðmundsson, Æ, setti eitt, í 100 m. skrið
sundd karla, Áslaug Stefánsdóttir, Umf.L., setti eitt, í 200 m.
Blaðamenn áttu gær til við
Mr. Hare og Einar Kristjáns-
son, en h/f Kristjánsson hefir
einkaumboð fyrir hús þessi
hjer á landi.
í Englandi eru aluminíum-
hús þessi alveg fullgerð í
verksmiðjunum og send það-
an í 4 hlutum, sem síðan eru
tengdir saman. Tekur það
verk svona 8—10 tíma og þá
þegar er hægt að flytja inn í
íbúðina. — Hjer á landi tek-
ttr það að sjálfsögðu lengri
fima að koma húsunum upp,
þar sem verður að flyta þau
hingað í fleiri stykkjum. Það
verk myndi þá ekki taka 10
rnenn lengur en viku.
Veggir þessara húsa eru
þriggja þumlunga þvkkir og
eru í þeim allar leiðslur. Á
riilli aluminíumplatanna er
semmentssteypa.
Ýmsar breytingar þarf að
gera á ensku húsunum, sem
flutt verða hingað, við ís
lenska staðhætti. Kynnti Mr.
Hare sjer það hjer í þessari
för sinni, og notaði við það
aðstoð íslenskra byggingar.
sjerfræðinga. Gert er ráð fyr
ár, að fyrstu húsin, sem hing
að yrðu keypt, gætu verið
komin í september, en annars
er ekki ákveðið um það enn
þá. Þau munu kosta um 105
kr. f.u.b. í Englandi hver rúm
meter.
Jénas Tómasson,
ísafirði 65 ára
Isafirði, laugardag.
Frá frjettaritara vorum.
Jónas Tómasson, tónskáld og
söngstjóri er hálfsjötugur í dag.
Jónas er Þingeyingur að ætt og
uppruna, en fluttist hingað 1903
og hefir jafnan átt hjer heima
síðan.
Hann hefir gegnt organista
og söngstjórastörfum í 35 ár og
samið á annað hundrað söng-
lög. Hafa mörg þeirra hlotið
almennar vinsældir og viður-
kenningu. — Jónas hefir rekið
hjerna stóra bókaverslun í ald-
arfjórðung og prentsmiðju og
bókaútgáfu undanfarin þrettán
ár.
Jónas hefir tekið talsverðan
þátt í almennum málum. Sat
hann um tíma í bæjarstjórn ísa
fjarðar. Hann hefir jafnan verið
einn af fremstu mönnum templ-
ata hjer og lagt fram mikið og
óeigingjarnt starf í þarfir bind-
indismálsins.
á komandi sumri.
Iljónaefni. S. 1. laugardag op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Ingibjörg S. Kristjánsdóttir,
Borgarnesi og Haraldur P.
Þórðarson, Nýlendugötu 15A.
Hjónaband. S. 1. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
af sjera Jóni Thorarensen,
ungfrú Fríða Sveinsdóttir frá
Sauðárkróki og Ingvar Þórð-
arson, Reykjum á Skeiðum. —
Heimili ungu hjónanna verð-
ur að Reykjum, Selfossi.
Hjónaband. Gefin verða sam
an í hjónaband af sr. Jóni Auð-
uns á skírdag, ungfrú Vigdís
Helgadóttir og Þorsteinn Árna-
son, skrifstofumaður. Heimili
þeirra verður á Öldugötu 28.
Tvær nýjar bækur frá Máli
og menningu eru nýkomnar út.
Er það skáldsagan Salamöndru-
stríðið eftir hinn kunna höf-
und Carel Capek, og fyrsta
hefti þessa árgangs af tímarit-
inu. Tvær aðrar bækur eru
væntanlegar frá fjelaginu á ár-
inu, auk tímaritsins.
Edvald B. Malmquist, Akur-
eyri, verður ráðinn ræktunar-
ráðunautur Reykjavíkurbæjar
fyrst um sinn, samkvæmt á-
kvörðun sem tekin var á bæj-
arráðsfundi í gær.
Bridgefjelag Reykjavíkur.
Aðgöngumiðarnir að dansleik
fjelagsins í kvöld, verða seld-
ir í Tjarnarcafé í dag kl. 5—7.
I brjefinu frá Kristínu Sig-
fúsdóttur, sem birtist í gær
misritaðist orðið „handtök“ í
staðinn fyrir „hugtök“ í þriðju
neðstu línunni.
Til fjölskyldunnar sem
brann hjá: Á. & L. 100 kr.,
Guðrún 50 kr., Á. 300 kr., S.
M. 50 kr„ Jens 20 kr., Ónefnd
25 kr., Ónefnd 50 kr., Inga
50 kr., Ónefnd 50 kr„ Rósa
20 kr„ Þórarinn Stefánsson
100 kr.
Rakarastofur bæjarins verða
opnar til kl. 8 í kvöld og á
laugardaginn fyrir páska til kl.
4 síðd.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30— 8.45 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30— 16.00 Miðdegisútvarp.
19.00 Þýskukensla, 2. flokkur.
Í9.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka: a) Söngfé-
lagið Stefnir í Mosfellssveit
syngur (Karlakórinn; söng-
stjóri: Páll Halldórsson). b)
Valtýr Stefánsson ritstjóri:
Þegar Guðrún á Björgum dó;
frásaga. c) 21,10 Magnús
Kristjánsson bóndi, Sandhól-
um: Sagan af sexfætta fol-
aldinu í Seljahlíð (Þulur
flytur). d) 21.30 Kvæði
kvöldvökunnar. e) 21,40
Söngfjelagið Stefnir syngur.
22.00 Frjettir.
Ljett lög (plötur).
23.30 Dagskrárlok,
Islensk söngkona
kemur frá
Ameríku
Anna Þórhallsdóttir
MEÐAL FARÞEGA á Brú-
arfossi var ungfrú Anna Þór-
hallsdóttir. Hefir hún undan-
farið stundað nám við Jullá-
ard hljómlistarskólann í New
York. Var kennari hennar
frú Belle Julie Soudant, sem
er kunn í Bandaríkjunum
íyrir söngkenslu sína. í með-
mælabrjefi, sem ungfrú Anna
fjekk frá kennara sínum er
henni hælt mjög fyrir söng
og ástundun við námið.
Anna söng íslenska söngva
á nemendahljómleikum skól-
ans og var vel tekið. Enn-
fremur söng hún íslenska
söngva hjá hljómlistarklúbb
um og á einni slíkri skemtun
voru formenn flestra hljóm-
lástarklúbba í New York og
nágrenni. Einn þeirra hafði
’ erið á íslandi, sagði hann frá
komu sinni hingað og bætti
við, að á íslandi hefði hann
heyrt hinn fegursta karlakór
söng, sem hann hefði nokkurn
tíma hlustað á. Var það á
söngskemtun hjá Karlakórn-
um Fóstbræður.
Á einni söngskemtun var
John Grant, sem hingað kom
fvrir nokkru og söng fyrir
hermenn. Sagði hann frá
komu sinni til íslands og ljet
vel yfir.
Anna Þórhallsdóttir fjekk
tilboð að syngja í útvarp
WQRX í New York, en það
c'.tti ekki að vera fyr en í sum
ar og gat Anna ekki beðið
eftir því. Hún hefir í hyggjju
að syngja hjer í Reykjavík.
— ÖryggisráSið
bYamh. af 1. sífin.
Dr. Quo Tai Chi, fulltrúi
Kínverja í öryggisráðinu, hef-
ir verið forseti ráðsins í einn
mánuð, eða frá 17. mars. Nú
er starfstímabili hans sem
forseti ráðsins á enda. Við for-
sæti til 17. maí tekur fulltrúi
Egypta í ráðinu, Hafez Pasha
Afifi. — Að fundinum í dag
loknum færðu margir fulltrú-
anna dr. Quo Tai Chi þakkir
fyrir störf hans, en síðan bauð
hann fulltrúum til veislu.
LONDON: Lundúna-sym-
fóníuhljómsveitin mun fara til
Hollands og leika í stærstu
borgum landsins í ágúst eða
september. Fer hún í boði Kon-
zertgebouw - hljómsveitarinnar
í Hollandi,
bringusundi karla.
íslandsmeistararnir í sundi
skiftast þannig á milli fjelag-
anna, að Ægir hefir fengið 5,
Hjeraðssamband Þingeyinga 2
og ÍR og Umf. Laugardæla 1
hvort.
Verður nú nánar skýrt frá
úrslitunum síðari hluta móts-
ins, sem fór fram s. 1. mánu-
dag.
400 m. skriðsund karla: Is-
landsmeistari: Ari Guðmunds-
son, Æ, 5:26,7 mín. Tveir aðr-
ir voru skráðir til keppni í
þessu sundi, en hvorugur þeirra
mætti. Virðist óskiljanleg
deyfð yfir þessari vegalengd.
4 menn syntu boðsund á móti
Ara.
100 m. skriðsund drengja:
1. Ragnar M. Gíslason, KR,
1:14,3 mín., 2. Rúnar Hjartar-
son, Á, 1:19,8 mín. og 3. Helgi
Jakobsson, ÍR, 1:21,1 mín.
50 m. skriðsund telpna: — 1.
Anny Ástráðsdóttir, Á, 38,4
sek., 2. Sigríður Konráðsdóttir,
Æ, 45,2 sek. — Fleiri keptu
ekki.
400 m. bringusund karla: —
ísl.m.: Sigurður Jónsson, HSÞ,
6:18,0 mín., 2. Sigurður Jóns-
son, KR, 6:25,7 mín., 3. Halldór
Lárusson, Umf. A. 6:34,2 mín.
og 4. Olafur Guðmundsson, IR,
6:34,4 mín. — Þetta er glæsi-
legt nýtt íslandsmet hjá Sig-
urði. Fyrra metið, sem Ingi
Sveinsson átti var 6:23,7 sek.
200 m. bringusund kvenna:
ísl.m.: Áslaug Stefánsdóttir,
Umf. L., 3:22,1 mín., 2. Anna
Ólafsdóttir, Á, 3:30,4 mín. —
3. Gyða Stefánsdóttir, KR,
3:41,0 mín. og 4. Sunneva
Ólafsdóttir, Á, 3:45,1 mín. —
Áslaug kom flestum á óvart
með þessari ágætu frammi-
stöðu. Fáir munu hafa gert ráð
fyrir að hún ynni Önnu, hvað
þá að hún bætti íslandsmetið
um nokkuð á 5. sekundu.
3X50 m. boðsund drengja:
1. Ármann 2:01,8 mín., 2. ÍR
2:02,0 mín. og 3. Ægir 2:07,4
mín.
3X100 m. boðsund karla: —
ísl.m.: Ægir 3:51,3 mín., 2. A-
sveit KR 3:57,5 mín., 3. ÍR
3:58,5 mín. og 4. B-sveit KR
4:05,6 mín.
Gyðingar teknir.
LONDON: Breskt herskip
hefir tekið skonnortuna Tel
Hai, 500 smálestir að stærð, um
150 km. undan ströndum Gyð-
ingalands. Hafði skipið 746
Gyðinga innanborðs, sem ætl-
uðu að komast til Palestinu á
ólöglegan hátt.
Minnismerki um
Wingate.
LONDON: Chiang Kai Shek
og frú hans hafa gefið 1000
sterlingspund í sjóð til þess að
reisa minnismerki um hinn
fræga breska hershöfðingja,
Wingate, sem dó í Burma.
Sjöttu tónleikar
Tónlhtarfjelagsins
SJÖTTU tónleikar Tónlistar-
fjelagsins voru nýlega fluttir í
Tripólíleikhúsinu hjer í Reykja
vík. Þetta voru fagrir tónleik-
ar: Örlagaljóð eftir Brahms,
Kveðjusymfónían eftir Haydn
og loks Kantata eftir Bach, sú
fyrsta, sem flutt er á voru
landi, íslandi.
Söngfjelagið Harpa og Hljóm
sveit Reykjavíkur önnuðust,
tónleikana undir öruggri og
einbeittri stjórn Róberts Abra-
ham.
Örlagaljóðið er mjög vaiid-
flutt, en það skal strax sagt,
kór, hljómsveit og stjórnanda
til verðugs hróss, að það naut
sín mjög vel. Að vísu er kórinn
í minnsta lagi til að syngja
slíkt verk, og aðstaða hans var
hverhvergi nærri svo góð sem
skyldi í Trípólí, vegna þess að
söngpallurinn er klæddur
tjöldum á alla vegu. En allt var
svo vel æft og samfellt sem
verða mátti, og sjerstaklega
fannst mjer hljómsveitin leysa
sitt hlutverk prýðilega af hendi.
Kórinn hefir mörgum góðum
röddum á að skipa, en þó var
altröddin einna blæfegurst.
Kveðjusymfónía „föðui Hay-
dns“ gekk og prýðilcga og var
það þægileg tilbreyting, að
heyra hana í sínum fagra ein-
faldleik eftir hið rómantíska og
um leið þrungna meistaraverk
Brahms. Hjer leysti hljómsveit-
in hlutverk sitt af hendi með
ágæturn, nákvæmum semtök-
um og góðu jafnvægi miili strok
hljóðfæra og blásara.
Síðastur á skránni var Bach.
En þar sannaðist enn, að hinir
síðustu verða fyrstir. Haiin er
og verður fyrstur! En þó naut
kantatan Drottinn er vor skjöld
ur og skjól, sín varla eins vel
og hin áðurtöldu verkin.
Trompet hlutverkin voru nú of
þung í vöfunum og yfirgnæfðu
kórinn á köflum um of. En hjer
kemur hin miður góða aðstaða
kórsins til greina Auðheyrt var
samt, að kórinn var þaulæfð-
ur, og leysti hann sitt hlutverk
mjög vel af hendi.
Steinunn Sigurðardóttir
(sópran) og Ingibjörg Einars-
dóttir (alt) kunnu hlutverk sín
ágætlega, en betur nrtu sín
Helga Magnúsdóttir (sópran)
sem auðheyrilega er mjög
músíkölsk og Jón Halldórsson
(baritón). Hjer má ekki gleyma
Oddgeiri Hjartarsyni, sem ljek
erfitt flautuhlutverk ágætlega.
Jeg tel þessa tónleika til
hinna merkari, sem hjer hafa
verið fluttir, og öllum til sóma,
sem að þeim stóðu. Robert
Abraham hefir oft sýnt, að hann
er hamhleypa að þjálfa og
stjórna kór og hljómsveit, og
kom það þó best í ljós á þess-
um tónleikum, sem svo mjög
var til vandað. P. í.