Morgunblaðið - 25.04.1946, Side 5

Morgunblaðið - 25.04.1946, Side 5
Fimtudagur 25. apríl 1946 MORvíUNBLAÐIÐ S 1. maí verður dregið í happdræfti n ' rr Þessi jepp-bifreið, ný yfirbyggð hjá Kristni Jónssyni vagna- smið, er einn af 10 vinningum í happdrætti, sem Verkamanna- fjelagið Dagsbrún gengst fyrir til fjáröflunar fyrir hvíldar- heimili verkamanna að Stóra-Fljóti í Biskupstungum. Næstu daga mun bíllinn fara um bænn og Reykvíkingum verða gefinn kostur á að kaupa miða og trúlega verða jjeir margir, sem vilja hætta fimm krónum til að eignast slíka bifreið núna fyrir sumarið. Alvarlegt ástand í fjarmálum Oana vegna verkfalla Kaupmanuahöfn í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. ® ALVARLEGAR horfur eru nú ríkjandi í gjaldeyris- og við- gkiptamálum Dana vegna verkfalla þeirra, sem hafin eru, og sem líklegt er að breiðist út, sje ekki að gert. Slátrarar hafa gert verkfall, og vegna þess minka útflutningsverðmæti Dana til Englands um 30 miljónir króna á viku, en gjaldeyrisástæður Dana eru mjög erfiðar fyrir. Verkfall slátrara byrjaði á laúgardaginn var, en verkfall hinna ófaglærðu í morgun. Myndu laun hinna ófaglærðu á ýmsum sviðum verða hærri en faglærðra, ef gengið yrði að launakröfum þeirra. Hafa laun ófaglærðra að meðaltali stigið frá 1.45 á klst. upp í kr. 2.65 frá 1938, og hafa þeir ennfrem- ur fengið 100 pct. uppbóf, vegna yerðhækkunar. Hækkunin hjá faglærðum hefir að meðaltali verið frá kr. 1.70 pr. klst. árið 1938 upp í kr. 2.37, og hafa þeir fengið 96 pct. uppbót vegna verðhækkunar. Yfirleitt er verkfallið alls- staðar óvinsælt, sjerstaklega verkfall slátraranna, sem menn óttast að hafa muni miög al- varlegar aflciðingar fyrir gjald- eyrisástæður Dana. Gjaldeyris- skuldir Dana við Breta hækka stöðugt og vantar gjaldeyri til nauðsynlegs innflutnings. .Vegna slátraraverkfallsins minkar útflutningurinn til Eng- lands um 30 miljónir króna á viku, þar sem baconútflutning- urinn stöðvast. Búist er við að verkföllin breiðist enn út, ef löggjafarvald 5ð grípur ekki í taumana. A ráðherrafundi í dag verður rætt um verkföllin, og einnig athug- uð ráð til þess að stöðva þau. —Páll. Hjónin, sem brann hjá. G. J. 30,00, Þ. 50,00, M. og Þ. 40.00, J. S. 50,00, S. B. 40,00, Á. S. 50,00. Siglfirðingsr unnu brfdgekeppni við Akureyringa Siglufirði, þriðjudag. Frá frjettaritara vorum. BRIDGEKEPPNI var háð á Akureyri dagana 10.—12. þessa mánaðar milli Akureyringa og Siglfirðinga. Keptu 3 sveitir frá hvorum. Sveitastjórar Siglfirðinga voru Sigurður Kristjánsson, Kári Jónasson og Gísli Sigurðsson, en Akureyringa Þorsteinn Stef- ánsson, Jóhannes Snorrason og Jón Steingrímsson, ásamt Vern harði Sveinssyni. Úrslit urðu þau, að Siglfirðingar hlutu sex vinnina, en Akureyringar þrjá. Vann sveit Sigurðar sveitir Jó- hannesar, Jóns og Þorsteins. — Sveit Gísla vann sveitir Þor- steins og Jóhannesar. Sveit Kára vann sveit Jóhannesar. — Sveit Bernharðs vann sveitir Kára og Gísla og sveit Þorsteins vann sveit Kára. Frá frjettaritara vorum á Isafirði. FRÁ Sæbóli i Aðalvík stunda fimm trillubátar veiðar og fjór- ir frá Látrum. Kaupfjelag ís- firðinga kaupir fiskinn og flyt- ur hann nýjan til hraðfrystihúss á Langeyri í Álftafirði. s í GÆR barst blaðinu frá Helgafellsútgáfunni bók, sem íslenskt æskufólk mun taka opn um örmum. Hafa tveir þjóð- kunnir íslenskir ferðalangar, þeir Páll Jónsson og Gísli Gests son frá Hæli ásamt bókmennta- fræðingi, Snorra Hjartarsyni, bókaverði, valið efni í mikið verk, sem sjerstaklega er til- einkað íslensku æskufólki. Má sannarlega segja að þessi frá- bæra bók komi er okkur reið allra mest á að standa örugg- lega á verði um okkar upprenn- andi fólk. Hjer er á ferðinni úrval úr íslenskum bókmennt- um, bæði kvæði og óbundið mál eftir nær 300 höfunda og hvorki meira nje minna en tæplega 400 ljóð og bókarkaflar. Mun lítið á vanta að hjer sje bók, sem geymi flest af því allra fegursta og snjallasta, sem skrifað hefir verið á vora tungu frá landnámstíð. Bókin er sjer- lega fallega útgefin, prentuð á fallegan pappír og bundin í vandað rautt alskinn. Bókin er að vísu þjettprentuð, sem gert mun 'vera til þess að koma sem mestu efni fyrir í ekki allt of stórri bók. Það sem alveg sjerstaklega mun þó gleðja alla, sem unna íslenskri tungu og íslenskum bókmenntum og hafa opin aug- un fyrir því hve háskalegt það er ef íslensk æska hættir að lesa og skilja það sem fegurst hefir vepið hugsað og skrifað á voru landi en nærist þess í stað á jazzmúsik, og öðru þess hátt- ar góðgæti, er það loforð útgef enda að fyrir sumarið komi út af bókinni fyrirferðarlítil vasa- bókarútgáfa, gerð 1 því augna- miði að hægt sje að stinga henni í vasann eða bakpokann er lagt er upp í ferðalög. ai Húsavík Húsavík, þriðjudag. Frá frjettaritara vorum. EINN af sendikennurum þeim, sem starfa á vegum íþróttafull- trúa ríkisins, ungfrú Ásdís Er- lingsdóttir frá Reykjavík, hef- ir dvalið í Húsavík undanfarn- ar fimm vikur að tilhlutan I- þróttafjelagsins Völsungar, og kennt fimleika við Gagnfræða- skóla Húsavíkur og hjá Völs- ungum. I gær fór fram fimleikasýn- ing í samkomuhúsinu og sýndu þar flokkar kvenna og karla undir stjórn ungfrúarinnar og var sýningin vel sótt og fengu flokkarnir góða dóma. Þórhallur Arnórsson stórkaupm. Mínningarorð Áðatfnndur Anglía AÐALFUNDUR Anglia verð ur haldinn í Tjarnarcafé á föstudagskvöld n. k. og verður ! þá um leið síðasti skemtlfund- ur fjelagsins á þessum vetri. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður dagskrá fundar- ' ins á þá leið, að Harry Daw- j son píanóleikari úr breska flug- , hernum leikur nokkur lög og síðan verður dansað til klukk- an 1. ÞORHALLUR ARNORSSON stórkaupmaður andaðist í Kaup mannahöfn 3. þ. m. Var hann þar staddur í verslunarerind- um, tók skæða landfarssótt og andaðist eftir skamma legu. — Var. líkami hans fluttur heim með varðskipinu Ægi og hjer verður hann til grafar borinn á morgun. Þórhallur var fæddur að Hrísum í Svarfaðardal, 15. febr. 1914, sonur hjónanna Arnórs Björnssonar og Þóru Sigurðar- dóttur, er bæði lifa enn og búa nú að Upsum í Svarfaðardal. Ólst Þórhallur upp í foreldra- húsum og vann að öllum störf- um heima fram að tvítugu. En hugurinn leitaði út fyrir heima hagana og til stærri verkefna og rjeðst hann til verslunar- náms hjer á Samvinnuskólan- um í Reykjavík á árunum 1934 —36, og fór því næst að leita fyrir sjer um sjálfstæða at- vinnu. Það var erfitt á þeim árunum, og reyndi hann fyrir sjer á ýmsum stöðum, því að ekki skorti kapp eða hugmynd- ir og loks setti hann á fót heild verslun þá, sem hann rak upp frá því. og var að koma á fastan kjöl þegar hann var á brott kvaddur. Árið 1939 kvæntist hann og gekk að eiga Ólöfu Magnús- dóttur Jónssonar prófessors. — Lifir hún mann sinn ásamt þrem ungum börnum þeirra, tveim dætrum og einum syni á 1. ári. Var Þórhallur aðdrátta mikill og umhyggjusamur heim ilisfaðir og heimili þeirra fag- urt, og gott þar að vera, við alúð og látleysi beggja húsráð- enda. — Þórhallur var skýrt dæmi þeirrar atorku, sem á skömm- um tíma sótti verslun lands- manna úr höndum erlendra manna og gerði hana alíslenska. Hann sýndi hvernig ungur sveitapiltur, sem ekkert hefir við að styðjast annað en eigið áræði og útsjón og óbilandi starfsþrek, getur rutt sjer til rúms, og leyst af hendi hin vandasömu verslunarstörf inn- an lands og utan á einhyerjum mestu umróts og umbyltinga- tímum, þegar sambönd breytast í sífellu og viðskiftin flytjast land úr landi og heimsálfa milli. Æfi Þórhalls varð svo stutt og hann vann aðalstarf sitt á svo órólegum tímum, að hann fekk ekki tóm til annars en undirbúningsstarfa. En það er trúa okkar, sem þektum hann vel, að þar hafi verið von mik- illa framkvæmda. og að hann myndi með tíð og tíma hafa orðið fyrirferðarmikill í þjóð- lífinu og sinni stjett. En hversvegna vera að spyrja og spá, úr því að saga hans hjer á jörð er búin? Sá deyr ungur, sem guðirnir elska, sögðu fornmenn, og hafa þá átt við þann sannleika, að flestum eru unglingsárin best og fári veit hverju fagna skal, er æfin': líður fram. En hvað sem slíkum fornum’ spakmælum líður, eiga ástvin-; ir hans og einnig fjölmennur; vinahópur erfitt með að sætta- sig við þá hugsuiv að Þórhall- ur sje horfinn hjeðan svo ung- ur að aldri og með slíkt starfs- þrek, sem hann hafði. Hann var svo dagfarsgóður. í senn glaðvær og glettinn og traust- ur og trúr, að hverjum góðurn manni hlaut að geðjast vel að; honum. Og við nánari kynning kom í ljós, að hjer var stór- huga maður á fleiri veg en einn. Stórhugur hans beindist ekki eingöngu á þessu næsta marki' fátæka sveitapiltsins, at ,,hafa sig áfram“ í svip, heldur beind- ist hann í sívaxandi mæli að því að verða nýtur oe stór- virkur þjóðfjelagsþegn, byggja stórt og byggja traust fyrir sjálfan sig og sína og skipa um leið vel sitt sæti og pláss á þjóð- fjelagsheimilinu. verða traust- ur steinn í þjóðfjelagshúsinu og láta hvergi sinn hlut eftir liggja. Undir glaðlegu og ljettu yfirbragði bjó með honum mik- il alvara, stjórnarhæfileiki góð- ur samfara lotningu fyrir hinni dularfullu tilveru og trausti á æðri hjálp þeim til handa, sem hennar leita án eigingirni eða lágra hagsmunavona. Skarðið stendur opið og ófylt í hugum ástvina hans. Og við vinir hans látum hlýjar hugs- anir fylgja honum inn fvrir for- tjaldið dularfulla, en sendunx ástvinum hans, í úrræðaleysi okkar og vanmætti, bænir um styrk frá þeim, sem svo er voldugur, að jafnvel líf og dauði og þeirra veldi eru í hendi hans. Vhiur. lllllllIlllllllllllllIII![IllttmHmi||(!iii!liM!!!!l!lllillEimii 5 Allir þurfa að kíkja = 5 — í Rafskinnu. Il!lli!lllll!limillllillimilimi)lllllllll!llimilll!lll!!!!ll!l x £ ! Iðnaðarpláss óskast 100—150 ferm. Tilboð merkt „Iðnaðarpláss“ sendist blaðinu fyrir laugardag. I *>

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.