Morgunblaðið - 25.04.1946, Qupperneq 12
12
— Á innlendum
vettvangi
Framh. á bls. 12.
fleiri þjóðum. Þær reyndust
aðdáanlegar sem áður, og allir
íslenskir áhorfendur lifðu ó-
gleymanlega stund.
„Feðranna frægð“.
í tilvitnun einni úr Gauta-
borgarblaði um íslensku stúlk-
urnar, þar sem frammistöðu
þeirra var hrósað mjög, var
komist að orði á þá leið, að
hinar glæstu óskeikulu jafn-
vægis'æfingar þeirra mintu á
íslendingasögur. Iivað skyldi
íþróttagagnrýnandinn eiga við
með þessu, datt mjer í hug?
Eða er þetta annað en skraf út
í loftið? Jeg fullyrði ekkert um
það, hvað fyrir honum hefir
vakað. En skyldi mega til sanns
vegar færa, að fræknleiki for-
feðranna, sem lýst er í sögun-
um, geti haft bein örfandi á-
hrif á íslenskan æskulýð í dag,
til frama og afreka á sviði
líkamsmennnigar? — Trauðla
mun hver einstaklingur finna
til þess. En hitt mætti vera,
að góðir íþróttafrömuðir okk-
ar hefðu sívakandi örfun í
starfinu frá „feðranna frægð“.
í höfuðstað Noregs.
Önnur landkynning hefir átt
sjer stað á þessum vetri, sem
mikilsverð er í höfuðborg Nor-
egs, þar sem komið hafa fram
á sama tima íslenskt leikrit,
íslenskur leikstjóri og ísiensk
leikkona. Mun mörgum finn-
ast það meira um vert en fim-
leikasýning eina, þar eð leikrit
Davíðs Stefánssonar, leikstjórn
Lárusar Pálssonar í norska
leikhúsinu og frammistaða frú
Öldu Möller í Þjóðleikhúsi
Norðmanna hefir fengið ágæta
dóma. Er það ærið umtalsefni
og gleðiefni, og gefur betri von-
ir en ýmsir hafa haft um
væntanlegt starf Þjóðleikhúss-
ins hjer.
í undirbúningi eru ferðir
söngflokka hjeðan til útlanda
og þátttaka íslenskra mynd-
listarmanna í norrænni listsýn-
ingu í Oslo. Er þess að vænta,
að alt fái þetta þann undirbún-
ing og gagnrýni hjer heima-
fyrir, að úr því verði hin besta
landkynning.
Fjelsg ausfflrskra
kvenna heidur uppi
linarxfarfsemi
FJELAG Austfirskra kvenna
hjelt aðalfund sinn mánudaginn
8. aprí!. Formaður fjelagsins,
Guðný Vilhjálmsdóttir, gaf
skýrslu um starfsemi þess s.l.
starfsár.
Haldnir höfðu verið sjö fje-
lagsfundir og bazar og skemti-
samkoma til ágóða fyrir sjúkra
sjóð fjelagsins. Úr sjóðnum var
úthlutað um 3600 krónum til
sjúklinga og aldraðra Austfirð-
inga, aðallega á sjúkrahúsum,
en einnig til nokkurra ein-
stæðra manna utan sjúkrahúsa.
Fjelagskonur eru nú alls 104.
Reikningar fjelagsins voru lagð
ir fram og samþyktir. í fjelags-
sjóði voru í árslok rúmlega 4
þúsund krónur, en í sjúkrasjóði
rösklega 1800 kr.
Samþykt var á fundinum að
veita 1000 krónur úr fjelags-
sjóði til fyrirhugaðrar kapellu-
byggingar á Hallormsstað til
minningar um 4 látnar merkis-
konur, frú Sigrúnu P. Blöndal
frú Jósefínu Lárusdóttur, frú
Margrjeti Pjetursdóttur frá Eg-
ilsstöðum og Sigríði Sigfúsdótt-
ur frá Arnheiðarstöðum. — Þá
var saraþykt að veita úr sama
sjóði kr. 200.00 til Menningar-
og Mmningarsjóðs kvenna til
minningar um frk. Laufeyju
Valdimarsdóttur.
Úr stjórn fjelagsins áttu að
ganga frú Anna Wathne, gjald-
keri og frú Anna Jóhannesdótt-
ir, varaform., en þær voru báð-
ar endurkosnar. Fyrir voru í
stjórninni: Frú Guðný Vil-
hjálmsdóttir, formaður, frú
Anna Ólafsson, ritari og frú
Snorra Benediktsdóttir.
Fjelagið hefir ákveðið að
halda bazar til ágóða fyrir
sjúkrasjóð sinn 30. apríl n.k.
í Góðtemplarahúsinu. Væntir
það þess, að margir verði til
þess að styðja líknarstarfsemi
þess, þó sjerstaklega Austfirð-
ingar.
(jle&Llecft
!
óamar:
Ölvir H.f.,
Sigurður Þorsteinson H.f.
MORGUNBLAÐIÐ
Sýslufundur
N.-fsafjarSarsýsEu
Frá frjettaritara vorum
á Isafirði.
SÝSLUFUNDUR Norður-ísa-
fjarðar jýslu var haldinn hjer
dagana 13.—16. apríl. Helstu
samþyktir fundarins voru þær
að veita 20 þúsund krónur til
bygginga fyrir hjeraðsskólann
á Reykjanesi og ábyrgjast 70
þús. kr. lán í sama skyni. Hús-
mæðraskólanum á ísafirði veitt
ar 5 þus. kr.
Skorað var á vegamálastjóra
að láta þegar hefja vegagerð
út Langadalsströnd, þegar
Þorskafjarðarvegi er lokið. —
Jafnframt að mæla fyrir
byrggju á Melgraseyri, er nægi
til afgreiðslu djúpbátsms og
gera kostnaðaráætlun um mann
virki. Efnahagur hreppanna í
árslok 1925: Sljettuhreppur kr.
21,880, íbúatala 283. Grunna-
víkurhreppur kr. 50.986, íbúa-
tala 175. Snæfjallahreppur kr.
11.489, íbúatala 7. Nauteyrar-
hreppur kr. 12.73. íbúatala 129.
Reykjarfjarðarhreppur kr. 20.-
720, íbúar 124 Ögurhreppur kr.
26.053, íbúar 139. Súðavíkur-
hreppur kr. 89.486, íbúar 303.
Eyrarhreppur kr. 161.841, íbú-
ar 405. Hólshreppur kr. 98.340,
íbúar 721. Hafnarsjóður Hóls-
hrepps nemur kr 19.185.
Skuldlaus eign sýslusjóðs í
árslok 1945 kr. 93.606. Vara-
sjóður kr. 61.430 — í yfirkjör-
stjórn vegna alþingiskosninga
voru kosnir Páll Jónsson, síra
Þorsteinn Jóhannesson Vara-
menn Bjarni Sigurðsscn, Sig-
urður Þórðarson. I stjórn Djúp-
bátsins Jóhann Gunnar Ólafs-
son bæjarfógeti og Páll Pálsson.
í stjórn Búnaðarsjóðs Asgeir
Guðmundsson, Páll Páisson og
Jón H. Fjalladal.
Tekjur og gjöld sýslusjóðs á
yfirstandandi ári áætluð kr.
78.490. Helstu tekjulindir eru
þesar: Sýslusjóðsgjöld krónur
60.000, stríðsgróðaskattur kr.
9.584. Helstu gjaldaliðir: Menta
mál 27.700, samgöngumál kr.
20.200, heilbrigðismál kr. 8.900,
stjórn sýsjumálanna 7,600, at-
vinnumál 5,650, ýms útgjöld kr.
7,640.
Skorað var á vegamálastjóra
að láta mæla fyrir brúm á
Dvergasteinsá og Ögurá.
Minnin garsp j öld
barnaspítalasjóðs Hringsins
fást í verslun frú Agústu
Svendsen, Aðalstræti 12.
Fimtudagur 25. apríl 1946
Kalddælingar halda
hátíSlegan
sumardaginn fyrsta
SUMARDAGURINN fyrsti,
er dagur barnanna. Hjer í Hafn
arfirði halda Kalddælingar K.
F.U.M. þennan dag hátíðleg-
an á þann hátt að almenn sam-
koma verður haldin í húsi K.F.
U.M., Hverfisgötu 15 kl. 8.30 e.
h. Verður efnisskrá þeirrar sam
komu nokkuð frábrugðin venju
legum samkomum í K.F.U.M.
I samkomunni verður svo tekið
á móti gjöfum til styrktar fá-
tækum drengjum og pilt.um til
dvalar í einhverjum sumarbúð-
um K.F.U.M.
Starfsemi Kalddælinga í Kald
árseli er nú orðin æði umfangs
mikil. Formaður Kalddælinga
hefir nýlega skýrt frjettamanni
blaðsins í Hafnarfirði frá því
á hvern hátt starfinu verður
hagað á næsta sumri. Þeir Kald
dælingar hófu á liðnu sumri
mikið átak til þess að auka við
skálabygginguna í Kaldárseli,
og það tókst fyrir fjárframlög
fjölmargra stuðningsmanna K.
F.U.M. í Hafnarfirði og Reykja
vík og reyndar víðar. Má nú
segja að húsaskortur sje orðinn
það mikill í Kaldárseli, að
nægja muni næstu ár. Hinsveg-
ar er ekki nærri lokið við að
fullgeia bygginguna og tefur
það aðailega fjárskortur, svo að
rúm mundi þar fyrir sjóð ein-
hvers gjafmilds vinar starfsins.
En forstöðumönnum starfsins í
Kaldárseli er ljós hin mikla
nauðsyn á starfi þar, fyrir litla
drengi um sumarmánuðina og
því hefir verið áformað að auka
starfið, svo að dvalið verði í
tvo mánuði á Drengjaheimilinu.
Er mikil þörf á slíku starfi fyr-
ir drengi hjer í Hafnarfirði,
ekki hvað síst þar sem enginn
barnaleikvöllur er enn til hjer.
Verður því ekki annað sagt
en að hið ósjeiplregna starf
Kalddælinga K.F.U.M. komi
hjer í góðar þarfir bæjarins.
Ámerískur sjóliði
ekur siolmim bíl
r e r n
ISJðf
SIÐASTLIÐIÐ miðvikudags-
kvöld var bifreiðinni R-2995j
eign Þorgríms JóhannssonaB
bifreiðarstjóra, Litlu bílastöð-J
inni, stolið og ekið í sjóiný
fram af Loftsbryggju. Var það
amerískur sjóliði, 18 ára gamalí
| af veðurathugunarskipinu Deaá
born, sem stal bifreiðinni og
setti hana í sjóinn.
Bifreiðin var í viðgerð og
voru viðgerðarmenn að kepp-
ast við að ljúka viðgerðinni
fyrir hátíðina. Um 12 levtið var
viðgerðinni lokið og ætlaði þá
annar viðgerðarrnaðurinn, ís-
leifur Magnússon, Bergþóru-
götu 25 að skila bifreiðinni en
koma við heima hjá sjer í leið-
inni til að sækja húslykla. Á
meðan hann skrapp inn til sín
í 2—3 mínútur var bifreiðinni
stolið og sá hann henni ekið
eftir Barónsstíg með miklum
hraða.
Skömmu síðar tilkyntu tveir
menn er staddir voru niður við
höfn að bifreið hefði runnið
í sjóinn og var fenginn kafari
til að kafa til að athuga bif-
reiðina og vita hvort nokkur
maður væri í bílnum. Ekki gat
kafarinn sjeð það sökum myrk-
urs, en það kom í ljós er búið
var að ná bifreiðinni úpp, að
hún var mannlaus og var þá
kafari sendur niður aftur til
þess að leita eftir líki þess, sem
hefði verið í bifreiðinni. Síðar
kom í ljós að hún hafði runnið
mannlaus út af bryggjunni.
Þannig komst upp um sjó-
liða, sem bílnum stal, að hann
bauð fjelögum sínum upp í bif-
reiðina, en er hann sagði þeim
að hún væri stolin vildu þeir
ekki aka með honum og sögðu
foringja skipsins frá stuldinum,
sem síðan gerði lögreglunni að-
vart.
Framh. af bls. 4.
A?aðlaheiði og er sú leið að
ems greiðfær 5—6 mánuði
ársins.
Þar sem mæðiveikin er nú
komin í nefndan hrepp er tvö
föld ástæða til þess að full-
gera vegánn, svo bændur í
xlöfðahverfinu geti aukið
mjólkurframleiðsluna meðan
þeir eru að koma upp nýjum
ósýktum f járstofni
Braggi brennur iil
ksldra kola
í FYRRAKVÖLD kl. rúmlega
11 var slökkviliðið kvatt í
braggahverfið við Múla, en þar
hafði kviknað í íbúðarbragga.
Var bragginn alelda, þegar
slökkviliðið kom á vettvang, og
brann hann til kaldra kola, en
næstu bragga tókst að verja.
— íbúar braggans voru ekki
heima, er kviknaði í honum.
X-9
íamiiiiiiiiimimiiimiiiiiiiiiumimiiiiimminiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinnnins
£
Eftir Roberi Siorm
mmimimimmmiimimmimmmmiiimimmimiiimmimimmimnimnimnnnnimnmBi
:R0/H /ViOMlMð 'ÆUIOF5 ME P!K£5- AT
'IELD TAK6Et‘&
On TME F.B.I. f\RE-ARMS RAN6E AT QUANTICO,
VIRGINIA, eiN6 C0RRI6AN BEC0ME6 AN EX.PERT
6UB-/MACH!Nf 6UNNER... ,-------------------
K.ing j-cntures Syndicatc, Iric., Worid riglits rcserved.
Síðan er honum kent að skjóta úr öllum mögulegum skotvopnum í hvaða stellingum sem hann er.