Morgunblaðið - 25.04.1946, Page 16

Morgunblaðið - 25.04.1946, Page 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: ENDURREISN NOREGS. — Norðan kaldi. Ljettskýjað. Fimtudagur 25. apríl 1946 Um 1000 Bandaríkjahermenn á Íslandi Þar ai eru 100 í Reykjavík ÞAÐ ERU EITTHVAÐ um 1000 Bandaríkjahermenn á íslandi eins og stendur og langflestir þeirra eru við Keflavíkurflug- völlinn. Aðeins um 100 hermenn eru í Reykjavík í Tripoliher- búðunum á Melunum. Bandaríkjamenn teija sig þurfa að hafa um 1000 manns vegna reksturs Keflavíkurflugvailarins, sem þeir nota nú aðallega vegna flugferða milli Bandaríkjanna og meginlandborga Evrópu. Þessi mikli fjöldi manna við Keflavíkurflugvöllinn er skýrð ur á þann hátt, að Bandaríkja- menn þurfi að hafa þarna heilt þorp, þar sem þeir geti verið sjálfum sjer nógir. Bandaríkja- menn hafa t. d. sína eigin skemtistaði, verslanir, skósmiði og klæðskera, hvað þá annað. Ný embættaskiftin í hernum. Þeir Ragnar Stefánsson maj- or og Howell V. Williams kapteinn ræddu við blaðamenn frá Reykjavíkurblöðunum í gærdag í tilefni af því að Will- iams er á förum hjeðan, en hann hefir verið blaðafulltrúi hersins og yfirmaður þeirrar deildar, sem snýr að borgur- unum. Tekur Ragnar nú við því starfi. Williams kapteinn hefir dvalið hjer í 26 mánuði. Hann er kvæntur íslenskri konu, Guðbjörgu Theodca’sdóttur og er hún nýlega farin vestur um haf. Aður en Williams fór í herinn var hann háskólakenn- ari í stjórnvísindum við há- skólann í Berkley í Kaliforníu. Hann hefir eignast hjer marga vini og kunningja og hefir þótt samningalipur maður. Flestir kannast við Vestur- íslendinginn Ragnar Stefáns- son major, sem hefir verið hjer í hernum síðan 1942. r Próf. Olafur Lárussor helðursdoklor PRÓF. Ólafur Lárusson há- skólarektor er nýfarinn til út- landa. Fór hann í þeim erind- um að veita móttöku heiðurs- doktorsnafnbót við háskólann í Oslo. Fjekk hann fyrir nokkru boð frá Oslóarháskóla þessa efnis. Sjaldgæf spil. Fyrir nokkr- um dögum var spilaður L’Hombre hjá Elíasi F. Hólm, og komu þá 18 hæstu á tvær hendur. Hallgrímur Finnsson fjekk þrjá hæstu, drotning í laufi, tígulters. spaðahjón, sagði laufsóló, bakhönd. Elías forhönd lagði upp krúkk með trompkónginn sjöunda. hjarta- hjón. Spilið var aldrei spilað, þar eð hann sá strax, að fimm slagið stóðu, hvernig sem spil- að yrði. — 9 mattadorar koma sjaldan fyrir, en skyldu svona spil koma oftar í „veruleikan- um? — Meðspilarar voru í þetta sinn Grímur Grímsson og Kristján Andresson. Svíþjóðarfaáhir fíl Akraness Akranesi 20. apríl. Frá frjettaritara vorum. í DAG kom hingað frá Sví- þjóð mótorbáturinn Aðalbjörg, M.B. 30. Báturinn er vandaður að smíði og allur frágangur á bátnum uppi og undir þiljum hinn nettasti og smekklegasti. Báturinn er tæpar 55 rúmlestir að stærð, útbúinn öllum nýtísku áhöldum, þar á meðal dýptar- mæli og miðunarstöð. Besta gerð af togspilum er í bátnum ásamt öllum útbúnaði til tog- veiða. Skipstjóri bátsins á uppsigl- ingunni var Elías Benediktsson hjer af Akranesi, stýrimaður hans var Ellert Asmundsson útgerðarmaður, sem er eigandi bátsins. Aðrir skipverjpr voru Oskar Jónsson vjelstjóri og einn háseti sem fjekk far með bátn- um frá Svíþjóð. Uppsiglingin frá Djupvik í Svíþjóð, þar sem báturinn var byggður, tók 7 daga alls með viðkomu í Færeyjum. Reyndist báturinn í alla staði vel, þrátt fyrir talsverð óveður sem hann hreppti á leiðinni. Bátur þessi er einn af þeim, sem ríkisstjórnin hefir látið byggja í Svíþjóð. Hann e” smíð- aður eftir teikningum Bárðar G. Tómassonar frá ísafirði. Skipafrjettir Skipafrjettir. Brúarfoss er í Reykjavík. Fjallfoss er í Hull. Lagarfoss er í Reykjavík. Sel- foss er í Leith, hleður í Hull síðast í apríl. Reykjafoss hefir væntanlega farið frá Leith 24/4 til Reykjavíkur. Buntline Hitch fór frá Reykjavík 17/4 til New York. Acorn Knot er í Reykjavík. Salmon Knot fór frá New York 17/4 Reykjavík- ur. TrueKnot hleður í Halifax 22. apríl. Sinnet kom til Lissa- bon 18/4. Empire Gallop fór frá Reykjavík 2/4 til Halifax. Anne kom til Kaupmannahafn- ar 18/4. Lech kom til Hull 20/4 frá La Rochellé. Lublin vænt- anleg til Reykjavíkur 24/4. Sollund fór frá Larvik í Noregi 16/4, var væntanlegur til Reyðarfjarðar 23/4. Otic kom til Reykjavíkur 15/4. Horsa hleður í Leith í byrjun maí. Zealand kom til Akureyrar með kol 23/4. r Erling Blöndal Bengtson, undrabarnið, sem leikur á cello af þeirri snilli, sem fágæt er talin, er á leið til Islands með Esju, sem mun haf farið frá Kaupmannahöfn í gær. Hann heldur hjer hljómleika á vegum Tónlistarfjelagsins í byrjun næsta mánaðar. Undanfarið hcfir Erling haldið hljómleika víða uin Danmörku og fengið sjerstaklega góða dóma. 6 ára drenpr bjargar fjelaga sínum SÁ atburður gerðist á skír- dag, að 6 ára gamall drengur bjargaði leikbróður sínum 4 ára frá því að kafna í pytti. Það var á skírdag að þrjú börn voru að leik á Bjarnastaða túni skamt frá GrímsstÖðum á Grímsstaðaholti. Voru það tveir drengir 6 og 4 áia og stúlka 6 ára. Var eldri drengurinn og stúlkan frá Grímsstöðum. Á túninu er gamalt ræsi, eii í því er djúpur pyttur. Yngri drengurinn lenti ofan í pytt þennan og sökk þegar upp und- ir hendur, — Seig hann siðaií áfram hægt niður. Urðu börnin hrædd, fóru að skæla og lögðu af stað heim að Grímsstöðum til þess að ná 1 hjálp. Dreng- urinn áttaði sig þó fljótt, sneri aftur að pyttinum, sem leik- 1 bróðir hans hafði lent í. Stóð þá aðeins höfuð drengsins upp ' úr pyttinum. Tókst hinum sex ára dreng með aðstoð telpunnar ' að ná Leikbróður sínum upp úr; pyttinum. Það er ekkert vafamál, að ef börnin hefðu ekki snúið aft- ■ ur, hefði litli drengurinn kafn- að þarna í pyttinum. Maður, sem athugaði pyttinri á eftir með langri stöng, fann engan hotn á honum, svo litlum vafa er undiroipið, að litli drenguHnn hefði kafnað þarna, ef hinr; drengurinn hefði ekki snúið aftur. Leikijelag Húsavík- ur sýnir á Akur- eyri LEIKFJELAG Húsavíkur hef- ir nú undanfarið sýnt sjónleik- inn „Piltur og stúlka“ og var síðasta sýning á vegum Kaup- fjelags þingeyinga í fyrradag, í sambandi við kaupfielags- fund, sem nú stendur yfir. — Húsið var alveg fult og tóku leikhúsgestir leiknum með á- gætum. Aðalhlutverkin leika frú Sólveig Þorsteinsdóttir, er leikur Sigríði, og Sigtryggur Albertsson leikur Indriða, en Guðmund Bárðarson leikur Njáll Bjarnason, kennari. Aðr- ir leikendur eru um 20. Leik- stjóri er Helgi Hálfdánarson, lyfsali. Einnig á vegum Kaupfjelags þingeyinga hafði Karlakór Mý- vetninga söngskemtun hjer 1 gærkvöldi. Var söngum vel tek- ■ið og bótti kórinn sómi sinnar sveitar. Söngstjóri er Jónas Helgason hreppstjóri, en ein- söngvarar Sigurður Stefánsson og Steingrímur Kristjánsson. Þá söng einnig Karlakórinn Þyrrnir undir stjórn Friðriks A. Friðrikssonar prófasts, en upp lásu Jón Sigurðsson, Felli og Jónas Baldursson, Lundar- brekku. Meðal stærri mála, sem fyrir kaupfjelagsfundinum liggja, er stofnun mjólkursamlags og bygging mjólkurstöðvar í Húsa vík á þessu ári. Biómasala li! slyrki- ar „Sumargjöf’ EINS OG VENJA HEFIR verið undanfarin ár hafa blóma búðir bæjarins opið í dag klukkan 9—12. Er þetta gert ‘vegna barnadagsins og ákveð- inn hundraðhluti af blómasölu verslananna rennur til Barna- ' vinafjelagsins Sumargjöf. Er blómasalan því einn þáttur barnadagsins. Isafjaröarfaær kaupir Klrkjuból Frá frjettaritara vorum á ísafirði. BÆJARSTJÓRN ísafiarðar hefir samþykt að kaupa jörðind Kirkjuból í Skutulsfirði, með áhöfn og jarðyrkjuáhöldum fyr ir 200 þúsund krónur. Kaupin voru samþykt með 7 atkvæðum gegn tveimur. Útborgun við af- sal er 100 þúsund krónur, 30 þúsund á næsta ári og síðan 70 þúsund krónur í næstu tíu ár. 31. Víðavangshlaup I.R. fer fram í dag í DAG — sumardaginn fyrsta — fer Víðavangshlaup ÍR fram. í 31. sinn, en það hefir farið fram óslitið á sumardaginn fyrsta síðan 1916. — Að þessu sinni taka 19 keppendur þátt í því frá 3 íþróttafjelögum og einu fjelagasambandi. Hlaupaleiðin verður svipuð og 2 undanfarin ár. Byrjað verð ur á Öskjuhlíð og endamarkið verður syðst á Fríkirkjuvegin- um. Vegalengdin, sem hlaupin er, verður 3—5 km., en brautin er aldrei lögð fyrr en rjett áð- ur en hlaupið hefst. Fjelögin, sem taka þátt í hlaupinu, eru KR, sem sendir 7 keppendur, ÍR með 5, U.M.S. Kjósarsýslu með 4 og Ármann með 3. Af keppendum má nefna frá KR Harald Björnfeson, Ind- j riða Jónsson og Oddgeir Sveins son, sem tekur nú þátt í hlaup- inu í 16. sinn. Frá ÍR keppa m. a. Óskar Jónsson og Sigur- gísli Sigurðsson, frá U.M.S.K. Þór Þóroddsson og Guðm. Þ. Jónsson og frá Ármanni Hörð- ur Hafliðason og Stefán Gunn- arsson. — Þó þessi nöfn sjeu nefnd skal engu spáð um, hvernig hlaupið fer, en keppn- in verður áreiðanlega hörð. Hlaupið hefst kl, 2 e. h.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.