Morgunblaðið - 29.08.1946, Síða 1

Morgunblaðið - 29.08.1946, Síða 1
33. árgangur. Osamkomnlag um nntökubeiðnirnar í Öryggisráðinu Gy ai myrlla Bevin FRANSKA lögreglan og Scot- land Yard leita nú fjórtán Gyð- inga, sem hafa sett sjer það markmið, að ráða Bevin, utan- ríkisráðherra Breta, af dögum. Gyðingar þessir eru taldir til- heyra óaldarflokki þeim, sem sprengdi í loft upp Davíðshó- ! telið í Jerúsalem, en það til- ræði hafði mikið manntjón í för með sjer og vakti geysimikla athygli á sínum tima. Lögreglustjóri Parísar hefir tilkynnt, að mikil leit hafi farið fram þar í, borg að Gyðingum þessum, en þeir muni vera farn ' ir þaðan. Lögreglumenn eru! hinsvegar á verði um allt Frakk ! land, en sterkur vörður hefir verið settur um Bevin og hon- um fengin til umráða bifreið sem er svo vel yarin, að franski' lögreglustjórinn lýsir henni sem „dúlbúnum skriðdreka“. Loks hefir hervörðurinn um fundar- stað friðarráðstefnunnar verið aukinn til muna, því menn ótt- ast, að illræðismennirnir kunni jafnvel að gera tilraun til að granda öðrum fulltrúum ráð- stefnunnar. —Reuter. Eisenhower-bræðumir Eisenhower yfirhershöfðingi Bandaríkjamanna á fjóra bræður og var myndin af þeirn sem birtist hjer að ofan, tekin fyrir nokkru þegar þeir komu allir saman og veiddu sjer nokkra laxa. — Hershöfðinginn er annar frá vinstri og heldur á veiðistöng, en hinir eru (taldir frá vinstri): Milton Eisenhower frá Manhattan, Kansas, Earl Eisenhower frá Charleroi, Pensylvania, Arthur Eisenhower frá Kansas City, Missouri og Edgar Eisenhower frá Tacoma, Washingtonfylki. Rólegir fundir á friðarráðstefnunni Ulanríkisráð- herrarnir koma saman í dag París í gærkveldi. UTANRÍKISRÁÐHERRAR fjórveldanna munu koma sam- an til fundar eftir hádegi á morgun. Það var að undirlagi bresku stjórnarinnar að boðs- brjef til fundarins voru send ú-t, en jákvæð svör hafa þegar borist frá Rússum og Banda- ríkjamönnum, og þess er vænst, að franska stjórnin muni einnig ve'ra fundinum samþykk. Bevin, utanríkisráðherra, kom til Parísar í kvöld, en hann hef- ir undanfarna' daga verið í London. í viðtali við blaða- menn, sem komu til móts við hann á flugvellinum í París, sagði utanríkisráðherrann í sambandi við hinn fyrirhugáða fund, að nauðsynlegt væri að varpa skýrara ljósi á'ýms af þeim málefnum, sem fyrir frið- arfundinum lægju, og ljúka við að ganga frá úrlausn þeirra sem fyrst. — Reuter. Þurkar spilía uppskeru LONDON: Geysimiklir þurk ar í Rúmeníu hafa spilt upp- skerunni þar í landi, en hún hefði vart nægt þörfum Rúm- ena sjálfra, enda þótt alt hefði gengið að óskum. urn skaðabötagreiðsfur París í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. FRJETTARITARAR hjer segja, að nefndarfundir á friðarráð- stefnunni í dag hafi farið mun friðsamlegar fram en fundirnir í gær. Svo var að sjá, sem fulltrúarnir litu öllu bjartari augum á framtíð ráðstefnunnar, eftir að tilkynnt hafði verið, að utan- ríkisráðherrar fjórveldanna mundu koma saman á morgun. Um- ræður.U dag snerust annars um skaðabótagreiðslur Finna og þeirra Balkanlanda, sem þátt tóku í ófriðnum við hlið Þjóðverja, en auk þess fjekk fulltrúi ítala tækifæri til að skýra afstöðu þjóðar sinnar til landakröfu Frakka. Kröfur Rússa sanngjarnar, scgir Molotov. I ræðu, sem Molotov flutti í dag, lagðist hann gegn þeirri tillögu ástralska fulltrúans, að sjerstök nefnd yrði skipuð til að rannsaka skaðabótagreiðslur fyrverandi óvinaþjóða. Hann minnti á tjón Rússa í styrj- öldinni og kvað kröfu þeirra um 100 miljónir dollara frá ítölum ekki ósann^jarna. Til- lögu ástralska fulltrúans kallaði hann ,,órjettláta“. Astralska tiílagan tekin aftur. Er nokkrar umræður höfðu farið fram um málið, tók full- trúi Astralíu tillögu sína aftur, enda höfðu þá fulltrúar Breta og Bandaríkjanna lýst því yfir, að þeir væru andvígir henni. í ræðum, sem bresku og banda- rísku fulltrúarnir fluttu, tóku þeir því þó skýrt fram, að þeir Framh. á bls. 12. Lík bandarísku flugmannanna Trieste í gærkveldi. RICHARD Patterson, sendi- herra Bandaríkjanna í Júgó- slavíu, afhenti í dag Bryant hershöfðingja, yfirmanni 88. hers Bandaríkjanna lík 5 þeirra flugmanna, sem Ijetu lífið, er flugvjel þeirra var skotin nið- ur yfir Júgóslavíu 19. ágúst s. 1. Júgóslavneskur heiðursvörður var viðstaddur, er afhendingin fór fram. Patterson sagði við þetta tæki færi, að Tito hefði persónulega fullvissað sig um, að atvik sem þetta mundu ekki endurtaka sig yfir júgóslavnesku landi. —Reuter. Bandaríkin vilja allar umsóknirnar afgreiddar í einu lagi New York í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Á FUNDI Öryggisráðsins á Long Island, New York, í dag, náðist ekkert samkomulag um inntökubeiðni þjóða þeirra, þeirra á meðal íslands, sem hafa sótt um upptöku í Sameinuðu þjóðirnar. Hinsvegar var samþykkt, eftir nokkrar umræður, að fresta afgreiðslu ákæru Ukraniu á hendur Grikkjum, en megin- innihald ákærunnar er það, að framkoma Grikkja og stjórnar- far landsins ógni friðnum á Balkanskaga. Flotadelld heim- sækir grískar hafnir Washington í gærkvöldi. AMERÍSKA flugvjelaskip- <ð Franklin Delano Roosevelt mun fara í kurteisisheimsókn til grísku hafnarborgarinnar Piræus dagana 5.—9. sept., að því er flotamálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkvnnti í dag. Varautanríkisráðherra, Achesan, sagði blaðamönn- um í dag, að þetta væri hrein kurteisisheimsókn og hefði enga aðra þýðingu. Væri heimsóknin vegria hins mikla álits, sem Grikkir hefðu haft á Roosevelt forseta. Með flug vjelaskipinu verður beitiskip og tveir tundurspillar, en tveir aðrir tundurspillar heimsækja Saloniki samtím- is. Vera má að flugvjelaskip- ið heimsæki aðrar Miðjarðar hafsborgir í þessari æfinga- ferð sinni, áður en það fer heim, en ekkert hefur nánar verið tilkynnt um það enn, bætti flotamálaráðuneytið við. Breski ákærandmn flyfur ræSu slna Núrnberg j gærkveldi. BRESKI saksóknarinn í Núrnberg, Sir David Maxwell Fyfe, svaraði í dag, fyrstur á- kærenda fjórveldanna, varnar- ræðum þeim, sem verjendur sakborninganna hafa flutt und- anfarna daga. í ræðu sinni komst Fyfe þannig að orði, að það væri ekki ætlun bandamanna að kveða upp döm yfir allri þýsku þjóð- inni, heldur þvert á móti að vernda hana og gefa henni tæki færi til að ávinna sjer að nýju álit þjóðanna. Síam tekur aftur inntökubeiðni sína. Áður en inntökubeiðni hinna átta þjóða var tekin fyrir, hafði Síam, sem var níunda þjóðin, sem sótti um upptöku í Sam- einuðu þjóðirnar, tekið umsókn sína aftur, á þeim grundvelli, að stjórn landsins líti svo á, að fyrst yrði að útkljá deilumál hennar og Frakklandsstjórnar. Tillaga Bandaríkjanna. Johnson, fulltrúi Bandaríkj- anna í Öryggisráðinu, bar þá fram þá tillögu, að mál þeirra átta þjóða, sem enn hjeldu um- sóknum sínum til streitu, yrði afgreitt í einni heild, þ. e. a. s. að umræður færu ekki fram um upptökubeiðni hverrar ein- stakrar þjóðar. s Rússar andvígir tillögunni. Gromyko, fulltrúi Rússa, lagð ist gegn þessari tillögu. Kvað hann nauðsynlegt, að inntöku- beiðnirnar yrðu ræddar hver fyrir sig og sagðist ósammála skoðun þeirri, sem kæmi fram 1 tillögu Bandaríkjafulltrúans, að Sameinuðu þjóðunum bæri að meðhöndla umsóknirnar yfir leitt á sem líkastan hátt. Er sýnilegt var, að Gromyko mundi greiða atkvæði gegn til- lögunni, tók bandaríski full- trúinn tillöguna aftur. Nokkrar umræður urðu enn um upptökubeiðnirnar, þar sem það kom meðal annars fram, að Bretland er mótfallið upptöku Albaníu, en engin endanleg á- kvörðun var tekin um þessi mál. Kæra Ukrainu. Eins og áður hefir verið sagt, hófst fundur ráðsins að þessu sinni á því, að tekin var fyrir kæra Ukrainu á hendur Grikkj- um. Van Kleffens, fulltrúi Hollendinga, bar fram þá til- lögu, að kæran yrði tekin út af dagskrá, þar sem hún hefði við engin rök að styðjast. Sir Alexander Caddogan, fulltrúi Framh. á 2. síðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.