Morgunblaðið - 05.09.1946, Blaðsíða 1
o
Utanríkisráðherrar fjórveldanna:
ÖSAMMÁLA UM FRESTUIM ÞIIMGS UNO
Bevin í forsetaslól.
BEVIN í forsetastól. Hann er sag'ður ósmeykur um sig.
(Sjá grein á bls. 7).
Rússar vilja fresta
þinginu eða halda það
í París eða Genf
París í gærkvöldi. Einkaskeyti
til Morgunblaðsins frá Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHRRAR fjórveldanna komu saman á
fund í dag til þess að ræða um það, hvort fresta skyldi
þingi Sameinuðu þjóðanna, sem hefjast á í New York 23.
þ. m., ef friðarráðstefnunni í París lyki ekki fyrir þann
tima. Vyshinsky sat fundinn í forföllum Molotovs, utan-
ríkisráðherra Sovjetríkjanna, sem enn er ckominn frá
Moskva. — Vyshinsky vildi láta fresta þinginu, ef svo
bæri undir, eða þá halda það á stað, sem nær væri París
en New York. Bevin og Byrnes voru andvígir frestun-
inni. Bidault, utanríkisráðherra Frakka, hallaðist á sveif
með Vyshinsky, en lagði, ásamt Bevin og Byrnes, áherslu
á það, að um þetta gætu fjórveldin ekki ákveðið á eigin
spýtur, heldur yrðu úrslitin að byggjast á vilja meirihluta
meðlima Sameinuðu þjóðanna.
Þing UNO haldið
á tilseitum tíma
— Trygve Lie.
New York í gærkvöldi.
S TRYGVE LIE, aðalrilari
Sameinuðu þjðanna, tilkynti j
í kvöld, að þing Sameinuðu
þjóðanna myndi hefjast í
New York 23. sept.. eins og
fyrr hefði verið tilkynnt. —
Sagði hann, að Sameinuðu
þjóðunum hefðu ekki borist
neinar tillögur sem færu í
aðra átt. Þingið myndi verða
háð í byggingu heimssýn-
ingarinnar.
Lie sagði, að Truman
Bandaríkjaforseti og Paul
Henri Spaak, forseti þingsins
myndu setja þingið.
— Reuter.
Numbergdómarar
athuga dómsniður-
siöðu
Niirnberg í gærkvöldi.
MEÐLIMIR strísglæpamála-
rettarins í Nurnberg eru byrj-
aðir að athuga dómsniðurstöður
í málum nasistaleiðtoganna
þýsku og ýmissa nasistasamtaka
og stofnana. Komu þeir í dag
saman á fyrsta fund sinn í
þessu skyni. Breski dómarinn
Lawrence var í forsæti. Sókn-
ar- og varnarræðum í þessum
málum var lokið á laugardag-
inn var, og tók rjetturinn sjer
þá hlje til 23. september, til
þess að semja dómana. Reuter.
FRÁ ÞVÍ á sunnudag, er
nöfn ráðherranna í indversku
bráðabirgðastjórninni voru
tilkynnt, hafa óeirðir geisað
í Bombay. 140 menn hafa far
ist í óeirðunum, en um 600
særst. Tilkynnt var í kvöld,
að óeirðirnar væru í rjenun
og að ekki hefði komið til
bióðsúthellinga síðustu kl.st.
1100 hundruð menn hafa ver
ið teknir fastir í borginni síð
an á sunnudag.
Umferðarhann í borginni.
Fyrr í dag kom víða til
Enginn íslendingur
lenii í flugslysinu
enikla
Khöfn í gær. — Einka-
skeyti til Morgbl.
ENGINN íslendingur var í
frönsku flugvjelinni, sem fórst
í gærkvöldi nærri Kaupmanna
höfn, en þar voru átta Danir,
fimm franskir flugmenn og níu
annara þjóða menn og fórst
þetta fólk allt.
bióðsúthellinga í borginni, en
verst var þó ástandið í norð-
urhverfum borgarinnar, en
þar eru miklar bómullarverk-
smiðjur, um 70 talsins, og hef
ir 24 þeirra verið lokað. Lög-
regla og herlið urðu að grípa
til skotvopna mörgum sinn-
um. Umferðabann hefir verið
sett á borgina, að hverfum
Evróumanna undanskildum*
í óeirðunum í dag voru 12
menn drepnir, en 83 voru al-
varlega særðir, svo að flytja
varð þá í sjúkrahús.
— Reuter.
Egyplar vænfa nýs
samningslilboðs
Alexandria í gærkveldi.
SIDKI PASHA, forsætis-
ráðherra Egyptalands, Ijet
svo ummælt í Alexandriu í
dag, að hann vænti þess, að
innan skamms myndi Egypt-
um berast nýtt samningstil-
boð frá Bretum varðandi end
urskoðun bresk-egyptska sátt
málans frá 1936. Þegar blaða
mennirnir hittu forsætisráð-
herrann, var hann að koma af
fundi egyptsku fulitrúanna,
sem annast hafa samningaum
leitanir við Breta, en fyrir
hálfum* mánuði síðan höfn-
uðu þeir samningstilboði, sem
bresku fulltrúarnir höfðu sett
fram. Forsætisráðherrann
kvaðst búast við því, að ræða
við Stansgate lávarð, formann
bresku fulltrúanefndarinnar,
á sunnudaginn kemur.
— Reuter.
BEITUNEFND hefur ákveð
ið að verð á frystri beitusíld
skuli vera kr. 1,40 fyrir hvert
kíió. Er verðið miðað við að
síldin sje afhent út úr húsi
og allur kostnaður við fryst-
ingu síldarinnar innifalin í
verði þessu.
Kæra Ukrainu fyrir
■ ■
Oryggisráðinu
New York í gærkvöldi.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu
þjóðanna tók kæru Ukrainu á
hendur grísku stjórnarinnar
fyrir á fundi sínum í kvöld.
Dimitri Manuilsky, utanríkis-
ráðherra Ukrainu, og Vassili
Dendarmis, sendiherra Grikkja
í Washington, var boðið að
sitja fundinn, en hvorugur
þeirra hefir þar atkvæðisrjett.
— í fundarbyrjun las Manuil-
sky ákæruskjalið. Segir þar,
að landstjórinn í Austur-Make-
dóníu hafi undirritað leynilega
tilskipun, þar sem kom í ljós,
að breskar hersveitir hafi feng-
ið bændum í ýmsum þorpum á
þessum slóðum vopn til þess
að þeir gætu stutt stjórn lands-
ins. í Þessalíu sje við líði óald-
arflokkur konungssinna, sem
hafi breskan liðsforingja að
áðgjafa. Hafi þessir menn með-
al annars drepið kunnan blaða-
mann, Vilalis að nafni. Manu-
ilsky lagði einnig fram ýms-
ar myndir, sem hann kvað vera
af ofbeldisverkum konungs-
sinna. — (Frekari fregnir af
fundinum höfðu ekki borist er
blaðið fór í prentun).
Reuter.
■ ■ ■ m
KJÖTVERSLANIR
SPRENGDAR
London: Nýlega voru tvær
kjötverslanir í Lyons í Frakk
landi sprengdar í loft upp
með tímasprengjum. Er talið,
að þetta hafi verið gert í mót
imælaskyni við hækkað kjöt-
verð.
Vyshinsky
lagði fram á fundinum brjef
frá Du Parc, aðalritara friðar-
ráðstefnunnar. Leggur hann þar
til, að þingi Sameinuðu þjóð-
anna verði frestað, en það jafn
framt ákveðið, að friðarráð-
stefnunni í París skuli lokið í
síðasta lagi 20. október. — Du
Parc bendir á það. að 12 túlkar
og ráðunautar Sameinuðu þjóð
anna, sem nú starfa í París,
verði að fara til New York, ef
þing Sameinuðu þjóðanna eigi
að hefjast þar 23. september.
Síðar í umræðunum kvaðst
Vyshinsky geta fallist á það, að
þing Sameinuðu þjóðanna og
friðarráðstefnan störfuðu sam-
tímis, ef þingið væri haldið á
stað, sem nær væri París en
New York. Nefndi hann Genf
eða París, sem heppilegan stað
fyrir þingið.
Bevin og Byrnes lögðust báð
ir gegn því, að þingið yrði hald
ið á öðrum hvorum þessara
staða.
Meirihlutavald meðlima UNO.
Bidault, utanríkisráðh. Frakka,
kvaðst geta fallist á hvorn kost-
inn, sem væri, að þingi Samein-
uðu þjóðanna væri frestað eða
þá, að það væri haldið í Genf,
en þó að því tilskildu, að rætt
væri við alla meðlimi Samein-
uðu þjóðanna og ekkert um
þetta afráðið, nema því aðeins,
að meirihluti meðlimanna væri
því samþykkur. Bevin og Byr-
nes, sem var í forsæti á fund-
inum, voru einnig á þeirri skoð
un, að fjórverldin gætu ekkert
afráðið um frestunina á ein-
dæmi sitt, heldur bæri þeim, að
leita álits annara meðlima Sam
einuðu þjóðanna.
Framh. á 2. síðu.
140 furust, en 600
særnst í óeirðum
í Bombny