Morgunblaðið - 13.10.1946, Síða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Sunnudagur 13. október 1946
REYKJAVÍKURBRJEF er á
blaðsíðu 9.
Sex íslendingar fé
ókeypis skólavisl
í Sríþjéð
EINS OG SAGT var frá í
ágústmánuði síðastl. veitti
sænska ríkið fyrir milligöngu
Norræna fjelagsins í Svíþjóð
100 nemendum frá öllum Norð-
urlöndum ókeypis námsdvöl
við sænska lýðháskóla. Sex ís-
lenskum nemendum var nú
gefinn kostur á því að njóta
þessara kjara og hafa þau nú
verið valin og fóru í gær með
Drottningunni af stað til Sví-
þjóðar.
I frjett frá Norræna Ijelag-
inu segir á þessa leið:
Gert var að skilyrði að nem-
endurnir hefðu verið einn vet-
ur á lýðháskóla hjer á landi.
Þau sem urðu fyrir valinu eru
þessi: Aðalbjörg Sigtryggs-
dóttir frá Eiðaskóla, Ragnhild-
ur Jónssdóttir frá Reykholts-
skóla, Sólveig Árnadóttir frá
Laugaskóla, Ellert Guðmunds-
son frá Reykjaskóla, Jón Sig-
urðsson frá Laugarvatnsskóla
og Ólafur Guðbrandsson frá
Reykholtsskóla.
Nemendurnir fá alveg ókeyp-
is kenslu og skólavist ásamt
kenslubókunum, sem þeir þurfa
að nota í skólunum. Skólarnir
eru um það bil að byrja og
standa til aprílloka.
Duglas flugvjeSfn
lendir í Eyjum
HIN stóra 22 sæta landflug-
vjel Flugfjelags íslands, Dug-
las-Dakota-flugvjelin fór í gær
í fyrstu flugferð sína til Vest-
mannaeyja og settist á hinn
nýja flugvöll. Flugmenn voru
þeir Örn Johnson, framkvæmda
stjóri Flugfjelagsins og Krist-
ján Kristinsson, flugmaður.
Þeir Ijetu mjög vel yfir Vest-
mannaeyjaflugvelli. Flugfjelag
íslands mun taka upp ferðir á
þessari flugleið.
ÁTTUNDA þing Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja var
sett í fyrstu kennslustofu Há-
skólans í gær kl. 15.30.
Mættir voru 65 fulltrúar frá
20 fjelögum. í Bandalaginu eru
nú samtals 2350 meðlimir. For-
seti þingsins var kosinn Helgi
Hallgrímsson, en heiðursforseti
þess var kjörinn Ágúst Jósefs-
son, heilbrigðisfulltrúi.
Á fyrsta fundi þingsins flutti
prófessor Gunnar Thoroddsen
eríndi um rjettindi og skyldur
opinberra starfsmanna. Enn-
fremur var kosið í fastanefndir
þingsins o. fl.
Næsti fundur verður kl. 2 síð-
degis í dag á sama stað.
Rætldi um Bandariki Evrópu
Ræða Churchills, sem hann hjelt nýlega í Svxss og ræddi um
Bandaríki Evrópu sem lausn vandamálanna vakti mjög mikla
athygli. Myndin hjer að ofan var tekin þegar Churchill er
að koma til ráðhússins í Bern, þar sem hann flutti ræðuna.
Reykjavíkurbær kaupir
annan dieseltogara
BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í fyrradag, að festa
kaup á dieseltogara þeim, sem nú er verið að byggja í Bret-
landi, á vegum Nýbyggingarráðs. Þetta er því annar diesel-
togarinn sem Reykjavíkurbær festir kaup á.
Auk þessa togara hafa vefið
keyptir til bæjarins 12 eim-
knúnir togarar. Reykjavíkur-
bær var upphaflega kaupandi
að 7 þeirra, en útgerðarfjelög í
bænum fimm. Síðar seldi bær-
inn fimm hinna eimknúnu tog-
ara til útgerðarfjelaga hjer.
Reykjavíkurbær á því fjóra
togara. Tvo eimknúna og tvo
dissel. Þeirra á meðal er bv.
Ingólfur Arnarson, en hann
verður eimknúinn. Samkvæmt
byggingarsamn. verður hann
fyrstur hinna nýju togara, sem
afhentir verða, en afhendingin
á að fara fram 30. nóv. n.k.
Þykir alt benda til þess, að þann
dag fari hún fram.
Flugvjel Loffleiða
kemur fil Eyja
Frá frjettaritara vorum í
Vestm.eyjum, laugardag.
í DAG kom hingað Anson-
flugvjel Flugfjelagsins Loft-
leiðir h.f. og settist flugvjelin á
hinrí nýja flugvöll. Þeir Krist-
inn Ólsen og Hjalti Pálsson
flugu flugvjelinni. — Þeir
fjelagar buðu bæjarstjóra
bæjarstjórn og frjettamönnum
blaða og útvarps, í hringflug
yfir eyjarnar. Þeir ljetu mjög
vel yfir flugvellinum. Hjeðan
fór flugvjelin með 7 farþega.
Gætti silkisokka.
LONDON. Nýlega var vopn-
aður vötður látinn vera inni
í flugvjel einni hjer á flugvell-
inum, vegna þess hversu farm-
ur vjelarinnar var, en í henni
voru 120.000 pör af silkisokk-
um bestu tegundar.
Fjelag Vestur-íslendinga
heldur fund í Oddfellowhúsinu
n.k. miðvikudag og verða þau
María Markan og George Öst-
lund heiðursgestir á fundinum.
Allir, sem dvalist hafa vestan
hafs geta gerst fjelagar á fund-
inum. Fyrst verður sameiginleg
kaffidrykkja og síðan dans.
Skutu andstæðinginn.
LONDON. Á hernámssvæði
Bandamanna í Venezia Giulia
var einn andstæðingur Tito-
stjórnarinnar skotinn til bana
nýlega, en reynt að ræna öðr-
um. Komu hermenn í veg fyrir
! að þetta tækist.
Við getum ekki selt
Pólvérjum fleiri hross
UNRRA neiiðði að framlengja samningíim
LANDBÚNAÐARMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefir tilkynnt,
að um frekari hrossasölu íslendinga til Póllands sje ekki
að ræða. UNRRA hefir algjörlega neitað að framlengja samn-
inginn. Verða því ekki haldnir fleiri hrossamarkaðir á vegum
■ráðuneytisins á þessu hausti. í tilkynningu Landbúnaðar-
málaráðuneytisins segir svo: ______
ÞAR SEM UNNRA hefur
algerlega neitað framlengingu
á samningi um kaup á 2500
hrossum, verða ekki haldnir
fleiri hrossamarkaðir á veg-
um Landbúnaðarmálaráðu-
neytisins á þessu hausti. Þeg-
ar samningar tókust milli
UNNRA og ríkisstjórnarinnar
um sölu á 2500 hrossum, skuld
batt ríkisstjórnin sig til að af-
henda fyrsta farm minst 1700
hross þann 17. september s. 1.
Voru þá boðaðir og haldnir
markaðir á svæði, sem bænd-
ur höfðu lofað 2080 hrossum á
þeim markaðsaldri sem UNN
RA að síðustu setti skilyrði
um. Hinsvegar fengust ekki
keypt nema 1173 hross og af
þeim urðu 1153 útflutnings-
hæf, og tveim dögum áður
fær fulltrúi UNNRA hjer, fyr
irmæli frá London um að
stöðva kaup. Töldu þeir til-
gangslaust að senda annað
skip, þar sem ekki hafði feng-
ist nema 1153 hross í það
fyrsta, í stað 1700.
Þann 25. sept. gekst UNN
RA svo inn á að senda skip þ.
7. okt., en setti jafnframt það
skilyrði samkvæmt heimild í
samningi, að hrossin skyldu
hafa 10 daga hvíld í Reykja-
vík fyrir útskipun. Þetta var
óframkvæmanlegt.
Samningur var útrunninn
þann 10. október, en UNNRA
í Washington bauð skip þann
25. okt., ef UNNRA í London
vildi framlengja samninginn.
Eftir að sjómannaverkfallið
skáll á í Bandaríkjunum, sem
getur tafið skipið um ófyrir-
sjáanlegan tíma, hefur UNN
RA í London verið algerlega
ófáanlegt til að framlengja
samninginn.
NémskeiS fyrir
gæslukomir leik-
valla
SAMKV tillögum fræðslu-.
fulltrúa og garðyrkjumála-
ráðunautar Reykjavíkurbæjar,
hefir bæjarráð samþykt að
haldið verði námskeið fyrir
gæslukónur barnaleikvalla bæj
arins.
Námskeiðið mun væntanlega
verða haldið í þessum mánuði
og mun það standa yfir í viku-
tíma. Aðalnámsgreinar verða:
uppeldisfræði, hjálp í viðlögum
og leikjastarfsemi.
Flugvailarsamning-
urinn undirriiaður
Frjettatilkynning frá
utanríkisráðuney tinu:
EINS OG TILKYNNT hefir
verið nýlega í blöðunum, veitti
forseti íslands forsætis- og ut-
anríkisráðherra í ríkisráðs-
fundi, sem haldinn var mánu-
daginn 7. þ. m., heimild til þess
f. h. ríkisstjórnarinnar, að gera
samning við Bandaríki Amer-
íku um niðurfelling hervernd-
arsamningsins frá 1941 o. fl.
samkv. þingsályktunartillögu
um sama efni og samþykt var
á Alþingi laugardaginn 5. októ-
ber 1946.
Samkvæmt fjeðri heimild hef
ir umræddur samningur verið
gerður við ríkisstjórn Banda-
ríkjanna.
VON ER á ungverskum fiðlu
leikara, ungfrú Ibalyka Zilzer,
hingað til bæjarins í dag. Kem-
ur hún hingað á vegum Hljóð-
færaverslunarinnar Drangey og
ætlar að halda hjer hljómleika.
Fyrstu hljómleikarnir verða x
Gamla Bíó n.k. miðvikudag kl.
7,15.
I Lesbókin í dag 1
LESBÓKIN í dag hefst |
i á grein eftir Árna Óla um |
i vistheimilið Reykjalund, 3
! sem nú er mikið talað um. 3
= 3
i Þá ritar Sigurður Bjarna- 1
I son alþm. um heimsókn í |
i nokkrum hafnarborgum |
i Frakklands, er verst urðu |
i úti þegar bandamenn hófu |
i þar landgöngu sína og |
i brutu niður „Atlantshafs- i!
i vegginn“. Þá er grein eftir ii
i norskan mann um loft- |
i árás á Bergen fyrir tveim- I
i ur árum. Allar þessar |
{ greinar eru með myndum. |
{ A. J. Joh'nsen skrifar um |
{ flugferðir í sumar fram og |
{ aftur milli Reyðarfjarðar 3
{ og Reykjavíkur. Þá er |
{ kafli úr brjefi frá Birni |
i Jónssyni ritstjóra ísafold- |
{ ar. Enn er grein um starf- |
{ semi Þjóðabandalagsins |
{ gamla, sem ekki getur dá- |
5 ið, þótt það hafi verið lagt §j
{ niður. Kvæði er eftir 3
{ Kjartan Ólafsson, smá- |
{ greinar o. fl. |
i I
aiiiiiiitiiiKUKtimiMMiaiiiikiUMiiciiiiiciimtiiirniiMiimB