Morgunblaðið - 16.10.1946, Qupperneq 2
I
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. okt. 1946 1
Einlægur áhugi íyrir
íslandsmálum í Noregi
„UM ÞVERAN og endi-
langan Noreg ríkir mikill
áhugi fyrir Islandi“, segir
Gunnar Akselson, sem ný-
lega er kominn eftir að hafa
dvalið sunaarlangt í Noregi.
Hann var íþróttafrjettarit-
ari fyrir Morgunblaðið í
Noregi í sumar. Gunnar
kynti sjer íþróttamál og
var óþreytandi að tala máli
íslenskra íþróttamanna og
aðstoðaði þá íslenska íþrótta
menn, er til Noregs komu
með ráðum og dáð.
Heimsóknir frá Islandi.
Um heimsóknir íslendinga til
Noregs í sumar er leið, segir
Gunnar Akselson á þessa leið:
„Fyrst kom karlakórinn í maí
mánuði. Það ríkti almennur
' áhugi fyrir kórnum, en því
„ miður hafði koma hans ekki
verið auglýst nógu vel, því það
voru margir, sem ekki höfðu
hugmynd um að ‘ kórinn væri
kominn til Oslo.
Síðan komu K. R.-ingarnir.
Jeg skal viðurkennaa, að jeg
hafði gert það sem jeg gat til
að hæla þeim í hvers manns
eyra, en það varð enginn fyrir
'vonbrigðum hvað þá snerti,
hvorki sem leikfimismenn, eða
menn. Þeir urðu hvers manns
hugljúfi og það eru engar.ýkj-
ur þó jeg segi, að bæði Oslo
Turnforening og starfsfólkið í
Holmenkollen, Turisthotel, þar
sem þeir bjuggu, sögðu að
skemtilegri þilta höfðu þeir
ekki fyrir hitt. Menn sögðu að
þeir væru góðir fulltrúar ís-
lands.
Loks komu þátttakendurnir
í Evrópumeistaramótinu. — Þá
varð heldur enginn fyrir von-
brigð^m. Það er ekki of mikið
sagt, að þeir hafi verið vinsæl-
asti hópurinií á Samestad. Lott
urnar yoru hrifnar líka, en það
er annað mál. Árangur Finn-
björns í 100 m hlaupinu kom
á ó.vart. Já, þeir stóðu sig allir
vel piltarnir. Það var ekki að
eins Gunnar Huseby með gull-
peninginn sinn og Finnbjörn,
með bronsepeninginn, heldur
allir upp til hópa. Það var ekki
dónalegt að vera íslendingur í
Oslo í sumar. Það fannst okk-
u/- áhorfendunum að minnsta
kosti.
Nýr leikur.
„Hefir þú heyrt um nýja
leikinn, sem strákarnir í Oslo
ljeku?“, segir Gunnar Aksel-
son.
„Það var emn góðan veður-
dag að jeg var á gangi í Oslo
og sá jeg smádrengi, svona 5—
8 ára, sem voru að leika sjer
þar í skemtigarði. Einn þeirra
stóð með stóran sein og mynd-
aði sig til að kasta honum með
sveigjum og pati. Jeg spurði
hann hvaða leikur þetta væri.
Hann sagði að þeir væru að
leika Huseby, Hvað er það,
spurði jeg. „Hann er stór og
stcrkur íslendingur, sem kast-
ar kúlu og varð meistari, og
hann gerði svona“, sagði $á
litli, óg beygði sig og sveigði
og kastaði steininum.
Vaiifar íslenskan fulltrúa.
„Og þá má minnast á sendi-
menn
herramálið", segir Akselson. —
Það er enginn íslenskur sendi-
herra í Oslo og enginn ræðis-
maður. Enginn staður, sem Is-
lendingar geta snúið sjer til ef
þeir þurfa á aðstoð að halda.
,.Dag nokkurn, sem jeg kom
í gistihúsið mitt, sagði dyra-
vörðurinn, að komin væri ís-
lensk stúlka þangað, en hún
ætti bágt með að gera sig skilj-
anlega á Norðurlandamáli. Þeir
hefðu reynt ensku, þýsku og
frönsku, en ekkert stoðaði. —
Jeg var svo heppinn að geta
komið henni í samband við ís-
lenska konu og hjálpa henni til
að finna skólann, sem hún ætl-
aði í og koma peningamálum
hennar í lag í gegnum bankann.
Þannig gengur það til.
Nú ætlar ísiendingafjelagið í
Oslo að reyna að gera eitthvað
til að aðstoða íslendínga, sem
koma til-Oslo, eins og Morgun-
blaðið hefir þegar skýrt frá.
Má vænta heimsókn frá Noregi.
„Það má vænta margra heim
sókna til íslands frá Noregi á
næstunni. Jeg hjelt nokkra fyr
irlestra urti Island og sýndi í-
þróttakvikmynd frá Islandi. *—
Því miður hafði jeg ekki góða
landlagskvikmynd með. Það
ríkir geisimikill áhugi fyrir ís-
landi í Noregi og jeg er viss um
að jeg hefði fengið nóg að gera
þar í allan vetur við að halda
fyrirlestra um ísland.
Knattspyrnufjelagið Lyn í
Oslo, sem nú er Noregsmeistari
vill koma til íslands og leika
hjer knattspyrnu, enn fremur
úrval frá Oslo fjelögunum. —
Norska landsliðið ætlar að leika
hjer að sumri, einhVern tíma á
tímabilinu frá7. til 20. júlí. —
Það var ákveðið í samráði við
Bened. Waage og Guðjón Ein-
arsson. Jeg er með kveðju til
þeirra og allt er í lagi.
Við þetta geta svo bæst sund
menn og venjulegir ferðamenn.
Búist við Islendingum á Holm-
enkollen.
Norðmenn vonast til að ís-
lendingar komi og taki þátt í
Holmenkollenmótinu 1 vetur.
Skíðasambandið ætlar að út-
vega piltunum skála til að búa
í fyrir norðan Oslo —^Norður-
mörk. Þeir ættu að dvelja þar
í tvær vikur og æfa sig. — Að
þessu sinni verður slalom-
kepni í sambandi við Holmen-
kollen mótið. Vinir vorir Rog-
stad og Torvö gætu verið full-
trúar og aðstoðarmenn okkar
manna og þá fer alt vel.
Eirik Eylands, sem stundar
nám í Osló, hefur haldið fyrir-
lestur um ísland í Tekniska
skólanum í Oslo, sem vakti
mikla aíhygli.
Undir okkur komið.
Að lokum segir Gunnar Ak-
selson: -
’,Það er algerlega undir okk-
ur sjálfum komið hvort við lát
um Norðmenn kynnast okkur
betur og okkur er það að kenna
ef okkur finst þeir viti of lítið
um okkur. Norsku blöðin vilja
gjarna birta greinar írá íslandi
og frjettir af okkur. Það er bara
að nöta sjer það“.
NOKKRU FYRIR mið-
nætti í fyrrinótt varð bílslys
austur við Kotströnd í Fióa.
Bifreið er í voru fimm menn
hvolfdi á veginum o^ einn
farþeganna, Einar Sigurðsson
nemandi við garðyrkjuskól-
ann í Hveragerði stórslasað-
ist. Hann var fluttur hingað
til Reykjavíkur í sjúkrabif-
reið og lagður inn í Lands-
spítalann. Líðan hans var
slæm í gærkvöldi er. blaðið
spurðist fyrir um hann.
Bíllinn var hjeðan úr
Reykjavík, R- 2403. Þeir voru
að koma að austan og voru
komnir á bugðu sem er á
veginum, er slysið varð. Mað-
ur sá er ók bílnum er sagður
hafa mist alla stjórn á bílnum,
er hann kom inn á ný ofaní-
borinn sand á veginum. Við
það hvolfdi bílnum og fór
hann heila veltu á miðjum
veginum. Hlaut Einar S. Sig-
urðsson þá mikinn skurð á
höfuð og annar handleggur
brotnaði.
Einar er hjeðan úr Reykja-
vík. Hann á heima að Mið-
túni 22.
Englandsförunum
fagnað
í GÆRKVÖLDI hafði Knatt-
spyrnuráð Reykjavíkur kaffi-
boð fyrir Knattspyrnumennina,
'sem eru nýkomnir heim úr
Englandsförinni. Jón Þórðarson
form. Knattspyrnuráðs bauð
knattspyrnumennina og aðra
gesti velkomna, en síðan flutti
Sigurjón Jónsson, sem var full-
trúi K.R.R. í förinni, ferðasögu
mjög ýtarlega og kom vel 1 Ijós
í henni, að förin hafði orðið
okkar mönnum bæði til gagns
og skemtunar. Síðan tóku ýms-
ir til máls, þar á meðal Ben.
G. Waage, forseti ÍSÍ., sem til-
kynti að ÍSÍ myndi sæma Eng-
landsfarana sjerstökum heið-
ursmerkjum. Auk hans töluðu
margir og voru allir á einu
máli um að herða nú átökin til
að fá grasvelli.
LONDON: — Tíu breskir
tundurduflaslæðarar hafa byrj
að að hreinsa burtu stórt tund-
urduflasvæði, sem er út- af
ströndum Devon á Englandi og
nær allt að írlandsströndum.
Timburhús við Spítalastíg
sem er 4 íbúðir og stórt verkstæðipláss, með
einnri íbúð lausri, nú þegar, er til sölu.
Upplýsingar gefur
Ídaíduin ^jjónóóon lidi.
Vesturgötu 17 — Sími 5545
5 herbergja íbúð
1 nýju húsi, sem tilbúin er til íbúðar, nú þegar
og 3ja herbergja íbúðir í nýju húsi, sem tilbún-
ar verða til íbúðar nálægt áramótum, eru til
sölu. — Upplýsingar gefur
idaÍduin J/ónóóon
Vesturgötu 17 — Sími 5545
Ut
M.s. Hugrún
sem fer n.k, fimtudag til Sauðárkróks og Siglu
fjarðar, getur tekið viðbótarfarm þangað.
Vörumóttaka á fimtudag.
dddiýjúó CjLiÍjinnóóon
Sími 5220.
Tilkynning til bóksala
Jeg undirritaður leyfi mjer að tilkynna að jeg
hefi umboð fyrir Norska bókaútgáfufjelagið
(Den norske Forleggerforening). Ennfremur
.fyrir norsk vikublöð og tímarit, og get jeg því
útvegað allar norskar bækur og blöð.
GUNNAR AKSELSON,
sími 5968, Þingholtsstræti 24, Reykjavík.
>
< >
ii Tveggja herbergja íbúð
í Austurbænum til sölu.
Nánari upplýsingar gefur
Málaflutningsskrifstofa
EINARS B. GUÐMUNDSSONAR og
GUÐLAUGS ÞORLÁKSSONAR,
Austurstræti 7, símar: 2002 og 3202.
Frá og með deginum í dag 16/10 verður síma-
númer bankans
7060
í stað 1060
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS II.F.
í*1 ■■■■■»■■■■*iYhiirt irrVV111h»lnrr ? T■ * ■ an miinm ? 7 ■■ ■■•■»Élfí lVti 11 i~il«■■ i~ii lfl ■ i*TS« im■■ T