Morgunblaðið - 16.10.1946, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.10.1946, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. okt. 1946 MOKGUIÍBLAÐIÐ 7 Norræna Blaðamannamótið í Stokkhólmi 29. sept. ’46 ÞESSAR línur byrja jeg um borð á Esju þeirra Gotlendinga. Hún er að vísu talsvert minni en Esjan okkar og svo heitir skipið „Gotland“ og er nýjasta og besta skipið; sem heldur uppi samgöngum milli sögueyj - unnar í Eystrasalti og megin- landsins, alveg sama hlutverk og Esjan hefir þegar hún fær að sigla milli sögueyjunnar í Atlantshafi og sama megin- lands. Þetta er síðasti dagur í röð margra lærdómsríkra og skemti legra daga, sem þátttakendur 8. norræna blaðamannamótsins hafa lifað í Stokkhólmi og Vis- by, síðan á mánudaginn var. Og eftir stutta stund lendum við í Nyneshamn og ökum þaðan til Stokkhólms og þarmeð er mótinu slitið og hver fer heim til sín í kvöld, við hjónin þó ekki lengra en til okkar gamla og góða Nesbyen í Hallingdal. Eiginlega byrja jeg fullseint á ferðabrjefinu og glompótt verður það áreiðanlega, en jeg hefi mjer það til afsökunar, að aldrei hefir verið tómstund til að skrifa, því að áskipað hefir verið allan daginn, frá morgni og fram á nótt, alvarlegu störf- in fyrri partinn og gleðskapur og veislur og leiksýningar á kvöldin. Sænska móttökunefndin hef- ir ekki legið á liði sínu að gera gestunum dvölina bæði gagn- lega og ánægjulega og hafa margar hendur verið þar að verki, en þó fyrst og fremst hendur þeirra dr. Ivars Ander- sons, aðalritstjóra við Svenska Dagbladet og Svens Sandstedts ritstjóra við sama blað, voru formaður og ritari sænsku undirbúningsnefndarinnar, og frúnna Márta Anderson, konu formannsins, og Margit Siwertz ritstjóra þess sænska blaðs, sem mest er keypt á íslandi, nfl. Vecko Journalen. Þessar tvær frúr höfðu formensku „dam- komitée“ og sýndu konum fund arbændanna öll ríki Stokk- hólms og þeirra dýrð meðan bændurnir sátu á fundunum fram eftir degi. Þátttaka íslendinga. Þess hafði verið vænst að á þessu móti yrði meiri þátttaka af íslendinga hálfu en á nokkru öðru móti þessarar tegundar, því að ritstjórum allra fimm dagblaðanna í Reykjavík hafði verið boðið til kynnisfarar til Svíþjóðar um þessar mundir af sænska utanríkisráðuneytinu og ætluðu að sitja mótið um leið. Einnig var væntanlegur Jón Magnússon frjettastjóri útvarps ins, sem mun vera eini íslenski blaðamaðurinn sem kann sænsku til hlítar og hefði orðið íslensku þátttakendunum ómet anleg hjálparhella í öllum sænskum siðalögmálum, sem svo miki§ er talað um. Við, þeir sem mættum á mótinu, urðum þess að vísu ekki varir, að þessi siðalögmál í umgengni væru neitt öðruvísi en annara Norð- urlandaþjóða. Framkoma allra sem við hittum var.svo látlaus og blátt áfram, að höfum við verið feimnir og hljedrægir fyr Bréf til Morgunblaðsins frá Skúla Skúlasyni ir, þá hvarf það fljótt og við urðum bráðlega eins og við vær um heima hjá okkur. Þetta var okkur mikil stoð. því að alveg óforvarandi urðum við Þórar- inn að hlaupa í skarðið fyrir Valtý Stefánsson og Jón Magn- ússon, fem formaður og ritari Islandsnefndarinnar. Jeg fjekk bæði hjartslátt og heilahristing þegar jeg var beðinn um að taka þátt í útvarpsþætti með hinum sendinefndunum í stað Valtýs, en huggaði mig við að jeg losnaði við framhaldið og að mótorinn í flugvjelinni þarna heima í Reykjavík kæm- ist í gang. Jeg hefi að vísu reynt það stundum hjer ytra, að maður á aldrei að púkka upp á flugvjel ef maður þarf að flýta sjer, en þar sem Hafn- arflugvjel Flugfjelags íslands hefir haldið áætlun jafn ágæt- lega í allt sumar og raun ber vitni, bjóst maður ekki við þessari töf úr þeirri átt. alritstjóri Polltiken. Hann drap fyrst á, að ekki yrði með rjettu sagt að blöð Norðurlanda hefðu fallið fyrir þeirri freistingu að leggja áherslu á gífurtíðindi eða gaspursfrjettir til þess að auka kaupendafjölda sinn. Hann ræddi og um nauðsyn þess að Norðurlandablöðin tæku upp samvinnu um að gera sig óháðari hinum stóru frjettastofum stórveldanna en nú er, þannig að blöðin „sæi heimsviðburðina með norræn- um augum“, í stað þess að hlíta lýsingum friettaritara, sem engan skilning hafa á viðhorfi Norðurlandabúa. Næstur hon- um talaði finnski fulltrúinn Yrjo Kaarne og snerist mál hans einkum um frelsi blað- anna samfara ábyrgð þeirri sem blaðaútgáfu fylgdi. (Framhald). ! Blöðin og þjóðfjelagið. Svo rann upp fyrsti fundar- dagurinn,- þriðjudagur. Aðal- fulltrúarnir voru enn ekki komnir og nú stóð hnífurinn í kúnni, því að Valtýr átti að tala af Islands hálfu á þessum hátíðlega byrjunarfundi, þar sem krónprinsinn og Eugen prins og málari sátu í öndvegi og landshöfðingjar, prófessor- ar, þingmenn og foringjar stjórnmálaflokkanna votu á hverju strái. Dr. Ivar Ander- son bauð gestina velkomna en Olav Larssen ritstjóri Abbeiter bladet í Osló og formaður norska blaðamannafjelagsins þakkaði. Stór hljómsveit Ijek bæði á undan og eftir ræðun- um, þ. á. meðal „Festspel“ Hugo Alfvén og sambreyskju norrænna laga. Það var deild úr hljómsveit ..Konsertfören- ingen“ sem ljek, undir stjórn John Hylbom. Síðan var gengið til dag- skrár og tekið fyrir fyrsta mál, sem var „Blöðin og þjóðfjelag- ið“. Dr. Ivan Anderson hjelt gagnmerkt inngangserindi um hlutverk blaðanna og drap sjer staklega á það að blöðin yrðu jafnan að vera á verði um það, að sorpblöð næðu ekki að þríf- ast. Gat hann í því sambandi á ónefnt- sænskt blað, sem hefði sett blett á sænsk blöð með frá- sögnum sinum af kynferðisglæp um og öðru liku, á þann hátt að spillandi væri fyrir lesend- urna. Aðalinntakið í ræðu dr. Andersens var það, að hverri þjóð væri áríðandi að hefja blöðin á hærra stig, en til þess þyrftu blöðin að sinna fyrst og fremst öllum málum, sem til menningarauka horfðu og um- fram állt leggja stund á sann- sögli. Kvað hann sænsk blöð að jafnaði vera sannorðari í frjetta flutningi en t. d. dönsk og jafn- vel norsk. Með norrænum augum. Þá tók til máls Hasager, að- vegna verðíags- mála London í gærkvöldi. TRUMAN Bandaríkjafor- seti flutti ræðu um verðlags- mál í dag og var ákaflega harðorður í garð ýmsra manna, sem hann bar á brýn gróðafýkn og skort á fjelags- lyndi. Sagði forsetinn að menn þessir hugsuðu ekkert um meðbræður sína, heldur aðeins um að raka saman fje. Forsetinn sagði að þessir menn hefðu altaf reynt að grafa undan verðlagseftirlit- inu í Bandaríkjunum, bæði til þess að hagnast á því fjár- munalega og stjórnmálalega. Kvað hann þetta sömu menn- ina, sem hefðu fjandskapast mest við Roosevelt forseta og framfaraáform hans, sem þeir hefðu altaf litið illu auga. Talið er að fulltrúar Re- publikana muni svara forset- anum í útvarpi. Verðlagseft- irlitið með kjöti í Bandaríkj- unum hefir nú verið afnumið. Fyiirskipaði bar- smíðar og hp- inoar London í gærkvöldi. TILKYNT hefir verið af her- málaráðhejTa Breta, að saka- mál verði höfðað á hendur breskum liðsforingja einum, sem stjórnaði herliði í Burma á stríðsárunum. Er liðsforingi þessi ákærður fyrir að hafa lát ið hýða og berja með svipum ýmsa af undirmönnum sínum og látið fremja refsingar, sem ekki eru leyfðar innan breska hersins. Ákæran er talin mjög alvar- leg. —Reuter. NY 8II\IANUI\IEN í vörugeymslum Eimskipafjelagsins. Framvegis verðúr beint símasamband í öll vörugeymsluhús vor og eru hin nýju síma- númer þessi: 7756 Afgreiðsian í Haga .7757 Aigreiðslan í Hafnarhúsinu 7758 Vöruskálinn á eysfri hafnar- bakkanum 7759 Gamla pakkhúsið uppi (skrif- slolan). 7760 Gamia pakkhúsið. Afgreiðsi- an niðri. 7761 Afgreiðslan á Þormóðssföðum Afgreiðslan í Dverg hefir nr. 1923 áfram eins * og verið hefir. VERZLUNAR HÚ8NÆÐI í nýju húsi í Vesturbænum til sölu. Nánari upplýsingar gefur Málaflutningsskrifstofa EINARS B. GUÐMUNDSSONAR og GUÐLAUGS ÞORLÁKSSONAR, Austurstræti 7, símar: 2002 og 3202. Hvaleyrarsandur Frá og með 16. þ.m. breytist verð á honum sem ■ hjer segir, til Reykjavíkur í kr. 6.00 og hlut- * : fallslega eins til annara staðá. : ' SANDHAFAR j Húseignin Laufásvegur 79 er til sölu. Tilboð óskast. Upplýsingar gefur HÖRÐUR ÓLAFSSON, lögfræðingur Austurstræti 14, sími 7663.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.