Morgunblaðið - 12.11.1946, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIÐ; Faxaflói:
Vestan og NV-gola. Skýjað.
Þriðjudagur 12. nóvember 1946
Þing Albýðusam-
bandsins var seK
á sunnudag
NÍTJÁNDA þing Alþýðu-
sambands íslands var sett á
sunnudag í samkomusal
Mjólkurstöðvarinnar.
Hermann Guðmundsson
forseti þess setti þingið með
ræðu.
Á þessu ári- er sambandið
30 ára og í tilefni af því bauð
það fulltrúum frá Norðurlönd
um. Við setningu þingsins
voru mættir Lind ritstjóri frá
Verkalýðssambandi Svíþjóð-
ar og Alfred Skar, ritstjóri frá
V erkal ýðssambandi Noregs.
Báðir tóku þeir til máls að
iokinni þingsetningu, en
hljómsveit Ijek þjóðsöngva
þessara landa. Fulltrúar frá
Danmörk og Færeyjum eru
ekki enn mættir. Þá ávörpuðu
þingfulltrúa þeir Guðjón B.
Baldvinsson formaður Starfs
mannafjelags ríkis og bæja,
Lúter Grímsson frá Far-
manna og Fiskimannasam-
bandi íslands og Sigurður
Guðgeirsson frá Iðnnemasam
bandi íslands.
Forseti þingsins var kosinn
Þóroddur Guðmundsson.
Hann fjekk 131 atkv Hannibal
Valdimarsson fjekk 84. Fyrsti
varaforseti Guðgeir Jónsson
og annar Steingrímur Aðal-
steinsson.
Þing þetta sitja 230 fulltrú
ar, af 240 kosnum, frá 123 sam
bandsfjelögum. Þetta er fjöl-
mennasta þing í sögu Alþýðu-
sambandsins.
iasssexfef! Feafher-
stonehaugh leikur
í kvöld
JASS-SEXTETT Buddy
Featherstonehaugh kom hing
að til bæjarins fiugleiðis frá
Prestwick um tvöleytið í gær,
en þar höfðu hljóðfæraleikar-
ernir verið veðurteptir í fjóra
daga. — Blaðamenn hittu
hljóðfæraleikarana að Hótel
Winston í gær. í sextettinum
eru, auk Featherstonehaugh,
sem leikur á tenórsaxafón,
þessir menn: Moss (trompet),
Frazer (guitar),.Race (píanó)
Seymour (kontrabassi) og
Lcfts (tromma). Fyrstu hljóm
Jeikar sextettsins verða í
Gamia Bíó í kv'öld. Ekki er
víst, að sextettinn geti leikið
hjer oftar en tvisvar eða þrisv
ar sinnum. Á hijómleikunum
í kvöld verða leikin sautján
lög, en breytt, efnisskrá verð-
ui á síðari hljómleikum sex-
tettsins. — Sextettinn Ijek
nokkur lög fyrir blaðamenn-
ina, og voru menn á einu máli
tim það, að leikur hans væri
með ágætum. Mun óhætt að
fullyrða, aö betri jazzhljóm-
sveit hefur ekki látið til sín
heyra hjer í Reykjavík.
Gecrg Grikkjakonungur snýr heim
Georg Grikkjakonungur sjest hjer í skipsbátnum á leið til
lands, er hann kom heim til Grikklands eftir landflóttann á
styrjaldarárunum. Konungurinn er í dökkum einkennisfötum.
Danski fiðluieikarinn
Tworek kominn til
/>
Islands
DANSKI fiðlusnillingurinn Wandy Tworek kom hingað til
landsins í gærdag loftleiðis og hjelt fyrstu hljómleika sína í
Gamla Bíó í gærkvöldi; I för með honum er kona hans og
enn fremur Ester Vagning, sem aðstoðar hans við hljóm-
leikana.
Gert hafði verið ráð fyrir að
Tworek kæmi hingað fyrr, en
flugvjelin tafðist í þrjá sólar-
hringa í Prestwich
hjer voru í gærkvöldi eins og
fyrr segir, en þeir næstu verða
á miðvikudagskvöld.
Byrjaði þriggja ára.
Tworek er 33 ára að aldri.
Hann byrjaði þriggja ára gam-
all að leika á fiðlu og þegar
harin var 14 ára var hann far-
inn að leika í veitingahúsum.
Hann stundaði nám hjá hinum
þekta Max Schluter. Á stríðs-
árunum hjelt hann marga
hljómleika í Danmörku og ferð-
aðist um landið. Einnig hefir
hann haldið hljómleika víðar
og leikið inn á plötur og í
kvikmyndum.
Hjelt hljómleika með utanfar-
arkórnum.
Tv/orek hjelt ^ina hljómleika
með utanfararkór Sambands ís-
lenskra karlakóra 1 sumar. —
Kvaðst hann þá hafa sannfærst
um að íselndingar væru mjög
músíkalskir. Einnig hefir hann
komið fram í hljómleikum með
Elsu Sigfúss og Stefán íslandi.
Hcfir stutta viðdvöl.
Skipaskoðunarsfjéri
kominn !i! Horna-
íjarðar
SKIPASKOÐUNARSTJÓRI
og menn hans fóru í gær með
flugvjel til Hornafjarðar, til
þess að rannsaka að fullu flak
ms. Borgey.
Ekki var blaðinu kunnugt
um hvenær þeir myndu koma
til baka, en það mun ekki verða
fyr en þeir hafa gengið úr
skugga um aít er máli þessu
viðkemur þar eystra.
Skartgripir herloga-
hjénanna af Wind-
Tworek kvaðst hafa hlakkað I Rio De Jaaeiro í gærkvöldi
mjög til þessarar íslandsferðar. ! OPINBERLEGA er tilkvnt
Hingað hefir hann ekki komið ,í Árgentínu, að mikið af skart
fyrr, en heyrt mikið um iand- 1 gripum hafi nýlega fundist í
ið. Sjerstaklega langar hann farangri manns nokkurs af
mikið til þess að sjá heitu hver- jítölskum ættum, sem kom
ina. jflugleiðis frá Rómaboi'g til
Tworek hefir aðeins stutta j Argentínu. Er talið líklegt, að
viðdvöl hjer að þessu sinni. — þetta sje að minsta kosti hluti
Hann fer hjeðan aftur 20. þ. m. j af skartgripum þeim, sem ný-
þar sem ákveðið hefir verið, að (lega var stolið frá hertoga-
hann haldi hljómleika ytra 25. hjónunum af Windsor,, c-r þau
nóv. — Fyrstu hljómleikar hans |voru á ferð í Englandi. Reuter
75 þátttakendur í
Sundmóti Ármanns
Keppl verður í 11 greimim
FYRSTA SUNDMÓT vetrarins — Sundmót Ármanns — fei'
fram í Sundhöllinni annað kvöld. Skráðir til keppninnar em
75 þátttakendur frá sjö iþróttafjelögum. Ármann sendir 29,
Ægir 20, KR 17, ÍR 5, Umf. Ölfusinga 2 og Umf. Laugdæla og
Hjeraðssamband Þingeyinga einn hvort. Alls verður kept í 11
greinum.
303 stig
Vísitalan
KAUPLAGSNEFND og Hag-
stofan hafa reiknað út vísitölu
nóvembermánaðar og reyndist
hún vera 303 stig, eða einu
stigi hærri en sl. mánuð.Hækk-
unin stafar af verðhækkun á
strásykri, fatnaði o. fl.
Hjótt brennasl í eldi
SNEMMA á sunnudagsmorg-
un, vaknaði Axel Þorsteinsson,
Bjargarstíg 3, kjallaranum, við
að svefnherbergi hans var al-
elda. Hann vakti konu sína og
fjögur börn, hið yngsta sex ára
og bjargaði þeim út. Við þetta
brendist hann á hægri hendi.
Þegar kona hans frú Aðal-
heiður Ingimundardóttir var
komin út, hjelt hun eitt barn
sitt enn vera inni. Fór hún inn
í húsið og brendist við það á
öxl og fótum. Þá var búið að
bjarga barninu.
Slökkviliðsmenn sem komu
fljótlega á vettvang slökktu
eldinn á skömmum tíma og
urðu skemdir ekki mjög miklar.
Slökkviliðsmenn fluttu hjónin í
Landsspítalann. en þar var gert
að brunasárunum.
Skemfisatnkoma
ungra Sjálfstæðis-
manna í Rangár-
vallasýsiu
„FJÖLNIR“, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna í Rangár-
vallasýslu hjelt skemtisam-
komu í samkomuhúsi. Holta-
manna s.l. laugardag.
Jón Pálmason, forseti sam-
einaðs Alþingis og Ingólfur
Jónsson, alþingismaður fluttu
ræður. Lárus Ingólfsson, leik-
ari söng gamanvísur og Vig-
fús Sigurgeirsson sýnid ís-
lenskar kvikmyndir í eðlileg-
um litum, hvorutveggja við
mikla hrifningu fundarmanna
Að lokum var svo dansað
fram eftir nóttu. Á skemtun-
inni voru um fjögur hundruð
rnanns og skemti fólk sjer hið
besta.
^ Meðal keppenda verða marg
ir bestu suridmenn og sund-
konur landsins. Skplu hjer að-
eins nokkrir nefnáir; Ari Guð
mundsson, Æ, keppir í 400 m.
skriðsundi. Áslaug Stefánsi
dóttir, UMFL, og Anna Ólafs-
dóttir Á, berjast enn um sig-
urinn í 100 m. bringusundi
kvenna og sennilega einnig Is-
landsmetið. Halld. Bachmann,
Æ, Guðmundur Ingólfsson ÍRi
Ólafur jGuðmundsson, ÍR, og
Iæifur Eiríksson, KR, keppa
allir í 100 m. baksundi karla.
Meðal keppenda í 100 m,
bringusundi karla eru gömlu
keppinautarnir Sigurður Jóns
son, Þingeyingur og nafni
h'ans úr KR og ennfremur Atli
Steinarsson, ÍR.
Tvö mjög skemtileg boð-
sund eru meðal keppnisgreina
Það eru 4x50 m. boðsuncl
kvenna (bringusund) og 8x50
m. boðsund karla. í kvenna-
boðsundinu keppa þrjár sveit
ir, tvær frá Ármanni og ein
frá Ægi. í karlaboðsundinu
eru einnig þrjár sveitir, ein
frá Ármanni, ein frá Kr. ogí
ein frá Ægi.
Fjöldi landa þarfn-
asf enn matvæla-
sendinga
Washington í gærkvöldi.
L.A. GUARDIA, forstjóri
ITNNRA, hefur farið fram á
það við bandalag sameinuðu
þjóðanna, að stofnaður verðí
sjerstakur sjóður, að upphæð
100 miljón sterlingspund, til
að koma í staðinn fvrir
UNRRA, er sú stofnun verður
lögð niður um áramótin.
La Guardia heldur því fram
að skorturinn næsta vor verðí
engu minni en hann vár fyrir
ári síðan,
—"—- - - ....——•"—,•*,
i
i
I
í
I
Sijóriunáianámskeii j
Heimdallar
STJÓRNMÁLANÁM-
SKEIÐ Ileimdallar heldur
áfram í dag í Sjálfstæðis-
húsinu.
Málfundur verður frá kl.
17,15 og stendur til kl. 19.
*