Morgunblaðið - 06.12.1946, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.12.1946, Blaðsíða 9
Föstudagur 6. des. 1946 MORGTJNBLAÐIÐ 9 GEÐSHRÆRIIMG GETUR DREPIÐ ÁRIÐ 1940 fórust 40.000 manns í bifreiðaslysum í Bandaríkjunum, 1.500.000 slösuðust, 1,000,000 bíla skemmdust. Sjerfræðingar í umferðamálum spá því, að útkoman í ár verði jafnvel yerri. Þó er vitað, að 98% af bifreiðastjórum þeim, sem lentu í dauðaslysum, voru vanir akstri. Hvað var það þá, sem kom þeim til þess, að fara yfir lögboðinn öku- hraða, fara fram úr bílum á hæðum og beygjum, skipta sjer ekki af ljósmerkjum, stela rjettinum eðaleika sjer að lífi sínu og annara á ann- an hátt? Dr. Herbert J. Stack, yfir- maður öryggisfræðsludeild- ar New York University, hyggur, að hættulegur akstur eigi ósjaldan rót sína að rekja til geðshræringar bif reiðast j órans. — Maður, sem er í mikilli geðshrær- ingu — hefur orðið hrædd- ur, reiður eða hryggur — er hættulegur, þegar hann er við stýrið. Sálfræðingar ganga jafn- vel skrefi lengra. Þeir líta svo á, að margir bifreiða- stjórar verði fyrir slysum, sökum þess að þeir óafvit- andi æski þess: „slysin“ eru í raun og veru óvitandi til- raunir til sjálfsmorðs eða manndráps. Sorg. Frú W. sem jafnan ók sjer staklega varlega og hafði aldrei orðið fyrir óhappi, keyrði til borgarinnar dag nokkurn, til þess að tala við lögfræðing sinn um skilnað. Þegar hún fór frá honum, var hún grátandi og í mjög æstu skapi. Á leiðinni heim, þurfti hún að aka yfir járn- brautarteina. Hún hafði far- ið þessa sömu leið oft áður. Hún vissi hvenær lestarinn- ar var von; járnbrautartein- arnir voru á opnu svæði. — Lestarstjórinn gaf aðvörun- armerki, og þó ók frú W. beint í veg fyrir lestina. Á síðustu stundu gerði hún til raun til að bjarga sjer, en um seinan, og járnbrautar- lestin ók yfir hana í einni svipan. Sorgin er hættuleg- ur bifreiðafarþegi. Reiði. Reiður bílstjóri er heimsk- ur bílstjóri. — Gregorv L. reifst morgun nokkurn við konuna sína. Þegar hann fór út, skellti hann útidvrahurð inni, stökk upp í bíl sinn og þaut út úr hliðargötunni — beint á hliðina á vörubíl. — Árangur: 415 dollara kostn- aður og viku rúmlega. Þetta hefði getað kostað hann líf- ið. Hann var góður bílstjóri, veðrið var ágætt, og hann vissi, að trjáveggur skvggði fyrir útsýnið, þegar hann ók Reiði, sorg, ótti, jafnvel gleði getur haft alvarleg slys í för með sér út úr hliðargötunni. Og þó þeyttist hann á bíl sínum út á götuna, til að sanna reiði sína. Ef hann hefði jafnað sig í fimm mínútur, mundi þetta slys ekki hafa hent hann. Þreyta. Bert P. fór sunnudag einn í bíltúr ásamt konu sinni og dóttur. Er þau óku til baka hæðarinnar, ók hann út úr til borgarinnar, var þjóðveg röðinni, með það í huga, að urinn yfirfullur af bílum og reyna að komast inn í opið Bert var heitt og hann var , fyrir framan. Hann komst þreyttur. Framundan sjer rjett nógu langt til að verða sá hann örlítið op í hinni á milli vörubíls og bílsins, löngu röð bíla, sem voru á sem hann var að revna að leiðinni upp hæð nokkra — fara fram úr. Hann og dótt- Enda þótt Bert gæti ekki ir hans dóu á svipstundu, sjeð, hvort annar bíll væri kona hans meiddist hættu- að koma upp hinn enda lega. Hræðsla. Læknir Philips K., sagði honum á mánudegi, að hann hefði krabbamein. Á þriðju- degi lenti hann á bifreiða- slysi. Á fimmtudegi varð hann fyrir tveimur til við- bótar. Hann hafði aldrei áð- ur orðið fyrir óhappi. — Úr- skurður læknisins hafði hrætt hann svo, að hann var óhæfur til aksturs. Gleði. Erfiðara er að ímynda sjer að gleði geti verið hættuleg (Framh. á bls. 12). SAMKOMUSALURINN, þar sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er haldið. Hann er í byggingu í Flushing, New York, sem reist var fyrir heimssýninguna 1939. Vandamál á allsherjarþingi S. Þ. MARGVÍSLEG vandamál híða úrlausnar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, sem nú situr í New York og sem íslend- ingar hafa nýlega gerst aðilar að. — Mörg þessara vandamála hafa áður verið á dagskrá bæði í öryggisráðinu og friðar- ráðstefnunni. Veltur á miklu fyrir heimsfriðinn, að úr þessum málum rætist á hinn besta hátt. FLÓTTAMENN: Miljónir Evrópubúa eru heimilislausir, eins og Berlínarbúarnir á myndinni hjer að ofan. Það er erfitt mál viðureignar. FRANCO: Fulltrúar samein- NEITUNARVALDIÐ: Rætt verður á þingimi uðu þjóðanna eru ekki sammála hvort rjett sje, að stórveldin noti sjer neit- um hvað þeir eigi að gera við unarvaldið á líkan hátt og Rússar er rætt Franco-Spán. , var um Iran, og Gromyko stökk af fundi. PALESTÍNA: Framtíð landsins er mikið vandamál. Bæði SETULIÐIN: Rússar hafa krafist upplýsinga um setuliðs- Arabar og Gyðingar gera kröfu til landsins. Myndin er af styrk bandamanna. Rússar halda því hinsvegar leyndu hvað Gyðingaflóttamönnum í fangabúðum á Cyprus. mikið setulið þeir hafa erlendis,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.