Morgunblaðið - 24.12.1946, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.12.1946, Qupperneq 5
Þriðjudagur 24. des. 1946 MORGUNBLAÐIÐ 5 STÓRHÁTÍÐ í STAMFORD BRIDGE JEG hafði alltaf haft mikla löngun til að sjá knattspyrnu- kappleik á einum af hinum stóru knattspyrnuvöllum Lund- úna, sem rúma frá 60 til 100 þúsundir áhorfenda. Eftir allt það, sem vinur minn Freddie Steele, sem .hjer var í sumar þjálfari hjá K. R, hafði sagt mjer um meðspilara sína í hinU fræga knattspyrnuf jelagi Stoke City, gat jeg ekki hugsað mjer neitt fullkomnara en að fá að sjá Steele keppa með fjelög- um sínum gegn öðru álíka sterku liði. _ ' g Þessa ósk mína fekk jeg upp fylta, er mjer ásamt konu minni var boðið að sjá Stoke City _ leika á móti hinu fræga fjelagi ’ Chelsea á velli þess síðarnefnda * „Stamford Bridge“ í London þ. 12. okt. s.l. Jeg hitti Stoke spilarana kvöldið fyrir kappleikinn rjett í svip, er þeir komu til London . og bjuggu í Imperialhótelinu,"*ist ó^Um ^ götunum og áður EFTIR BJÖRGVIN SCHRAM íslensku knattspyrnumennirnir í Hampton Court í London en j því sama og íslenski knatt- spyrnuflokkurinn bjó í sællar minningar. Mjer fanst þessir Stoke piltar eiginlega allir vera kunningjar mínir og jeg gat nefnt þá flesta með nafni, bæði af lýsingu Freddie og af mynd- um er jeg hafði sjeð af þeim. Þetta voru vissulega frískir og' gerfilegir menn, yfirleitt mjög ungir, kurteisir og blátt áfram bæði í framkomu og klæða- burði. Ekki var hægt að merkja að hjer væri á ferð það knatt- spyrnulið, sem mótherjum stæði meiri stuggur af en e. t. v. nokkru öðru knattspyrnuliði í öllu Englandi í dag. — Stoke piltarnir höfðu sem sje unnið undanfarna 6 kappleiki og sum af þeim liðum er látið höfðu í minni pokann fyrir þeim voru ekki af lakari endanum. Og það sem meira er, næstum alla þessa leiki hafði Stoke unnið án „stjörnunnar" miklu Stan- ley Mathews, en það er nú önn- ur saga. Er jeg ávarpaði Ant- onio, hægri innframherja á þá leið að lið þeirra hlyti að vera mjög sterkt, þá sagði hann brós andi: „Já, lið okkar spilar lag- lega og Freddie hefir hepnast vel að skora mörk fyrir okkur það sem af er“. En sleppum þessu og skreppum „út á völl“ — Stamford Bridgé — heim- kynni sjálfs Chelsea fjelagsins, sem er eitt af elstu og frægustu atvinnu knattspyrnufjelögum í Bretlandi, þar sem hinn mikli bardagi á að hefjast í dag kl. 3,15. Hinn gestrisni og voldugi fram kvæmdastjóri enska knatt- spyrnusambandsins Mr. S. F. Rous, hefir sjeð fyrir öllu. Hann sækir okkur hjónin á hótelið í einkabifreið og ekið er af stað til Starrfford Bridge. Er við nálgumst völlinn, þar sem leik- ur dagsins verður háður, þreng Tíminn líður óðum, 15 mín: varir virðist gatan alveg lokuð, ' eftir þar til leikurinn hefst. því manngrúinn er svo þjettur, Stúkusætin kringum okkur eru að mjer virðast engin tök á því nú öll setin. miðunum hefir að komast í gegn. Hjer er lÖg-j verið lokað því 70 þús. manna regluþjónn og sendir alla bíla eru komnir inn og meira er ekki burt úr þessari aðalæð til vall- leyfilegt. Tugir þúsunda bíða arins, en sjá! okkar bifreið fær (vonsviknir fyrir utan. Þetta er að halda áfram og meira en það, leikur dagsins og hvergi í öllu lögregluþjónn blæs í flautu og Englandi er fleira fólk saman gefur fjöldanum merki um að komið á einum stað heldur en á víkja til hliðar. Og við ökum Stamford Bridge í dag. Menn greitt áfram í gegnum mann- j lesa leikskrána. Tvær breyt- hafið. Já, enska ,,K.R.R.“ er ingar eru tilkyntar í Chelsea voldugt. Merki þess var fram-j liðinu, en engin hjá Stoke. — an á bifreiðinni og þar sem því j Ekki einu sinni Mathews tekinn merki var beitt, eru allar dyr ' inn í liðið. „Hann kvað vera opnar. Sjerstakt einkabílahlið veikur ennþá“, segir einhver. er opnað og við ökum svo að „Nei, hann er alveg frískur, þeir segja inn að „stúku“. Enn eru vilja ekki hafa hann með“, seg- 45 mín. uns leikurinn hefst. Jeg hafði einmitt óskað eftir koma snemma, til þess að sjá allan aðdraganda að þessum mikla kappleik. Okkur er vís- að til sætið á besta stað í „stúk- unni“ og nú virði jeg fyrir mjer útsýnið. Fyrst verður mjer star sýnt á sjálfan völlinn, þennan yndislega, dökkgræna, renni-1 sljetta og dásamlega vel hirta grasflöt, með nettu, fallegu, hvítu mörkunum. Hinar stór- kostlegu yfirbyggingar yfir á- horfendasætin og stæðin á þrjá vegu við völlinn, þar sem koma má fyrir mannfjölda, sem er meira en helmingur allra Is- lendinga.Sætin umhverfis okk- ur eru flest auð ennþá, því þetta eru sjerstök, frátekin sæti, svo eigendur þeirra þurfa ekki að flýta sjer af ótta við að kom- ast ekki að. Gaman er að sitja hjer og horfa á hinn endalausa straum áhorfenda, er þyrpist inn um hin ótalmörgu hlið. — Lúðrasveit, 40 manna leikur út á vellinum, hin fjörugustu lög. af miklum krafti. Særðir her- menn eru bornir inn eða þeim ekið í sjúkrastólum fram fyrir fremstu röð áhorfenda. ir annar. Það er erfitt að gera breytingu á liði, sem hefir unn- 1 ið sex leiki í röð. Jeg hugsa með sjálfum mjer, hann getur varla verið neinn meðalmaður þessi piltur á hægra kanti, sem held- ur sjálfum Mathews, mesta knattspyrnumanni heimsins, út úr liðinu. Gaman verður að sjá hann, piltinn þann. Skyndilega kemur hrevfing á þessa 70 þúsund kolla og eins og þrumuhljóð heyrist frá mann fjöldanum — hvað er að ske — jú, Chelsea liðið, í bláum peys- um og hvítum buxum hleypur inn á völlinn og að markinu til vinstri. Rjett á eftir kemur Stoke City liðið í rauð-hvít röndóttu peysunum. Sjerkenni legt finst mjer altaf hlaupalag atvinnuknattspyrnumanna, ær þeir koma inn á völlinn. Það er eins og þeir nenni þessu alls ekki, þeir hlykkjast einhvern- veginn áfram — allir í öxlun- um og virðast varla geta krept knjen. Eins þegar þeir spyrna á mark fyrir leikinn, hver mað- ur minst eina spyrnu, þá er eins og þeir geri þetta með „hang- andi hendi“, en ekki af áhuga. Þeir vilja „afslappa“ sig sem mest og engri orku eyða fyr en út í alvöruna kemur. Dómarinn flautar og fyrirliðarnir koma til móts við hann á miðjum velli, eins og venja er til. Chelsea vinnur hlutkestið og leikur und an vindi. Freddie Steel stillir knettinum upp og síðan hefst þessi kappleikur, sem jeg mun ■jafnan minnast sem þess <Já- samlegasta ér jeg hefi sjeð á íþróttasviðinu. Mjer finst jeg gæti skrifað heila bók um kapp leikinn óg þó veit jeg ekki hvað jeg á helst að draga út og segja frá í blaðagrein. Spyrnurnar eru í fyrstu, að mjer virðist lítið eitt óvissar, en það fgr fljótt af og knött- urinn er sendur með ofsahraða, ýmist stutt til næsta manns eða langt yfir eða framhjá mót herjunum og ávallt í áttina ill ákveðins manns, sem að vísu ekki altaf tekst að ná knett inum, því mótherjinn hefir sjeð hvað gera átti og sókn er óðara snúið í gagnsókn., Jeg en sem dáleiddur. Hjer er einmitt verið að sýnda mjer knattspyrnu leikna á þann full komna hátt sem mig hefir oft dreymt um að ætti að leika hana, en sem jeg hefi ávalt efast um að væri hægt, eða að mjer mundi nokkru sinni auðn ast að sjá. Það er einkum Stoke City liðið, sem sýnir þessa list. Stoke hefir glæsilegt knatt- spyrnulið. Hvergi veila — hvergi stjarna — alt samstiltir fjelagar, sem þekkja getu hvers annars til hlítar. Eins og órjúf- * anleg keðja, þar sem allir hlekk ir eru jafn öruggir. Chelsea- liðið, með sinn glæsilega Tommy Lawton, sem skínandi stjörnu, er líka fyrsta flokks, en munurinn er sá, að þar sjást veilur á stöku stað. Keðjan brest ur við og við. Chelsea hefir ekki 11 knattspyrnumenn „af guðs náð“, eins og mjer virðist Stoke hafa. Jeg spyr sjálfan mig hvað sje nú mest áberandi við leik þessara snillinga. Hvers vegna eru þeir komnir svo miklu lengra í íþróttinni en t. d. piltarnir heima. Mjer finst erfitt að segja um hvað sje mest áberandi. Jeg held að hinn geysi legi hraði í ieiknum stingi mest í stúf við okkar spil, ásamt hinu mikla jafnvægi og öruggu knatt meðferð, hversu mikill sem hraðinn er. Þegar um það er talað hversvegna þessir menn sjeu komnir svona langt i íþrótt inni, þá þarf í fyrsta lagi að hafa það hugfast, að í lið sem þessi komast alls ekki aðrir að en þeir, sem hafa sjerstakt knatt spyrnu „upplag“. Menn, sem þegar í æsku sýna að þeir eru fæddir knattspyrnumenn, eins og við gætum orðað það. Hjá okkur heima er, vegna fámenn is, vitanlega miklu minna um Slík efni, og verðum við því að notast við marga menn, sem hafa sára lítið knattspyrnu „upplag“ og geta því aldrei orð ið afreksmenn í knattspyrn- unni. Þessir piltar sem hjer keppa í dag, hafa fæstir geyt nokkuð annað um æfina, en að iðka knattspyrnu og um margra ára skeið undir handleiðslu hinna færustu kennara, við hin bestu skilyrði, sem völ er á. Og verkin sýná merkin. Þeir eru í fullkominni þjálfun. Geta haVl ið út þetta látlausa strit kapp- leikinn á enda. Hraðinn ér mikill. Knattmeðferðin full- komin hjá flestum. Skilningur- inn á skipulagi sóknar og varn ar er hinn ágætasti. Skotfifhi og staðsetning ásamt öllum öðr um vandamálum kepninnar er þeim í blóð borið. Þeir lifa og hrærast í íþróttinni. Þegar öll þessi atriði eru gerð ljós, þá munu menn skilja hversvegna okkar knattspyrnumenn fara halloka í samanburði við þessa atvinnu-knattspyrnumenn. En snúum okkur aftur að leiknum. Eftir hálftíma leik ætti útkoman að vera Stoke 3, Chelsea 1, en mörkin eru 1:1. Steele skallar inn fyrsta mark- ið fyrir Stoke. Hann fær stuttu síðar"|ott tækifæri til að skora, en markmaðurinn hleypur út úr markinu og kastar sjer á knött- inn. Og enn fær Stoke upplagt tækifæri sem ekki notast. — Stoke er í sífeldri sókn. En nú kemst Lawton í færi og þá er ekki að sökum að spyrja —• mark 1:1. Eldsnögg upphlaup stöðvast á hinum snjöllu varn- arspilurum á víxl. Áberandi finst mjer hvernig hliðarfram- verðirnir byggja upp hverja sóknartilraunina af annari. —• Fulkomnari upþhlaup, en þáu sem hjer sjást hjá báðum, ,er vart hægt að hugsa sjer. Hváð eftir annað er farið með knött- Framh. á bls. 13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.