Morgunblaðið - 12.02.1947, Page 10

Morgunblaðið - 12.02.1947, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 12. febr. 1947 GRÍPTU ÚLFINN cHeólie (^Larterió * Að jarðarmiðju Eftir EDGAR RICE BURROGHS. j v 83. Allt í einu skaust ófreskjan inn í herbergi, sem var hægra megin við jarðgöngin, og ér jeg þaut á eftir henni augnabliki seinna, stóð jeg skyndilega auglitis til auglitis við tvo Mahara. Sá, sem fyrir hafði verið í herberginu, hafði verið að vinna eitthvað við nokkra málmgeyma, en í þeim voru alskonar vökvar, sem að því er virtist, hafði verið helt úr langri röð af flöskum, sem stóðu þarna á fcekk. Jeg sá strax, hvað jeg hafði rekist á. Þetta var hvorki meira nje minna en herbergið, sem Perry hafði sagt mjer hvar væri. Þetta var neðanjarðarklefinn, sem í var geymt hið mikla leyndarmál Mahara. Og á bekknum við hlið flaskanna lá hin skinnbundna bók, sem í var skráð það, sem jeg hafði átt að finna, eftir að hafa drepið Maharana þrjá. Engar dyr aðrar voru á herberginu en þær, sem jeg nú stóð í andspænis hinum hryllilegu skriðdýrs-ófreskj- um. Jeg vissi það, að er þær komust að raun um það, að þær væru innikróaðar, mundu þær berjast eins og viltir djöflar, og þær voru vel búnar undir þann bardaga, ef hjá honum yrði ekki komist. Þær rjeðust þegar í samein- ingu gegn mjer, og enda þótt mjer tækist að reka sverð mitt í gegnum aðra, tókst hinni að koma tönnunum í hægri handlegg minn fyrir ofan olnboga og reyndi síðan með klóm sínum að rífa mig á hol. Jeg vissi, að vonlaust var fyrir mig að reyna að losa handlegg minn úr kjafti ó- freskjunnar, en mjer fannst eins og handleggurinn væri að rifna af mjer. Þjáningar mínar voru ægilegar, en þetta hafði aftur þau áhrif, að jeg beitti nú öllu afli mínu til að sigrast á andstæðingi mínum. Við hentumst fram og aftur um gólf herbergisins —• Maharinn lamdi mig heljarhöggi með framfótum sínum, en jeg reyndi að verja mig með vinstri hendinni, um leið og jeg beið eftir því, að fá tækifæri til að koma sverðinu yfir í þá hendi, enda var hægri handleggur minn nú orð- inn algerlega gagnlaus. Loks tókst mjer þetta og beitti svo síðustu kröftum mínum til að reka sverðið í gegnum hinn ógeðslega líkama óvinar míns. Skriðdýrs-ófreskjan dó jafn hljóðlega og hún hafði bar- ist, og enda þótt jeg væri orðinn máttvana af kvölum og blóðmissi, var jeg gripinn sigurvímu, er jeg steig yfir 32. dagur Þau lögðust nú bæði niður á skörina og lýstu niður. Þarna var hyldýpi og ljósgeislinn náði ekki botni, Efst sáu þau hring hleðstu og var grænt slím á steinunum. Hjer var sýnilega gamall brunnur. Orace tók eina tómu flöskuna og ljet hana detta niður. Það leið löng stund þangað til þau heyrðu eins og skvamp er hún kom niður. — Um hundrað fet, tautaði Orace. — Helgi, kallaði Patricia niður í djúpið. — Helgi. Ekkert svar nema bergmál niðri í myrkrinu. — Mr. Templar — það er Orace, sem talar, grenjaði Or- ace eins hátt og hann gat. en það var aðeins hans eigin rödd, sem svaraði honum neðan úr djúpinu. Patricia fól andlitið í hönd- um sjer. — Ó, guð minn góður — Helgi, Helgi, — elskan mín. Ó, guð, bjargaðu honum. Svo leit hún á Orace. — Eruð þjer viss um að hann hafi farið hingað? Eruð þjer viss um að hann hafi hrapað hjer niður — að hartn hafi ekki orðið fyrir skotinu? Orace hafði verið að r.thuga gættina. Hann sá að stórt stykki hafði verið sagað úr gólfinu með stingsög, þannig, að örlítil höft höfðu verið eftir skilin, og þau gátu ekki bor- ið þunga manns. Það var lika auðsjeð. að þau höfðu brotn- að undan þunga. í sárinu fann Orace nokkrar trefjar af blá- um fötum. — Þarna kemur það, sagði hann. Hann hefir verið að at- huga herbergið .... En þjer skuluð ekki æðrast, ungfrú góð, hann hefir altaf verið sá hepn asti maður, sem til er. Ef til vill er þetta hrekkur hans, til þess að láta úlfinn halda að hann sje dauður, svo að hann geti betur náð sjer niðri á hon um. Það var ekki Orace að kenna að henni fanst þetta ótrúlegt. Hann tók utan um hana og studdi hana út úr herberginu. — Eitt er vist, sagði hann, að það eru engir úlfsmenn hjerna núna. Þeir mundu hafa heyrt til okkar og komið blað- skellandi. — Gætum við ekki náð í kaðal og sigið niður í brunn- inn, sagði hún með ekka. — Jeg skal senda menn úr þorpinu hingað, sagði hann. En það er ekkert hægt að gera fyrir hann ef hann er þarna niðri — hann er þá frá fyrir mörgum klukkustundum--------- Hún hallaðist upp að veggn um með lokuð augu, en tárin streymdu niður kinnar hennar. Orace reyndi að hugga hana en tókst það hálf klaufalega. Og hún heyrði ekki orð af því, sem hann sagði. Helgi frá? Það var eins og nístingskuldi færi um hjarta hennar. Þetta var hræðileg til- hugsun. Gat það verið að þetta hefði átt fyrir honum að liggja að deyja þarna einn og yfirgef inn, drukna í brunni eins og rotta? Hann hefði getað haldið sjer lengi uppi í vatninu, en hann hefði svarað þeim, ef hann hefði komið lifandi nið- ur. Líklega hafði hann rotast í fallinu .... Alt í einu var eins og hún vaknaði af svefni. Hún rjetti úr sjer og það var eins og orkustraumur færi um hana alla. Þetta hafði úlfurinn gert. Hann hafði tælt Helga út í dauðann. Og Patricia sór þess dýran eið að hún skyldi ekki unna sjer neinnar hvíldar fyr en hún hefði komið fram hefnd um á hendur úlfinum. — Komið þjer ungfrú, s^ði Orace. Þetta er ekki vonlaust — við vitum ekki hvort hann hefir fallið þarna niður. Við skulum koma heim og svo skul uð þjer hvíla yður á meðan jeg rannsaka þetta betur. Jeg lofa því að koma heim undir eins og jeg verð einhvers var. — Nei. Hún þeytti þessu eina orði út úr sjer með brennandi ein- beitni. — Það er ekkert hægt að gera, maldgði Orace í móinn. — Jú, nú er nóg að gera, mælti hún og lagði hönd á öxl hans. Nú verðum við tvö að taka við þar sem hann hætti. Á okkur hvílir sú skylda. Og hann hefði viljað það — honum hefði ekki verið það að skapi að við legðum árar í bát, sett- umst grátandi að heima og ljet um úlfinn sleppa. Ef 'hann hef ir fórnað lífi sínu fyrir það að reyna að grípa úlfinn, þá meg um við ekki bregðast honum. Orace, viljið þjer ekki hjálpa mjer? Hann hikaði við andartak. En svo varp hann öndinni ljetti lega eiris og þungu fargi væri af honum Ijett. — Jú, sagði hann. Jeg skil yður Patricia. Við megum ekki láta úlfinn sleppa. Við megum ekki láta það viðgangast að Mr. Templar hafi fórnað lífi sínu til einskis. Og fyrst hann er nú horfinn, þá er jeg liðsmaður yðar. En væri ekki best að við byrjuðum á því að segja Corn frá því hvernig komið er? Hann er leynilögreglumaður eftir því sem Templar sagði mjer, og hann er að reyna að ná í úlfinn. — Jú, það er best, en þá skul um við flýta okkur. Þau flýttu sjer nú til baka og fóru í gegn um þorpið. Þeg- ar þau komu heim til Corns var þar niðamyrkur. Patricia hringdi dyrabjöllunni í ákafa, alt að því eina mínútu, en eng- inn svaraði. Þau heyrðu þó taka undir í öllu húsinu af glaumnum í bjöllunni. — Hann er ekki heima, sagði hún mæðulega. Þá var eins og Orace áttaði sig. — Vel á minst, sagði hann. Hann kom til mín í dag til þess að vara Mr. Templar við því, að úlfurinn ætlaði að koma okkur báðum fyrir kattarnef í kvöld. Og svo sá jeg að hann fór í vagni áleiðis til Ilfra- combe. Hann er með eitthvert ráðabrugg. En hvað skyldi hann hafa verið að gera til Ilfracombe? —- Ef hann hefir komist á snoðir um hvað er á seiði, sagði Patricia, þá hefir hann auðvitað farið þangað til þess að ná í aðstoðarmenn. Hann hefir sennilega komist að því að skipið kemur inn í nótt, og þá má búast við því að hann komi bráðum. — Þetta er líklega hverju orði sannara, sagði Orace. En þó getum við ekki treyst á það. Hún beit á vörina. — Það er líka alveg satt, sagði hún. Við verður að ráða ráðum okkar eins og hann sje hvergi nærri. Ef hann kemur þá er það gott. Og satt að segja væri mjer það kærara að hitta úlfinn á undan Mr. Corn. Orace var alveg hissa á því hvað hún var einbeitt. Eftir því sem hann hafði haldið, þá voru konur ekki svona. En það var svo sem auðsjeð og auð- heyrt á henni Patriciu að hún var vel til foringja fallin. Og hann sá að ekki var um annað að gera en fara í einu og öllu eftir því sem hún vildi. — Við verðum að bíða þang- að til skipið kemur inn að sækja gullið, sagði hún. Jeg held því að það sje rjettast að við förum heim í Hjallinn og fáum okkur kvöldverð. Okkur veitir víst ekki af því að vera sem best undir búin. Hún húgsaði nú ekki um ann að en þá viðureign, sem þau áttu fyrir höndum. Hún hugs- aði ekki um það að gráta Helga, heldur hefna hans, og koma fram fyrirætlunum hans. En til þess að geta það varð hún að harka af sjer og hugsa ekk- ert um það hve hættulegt þetta fyrirtæki var. Það var nógur tími til að gráta þegar þessu öllu væri lokið á einn eða ann- an veg. Og þó hún hætti lífi sínu var ekki að horfa í það. Hún varð að taka að sjer for- ystuna í þessu áhugamáli Helga. — Við verðum að fá lið- styrk, sagði hún blátt áfram og kuldalega. Liðsmunur er of mikill fyrir okkur tvö. Jeg ætla að fara til Mf. Lamos- Coper. Hann er eini maðurinn hjer, sem jeg get treyst. — Hann, sagði Orace undr- andi. Sá bölvaður apaköttur. — Jeg veit að hann er ekki jafn heimskur og hann læt- ur, sagði hún. Og hann verður okkur áreiðanlega að góðu liði. Þau voru nú komin að húsi Bloems og sáu einvern svart- an skugga skjótast meðfram limgirðingunni. Orace brá þeg ar upp ljósi og þá sáu þau áð þarna var pnginn annar en Algy sjálfur. — Nei, eruð þjer hjerna Pat? sagði hann. Mjer fanst jeg þekkja röddina í yður. Hann varð hissa á því hvað hún var alvarleg og hvað hún tók- fast í hendina á honum. — Jeg var einmitt að leita að yður, sagði hún. Korrlið með okkur upp í Hjallinn. Við ætl- um að fá okkur þar kvöldverð og ræða hernaðarleyndarmál. — Ha-a-a? sagði Algy. — Við skulum flýta okkur, sagði hún. Jeg skal útskýra þetta alt fyrir yður þegar þar að kemur. Sæljón í jólafríi Eitt af sæljónunum í dýra- garðinum í London stökk yfir hið 75 cm. háa grindverk út úr búri sínu um jólin. Var það pollur einn mikill, sem freist- aði þess svo mjög. Erfiðlega gekk að ná því, en loks tókst það. Var hægt að tæla það inn í stóran kassa, sem í var mikið af feitum og sællegum fiskum. ★ Rakari einn í Buenos Aires hefur tekið upp nýja aðferð á rakarastofu sinni til þess að flýta fyrir afgreiðslu. Þegar viðskiptavinur kemur inn í stofuna er það næsti/ maður á undan honum, sem sápar hann. Svo sápar hann þann, sem kemur þar á eftir. Viðskipta- vinunum finst þetta gaman og raksturinn verður ódýrari. ★ Amerískur sjerfræðingur, dr. Strauss, heldur því fram að mikil neysla af upphituðu kaffi geti haft æðasjúkdóma í för með sjer. Blóðþrýstingur- inn verði of hár og þess vegna geti það orðið til þess að menn eldist mikið fyrr en ella. ★ — Þú ert of ungur til þess að verða hengdur og of gamall til þess að vera hýddur, sagði dómari einn í Jerúsalem við 17 ára dreng, sem tekið hafði þátt í vopnaðri árás óaldar- flokksins Irgun Zwai Leumi Hann var dæmdur í æfilangt fangelsi. ★ Missir frú Roosevelt ökurjettindin? Álitið er að komi geti til mála, að frú Roosevelt missi ökurjettindi sín. Það var í ágúst, að frúin ók yfir hvítu línuna, sem er á miðjum veg- inum og skilur akbrautirnar. Hún segir svo frá sjálf, að sól- in hafi blindað hana, en sjón- arvottar fullyrða, að hin fyrr- verandi forsetafrú hafi sofið við stýrið. Málið er álitið all- alvarlegt fyrir frúna. ★ Skrifstofumaðurinn: — Þjer verðið að afsaka, herra for- stjóri, en konan mín skipaði mjer að tala um það við yður, hvort jeg gæti ekki fengið ein hverja kauphækkun. • Forstjórinn: — Tja, við skulum sjá til. Jeg verð að spyrja konuna mína hvort það sje hægt. /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.