Morgunblaðið - 12.02.1947, Síða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
ÞRAUTSEIGJAN er einkunar
Austan gola eða kaidi.
Ljettskýjað.
Isfiskur fyrir
1,2 milj.
DAGANA 3. til 7. febrúar
seldu 6 togarar ísfiskafla sinn
í Bretlandi. Samtals var landað
úr þeim 16986 kit og samanlagt
verð er fyrir fiskinn fjekkst
voru kr. 1.229.021.00.
Skallagrímur frá Reykjavík
er aflar og söluhæsta skipaana
með rúm» 3300 kit er seldust
fyrir tæp 10 þú*. sterlingspund.
Laagsta salan er fyrir rúm 6200
sterlingspund.
í Fleetwood seldu Skinfaxi
2360 kit fyrir 6700 sterlings-
pund og Gyllir 2954 kit fyrir
8588 pund. Forseti seldi í Hull
2840 kit fyrir 8435 pund. í
Grimsy seldu Kópanes 2135 kit
fyrir 6240 pund, Skallagrímur
3326 kit fyrir 9920 pund- og
Tryggvi Gamli '2371 kit fyrir
7224 pund.
Skpasfervjsl A8A
kemur 23. þ. m.
FYRSTA skymastervjel ABA
flugfjelagsins er væntanleg
hingað 23. ]Dessa mánaðar. Flug-
vjelin kemur frá Svíþjóð, fer
um Stavanger of endastöð henn
ar er hjer á Reykjavíkurflug-
vellinum.
ABA mun hafa í hyggju að
halda uppi föstum flugferðum
milli Svíþjóðar og Islands tvisv
ar í mánuði. Vjelin, sem kemur
23., fer a-ftur daginn eftir.
Laugarneskirkja
sækir um styrk ti!
bæjarins
SÓKNARNEFND Laugarnes
sóknar hefur farið þess á leit
við bæjarráð, að bærinn veiti
100 þúsund króna styrk til
byggingar kirkjunnar svo og
ábyrgð bæjarins fyrir 100 þús.
kr. láni til byggingarinnar.
Sóknarnefnd hefur þegar
lagt alt það fje er hún hafði
milli handa til byggingárinn-
ar, en það munu vera um 600
þúsund krónur.
Kirkjubyggingin er nú full-
gerð að utan, en að innan hafa
veggir verið undirbúnir fyrir
málningu. Alt annað, innrjett-
ing, lýsing og upphitun vantar
ásarnt fieiru.
Eins ög nú standa sakir, tel-
ur sóknarnefnd sig þurfa á alt
að 200 þús. kr., til þess að full
gera kirkjuna.
Olerrænafjetaglð
heldur skemfitund
NORRÆNAFJELAGIÐ efnir
til skemtifundar í Sjálfstæðis-
húsinu n.k. fimtudag. T. And-
erssen Rysst, sendiherra Norð-
manna flytur ræðu, Helgi Hjör
var heldur fyrirlestur um Vige-
landssafnið í Oslo og sýnir
skuggamyndir og Birgir Hall-
dórsson syngur með undirleik
Páls Isólfssonar. Að lokum verð
ur svo dansað. I
Miðvikudagur 12. febrúar 1947
orð Finna. — Grein á bls. 7. —
Sfærsfi togari flotans
Vaidimar Bjömsson
B.v. Gylfi, frá Patreksfirði, sem kom hingað í gær frá Englandi.
Ljósmynd þessa tók Friðþjófur Jóhannesson framkvæmdarstjóri
er hann tók á rnóti skipi sínu á ytri höfninni í gærmorgun.
rúmlega
af físki
Skipið kostar rúmar 2 milj. kr.
farinn úr flofanum
VALDIMAR BJÖRNSSON,
sem hjer var sjóliðsforingi
styrjaldarárin, er nú farinn úr
flotanum fyrir nokkru og hef-
ur tekið við blaðamenskustörf
um á ný.
Hann skrifar ritstjórnar-
greinar fyrir blaðið St. Paul
Pioneer Press & Dispatch og
talar auk þess í útvarp KSTD-
stöðvarinnar, þrisvar til fjór-
um sinnum í viku og flytur
Norðurlandafrjettir einu sinni
í viku í WCAL-útvarpsstöðina
í Minneapolis, en þá útvarps-
stöð á St. Olav College.
A föstudaginn var hjelt
hann ræðu í Goðablóti Chica-
go-íslendinga og hann mun
flytja aðalræðuna á Þjóðrækn-
isþinginu, sem hefst í Winni-
peg 25. þ. m. Auk þessa hefur
hann flutt fyrirlestra um ís-
land í fjölda mörgum íjelögum
vestra síðan hann kom heim.
Vegna fjölda fyrirspurna til
Morgunblaðsins um heimilis-
fang Valdimars skal þes? get-
ið, að utanáskrift hans :er:
2914 Dorman Ávenue, Minne-
polis, Minnesota.
KOLAVANDRÆÐUNUM í
bænum hefir verið afstýrt í bili.
Á sunnudag kom hingað kola-
skip frá Póllandi með um 4500
smálestir af kolum sem fara í
kolaverslanir hjer í bæ. Þá
munu nokkur, kolaskip hlaða
vestur í Ameríku upp úr miðj-
um mánuði.
Pólsku kolin eru sögð vera
ágæt,-og kosta 230 krónur tonn.
ið. En svo sem kunnugt er hækk
uðu kol nýlega í verði, eðr úr
180 krónum í 230 krónur tonn-
ið. Þau eru keypt á vegum Kol
& Salt h.f. og falla ekki undir
samning þann er ríkisstjf rnin
gerði um kolakaup við pólsku
stjórnina.
Kolin sem keypt hafa verið
í Ameríku koma hingað með
þrem skipum. Fyrsta þeirra er
600 smál. skip og hleður uni
17. þ. m. Annað á tímabilinu
20.—28. febr. og hið þriðja upp
úr mánaðarmótum febr.—mars.
Qlíuporlfaifluttú!
fyrir bæ
GYLFI, stærsti togari flotans, sem kom hingað til Reykja-
víkur í gærmorgun, ber 5000 kit af hausuðum fiski, en það
svarar til rúmlega 300 smál. af fiski.
Friðþjófur O. Jóhannesson
framkvstj. h.f. Gylfa, bauð tíð-
indamanni Morgunblaðsins í
gær, að skoða skipið og skýrði
frá því helsta er máli skiftir.
Á leiðinni hingað heim var
siglt með 11%-12 mílnu hraða'.
Ferðin gekk vel enda var veð-
ur hagstætt.
Þessi gerð skipa Sunlight eru
byggð í Þýskalandi og eru þau
mjög vönduð í hvívetna. Nú eru
! kojur fyrir 30 menn, en verið
1 er að athuga möguleika á að
bæta við átta kojvim, sem nauð-
1 synlegar eru við saltfiskveiðar.
I íbúðir skipverja eru mjög vist
• legar og loftræsting er þar góð,
þær eru bæði aftur á skipinu
og frammí. Skipstjóri og loft-
skeytamaður búa í stjórnpalli,
sem er þrílyftur. I honum eru
Lofskeytaklefi kortaklefi, stýris
hús o. fl. í stýrishúsi er gott
pláss fyrir Radartæki, enda
munu eigendur skipsins hafa í
hyggju að setja slíkt tæki í
skipið. Ý
Islcndingar telja skipið ágætt.
Skipstjórinn á Gylfa, Jóhann
es Pjetursson, skýrði svo frá að
íslenskir togaraskipstj. í Grims
by hefðu góð kynni af þess-
um skipum. Hann gat í því sam
bandi Sigurðar Þórarinssonar
skipstj. í Grimsby. Hann hefir
haft skipstjórn á hendi á þess-
um Sunlight skipum og segir
þau vera hin bestu sjóskip.
Skipstjórinn gat þess einig að
þetta skip hefði verið á veiðum
í- eitt ár síðan það var full-
smíðað. Því er stríðið skall á
var varðskip við skipalestir
Breta.
Skipstjóri kvaðst vera mjög
ánægður með skipið. Allur frá-
gangur virtist vera hinn besti
og allt er að veiðiskap viðvík-
ur hefir verið endurnýjað á
hinn ákjósanlegasta hátt.
Friðþjófur O. Jóhannesson
gat þess að lokum að Gylfi
hefði kostað um 2,2 miljónir
króna. Hann þakkaði mjög af-
skipti Landsbankans og Ný-
byggingarráðs og atvinnumála-
ráðherra af málinu.
í dag fer Gylfi til Patreks-
fjarðar. Þar verður höfð stutt
viðdvöl áður en farið verður á
veiðar.
Bráðabirgðagreiðsl-
ur iramlengdar um
einn mánuð
FRAM er komið á Alþingi
frv. um framlenging laga, sem
sett voru fyrir jól, um bráða-
birgðagreiðslur á árinu 1947.
Er lagt til að lögin verði fram-
lengd um einn mánuð, eða til
1. apríl.
Fjárhagsnefnd Nd. flytúr
frv. þetta að beiðni fjármála-
ráðherra. Segir svo í greinar-
gerð:
Sökum þess, að þingstörfin
hafa tafist mjög við tilraunir
þær til stjórnarmyndunar, sem
farið hafa fram undanfarna
mánuði, er fyrirsjáanlegt, að
fjárlög verði ekki afgreidd frá
Alþingi innan þess tíma, sem
tiltekin eru í lögunum. Fyrir
því ber nauðsyn til að fram-
lengja heimild þá til bráða-
birgðagreiðslna úr ríkissjóði,
er veitt var með greindum lög-
um, og er frv. borið fram í
þeimítilgangi.
Frestun reglulega
þingsins
FRV. um að fresta samkomu-
degi reglulegs Alþingis til T.
okt. n. k. var til umræðu í gær.
Óskaði forsætisráðherra að af-
greiðslu málsins yrði hraðað, og
fór frv. umræðulaust gegnum
tvær umræður. En við þriðju
umræðu kvaddi Einar Olgeirs-
son sjer hljóðs og bað forseta
um að fresta málinu til morg-
uns. Kvað hann Sósíalistaflokk
inn þurfa að taka mál þetta til
nánari athugunar.
Ekki var kunnugt hvaða
breytingu Sósíalistaflokkurinn
vill gera á frumvai'pinu. Málinu
var síðan frestað, en verður
væntanlega á dagskrá aftur í
dag.
Önnur mál voru tekin af dag-
skrá.
ALLAR bensín- og olíubirgð-
ir sem voru í birgðaskemmum
Hins ísl. steinolíuhlutafje!ags,
við Amtmann^stíg og veslir á
Melum, hafa verið fluttar á,
brott.
Menn kann enn að reka rainni
til þess, að nokkur styr stc ð um
þessi oliuport þegar bri'ninn
mikli varð við Amtmann stíg.
Þá ýtrekaði-slökkviliðsstjó n þá
ósk sína að allar slíkar geymsl-
ur yrðu fluttar út fyrir bæ
Fyrir nokkru síðan hefir
HIS tekist að fá nokkurt land
suður við Reykjavíkurfiua völl.
Á þv-í standa nokkrar br' iga-
skemmur og hafa allar 1
fjelagsins sem voru í þ «rra
tveim portum verið flutta; ’oang
að.
Það sem eftir er í portiru við
Amtmannsstíg eru noMci’ir
varabensíngeymar, sem enn
hafa ekki verið teknir í notkun
og nokkrar gamlar tunnu”. sem
legið hafa þar í lengri tíma.
Slysið á Suðuriandsbraul
Þessi mynd er af vinstri hlið bifreiðarinnar, sem ekið var aftan á
vörubíl á Suðurlandsbrautinni á sunnudagskvöldið eð var. —•
Bifreiðarstjórinn, Sigurður Jónsson, sem slasaðist mikið við á-
reksturinn var ekki kominn til fullrar meðvitundar í gærkveldi
seint, er blaðið átti tal við Landsspítalann.