Morgunblaðið - 20.02.1947, Blaðsíða 1
34 árgangur 42. tbl. — Fimtudagur 20. febrúar 1947 Isafoldarprentsmiðja h.L
Matvælaráðherra Bretlands
finst hlýtt á Íslandi
BRETAR EYÐA MINNA AF BANDA-
RÍK JALÁNINU EN MENN ÆTLUDU
Var í heimsókn á BessastöÓum í gær
og hjá utanríkisráðherra.
„ÞAÐ ER MUN HLÝRRA hjer á íslandi en í Bretlandi. Þar
var nístingskuldi í morgun“, sagði John Strachey, matvæla-
ráðherra bresku stjórnarinnar við blaðamenn á Reykjavíkurflug-
vellinum í gærdag, en flugvjel hans lenti hjer á leið sinni til
Kanada. I för með ráðherranum voru tveir ráðunautar hans,
starfsmenn matvælaráðuneytisins, en þeir komu í York-flugvjel
frá flutningadeild breska flugherfsins. Ráðgert var að flug-
vjelin færi aftur hjeðan um 4-leytið í nótt.
<5)-----------------------
í heimsókn hjá forseta íslands
og utanríkisráðherra.
Flugvjelin lenti á Reykjavík-
urflugvelli klukkan rúmlega
1,30 í gserdag. Þar voru fyrir
til að taka á móti hinum breska
ráðherra Sir Gerald Shepherd,
sendiherra Breta hjer á landi
og Agnar Kl. Jónsson skrifstofu
stjóri í utanríkisráðuneytinu.
Var fyrst haldið heim til Sir
Shepherd, en síðar um dagínn
,tók Sveinn Björnsson forseti Is-
lands á móti gejstunum að Bessa
stöðum.
Klukkan 5 var móttaka hjá
Bjarna Benediktssyni, utanrík-
isráðherra í ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu, en kvöldverð-
ur var snæddur hjá breska
sendiherranum að Höfða.
Matvælaástandið fer hægt
batnandi.
Áður en matvælaráðherrann
fór frá flugvellinum settist
hann um stund með blaðamönn
um frá Reykjavíkurblöðunum
og ræddi við þá og svaraði
spurningum þeirra.
Er hann var að því spurður,
hvort matvælaástandið í heim-
inum færi nokkuð batnandi,
svaraði hann því, að svo væri,
en það gengi hægt.
Kolaverkfallið í Bretlandi
hefði haft nokkur áhrif á mat
vælaflutninga og nokkuð á mat
vælaframleiðslu, t. d. súkku-
laðis, en ráðherrann taldi, að
Bretar myndu nú vera komnir
yfir örðugasta hjallann í mat-
vælaaðdráttum smum. Bretar
flytja nú ekki lengur nein mat-
væli frá sjer til annara þjóða.
Ráðherrann sagði að sama vetr-
arharkan væri í Englandi enn,
eins og verið hefði, en síðan her
inn hefði tekið til að leysa sam-
gönguvandræðin, þá væru sam-
göngur komnar i lag.
Ekki hefir komið annar eins
vetur í Englandi í 55 ár, eins
og nú.
Einstaklingar í Bretlandi fá
nú sem svarar 2950 kaloríum
í rpat sínum daglega.
Fiskkaup Breta á íslandi.
Er Mr. Strachey var að því
spurður hvort hann vissi hvað
liði samningum íslensku sendi-
nefndarinnar, sem nú er í Lon-
don. Kvaðst hann ekki geta
svarað því. Það myndi vera und
ir verði og öðru komið, hvað
Bretar keyptu af okkur af fisk
afurðum, en lýsi vildu Bretar
gjarna kaupa alt sem við fram-
leiddum, hvað sem öðru liði.
i
I
Til Kanada og Bandaríkjanna.
Mr. Strachpy og förunautar
hana fara hjeðan eins og áður j
er sagt til Kanada og eru vænt- !
anlegir til Ottawa í dag. Ætl- I
ar ráðherrann að semja um mat!
arkaup Breta þar, en þeir-^fá
nú talsvert af landbúnaðaraf-
urðum þaðan.
Frá Kanada fara þeir til
Bandaríkjanna.
Verður Mounibatea
lávarður varakon-
ungur Indlands!
London í gærkvöldi.
SAMKVÆMT góðum heim
ildum, eru allar líkur fyrir
því, að Louis Mountbatten
lávarður, fyrverandi yfirmað
ur herja bandamanna í Suð-
austur Asíu. muni taka við af
Wavell lávarði sem varakon-
ungur Indlands. Frjett þessi
hefur þó enn ekki fengist stað
fest opinberlega h.jer í London
316 sftig
KAUPLAGSNEFND og
Hagstofa hafa reiknað út
vísitölu framfærslukostn
aðar fyrir febrúarmánuð.
Reyndist hún hafa hækk-
að um 6 stig frá því í byrj
un janúar, eða úr 310 stig
um í 316 stig.
Þessi hækkun stafar að-
allega af því, að matvara
ýmiskonar t. d. smjörlíki,
egg og sykpr hafa hækk-
að í verði, svo og fatnað-
arvara og kol.
----- —.—.— ----------+
--------------
Mæiir mesl á
hcnum
Höfðu í janúar eytt
OOO miljón dollurum
EMANUEL Shinwell, eldsneyt-
is og orkumálaráðherra Breta,
hefir ekki átt sjö dagana sæla
undanfarið vegna eldsncytis-
vandræðanna í Bretlandi. En
ni'i er farið að rætast úr kola-
skortinu á ný, því rafmagns-
sparnaðurinn hefir orðið til þess
að hægt hefir verið að safna
birgðum hjá rafmagnsstöðvun-
um.
Vínaiborg í gærkvöldi.
GEOFFREY Keys, einn af
vfirmönnum bandaríska her-
námsliðsins í Austurríki, af-
henti austurrísku stjórninni í
dag‘ tæplega fimm miljón doll
ara virði af gullpeningum sem
Bandaríkjaherinn í Þýska-
landi hafði náð úr greipum
nasista. — Reuter.
Washington í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
Á blaðamannafundi, sem John Snyder, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, hjelt í dag, var hann spurður að því, hvort Bret-
ar hefðu notað meira af lánsfje því, sem þeir fengu í Banda-
ríkjunum, en menn almennt hefðu gert ráð fyrir. Snyder svaraði,
að síðan Bandaríkjaþing hefði samþykt lánveitinguna, mætti
segja, að þeir hefðu tekið út minna, en vænst hefði verið.
^Kemur á óvart.
Fjármálasjerfræðingar höfðú
alment búist við því, að örðug
leikar Breta að undanförnu
mundu hafa það í för með sjer,
að mjög gengi á dollarainn-
stæðu þeirra. Upplýsingar Sny-
ders munu því koma ýmsum á
óvart, þótt útsjeð sje að vísu
ekki enn um það, hvaða afleið-
ingar kolaska-ívturinn muni hafa
í náinni framtíð. Telja blaða-
menn, að vart verði hjá því kom
ist, að meir megi ganga næstu
vikurnar á lánsfje Breta en bú-
ist var við, er Bandaríkjaþing
samþykti lánveitinguna. Fram-
leiðsla Breta hefir stórum mink
að undanfarnar tvær vikur, en
það mun aftur hafa það í for
með sjer, að þeir neyðist til að
flytja inn meir en ella.
Kennarar ?ið nám
í Kennaraháskóla
Kennaraháskólinn í Kaup-
mannahöfn hefur eins og á
undanförnum árum ákveðið
að gefa íslenskum kennurum
tækifæri til þess að stunda
nám við skólann.
Skrifstofu fræðslumála-
stjóra hefur nýlega borist
eyðublöð fyrir umsóknir og;
liggja þær frammi í skrifstof
unni.
Umsækjendur skuiu hafa;
lokið kennaraprófi og með-
mæli fræðslumálasstjórnar-
innar eru nauðsynleg fyrir
umsækjendur. Umsóknar-'
frestur er útrunninn í byrjun
mars.
Nú stunda tveir íslenskir
kennarar nám við skólann
og einn er óreglulegur nem-
andi.
Enn eru harðindi
mikii á IWðuriönÉm
Deilur um lánið.
Miklar deilur voru um það á
sínum tíma á Bandaríkjaþingi,
hvort veita bæri Bretum lán
það, er þeir fóru fram á, en
upphæðin nam 3750 miljón-
dollurum. Er lánveitingin kom
til atkvæða í fulltrúadeildinni,
greiddu 219 þingmenn atkvæði
með henni, en 155 voru á móti.
Skömmu síðar samþykti öld-
ungadeildin einnig lánveiting-
una.
Osló í gær.
HARÐINDI mikil eru enn víða á Norðurlöndum. í Norður-
Þrándalegi hefir snjóað í samfelt 8 daga og er þar nú mikið
fannkyngi. Bæjarstjórnin í Akers, við Oslo, hefir* ákveðið að
loka öllum skólum végna kuldanna og erfiðleika á útvegun
Idsneytis. Sennilegt að skólarnir verði lokaðir frá 24. febrúar til
1. mars. — Þegar hefir 27 skólum verið lokað í Oslo.
Leikhús og kvikmyndahús í
Oslo fá ekki meiri eldsneytis-
skamt, en þau kunna nú að eiga
og líklegt er að neyðst verði að
loka kirkjum.
Eyrarsund frosið.
Engar skipasamgöngur eru
nú við Ivaupm.h. M.s. Kron-
prins Olav, sem verið hefir í
áætlunarferðum milli Oslo og
Kaupmanahafnar, hefir hætt
ferðum í bili, þar sem ísbrjót-
ar geta ekki lengur brotið skip
um leið um Eyrarsund.
Smáhöfnin Hirshals á Jót-
landi er laus við ís og þangað
leita öll dönsk veiðiskip, sem
að veiðum hafa verið í Norð-
ursjó.
Flutningaskip og önnur
stærri skip leita til Esbjerg.
Síðastliðinn sólarhring komu
97 skip þangað.
í Bandaríkjunum
Washington í gærkvöldi.
TRUMAN forseti, tilkynti í
dag, að hættuástandi því, sem
Roosevelt forseti lýsti yfir
1939, eftir að styrjöldin skall
á, sje nú aflýst. Jafnframt
þessu hefur forsetinn sent
Bandaríkjaþingi boðskap, þar
sem hann fer fram á það, að
100 bráðabirgðalögum verði
annað hvort breytt eða þau
felld úr gildi.
Ein af löggjöfum þeim, sem
Ti'uman fer fram á að felld
verði úr gildi, lýtur að af-
hendingu skipa samkvæmt
láns- og leigulögunum. —
Reuter.
V
i