Morgunblaðið - 27.02.1947, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.02.1947, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 27. febr. 1947 MORGUNBLAÐIÐ Frjálsar íþróttir V: MIKLAR FRAMFARIR í KÖSTUM í KÖSTUNUM náðist mjög góður árangur, og hefir hann aldrei verið eins jafngóður í flestum þeirra. I kúluvarpi köst uðu 7 fyrstu menn yfir 13.50 metra. I spjötkasti voru 6 fyrstu menn allir með yfir 51 m. og í kringlukasti voru fjórir menn yfir 40 m. í sleggjukasti náðist einnig góður árangur á okkar mælikvarða. Sjótkast. Jóel Sigurðsson, ÍR, var þar bestur, öruggur með 58 m. — Hann náði bestu kasti 59.50 m., sem er 72 sm. lengra en Islands metið, en spjótið reyndist við vigtun eftir keppnina 30 gr. of Ijett og kastið dæmt ógilt. Það er að sjálfsögðu með öllu ó- verjandi að láta menn fá ó- lögleg áhöld til þess að keppa með og svifta þá þannig bein- línis rjetti til þess að setja ís- lenkst met, þó þeir geti það, og í þessu tilfelli vár Jóel einnig útilokaður frá keppni um „Kon ungsbikarinn11, þar sem þetta var á 17. júní mótinu, Besta lög lega kast hans var 58,75 m., eða aðeins 3 sm. lakara en íslands- metið. — Finnbjörn Þorvalds- son, ÍR, var næstbesti spjót- kastarinn. Hann kastaði 56,21 m. Þriðji í röðinni var Jón Bjarnason, ÚÍA, kastaði 55,68 m., fjórði Tómas Árnason, ÚÍA með 53,02 m., fimti Jón. Hjart- ar, KR, með 52,37 m. og sjötti Hjálmar Torfason, HSÞ, með 51,21 m. Halldór Sigurgeirsson Á, kastaði að vísu 51,37 m., en það var með „ljetta“ spjótinu á 17. júní mótinu. Kringlukast. Nú loks tókst Gunnari Huse- by, KR, að slá íslandsmetið í kringlukasti, en hann er búinn að glíma við það undanfarin ár. Huseby kastaði 45,40 m. Jón Ólafsson, UÍA, var annar, kast- aði 43,31 m. Bragi Friðriksson, KR, varð þriðji með 41,09 m. og Ólgfur Guðmundsson, IR, fjórði með 40,86 m. Fimmti mað ur var Friðrik Guðmundsson, KR, með 39,31 m. og sjötti Har- aldur Sigurðsson, UMSE, með 38,78 m. Kúluvarp. í kúluvarpi setti Evrópu- meistarinn Gunnar Huseby enn einu sinni íslandsmet, kastaði 15,69 m. Vilhjálmur Vilmundar son, KR, varð næstur með 13,86 m., en þriðji varð Sighrður Sig- urðsson, ÍR, með 13,75 m. Bragi Friðriksson, kastaði 13,70 m., Jón Ólafsson, 13,68 m., Sig- fús Sigurðsson, Selfossi, 13,63 m., og Jóel Sigurðsson, 13,51 m. Sleggjukast. Áki Gráns, ÍBV, náði besí'um ^rangri í sleggjukasti, kastaði 0G ÞRAUTUM Holmenkolb-mótii 1947 er hið 50. í röiinni FYRSTA HOLMENKOLLEN- mótið var haldið 1892 að tilhlut an norska skíðasambandsins. — ungsbikara, sem veittir eru fyr. ir 18 km göngu og stökk sam-:; anlagt. T. Haug hefir unnið„50 Stökkbrekkan hefir altaf verið ■ km gönguna sex sinnum, Berg Gunnar Husebv. 38,67 m. Annar var Vilhjálmur j og er það nýtt Islandsmet eips Guðmundsson, KR, með 38,34 og áður er sagt. — Næstur var m. Símon Waagfjörð, ÍBV, varð Jón Hjartar, KR, með 2703 stig, þriðji með 37,86 m. Fjórði var en þriðji Bragi Friðriksson með Gunnar Huseby með 37,45 m. og 2379 stig. Friðrik Guðmunds- fimmti Helgi Guðmundsson, son hlaut 2376 stig, Páll Jóns- KR, með 34,46 m, Sjötti var Þórður Sigurðsson, KR, með 29,71 m. Þrautirnar. Bæði í fimmtarþraut og tug- þraut voru sett íslandsmet. I tugþfautinni var það Gunnar Stefánsson frá Vestmannaeyj- um, sem setti Islandsmetið, en Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, setti það í fimmtarþraut. Fimmtarþraut. Finnbjörn Þorvaldsson varð þar stighæstur, hlaut 2958 stig, son, KR, 2170 stig og Þorkell Jóhannesson, FH, með 2159 stig. Tugþraut. I tugþraut varð Gunnar Stefánsson, IBV, hlutskarpast- ur. Hann hlaut 5552 stig, sem er nýtt met. Annar var Friðrik Guðmundsson með 5398 stig. Þorsteinn Löve, ÍR, varð þriðji með 5017 stig. Fjórði var Gunn- ar Sigurðsson, KR, með 4904 stig og fimmti Sigfús Sigurðs- son, Selfossí, með 4750 stig. — Þorbjörn. Í.R. 40 árn 11. mars Frá aðalfundi fjelagsins AÐALFUNDUR íþróttafje lags Reykjavíkur var hald- jnn í Kaupþingssalnum í gær kvöldi. Formaður fjelagsins, Sigurpáll Jónsson, setti fund- inn, en fundarstjóri var kos- inn Benedikt G. Waage, en fundarritari Þowsteinn Bern- hardsson. Formaður skýrði frá störf- um fjelagsins s.l. starfsár, sem hafa verið mikil og marg þætt. Hefur íþróttalífið í fje- laginu aldrei staðið með meiri blóma en nú. T.d. settu frjálsíþróttamenn fjelagsins 22 íslandsmet á árinu og er slíkt algert einsdæmi. Fjelagið' er 40 ára 11. mnrs u.k. og verður þcss’minnst á margvíslegan hátt. Þá voru reikningar fjelags- ins og ÍR-hússins lesnir upp og samþykktir. — Lög fje- lagsins voru endurskoðuð og þeim breytt nokkuð í þá átt að koma deildaskiptingu fje- iagsins á fastari grundvöll. í stjórn fjelagsins voru Framh. á bls. 12 sú sama, en í þá daga var eng- inn rafmagnssporvagn og held- ur ekki bílar, sem gátu flutt áhorfendur upp hæðina. Þrátt fyrir þessa erfiðleika mættu 15 þúsund áhorfendur. 1946 voru þeir yfir 100,000. Tekjur af að- göngumiðasölu voru um krónur 3000.00 1892, en um 200.000 1946. Stökklengdin var 21,5 m. 1892 (Arne Ustvedt), en 68,5 m. 1940 (Kolbjörn Skjæveland) Stökkbrekkan var að öllu leyti eðlileg 1892, en stökkpall- urinn var bygður upp með trjá- greinum og snjó. 1914 var reist grind 9,5 m., fyrir aðrenslið — Babelsturninn var það kall- að, og blöðin ~töluðu um hneyksli og eyðileggingu íþrótt- arinnar með þessari vitleysu. — Stökklengdjxnar jukust og 1918 stökk Josef Henriksen 42 m. — Babelsfurnin frá 1914 fauk ’27, daginn eftir mótið. Þá var reist önnur grind, 20 m., en hún varð einnig of lítil, og 1940 var hún hækkuð um helming, upp í 40 m. Þetta er turn úr steinstöpli. Stökkstallurinn sjálfur hefir skiljanlega einnig hækkað. — Hvað mikið veit jeg ekki, en það mun vera einhversstaðar á milli 5—8 m. Jeg minnist þess eina bjarta júnínótt í fyrra, þeg ar fimleikaflokkui' KR var í heimsókn í Noregi, og „söng- kórinn“ stóð á stökkpallinum og söng. Þá var það einn KR- ingur sem sagði: — „Jeg veit um fjölda auðveldari leiðir til þess að fremja sjálfsmorð, en að fara á skíðum fram af þessum palli.“ Ef til vill er hann all- ógnandi að sjá að sumarlagi. Á tímabilinu* frá 1892 til 1947, hafa sem sagt verið hald- in 50 Holmenkollenmót. — Frá 1892 til 1940 var mótið(haldið árlega að undanskildum vetr- inu 1898. Þá ver kepninni af- lýst vegna snjóleysis. Á árunum 1891 til 1945 var ekki hægt að halda mótið vegna hernáms Þjóðverja. Þeir notuðu turninn sem rannsóknarturn til þess a? líta eftir ferðum flugvjela og efst á pallinum voru loftvarna- byssur. 1946 gat svo þetta mót „allre tíma“ farið fram aftur. Þa? varð met hvað áhorfendur snert ir, en þátttakan erlendis frá var ekki eins mikil og skyldi. Ful ró var ekki komin á eftir hið erfiða stríð. Yngsti maður, sem unnið hef ir verðlaun á mótinu er Hans Johansen, Nydalen' 16 ára. — Bergerdahl og Gröttumsbraat- en hafa báðir unnið fimm kon- endahl fjmm sinnum og Rönes- fjórum sinnum. — ThorleiL; Schelderup náði 1946 sömu stökklengd og metið er, 68,5 metra. Sjerflokki í stökki var fyrst komið á 1934. Áður voru það bara skíðamenn 32 ára og eldri og „drengir“ (18—20 ára), sem keptu aðeins í stökki. Stökkkeppnin hefir aðeins einu sinni verið unnin af öðr- um en Norðmanni. Það var Sví- inn Sven Selanger, sem 1940- bar sigur úr býtum. 50 km. göngu hafa bæði Svíar og Finn- ar unnið bg mæta Svíarnir í ár með mjög sterka menn. Gert er ráð fyrir að þeir vinni. Stökkbrautin hefir enn einu sinni verið bætt. Aðrennslið hefir verið gert nokkrum metr- um lengra og pallurinn færður-; lítið eitt aftur. Það verður sem sagt hægt að stökkva lengra. Það leikur enginn vafi á því, að þetta fimmtugasta Holmen-; kollenmót er stærsta skíðamót, sem haldið hefir vcrið til þessá. Og það er í fyrsta sinn, sem ís- lenski fáninn blaktir þar við/ hún og íslenski þjóðsöngurinn verður leikinn. Enginn Islend- ingur ætlast til þess að þessir tveir íslensku þátttakendur vinni gull eða silfur, en þetta er byrjunin og margir aðrih munu koma þar á eftir. ' Gunnar Akselson. Mr. Steel réðfnn landsþjálfari í kiuttspymu Samkvæmt upplýsingum, er hlaSið hefir fengið frá ^íjóni íþróttasam'bands íslands, hefir sambandið ákveðið að ráða Fr. Steel landsþjálfara í knatt- spyrnu. )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.