Morgunblaðið - 19.04.1947, Qupperneq 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
KVENNASÍÐAN er a bls. 6.
SUDAUSTAN KALDI eða
stinningskaldi. — - Skúrir.
Mikið gos í Heklu
í gærdag
MIKLA GOSMEKKI lagði
í allan gærdag upp frá Heklu
og taldi fólk að Fellsmúla og
Ásólfsstöðum, að þar hefði
verið mikið gos.
Frameftir degi í gær voru
drunur ekki tiltakanlega mikl
ar frá fjallinu, en-er líða fór
á kvöldið fóru þær vaxandi
og í gærkvöldi voru þær orðn
ar mjög miklar. Loftþrýsting
urinn var svo mikill að hús-
munir og annað lauslegt svift
ist til.
Lítilsháttar öskufalls hef-
ur orðið vart bæði við Fells-
múla og í Þjórsárdal. Þar
eyrstra er nú snjór yfir öllu
og hefur hann gránað mjög
vegna öskufallsins. Mikið
öskufall hefur verið við Heklu
sjálfa. Bæði frá Fellsmúla og
Ásólfsstöðum sjást eldar
greinilega á kvöldin.
Umræðum um
breska fjárlaga-
frumvarpið lokið
London í gær.
UMRÆÐUM um bresku fjár
lögin lauk í neðri málstofunni
í gær með ræðu, sem Hugh
Dalton fjármálaráðherra flutti.
Aður en Dalton flutti ræðu
sína, hafði einn af þingmönn-
um Ihaldsmanna haldið því
fram, að áður en fjárlagafrum-
varpið hefði verið lagt fram,
hafi einhverjir fjármálamenn
verið búnir að fá nasasjón af
því, hvað í því mundi felast.
en þetta hefði haft það í för
með sjer; að þeir hefðu getað
keypt og selt ýms hlutabrjef í
gróðaskyni.
Dalton sagði í ræðu sinni,
að han'n mundi láta rannsaka
málið.
Fjármálaráðherra vjek einn
ig nokkuð að tóbakshækkun-
inni. Sagði hann, að enda þótt
hækkunin hefði sætt mikilli
gagnrýni, hefði annað ekki ver
ið hægt að gera en að auka
verð á tóbaki. Væri nauðsyn-
legt að reyna að draga úr tó-
baksnotkun í Bretlandi, en
ekkert ráð fundist betra en
hækkunin. Skömtun, sagði
Dalton loks, hefði ekki verið
talin heppileg.
— Reuter.
Á fveim iímum frá
London lil Sví-
þjóðar
liondon í gærkvöldi
BRESK De Haviland flug-
vjel flaug í dag frá London
til Svíþjóðar á tæpum tveim
klukkustundum. Er þetta or
ustu flugvjel, en vegalengdin
sem hún flaug, er um 850
mílur.
De Haviland vjel þessi er
eih af mörgum, sem sænski
flugherinn hefur pantað í
Bretlandi. — Reuter.
Laugardagur 19. apríl 1947
ÞESSA Ijósmynd tók ljósmyndari Morgunblaðsins af
sænsku sendiherrahjónunum, Otto Johanson og frú Göte —
Brita Johanson, í skilnaðarhófi því er vinir þeirra hjeldu
þeim í Oddfelíovv í fyrrakvöld.
(Frásögn af hófinu er á 9. síðu hlaðsinsj.
J
Vöruskiftajöfnuðurinn í
jan. til marz er óhag-
stæður um 80 miljónir
Togararnir kosla 14 miljónir.
VÖRUSKIFTAJÖFNUÐURINN í marsmánuði var óhagstæður
um 33,5 miljónir króna. Það sem af er þessu ári, er vöruskifta-
jöfnuðurinn óhagstæður um 80 miljónir króna. Hagstofan skýrði
Morgunblaðinu frá þessu í gær, og var þess getið að í þessari
upphæð væri innifalið verð fjögurra togara, samtals 14 miljómr.
í marsmánuði nam verðmæti
innfluttrar vöru samtals 49 milj.
en útfluttrar 15.5. Fyrstu þrjá
mánuði ársins nemur verðmæti
innflutningsins 117 milj., en
útflutnings 37 milj.
I fyrra var vöruskiftajöfn-
uðurinn fyrir jan.—mars óhag-
stæður um 23 milj.
Innflutningurinn:
Stærstu liðir innfluttrar vöru
í mars var sem hjer segir: Korn
vörur fyrir 1,4 milj. kr. Ávext-
ir þurkaðir fyrir 1 milj., kaffi
og kryddvörur fyrir 1,2 milj.
Vjelar og áhöld fyrir 3,2 milj.
og bílár fyrir 3,6 milj. Áburð-
ur fyrir 2,9 og vefnaðarvara
fyrir 1,8 milj. og fatnaður fyr-
ir 1.5. Járn og stál, óunnið
var flutt inn fyrir 2,3 milj.
og járnvörur fyrir 2,5 miljón
kr. og rafmagnsvörur fyrir
sömu upphæð.
í marsmánuði komu hingað
tveir nýir togarar: Vörður og
Hglgafell og 6 vjelskip tæpl.
100 smál. hvert.
Útflutningurinn:
Stærstu liðir í útflutnings-
versluninni í mars voru: Ó-
verkaður fiskur til Ítalíu, Bret-
lands, írlands og Belgíu fyrir
5 milj. ísfiskur fyrir 4,2 milj.
og freðfiskur fyrir 4,3 milj. kr.
Viðskiftalöndin:
Stærstu viðskiftalönd okkar í
mánuðinum voru: Bretland með
4,9 milj., Ítalía 3,6, Frakkland
3 milj., Belgía með tæpar 2
milj., Noregur með 513 þús.,
Bandaríkin 375 þús. og Dan-
mörk 314 þús. kr. Tjekkóslóvak
ía með 493 þús., írland með
184 þús. og Palestína fyrir 104
þús. kr.
Fiskaflinn í marz
umlOOþússmá
FISKAFLINN á öllu land-
inu var 31. mars s.I. 100,146
smál. á móti 72,538 smál. á
sama tíma í fyrra. Af þess-
um afla voru nú 12,030 smái.
síld, veidd á Kollafirði og í
nánd við Reykjavík, og er
það í fyrsta skifti, sem síld
er veidd á þessum tíma árs.
Útfluttur ísvarinn fiskur
nam 15,856 smál., en 37,839
sml. á sama tíma í .fyrra
Frystihúsin tóku til vinnslu
39,048 smál. en á sama tíma
1946 höfðu þau tekið til
vinnslu 29,644 smál. Saltað
var 33.066 smál. á móti
3,944 smál. á sama tíma 1946.
Aflinn er allur miðaður við
slægðan fisk með haus að
undantekinni síldinni, sem er
upp úr sjó.
Kemst rekstur S. V. R. í
viðunandi horf á næstunni?
Margir nýir vagnar verða leknir
í nolkun í sumar.
JÓHANN ÓLAFSSON forstjóri Strætisvagnanna, skýrði
blaðinu svo frá í viðtali í gær, að hann teldi miklar líkur til
þoss, að örðugleikar þeir sem fyrirtækið hefur átt í að und-
anförnu með vagna sína, verði yfirstignir í maílok. Þá munu
allmargir nýjír vagnar hafa verið teknir í notkun.
2 nýir vagnar næstu daga.
Forstjórinn skýrði ennfrem-
ur svo frá, að nýlega hefði nýr
vagn verið tekin í notkun. —
Þetta er Austin bíll, 37 manna.
Fyrst um sinn er hann hafður
á Skerjafjarðarleiðinni, en
þessi vagn væri bygður með
það fyrir augum að honum
veroi ekið á innanbæjarleið-
um. —
Verið er að vinna við tvo
Studebaker bíla. Annar þeirra
verður með amerísku húsi, úr
stáli, en hinn með húsi smíðuðu
hjer. Ekki hefur enn verið á-
kveðið á hvaða leiðir þessir
vagnar verði settir. En það má
búast við að báðir verði teknir
í notkun eftir viku til 10 daga.
í maílok verða tilbúnír til
viðbótar 3 aðrir vagnar, allt
Studebaker. Tveir þeirra verða
með húsum af eldri vögnum,
sem þó eru í prýðilegu ásig-
komulagi, en þriðji verður með
nýju amerísku stálhúsi. Þessi
innlendu hús kosta nú um
60.000.00. Amerísku húsin upp
sett um 30.000.00.
Þegar þessir vagnar eru
komnir í umferð, ættu mestu
örðugleikarnir að vera búnir,
sagði forstjórinn.
Strætisvagnar eiga nú 2 bíla
grindur á leiðinni, auk þeirra,
sftn að ofan getur. Yfir þær
verður byggt í sumar eftir því
sem þurfa þykir og hægt er.
Bestu húsin af eldri vögnun-
um verða sett yfir þessar nýju
grindur, en einnig mun þurfa
að smíða ný hús yfir sumar
þeirra.
Burðameiri vagnar.
Jóhann Ólafsson sagði, að um
næstu mánaðarmót væri von á
4 eða jafnvel 8 bílagrindum
frá Ameríku.
Grindur þessar eru frá White
bílasmiðjunum og eru þær
sjerstaklega bygðar fyrir stræt
isvagna. Yfir þessa vagna verð
ur bygt hjer heima.
Jóhann gerði sjer miklar von
ir um þessa vagna. Hann kvað
þá vera hentugri sem strætis-
vagnar en Mack vagnarnir,
sem fyrirtækið keypti fyrir
nokkrum árum frá Ameríku.
White hefði það t. d. fram yfir
Mack og aðra vagna sem
Strætisvagnar eiga nú, að
miklu þægilegra er að komast
upp í þá og út úr þeim.
Strætisvagna hafa átt í mikl
um erfiðleikum með rekstur
Mack vagrianna. Varastykki íil
þeirra voru pöntuð 1945—46,
en verksm. hefur ekki getað
aigreitt nema mjög lítinn hluta
þeirra til þessa. En þetta hefur
haft það í för með sjer, að a£
þeim 4 Mack-vögnum eru nú
3 í lagi. — Og enn er ekki
vitað hvenær þessir varahlutir;
koma til lahdsins.
Ófæri að Næfur-
holti
SKRIFSTOFA vegamála-
stjóra tilkynnti í gær-
kvöldi, að vegna ófærðar á
vegunum frá Gunnarsholti að
Næfurholti og frá Gunnars-
holti að Stóra Hofi, hefði
þeim verið lokað.
Óhemju umferð hefur ver-
ið um veginn frá Gunnars-
holti að Næfurholti síðan að
Heklugosið byrjaði og hefur
vegurinn spillst svo, að hann
er nú alófær bílum.
Danssýningin vakti
mikla athygli
NEMENDUR í barna og
unglingadeildum Dansskóla
Rigmor Hanson sýndu í gær-
kvöldi í Nýja Bíó list- og sam
kvæmisdansa. Húsið var þjett
skipað áhorfendum, sem:
ljetu óspart ánægju sína í
ljós. Undirleik fyrir dansin-i
um Ijeku þeir Carl Billich og
Björn R. Einarsson og vakti
leikur þeirra mikla hrifningu
Þeir ljeku ljett lög á milli
atriða.
Mesta athygli á sýningunní
vakti dans 5 og 6 ára barna.
En danssýningin í heild þóttil
takast prýðilega.
E + G |
Umsækjendur um
fsrjú preslaköll
UMSÓKNARFRESTUR um;
þrjú laus prestaköll var út-
runninn 15. þ.m. Umsóknir
bárust frá eftirtöldum prest
um:
Um Eydalaprestakall í Suð
ur - Múlasýsluprófastsdæmi!
sækir s.r. Kristinn Hóseasson
nú settur prestur að Rafns-
eyri.
Um Mælifell í Skagafjarð-
arprófastsdæmi sækir sr«
Bjartmar Kristjánsson, senf
er þar settur prestur.
Um Grímseyjarprestakall
sækir sr. Robert Jack, serri
er settur prestur að Eydölunj