Morgunblaðið - 19.06.1947, Qupperneq 1
34. árgangur
134. tbl. — Fimmtuilagur 19. júní 1947
Ísaíoldarprentsmiðja h.í.
Hjálpartilboði Bandaríkjanna vel
tekið í Evrópulöndum
Forselinn leggur blómsveig
Forseti íslands leggur blómsveig við fóístall styttu Jóns Sig-
urðssonar. Að baki forseta standa Stefán Jóh. Stefánsson,
forsætisráðherra og stúdinurnar tvær er báru blómsveiginn.
Ra'ða forseta er á 7. síðu hlaðsins. (Ljósm. Morgunblaðsins).
Hernaðaraðgerðir í Póllándi
Bardagar milli pólskra stjórnarhersveita og
ukraniskra skæruliða
ZAMOSE, Póllandi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá frjettaritara KEMSLEY, Nicholas Carroll.
POLSKAR hersveitir standa nú í meiriháttar hernaðaraðgerð-
um gegn vel vopnuðum and-kommúnistiskum skæruliðum frá
Úkraníu. 44 A
Settur í gæslu.
Koma mín hingað til þessarar
litlu markaðsborgar, sem ligg-
ur 50 mílum fyrir suðaustan
Lublin, orsakaði töluverðan upp
steit. Jeg var þegar settur í
gæslu, var spurður spjörunum
úr og mjer var að lokum sagt
ákveðið, en kurteislega af full-
trúum öryggislögreglunnar, að
jeg fengi ekki að ferðast lengra
suðaustur í landið.
Mjer var haldið í öruggri
gæslu allan þann dag, sem jeg
dvaldi hjer, og allir, sem jeg
átti tal við, voru þegar í stað
spurðir af öryggislögreglunni.
Leynd yfir atburðunum.
Engar upplýsingar um atburð
ina í suðausturhluta Póllands,
hafa verið fáanlegar í Warsjá,
en það er almennt talið, að 4
pólskar herdeildir, sem jafn-
gilda 2 enskum fótgönguliðs her
deildum, taki þátt í þessum
hernaðaraðgerðum. Liðsforingi
nokkur sagði mjer, að svæði
það, sem bannað væri venju-
legum ferðamönnum lægi í fer-
hyrning milli staðanna Rzeszow
Framh. á bls. 2
Qr-
GulKundur í Noregi
Oslo, þriðjudag.
TÖLUVERT af gulli hefir að
undanförnu fundist í Karasjok
í Norður Noregi, og eru gull-
grafarar komnir á staðinn og
vinna af kappi við að reyna að
finna gull í fljótum og lækjum
á allstóru landsvæði.
Til þessa hefir enginn stór
gullfundur verið tilkynntur, en
norskir jarðfræðingar eru þeirr
ar skoðunar, að mikið gull sje
að finna þarna norðurfrá.
Noregsstjórn hefir ákveðið að
senda sex jarðfræðinga á stað-
inn, til þess að hefja rannsókn-
ir. — Kemsley.
Ný gerð fSugvjela.
NEW YORK: — Bandaríkja-
herinn hefir nýlega gert samn-
ign við Douglas fulgvjelaverk-
smiðjurnar um að þær hefji
smíði nýrrar flugvjelategundar
sem á að geta farið þrisvar sinn
um hraðar en hljóðið og fljúga
í 300.000 feta hæð.
Rtíssnesk atnm-
sprengja fyrir
1949
Washington.
NOKKRIR meðlimir fjárveit-
inganefndar Bandaríkjaþings
hafa látið á sjer skilja, að þeir
liti svo á, að Rússar muni kom-
ast yfir leyndarmál atom-
sprengjunnar fyrir árslok 1949.
Upplýsingar þessar voru gefnar,
er viðræður fóru fram milli
nefndarinnar og bandaríska her
málaráðuneytisins.
Sömu fregnir herma, að
Bandaríkjaþingi hafi verið tjáð,
að það sje skoðun bandaríska
flughersins, að Rússum hafi nú
tekist að smíða þrýstiloftsflug-
vjelar, sem komist hraðar en
vjelar Bandaríkjamanna, en
geti hins vegar ekk.i flogið jafn
langt. — Kemsley.
Islendingar í
Kaupmannahöfn
og Oslo minnast
17. júní
ISLENDIN G AF JEL AGIÐ í
Kaupmannahöfn hjelt 17. júní
hátíðlegan með samkomu, þar
sem saman voru kómnir 200
gestir. Forseta Islands var sent
skeyti í tilefni dagsins. — Þor-
finnur Kristjánsson, sem nú
gegnir formannsstörfum í fje-
laginu, minntist í upphafi ræðu,
er hann hjelt, þeirra Islendinga,
er undanfarið hafa farist í flug
slysum, en gestir vottuðu hin-
um látnu virðingu sína með því
að rísa úr sætum. — Þá talaði
Jakob Möller, sendiherra, fyrir
minni íslands, Alfreð Andrjes-
son las upp, Haraldur Sigurðs-
son ljek á píanó og að lokum
var þjóðsöngurinn sunginn.
í Oslo minntist íslendingaf je-
lagið þar í borg einnig dagsins
með hátíðasamkomu. Formaður
fjelagsins setti samkomuna, en
Jóhannes úr Kötlum hjelt
snjalla ræðu fyrir minni Nor-
egs. Berdal, forstjóri, talaði
fyrir minni íslands og Gunnar
Akselsson fyrir minni kvenna.
Páll Jónsson, söngkennari, söng
lög eftir Kaldalóns við mikla
hrifningu áheyrenda. 60 manns
sóttu samkomuna.
Bevin vill nefnd til að
rannsaka málið
PARÍS í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
BEVIN, utanríkisráðhefra Breta, og Bidault, franski utan-
xíkisráðherrann, hafa ákveðið að senda Rússum orðsendingu,
þar sem þeir fara fram á það, að Rússar taki þátt í stofnun sjer-
stakrar fjárhagsnefndar, sem síðan taki til athugunar tilboð
Bandaríkjanna um efnahagslega aðstoð til handa Evrópulönd-
um. Bevin utanríkisráðherra, er nú staddur í París Hefir þegar
komið fram mikill áhugi með Bretum um að notfæra sjer að-
stoðartilboð Bandaríkjanna, en þau setja það skylyrði, að
Evrópulönd komi sjer fyrst saman um, á hvern hátt slík aðstoð
yrði hagnýtt.
Bretar krefjast enn
upplýsinga um
Ungverjaland
London í gærkveldi.
McNEIL, varautanríkisráð-
herra Breta, upplýsti það í
spurningatíma í neðri málstofu
þingsins í dag, að breska stjórn-
in hjeldi ennþá fast við kröfur
sínar um að fá afrit af öllum
þeim gögnum, sem haldið er
fram að hafi orðið til þess að
Nagy, forsætisráðherra Ung-
verja, varð að segja af sjer.
McNeil kvað stjórnina enn
bíða eftir fyllri upplýsingum
frá breska sendiherranum í
Moskva.
Nagy, sem kominn er til
Bandaríkjanna, hefir tjáð blaða
mönnum þar, að ráðuneyti hans
hafi verið fellt samkvæmt bein-
um fyrirskipunum frá Rússum.
Alvarlegt efnahags-
ástand í Danmörku
K.höfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
HIÐ alvarlega efnahagsástand
í Danmörku veldur nú vaxandi
áhyggjum. Heldur „Socialdemo
kraten“ því fram, að sparnað-
aráætlun stjórnarinnar ætli að
bera mun verri árangur en upp
haflega hafði verið gert ráð rfy-
ir.
Líklegt er talið, að ástandið
hafi það í för með sjer, að enn
verði að minka innflutning til
landsins.
Brelar veiía borgararjell.
LONDON: — í s. 1. mánuði
veittu Bretar 1.450 útlending-
um ríkisborgararjettindi í Bret
landi.
Hvað gera Rússar?
Samkvæmt tillögum þeirra
Bevins og Bidaults, er til þess
ætlast, að hin væntanlega fjár-
hagsnefnd taki til athugunar
kola og stálframleiðslu Evrópu,
vöruflutninga og landbúnað.
Er með öllu ótækt að segja,
hversu mörg lönd fara fram á
hjálp Bandaríkjanna, fyr en vit
að er um afstöðu Rússa til máls-
ins. Líklegt er þó talið, að full-
trúar frá þýskú hernámssvæðun
um mundu fá að sitja fundi
nefndarinnar.
Góðar undirtektir.
Hollenska útvarpið hefir þeg
ar tilkynnt, að Hollendingar,
Belgíumenn og Luxemborgbúar
mundu fagna því, gæti orðið úr
fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna.
Þá hefir ítalski sendiherrann í
Washington og tjáð blaðamönn-
um, að stjórn hans taki hjálpar-
tilboðinu með þökkum.
Dr. Wellington Koo, sendi-
herra Kínverja í Washington,
hefir sagt, að æskilegt væri, að
Bandaríkin ljeðu og Asíulönd-
um aðstoð sína.
Nýr leynilegur
arabiskur fjelags-
skapur
Rómaborg í gær.
MARGIR áhrifamenn í Róm
hafa að undanförnu fengið brjef
sem bera undirskriftina „Verj-
endur Araba í Palestínu".
I brjefum þessum segir, að
þetta sje nýr fjelagsskapur, und
ir forystu arabisks föðurlands-
vinar, sem undanfarin ár hafi
verið í útlegð. Þá er og sagt,
að hreyfrng þessi hafi ekki í
hyggju að berjast gegn „sak-
lausum Gyðingum", heldur
þeim, sem noti saklausa karl-
menn og kvenfólk, til að full-
nægja valdagræðgi sinni.
—Kemsley.