Morgunblaðið - 19.06.1947, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. júní 1947
Timbur frá Svíþjóð
Eins og að undanförnu getum við, gegn gjaldeyris- og
innflutningsleyfum, útvegað frá Svíþjóð allskonar
timbur til húsagerðar, ennfremur fyrir hafnargerðir,
síldarsöltunarstöðvar, rafveitur o.fl.
Upplýsingar í síma 9205.
IU ómlc>ja CdeyLdaló
< i
Nýtisku steinhús
viS Stýrimannastíg er til sölu að hálfu. — 2. hæðin og
kjallarinn. — Á hæðinni eru 4 herbergi, hall, eldhús
og baðherbergi, en 1—2 herbergi, geymslur og þvotta-
hús í kjallara* — Lítill garður með fallegum trjám.
Nánari upplýsingar gefur
HÖRÐUR ÓLAFSSON, lögfr.,
Austurstræti 14.
Ekki í síma.
Byggingarfjelag verkamanna:
íbúðir til sölu
2 tveggja herbergja ibúðir í 1. byggingarflokki eru til
sölu. — Fjelagsmenn, sem óska að káupa þessar íbúðir,
sendi umsóknir til gjaldkera fjelagsins, Gríms Bjarna-
sonar, Meðalholti 11, fyrir 25. þ. m. og gefur hann,
ásamt Magnúsi Þorsteinssyni, Háteigsvegi 13, allar
nánari upplýsingar.
Stjórn Byggingarfjelags verkamanna.
Atvinna
Karlmaður og kona (hjón), sem vildu vinna við land-
búnað við góð skilyrði, gætu fengið vinnu við sjálfstæð-
an búrekstur eða í þjónustu annara eftir samkomulagi
nú þegar. — Upplýsingar á Ráðningarstofu Reykja-
vikurbæjar, Bankastræti 7, sími 4966.
Sumarbústaður
í góðu standi, sunnan við Elliðavatn, til sölu.
Nánari upplýsingar gefur
Mál jlulningsskrifslo fa
EINARS B. GUÐMUNDSSONAR og
GUÐLAUGS ÞORLÁKSSONAR
Austurstræti 7, simar 2002 og 3202.
HerbíII
Til sölu herbíll, Dodge
Qommander, óyfirbygður.
Til sýnis hjá Leifsstytt-
unni kl. 2—4 e. h. og
Höfðabörg 18 eftir kl. 8.
S A ,
sem gefur útvegað 3ja her-
bergja íbúð til leigu, getur
fengið i forkaupsrjett á
nýrri 6 manna bifreið,
sem kemur til landsins
innan Skamms. — Tilboð
leggist iinn á afgr. Mbl.,
merkt: - „3 herbergi —
bifreið ;1946 — 1137“.
IIIIIIIIIMIII ■llllllllllllll lllll I llllll IIIII llllllll III ■■■■■■ II
Forsföðukonu
vantar: að leikskóla, sem
starfræktur verður í Mál-
leysingjaskólanum í sum-
ar, — Upplýsingar í síma
5378.
Fræðslufulltrúinn.
iiiiiiiiiiiiiiiiMiiniiiiiiil^iiiiirmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Nýkomið
» Elisabeth Kent varalitir.
Frönsk ilmvötn.
VERSL. ÞORELFUR
Bergstaðastr. 1. Simi 3895.
V
/ti iii m iii in iii ii n 11111111111111111111111111111 imimiiini
Mótatimbur
til sölu á Langholtsvegi
149 eítir kl. 7 í kvöld.
Lítil
íbúð
til leigu. — Fyrirfram-
greiðsla. — Upplýsingar á
Hjallaveg 30 (uppi).
Notaður
Góður
barnavagn
til sölu og sýnis. Sann-
gjarnt verð. Höfðaborg 20.
Uppboð
Opinbert uppboð verð-
ur haldið í Sundhöll
Reykjavíkur föstud. 20.
þ. m. og hefst kl. 1.30 e.h.
Seldir verða ýmsir óskila-
munir, s. s. handklæði,
sundskýlur, fatnaður,
veski, buddur o m. fl. —
Greiðsla fari fram við
hamarshögg.
Borgarfógetinn
í Reykjavík.
íslendingar! íslenska þjóð!
Kaupið Sagnaþætti, I.-II. bintli eftir Vigfús Kristjáns-
son frá Llafnarnesi.
Bækurnar eru niðursettar í kr. 15,00 hvert bindi, en
sjeu bæði keypt kr. 25,00. — 20% af andvirði bókanna
rennur til bágstadds fólks á eldsvæðinu í Rangárvalla-
sýslu. -—• 1 bókunum er skemmtilegt og fróðlegt efni:
Málverk eftir Þorstein Guðmundsson, málara frá Hlíð,
gert um 1850, kompásteikning eftir Þorstein Halldórs-
son í Skarfanesi, gerð um 1800, o.fl. — Með því að
eignast þessar sigildu bækur styðjið þið þarft verk, um
leið og þið aukið þekkingu ykkar á landinu, sem hefur
alið ykkur, „sem á brjóstum borið og blessað hefur mig“.
Bækumar fást í bókabúðum í Reykjavík, Hafnarfirði,
Akureyri, Vestmannaeyjum og víðsvegar út um land.
Ennfremur getið þið fengið þær sendar gégn póstkröfu
frá útgefanda og höfundi, Vigfúsi Kristjánssyni,
Vesturgötu 68, Reykjavik.
WeÍMsa&esrvörur
Utvegum frá Tjekkóslóvakíu, allskonar álnavörur frá:
EAST BOHEMIAN COTTON MILLS,
NATIONAL CORPORATION,
CZECHOSLOVAKLA.
Daglega berast ný sýnishorn.
Einkaumboðsmenn:
J/óL. -Jdaríóóon ds? Cdo.
Leikskóli
& fyrir 2ja til 5 ára börn verður starfræktur í sumar i
gamla Stýrimannaskólanum við Öldugötu.
Tekið verður á móti umsóknum í kennarastofu skólans
$ í dag og næstu daga kl. 3—5 e. h.
Fræðslufulltrúinn.
Tilkynning
frá Alþýðusanibandi íslands:
Vegna misskilnings og mistúlkunar á tilmælum Al-
þýðusambandsins varðandi vinnudeilu Verkamannafje-
lagsins Dagsbrúnar, sem komið hefur fram í samþykkt-
um einstakra sambandsfjelaga utan Reykjavíkur, vill
Alþýðusambandið taka þetta fram:
Stjórn Alþýðusambandsins hefur ekki farið fram á
við þessi fjelög, að þau gerðu samúðarverkfall með
Dagsbrún, heldur aðeins að þau afgreiddu ekki skip,
flutningatæki eða vörur í banni Dagsbrúnar, svo sem
venja er til og skylt er þegar sambandsfjelag á í deilu
og tryggðu jafnframt með tilkynningum til atvinnurek-
enda með þeim fresti, sem tilskilinn er í lögum, óvje-
fengjanlegt lögmæti 9 antiarra þeirra samúðaraðgerða,
sem kynnu að reynast nauðsynlegar.
Til frekari árjettingar því, sem hjer hefur verið sagt
birtum vjer hjer á eftir orðrjett áðurnefnd tilmæli Al-
þýðusambandsins dags. 4. júní s.l., en þau hljóða
þannig:
Þar sem Dagsbrún hefur boðað vinnustöðvun frá
og með 7. þ. m., ef þá hafa eigi tekist samningar,
viljmn vjer hjer með fara þess á leit við fjelagið,
að það sjái um að á fjelagssvæðinu verði ekki af-
greiddar vörur eða flutningatæki í banni Dagsbrún
ar frá áður nefndum degi, ef til vinnustöðvunar
kemur.
Ennfremur að fjelagið boði* Vinnuveitendafjelagi
Islands, Skipaútgerð ríkisins, Olíufjelögunum og
Reykjavíkurbæ nú þegar samúðarvinnustöðvun
eftir þvi sem tilefni gæfist til frá og með 14. júní
n.k., ef þá hafa eigi tekist samningar.
Þetta er ráðstöfun til að tryggja rjett til einstakra
aðgerða, ef á þyrfti að halda.
Alþýðusamband íslands.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4