Morgunblaðið - 04.07.1947, Síða 10

Morgunblaðið - 04.07.1947, Síða 10
1» MORGUHBLAÐIB Föstudagur 4. júlí 1947 Á FARTINNI cJteynltögrefftuiaffa ejkir jf^eter (^tieWFlCU 49. dagur ,,Þú skalt ekki vera að draga dár að mjer, Lemmy“, segir hann. „Jeg varð að hlýða fyr- irskipunum. Júlía Wayles vildi hafa það svona og hún átti að ráða. En hver skyldi nú eiga að ráða?“ segir hann og gef- ur mjer hornauga. „Það er ekkert út á Júlíu að setja", segi jeg. „Hugmynd hennar var góð, en hún kunni bara ekki að framkvæma hana. Það hefði alt verið í lagi' ef hún hefði ekki farið á hak við mig. En samt fór það nú svo að vegna þess komst jeg á snoð ir um alt saman og fann bóf- ana“. „Það getur vel verið", segir hann. „En jeg held nú samt að það hafi verið rangt að leyna þig nokkru“. „Heyrðu nú, Herrick11, segi jeg. „Þessi Júlía Wayles er ekki aðeins lagleg stúlka, heldur er hún líka greind. Ef alt hefði farið_eins og hún gerði ráð fyr- ir, þá hefði hún farið út úr þessu með sóma, og þú líka“. „Hvað áttu við með því?“ segir hann. „Það er deginum ljósara“, segi jeg. „Reyndu að gera þjer grein fyrir því sjálfur. Rudy kemst á snoðir um það, að stúlka, sem heitir Júlía Wayles og er í leyniþjónustunni, er á höttunum eftir honum og fje- lögum hans. Einhver telur hon um trú um að hún geti flett ofan af þeim. Þá fær hann á- gæta hugmynd. Hann afræður að ræha henni. Þá getur hann máske komist að því hvort hún veit nokkuð og að minsta kosti hefir hann ráð hennar í hendi sjer, og þykist munu geta not- að það til þess að komast að samningum, ef illa ætlar að fara“. Hann kinkar kolli til merk- is um að hann skilji þetta. „Jæja, svo ræna piltar hans annari stúlku í misgripum. Þeir ræna Karen í staðinn fyrir að ræna Júlíu. Og þeir urðu ekki feitir á'því að ná í hana. Hún hafði bókstaflega enga hug- mynd um það að Júlía væri í leynþjónustunni, og í öðru lagi þá er hún svo heimsk, að það er sárgrætilegt. Hún er bara snoppufríð, en maður gleymir því alveg þegar hún fe rað tala. En Rudy vissi ekki um mistök- in. Hann sendir hana til vinar síns Max Schribners og segist svo koma- með næstu ferð til að ráðstafa henni. Júlíu frjett- ir þetta að Karen hefir verið rænt og að hún hefir verið flutt til Englands. Þá kemur henni gott ráð í hug. Hún fer hing- að og hefir með sjer stúlku, sem er alvön tuskinu — stúlku sem er kölluð Dodo Malendas. Júlía veit það að Schribner hef ir aldrei sjeð Tamara og þess vegna sendir hún Dodo til hans sem Tamara Phelps. og Schribn er lætur fleka sig. En svo kem ur hitt bragðið hjá Júlíu, að gera leynilögreglumann út af örkinrti til þess að leita að hinni rændu Júlíu Wayles. Jeg er ekki.við, svo að Charlie Milton er fenginn til þess arna. Eftir fyrirmælum frá Júlíu er hann sendur til þín, og þú segir hon um að hann verði að byrja á því að finna Schribner. Er það ekki rjett?“ „Það er rjett“, segir hann. „En jeg skil ekki enn“. „Það kemur að því að þú skil ur“, segi jeg. „Þetta er einmitt þungamiðjan í ráðagerð Júlíu. Hún hjelt að Schribner mundi verða hræddur þegar leyrrilög- reglumanni væri sigað á hann. Hún hjelt að hann mundi gugna og ráðfæra sig við Tamara Phelps. Þannig ætlaði hún að komast að því hvar Karen væri niður komin. Og þegar hún hafði komist að því þóttist hún mundu hafa ráð bófanna í hendi sjer“. ,Nú skil jeg“, segir Herrick. „Þetta var ekki svo afleit ráða- gerð. En hún varð nú samt ekki að neinu gagni“. Þá hlæ jeg beint upp í opið geðið á honum. „Það var mjer að kenna“, segi jeg. „Það var vegna þess að jeg sagði Schribner frá því, að þessi Tamara, sem hann hjelt að væri. væri engin önnur en Dodo Malendas. Afleiðingin verður sú, að Rudy Zimman lætúr ræna Dodo og ætlar að pína hana til sagna. Og hún verðyr til þess að segja hon- um frá misgripunum, að það sje Karen en ekki Júlía, sem þeir höfðu rænt. Og hún segir honum einnig frá því að hún sje í þjónustu Júlíu Wayles, sem sje komin hingað til þess að laupa þeim lambið grá“. Herrick kinkar kolli. Það er nú að renna upp Ijós fyrir hon- um. „Jeg komst að því að Dodo hafði farið á fund Tamara“, segi jeg. „Og þá vissi jeg að þeir mundu hafa hrætt hana til þess að leysa frá skjóðunni. Svo náði jeg í Dodo og fjekk hana til að segja mjer ýmis- legt. Það besta af því, sem hún sagði, var það, að Lorella Ow- en væri Karen Wayles. En svo áskotnaðist mjer meira. Jeg fór að finna Tamara. Og hún hafði langa sögu á reiðum höndum. Húp sagðist vera orðin þreytt á Rudy og gjarna vilja koma sjer út úr þessu. Hún sagði mjer ýmislegt um samband þeirra Rudy, og það er líka góð .saga. Hún sagðist skyldu sanna mjer það að hún væri einlæg með því að láta mig vita hvar Júlía Walyes væri niður komin. Með öðrum orðum: hún var fús til þess að framselja mjer Karen Wayles. .... Þá skyldi jeg hvað þau ætluðust fyrir. Dodo hafði frætt þau um það að þau hefði rænt stúlku í misgripum og nú var um að gera að ná í þá rjettu. Támara býðst til að framselja Karen, og þá þykist hún vera laus við mig. En svo átti ekki að bíða boðanna. Það átti að ræna frú Lorella Owen eða Júlíu á með- an jeg færi að sækja Karen. Þannig ætluðu þau að leika á okkjir og ná tilgangi sínum. Skilurðu nú?“ Hann blístrar. „Þetta er ekki svo vitlaust“, segir hann. „Nei, það er langt frá því að vera vitlaust“. segi jeg. „En jeg sá við þeim. Jeg fjekk Calla ghan til að senda nokkra menn ’ heim til frú Owen, og þegar hóígr Zimmans komu þar voru þeir allir teknir fastir og þú getur gengið að þeim vísum á annari hæð þar í húsinu. Var það ekki laglega af sjer vikið?“ Hann hlær hátt. „Altaf ertu eins, Lemmy“, segir hann, „nema hvað þjer er altaf. að fará fram í brögðun- um“. „Vogun vinnur og vogun taþ ar“, segi jeg. „En til þess að orðlengja þetta ekki, þá er best að ieg segi þjer að Nikolls og piltar hans rændu Júlíu. Hún hjelt að þetta væru bófar Zimm ans. Þeir fluttu hana á vísan stað og á meðan náði jeg í Kar en. Segðu svo að ekki sje alt í lagi. Hvað, gamli vinur?“ „Sjáðu“, segir hann þá, „þarna koma vinir þínir, Tam ara og Rudy Zimman“. Lögregluþjónarnir koma með hóp af bófum og fara að troða þeim upp í bíla sína. Meðal þeirra er Tamara, og hún er einsjig drottningin af Saba úti í stórhríð. Hún er hlekkjuð við háan mann — Rudy Zimman. Jeg geng þangað. <. „Halló, Tamara“, segi jeg. „Hvað gengur nú á? Mjer þykir leitt að sjá að þjer hafið komið yður í nýja klípu. Hvað hafið þjer nú gert — stolið gulltönn- um úr barni eða brotið sótt- varnarlögin? Þjer verðið að fara varlega, annars skal jeg segja Hitler frá þessu og þá verður hann vondur“. „Óþokkinn yðar“, hvæsir hún, „Þjer — skriðkvikindi •— kynblendingur grænna högg- orma — lúsablesi — flaðrandi ístrumagi — skoffín — ■—“ Hún kallar mig ýmsum fleiri gælunöfnum, sem jeg hirði ekki að greina. „Þjer hafið fengið makleg málagjöld, Virginia“, segi jeg. „Jeg heiti ekki Virginia, kvikindið---------“ „Jeg veit það“, segi jeg. „En langamma mín hjet Virginia og þjer minnið mig á hana, þótt hún væri miklu unglegri. En nú skuluð þjer hafa yður hæga því bjer hafið nógan tíma til þess^að liggja á meltunni“. Zimman segir: „Þjer hælist um Caution. Þjer hafið nú bor ið hærra hlut, en einhvern tíma skal jeg launa yður þetta. Og þá skal jeg ekki hlífa yður. Jeg skal kreista úr yður líftór- una“. „Hvað heldurðu að þú get- ir apakötturinn þinn?“ segi jeg. „Þú færð ekkert tækifæri til þess. Fyrst og fremst fáið þjer nú fimtán ára fangelsi og að því loknu fæ jeg yður dæmd an á Alcatras til nokkurra ára. Það hefði verið betra fyrir yð- ur að fæðast aldrei heldur en lenda í klónum á mjer. Farið þið svo' í grábrókarhald bæði tvö“. Bíllinn ekur á stað. Jeg stend þarna og horfi á eftir aftur- ljósinu og er að hugsa um hvernig fangabúningurinn muni fara Rudy. Herrick segir: „Jeg vænti þín á morgun. Jeg þarf margt við þ.ig að tala“. BEST AÐ AUGLYSA I MORGÍINBLAÐINU GULLNI SPORINN Eftir Quiller Couch. 28. geta skilið gleði mína, þegar jeg í hnakktöskunni fann töluvert af gullskildingum. Skifti mín við höfuðsmanninn höfðu borið góðan ár- angur, því fyrir þá fimm til sex gullpeninga, sem jeg hafði fleygt á götuna, hafði jeg fengið næstum 30 ster- lingspund og til viðbótar þennan dásamlega hest. Jeg var í ágætis skapi, er jeg hjelt áfram ferð minni. Þó hafði jeg engan löngun til að halda áfram alla nótt- ina, enda var kalt úti, jeg var ókunnugur þarna og eng- inn maður var sjáanlegur. Jeg varð því mjög glaður, þeg- ar jeg ofan af hæð nokkurri kom auga á hús með skærum ljósum í öllum gluggum. Húsið reyndist vera veitingahús, þó ekki af betri end- anum. Jeg reið upp að því, steig af baki og barði að dyrum. Mjer til mikillar furðu var strax lokið upp, og jeg sá tvo menn standa í ganginum fyrir innan. „Jeg heyrði f hestinum, höfuðsmaður", sagði annar þeirra. „Heyrðu .... Nei, hver skollinn hefur nú komið fyrir?“ „Ef þið eruð húsráðendur hjerna“, ’svaraði jeg, „þá ætla jeg að biðja ykkur um tvo hluti — í fyrsta lagi að vera svo lítið kurteisari í tali og öðru lagi að láta mig fá gott herbergi“. „Og hvorug bónin skal þjer verða veitt“. „Það stendur þarna á skiltinu, að þetta sje opinbert veitingahús“. „Já, en hjer er alllt yfirfullt“. „Jeg er handviss um, að þú lýgur“. Mjer fjell svo illa við framkomu þessara náunga, að mjer kom til hugar að stíga á bak á nýjan leik og halda áfram ferð minni, en á sama andartaki heyrði jeg að kona var að syngja uppi á lofti. Það enginn vafi á því, að þetta var rödd stúlkunnar, sem jeg hafði hitt í Hungerford. Jeg sneri mjer því aftur að mönnunum, og brá nú öðru sinni. Sá þeirra, sem þagað hafði til þessa, teygði sig nú fram úr skugganum og starði á hest minn. Erfitt var að sjá vel framan í hann, en þó hefði jeg getað svarið, að — Má Pjetur koma út að leika sjer. ★ — Þegar maður segir hálf- ur, hvort meinar maður hálf- fullur eða hálf tómur? Flóðhestur, sem á hálfbróður. ★ — Af hverju speglar þú þig, Andrjes? —Jeg ætlaði bara að sjá hvernig jeg liti út ef jeg hefði verið tvíburi. ★ — Hvað myndirðu gera Lísa ef jeg kyssti þig? — Kalla á pabba. — Þá þori jeg það ekki. — Vertu óhræddur, pabbi er ekki heima. ★ Ritstjórinn: — Hafið þjer öðrum blöðum? Skáldið: — Nei. Ritstjórinn: — Það er ágætt. Kanske þjer hafið þá einhvern sjans. ★ — Hversvegna hefur þú sagt skilið við Geir gamla vin þinn? — Hversvegna? segir þú. — Jeg hafði heyrt, að hann hefði verið á eftir konunni minni. — Nú — og hvað svo? — Nú og svo gat hann ekki gifst henni. ★ Stytsta giftingarathöfn fór fram nýlega á giftingarkontórn um í borginni Milwaukee x B andarík j unurn. — Viltu hann? spurði fóget- inn. — Já. — Viltu hana? — Já. — Gift. Tveir dollarar. ★ Prófessor, sem rannsakaði það3 hefur komist að því, að meðal orðaforði kvenna er minna en þúsund orð. En hann bætir við: — En þær hafa að minsta kosti 30 tónbrigði a£ hverju orði. ^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.