Morgunblaðið - 05.07.1947, Page 4
Takið eftir
Nýr gislisiaður tii sumardvalar.
Tekið verður á móti gestum í Reykjanesskóla við
Isafjarðardjúp, frá 1. júlí þ. á., til lengri eða skemmri
dvalar. Einstök herbergi eða rúm. Sundlaug, heit og
köld böð og gufuböð til afnota fyrir dvalargesti. —
Sjerstök dagstofa fyrir fasta gesti. Sími á staðnum.
Mótorbátur til skemmtiferðalaga um Djúpið. Ferðir
með Djúpbátnum í sambandi við áætlunarferðir bíla
frá Reykjavík. Sæki einnig fólk að Arngerðareyri.
Komið að Reykjanesi í sumar. Reykjanes er tilval-
inn staður fyrir þá sem vilja dvelja á fögrum, róleg-
um stað í sumarleyfinu og leggja stund á íþróttir,
sund og hressandi böð. Sumarið er stutt, talið við
mig sem fyrst og tryggið yður rúm.
• HALLDÓR VIGLUNDSSON
(gistihússtjóri).
•♦♦♦♦♦♦♦«
Sx$*$><§X§><^<§*$x$x$
Agaeldavjel
♦
Ný Aga eldavjel til sölu. Verðtilboð
merkt: „Aga“ sendist afgr. biaðsins f
fyrir 31. júlí.
«>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
Tilkynning
Frá og með deginum í dag hættum vjer rekstri Bif-
reiðastöðvar Islands. Allar þær sjerleyfisleiðir, sem
verið hafa í afgreiðslu hjá oss fara í afgreiðslu til
Ferðaskrifstofu ríkisins. Jafnframt þökkum vjer
öllum voru mörgu viðskiptavinum víðsvegar á land-
inu fyrir viðskiptin síðastliðin 14 ár.
ijóL^rei^aótöÍ J)óiandó
Samkvæmt ofanrituðu annast Ferðaskrifstofa ríkis-
ins frá og með deginum í dag afgreiðslu bifreiða á
sjerleyfisleiðum er voru áður í afgreiðslu hjá Bif-
reiðastöð Islands, en sjerleyfisleiðirnar eru sem hjer
segir:
Reykjavík—Þingvellir.
Reykjavík—Hveragerði—ölvus.
Reykjavík—Hveragerði—Eyrarbakki—Stokkseyri.
Reykjavík—Vík í Mýrdal.
Reykjavík—Kirkjubæjarklaustur—Fljótshverfi.
Reykjavík—Kjalames—Kjós.
Reykjavík—Akranes—Reykholt.
Reykjavík—Dalir—Kinnarstaðir—Amgerðareyri.
Eins og áður verða stórar bifreiðar leigðar til hóp-
ferða. Smábílar eru ekki til leigu.
En á það skal bent, að meginstarf Ferðaskrifstofu
ríkisins verður nú sem fyrr:
Að vekja athygli á landinu sem ferðamannaland.
Að gefa innlendum og erlendum ferðamönnum upp-
lýsingar um allt, sem lýtur að ferðalögum hjer og
veita ferðamönnum hverskonar fyrirgreiðslu.
Að skipuleggja og efna til skemmti- og orlofsferða.
Ferðaáætlun Ferðaskrifstofunnar er hægt að fá end
urgjaldslaust á skrifstofunni og í ýmsum bókabúðum.
Á Akureyri starfar skrifstofan einnig um sumar-
tímann.
Ferðaskrifstofan hjer og á Akureyri gerir sjer far
um að útvega ferðamönnum gistingu á hótelum og í
„prívat“-húsum, ennfremur getur hún útvegað hóp-
um ódýr legupláss í skólahúsum á báðum stöðum.
Á Akureyri hefur skrifstofan aðsetur í húsinu nr. 5
við Strandgötu, símí 475, og
í Reykjavík í húsinu við Arnarhólstún, þar sem B.
S.l. var áður, sími 1540 (3 línur).
dderÍaólnjóto^a n i
nmóinó.
MOSGUNBLAÐIS
Samþykkfir Slór-
stúkuþingsins
MARGAR samþyktir voru
gerðar á Stórstúkuþinginu og
vörðuðu flestar innri störf Regl
unnar á næsta ári. En þessar
samþyktir snerta störf Regl-
unnar út á við.
Aöflutningsbann. Stórstúku-
þingið samþykkir að halda á-
fram þeim undirbúningi, sem
framkvæhidanefndin hefur haf-
ið á s.l. ári að fjársöfnun innan
og utan Reglunnar til stuðnings
við þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðflutningsbann á áfengi. — í
framhaldi af því felur Stórstúku
þingið frkvn. að standa fyrir og
hefja fjársöfnun um land alt, og
koma á samvinnU meðal velunn-
ara málsins innan hinna ýmsu
fjelagasambanda, sem og að
skipuleggja fjársöfnunina að
öðru leyti.
Áfengismál á Alþingi. Þingið
mótmælti harðlega þeirri með-
ferð er þingsályktunartillaga
um framkvæmd hjeraðabanna
hlaut á síðasta Alþingi, og krafð
ist þess að málið fái fullnaðar-
afgreiðslu á Alþingi, er það kem
ur næst saman.
Þá mótmælti það harðlega
framkomnu frv. á síðasta AI-
þingi um að leyfa veitingahús-
um að hafa áfengisveitingar og
skoraði á Alþingi að fella slíkt
frv. ef það kæmi fram aftur.
Á hinn bóginn taldi það sig
fylgjandi þál. till. um afnám á-
fengisveitinga í opinberum veisl
um og skoraði á næsta Alþingi
að samþ. þá tillögu.
Leynisala bílstjóra. Stórstúku
þingið lítur svo á að leynivín-
sala margra bifreiðarstjóra sje
orðin þjóðarböl.
Drykkjuskapur unglinga. Stór
stúkuþir.g lítur svo á að ákvæð-
um í II. kafla 13. gr. áfengis-
laganna, sem eiga að fyrir-
byggja drykkjuskap unglinga
sje slælega framfylgt, og krefst
þess að lögregla og almenningur
fylgi eftir fyrirmælum laganna
og komi fram ábyrgð á hendur
þeim, sem brjóta þau.
Lokun útsölustaöa. Stórstúku
þingið endurtekur þá kröfu sína
að áfengisútsölum á landinu, t
d. í Siglufirði, Akureyri, ísa-
firði og Vestmannaeyjum, verði
lokað fyrirvaralaust á vertíð-
inni.
Eftirlit meö lyfjabúöum. Að
gefnu tilefni beinir Stórstúku
þing þeim tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar, að nákvæmara
eftirlit sje haft með spiritus-
notkun lyf jabúða, þar sem grun
ur liggur á, að nokkuð af spirit
us sumra þeirra fari til nautna-
drykkja.
Samvinna í bindindismálum.
Stórstúkuþingið lýsir ánægju
sinni á viðleitni hinna ýmsu
kvenf jelága og annarra f jelaga
sambanda í landinu, sem bund
ist hafa samtökum til að vinna
á móti áfengisbölinu í ræðu og
riti, og heitir á þau að auka og
efla þessi samtök.
Bindindisfrœösla. Stórstúku
þing beinir þeim tilmælum til
fræðslumálastjóra, að betra eft
irlit verði haft með fræðslu um
bindindismál í öllum barnaskól-
um landsins og að hann hlutist
til um, að barnastúkur á hverj-
um stað fái inni í skólanum, sje
þess þörf og því verði við kom
ið. —
Aðrar frjettir af þinginu birt
ast í blaðinu jafnóðum.
Laugardagur 5. júlí 1947.
Orðsending frá
Verslunarráði Islands
1 sambandi við fyrirhugaða vörusýningu, sem halda
á í Hannover í Þýskalandi þ. 18. ágúst til 7. sept.
n.k., óskar verslunarráðið þess getið, að þeir íslensk-
ir innflytjendur, er kynnu að vilja sækja sýningu
þessa tilkynntu skrifstofu vorri þátttöku sína eigi
síðar en kl. 3 mánudaginn þ. 7. þ. m. Á skrifstofu
vorri eru fáanlegar þær upplýsingar um umrædda
vörusýningu, sem fyrir hendi eru.
Ennfremur óskum vjer að vekja athygli á því, að
kaupstefna verður haldin í Leipzig í Þýskalandi þ.
3.-7. sept. n.k. 1 Wien verður haldin kaupstefna á
tímabilinu frá 7.—14. sept. n.k.
'ÍJerólunarráct ^dóiandó.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Atvinna
Rösk stúlka óskast strax. Hátt kaup.
EFNALAUGIN KEMIKO h.f.
Laugaveg 53A.
Sími 2742.
->♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
Hraðsuðukatlar
Sjálfvirkar
kaffikönnur
eldhús og baðherbergis-
lampar
í loft og á veggi, 3 litir.
Vjela- og raflækjaverslunin HEKLA h.f.
Tryggvagötu 23. — Sími 1279.
Til sölu
Morris—1946
löílami&lunin
Bankastræti 7, símar: 7324 og 6063.
Atvinna
Stúlka, helst vön 'afgreiðslu, óskast í sjerverslun.
Tilboð ásamt meðmælum, ef til eru, sendist afgreiðslu |
Morgunblaðsins fyrir 8. þ. m. merkt: „1. ágúst.“
Veitingahús
óskar eftir stúlku til Ijettra eldhússtarfa. Uppl. hjá
| yfirmatsveininum kl. 3—5 í dag.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ.
AUGLÝSING EB GULLS ÍGILDI