Morgunblaðið - 05.07.1947, Qupperneq 5
[ Laugardagur 5. júlí 1947.
MOBGUIfELADID
Maðurinn, sem velur
norska landsliðið
AÐALRITARI norska knatt-
Bpyrnusambandsins heitir Ás-
björn Halvorsen, og er hann
vafalaust önnum'kafnasti mað-
ur Noregs. Enda er látið svo
um mælt, að betra sje að ná
tali af Hákoni konungi en Ás-
birni Halvorsen. Hann er sá
maður, er veit mest
allra um norska knattspyrnu
og hefir alla þræði þar til í
höndum sjer. Hann er einnig
aðalmaðurinn í nefnd þeirri, er
velur landliðsleikmenn og ferð
ast þar af leiðandi um allan
Noreg í leit að nýjum mönnum.
Íþróttalíf Noregs hefir tapað
sex árum. Hinir gömlu eru of
gamlir og þeir ungu of ungir,
•— en áreiðanlega finnast nýir
menn, sem nota má í landslið-
ið. Þegar jeg kom til Oslo 27.
maí, þá var Ásbjörn í Bergen,.
og er jeg kom til Bergen, var
hann í Stavanger og þegar jeg
kom þangað, var hann farinn
aftur til Oslo, og því náði jeg
ekki sambandi við hann fyrr en
í gær.
Gamall landsliðsmaður.
Fyrst ætla jeg að segja ykk-
ur hver Ásbjörn Halvorsen er.
Hann er fæddur í Sarpsborg í
Ostfold. Var ,,uppgötvaður“ og
komst í landsliðið stuttu eftir
styrjöldina 1914—1918. Hann
Ijek þá miðframvörð í knatt-
spyrnuliði Sarpsborgar, og allir
tóku eftir hinum ljóshærða
ækumanni. Fjelag hans varð
Noregsmeistari eftir auðunninn
sigur yfir Brann frá Bergen,
og var enginn í vafa um, að .
Ásbjörn átti þar stærstan hlut
að máli. Því næst kom hann í
landsliðið, og ljek meðal ann-
ars í hinni eftirminnilegu Ol-
ympsku keppni í Antwerpen
1920, þegar Noregur vann Eng-
land með 3:1, eftir að enginn
hafði látið sjer detta í hug, að
Noregur hefði nokkra sigur-
von. Hann var hinn sjálfkjörni
miðframvörður landsliðsins.
Árið 1922 fór hann til Ham-
borgar til þess að læra skipa-
miðlun. Þar gerðist hann með-
limur í íþróttafjelagi í
Hamborg. Tvisvar sinnum varð
hann þýskur meistari og er eng
um blöðum um það að fletta, að
það var hann, er átti mestan
þátt í sigrinum.
Ritari knattspyrnusambands-
ins.
Nokkrum árum fyrir síðari
heimsstyrjöldina kom hann aft
ur heim til Noregs og var þá
ráðinn aðalritari norska knatt
spyrnusambandsins, og þar er
hann nú í dag, og stjórnar sam
bandinu sem er afar umfangs-
mikið.
Meðan á stríðinu stóð, frjetti
S'amtal vi& ^Slóljöm ^Álaib
uoráeii
Undirbúningur
Olympínleiknnna
Eftir Victor Rae
Ásbjörn Halvorsen.
jeg um örlög hans á stríðstím-
unum. Hann var lifandi dæmi
fyrir íþróttaæsku Noregs. Árið
1940 var hann tekinn fastur, af
því að skjalasafn knattspyrnu
sambandins hvarf. En Ásbjörn
var alsaklaus, og var því látinn
laus aftur. Hann var þó langt
frá því að vera saklaus, því
hann hafði beiniínis tekið
skjalasafnið og geymt það, og
eftir styrjöldina var það aftur
á sínum stað.
í MöIIersgata 19, Grini og
Þýskalandi.
Því næst varð hann ritstjóri
leynilegs blaðs, en dag nokkurn
var ljóstrað upp um hann, og
hann handtekinn. Þriggja daga
pyntingar í Möllergata 19: Átta
mánuðir í einmenningsklefa í
Grini og Þýskala.ndi, — en gkk
ei't fjekk á hann. Svo sat hann
tvö og hálft ár í fangabúðunum
í Natzweiler í Elsass, þar sem
hann sýktist af taugaveiki, og
komst með hjálp sænska Rauða
Krossins til Svíþjóðar 8 .apríl
1945.
í mörg horn að líía.
í dag átti jeg tal við Hal-
vorsen um landskeppnina. —
Fyrst sagði jeg honum frá því,
að það hefði vakið mjög mikla
gremju, er það spurðist, að
norska landsliðið sæi sjer ekki
fært að leika í Reykjavík 1 ár.
En aftur á móti hefði gleðin
verið þess meiri, er öruggt var
um að úr þessu gæti orðið.
— Já, en þú veist áreiðan-
lega að við höfum við marga
örðugleika að etja eftir stríðið,
og takmörk eru fyrir því hvað
„áhugamenn“ geta lagt fram á
skömmum tíma. Við höfum nú
í lengri tíma haft samhönd við
Finnland, Svíþjóð og Dan-
mörku, og svo komu Finnar
með íþróttahátíð sína og við
vorum að sjálfsögðu skyldugir
til þess að taka þátt í henni.
Keppnina þar, — ein eða fleiri
— álítum við serri aukaleiki.
Við eigum að leika á móti Finn-
landi í Helsinki 26. júní og ef
við vinnum þá keppni, eigum
við að mæta sigurvegaranum
úr keppninni milli Danmerkur
og Svíþjóðar þann 28. júní. —
Því næst er síðasta keppnin um
finnska björninn. I henni mæt-
um við Finnlandi aftur 7. sept.,
við Danmörku leikum við f Oslo
21. sept. og við Svíþjóð 5. okt.
í Stokkhólmi. Þetta er sem sagt
síðasta umferðin í keppninni
milli þessara fjögurra Norður-
landa, og er röðin nú þannig:
Svíþjóð hefir 12 stig, Danmörk
11 og Noregur 11, en Finnland
hefir aðeins 2 stig.
Já, og svo eiga strákarnir okk
ar að vera í æfingaheimilinu í
Larvík frá 12,—20. júlí og fara
þaðan beina leið til Islands.
Kveðja til Islands.
Þú getur skilað kveðju til Is-
lands, og sagt að við hlökkum
mikið til fararinnar — ekki
minnst jeg — og það gleður
okkur að úr henni gat orðið. —
Finnska íþróttahátíðin ruglaði
okkur svo lítið í ríminu — og
því verður ekki neitað, að
norski sendiherrann Herr And-
ersen Rysst kom vitinu fyrir
okkur.
Að líkindum verða 20 leik-
menn í förinni, formaður
norska knattspyrnusambands-
ins Reidar Dahl og einhver ann
ar stjórnarmeðlimur verður , skjóIsÆðingur hins
einnig með. - Já, og svo jeg - finnska Þolhlaupara
eins og jeg sagði áðan.
Hinn kunni breski knattspyrnudómari Victor Rae, sem
hjer er flestum íþróttamönnum að góðu kunnur, hefur
tekiö aö sjer aö senda Morgunblaðinu viö og viö íþrótta-
frjettir frá London og veröa þær að sjálfsögöu aö ein-
hverju leyti um undirbúning Olympíuleikanna, sem haldn-
ir veröa í London á nœsta ári og íþróttalífiö snýst nú um.
London í júní. I Sjerstök Ijósmyndaáhöld, sem
OLYMPÍU-HITINN er farinn nú eru notuð við hundaveðhlaup
að gera vart við sig og breiðist
nú óðfluga um allar Bretlands-
eyjar. Keppni og æfingar fara
fram um allt til að leita að
bestu íþróttamönnunum á leik-
ina næsta sumar. í júlí og
ágúst verða flestir olympíuþátt-
takendur valdir. Bretar gera ráð
fyrir að senda 348 þátttakendur.
★
27 þjóðir hafa þegar til-
kynnt þátttöku í Lundúnaleik-
unum næsta ár. Síðustu þjóð-
irnar, sem tilkynnt hafa þátt-
töku eru Tyrkland, Svissland,
Spánn, Pólland, Falestína, Nor-
egur, Nýja-Sjáland, Mexiko,
Frakkland, Finnland, Ungverja
land, Egiptaland, Danmörk,
Cuba og Ástralía.
Bretar munu taka þátt í öll-
um greinum. Frakkar senda 308
þáttakendur, Svissland 270 og
Noregur rúmlega 150.
★
Viljo Heino, finnski þolhlaup-
arinn, sem á öll heimsmet á vega
lengdunum 4—9 mílur, tekur
og hestaveðhlaup, verða notuð
á Wembley á næsta ári. Ljós-
myndatæki þessi hafa gefist svo
vel og eru svo þaulreynd, að
ekki er nein hætta á vafa um
hver sje sigurvegarinn.
★
Alþjóðleg íþróttahátíð verður
haldin í Wembley og hefst laug-
ardaginn 19. júlí og keppa þar
breskir lyftingameistarar við
franska og norska lyftinga-
menn. Breskir lyftingameistar-
ar hafa verið í Frakklandi og
eru Bretar nú fimmtu í röðinni
í alþjóðakeppni í þessari íþrótta
grein.
Hverskonar náungar eru þess
ir lyftingamenn? Þeir eru ekki
stórir og vöðvainiklir risar, eins
og almennt er haldið. — Þeir
þurfa að vera sterkir, snarpir
og liðugir. En fyrst og fremst
verða þeir að vera nákvæmir.
Það ríkja mismunandi skoðanir
um hvernig best sje að æfa
þessa íþróttagrein og hverjir
sjeu hæfastir til hennar.
í Bretlandi eru 10,000 lyft-
þátt í stóru frjálsíþróttamóti, ingamenn, 1,000,000 í Rúss-
Bestu menn, sem völ er á.
— Hvernig verður norska
landsliðið skipað?
— Það verður skipað þeim
bestu mönnum sem völ er á, en
eins og þú veist, eru margir af
hinum gömlu, sem hafa lagt
skóna á hilluna, — eru hættir
að spila, og við reynum því að
finna nýja menrf. Miðframvörð
inn höfum við þegar fundið í
Sandfjord, hann heitir Th.
Svendsen, og Torgersen úr
Víking í Savanger, höfum við
sett í markið. Það hefir verið
erfitt að finna nothæfan mið-
framherja. Alf Svendsrud frá
Mjöndalen getur þar komið til
greina.
Og svo endar Ásbjörn með
því að segja, að hann skuli láta
mig strax vita þegar liðið verð
ur fyllskipað.
Oslo, 15. júní 1947.
sem haldið verður 2, ágúst i
Ibrox í Skotlandi. Hann er
kunna
Paavo
Nurmi, sem einnig tók þátt í
Ibrox-móti fyrir stríð. Þá getur
komið til mála, að amerískir
frjálsíþróttamenn komi tii
London í júlímánuði og er verið
að reyna að fá þá til að koma á
Ibrox-mótið, sem verður eitt
merkasta frjálsíþróttamót í
Skotlandi á þessu ári.
★
E. McDonald Baily jafnaði
breska metið á 100 yards hlaupi
með tímanum 9,6 sek., en Banda
ríkjamaðurinn Ed. Conwell hef
ur hlaupið vegalengdina á sama
tíma. Bretar gera sjer miklar
vonir um þenna spretthlaupara.
Hann er í hinum kunna Poly-
technic klúbb, sem hefur átt svo
marga góða íþróttamenn.
★
Olympiska kveðjan verður að
þessu sinni snarpur snúningur
með höfðinu til hægri, líkt og
kveðjan, sem bresku þáttakend-
urnir notuðu á Olympíuleikun-
,um í Berlín 1936.
landi, menn úr öllum greinum
atvinnulífsins, frá læknum í
námamenn. Tveggja vikna æf-
ingar í lyftingum fara fram a
Heyling-eyju (Portsmouth) í
ágúst til að finna hæfustu kepp-
endur fyrir Breta á Olympíu-
leikina.
Á
Alf Knight heitir sá af bresk-
um lyftingamönnum, sem líkleg
astur er til sigurs í lokakeppn-
inni um meistara í þeirri grein
í Bretlandi.
★
Harry Nightingale, einn af
bestu sundmönnum Ástralíu,
hefur verið ráðinn til að æfa
sundmenn frá Ceylon undir
Olympíuleikana.
10:0.
London: — Bretar sigruðu nýlega
Portúgala í knattspyrnu með 10
mörkum gegn engu.
imiiiiimiiiiiiiiigfttiKinittmmifiiuiiiBtuiiiiiiiiMiiiiini
| Wla$ná& Vk oriaciui
hæstarjettarlögmaður
~«iinnii’,.iMitit((imii((iiiiii((»ftiiiiiiiimeitiiiuuitniui|i